Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1996, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1996, Blaðsíða 14
14 íþróttir EVRÓPUKEPPHI Dregið i undankeppni EM ’98 í Vínarborg í gær: Forriölar: A-riðill: Tyrkland, Eistland, Slóvakia, Lettland. B-riðill: Hvíta-Rússland, Makedónía, Lúxemborg. C-riðill: ísrael, Grikkland, Kýpur. D-riðill: Pólland, Austurríki, Holland, Bosnía. E-riðilI: Sviss, Belgía, Finn- land, Georgía. Efsta liðið í hverjum riðli kemst í sjálfa undankeppnina. Undankeppnin: 1. riðill: Króatía, Portúgal, Rúmenía og sigurlið B-riðiis. 2. riðill: Júgóslavía, ísland, Litháen og sigurlið E-riðils. 3. riðill: Frakkland, Tékk- land, Slóvenía og sigurlið C-rið- ils. 4. riðill: Spánn, Noregur, Þýskaland og sigurlið A-riðils. 5. riðill: Svíþjóð, Ungverja- land, Danmörk og sigurlið D-rið- ils. Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast í lokakeppnina á Ítalíu ásamt gestgjöfunum, ítölum, og Evrópumeisturunum, Rússum. Hagstætt að Sviss sé í forkeppninni Þorbjörn Jensson landsliðs- þjálfari var ánægður með að Sviss skyldi þurfa að fara í for- keppni EM sem stendur yfir frá því í janúarlok og fram í apríl á næsta ári. Á sama tíma býr ís- lenska landsliðiö sig undir loka- keppni HM og auðvelt ætti að vera að fá Júlíus Jónasson laus- an. Hann leikur með Suhr í Sviss en þar þarf að gera hlé á deildakeppninni vegna forkeppn- innar, einmitt á þeim tímum sem Þorbjörn áætlar til æfmga og leikja fyrir landsliðið. -VS Bierhoff úr leik Oliver Bierhoff, sem tryggði Þjóðverjum sigurinn í Evrópu- keppni landsliða í sumar, verður frá keppni í átta vikur vegna meiðsla á ökkla. Bierhoff leikur með Udinese á Ítalíu. Þetta er einnig mikið áfall fyrir þýska landsliöið. Leiörétting: Ekki baksíðu- frétt um Guðjón Vegna tilvísunar á forsíðu DV í gær um brottrekstur Guðjóns Þórðarsonar, þjálfara ÍA, skal tekið fram að ekki var frétt um Guðjón á baksíðunni. Fyrir mis- tök var vísað tii baksíðufréttar sem engin var. Aöeins var fjallað um brottreksturinn á bls. 23. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Ikvöld Handbolti Nissandeildin: Stjaman-HK................20.00 Haukar-Fram ..............20.00 FH-Afturelding............20.00 Selfoss-Grótta............20.00 ÍBV-KA....................20.00 1. deild kvenna: FH-KR ....................18.15 ÍBA-Fylkir ...............20.00 2. deild karla: Keflavík-HM...............20.00 Handbolti Bikarkeppni karla: Glói, Siglufiröi-Selfoss..19.00 Valur-Skallagrímur........20.00 Dregið í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik: Hefði getað verið verra - ísland mætir Júgóslavíu og Litháen og líklega Sviss ísland leikur í riðli með Júgóslavíu, Litháen og væntanlega Sviss í undankeppni næsta Evrópu- móts landsliða í handknattleik. Leikið er frá september fram í nóvemberlok á næsta ári og tvö efstu liðin komast í úrslitakeppnina sem fram fer á Ítalíu vorið 1998. Sviss er sigurstranglegast i sínum forriðli en þarf þar að mæta Finn- landi, Belgíu og Georgíu í leikjum um að komast í sjálfa riðlakeppn- ina. Ljóst er að útkoman gat orðið verri fyrir ísland, sem greinilega nýtur þess að hafa unnið sinn riðil í undankeppni HM án þess að tapa leik. Það þýðir að einungis ein af toppþjóðunum, Júgóslavía, er i riðl- inum. Litháen er lægra skrifað en má ekki vanmeta og allir þekkja Svisslendinga sem eru alltaf erfiðir mótherjar. Möguleikar íslands verða þó að teljast talsverðir. Júgóslavía er sig- urstrangleg en síðan má búast við baráttu íslands, Litháens og Sviss um annað sætið. Stefnum aö sjálfsögöu á lokakeppnina Þorbjöm Jensson landsliðsþjálf- ari sagði við DV í gær að hann væri nokkuð ánægður með þennan drátt. „Þetta hefði getað verið verra og að sjálfsögðu stefnum við að því að ná öðm af tveimur efstu sætun- um og komast í lokakeppnina á ítal- íu. En fyrsta málið á dagskrá er heimsmeistarakeppnin í Japan og ég ætla ekki að hugsa of mikið um þetta fyrr en að henni lokinni," sagði Þorbjöm. Júgóslavar orönir firnasterkir á ný Júgóslavar, ein mesta hcmdknatt- leiksþjóð sögunnar, hafa skotist hratt upp á stjömuhimininn á ný eftir klofning ríkisins og einangmn- ina í kjölfar stríðsins. Þó Króatía, með alla sína snjöllu handknatt- leiksmenn, hafi skilið sig frá ríkja- sambandinu, ásamt fleirum, er Júgóslavía í dag með mjög öflugt lið sem stóð sig vel í úrslitum EM í vor og leikur á HM í Japan. „Ég er búinn að sjá nokkra leiki með þeim, þeir em gífurlega öflugir og eiga að vera með sterkasta liðið í riðlinum," sagði Þorbjörn. Litháen á uppleiö Litháen hefur aðeins tekið þátt í alþjóðlegum handbolta í fjögur ár, eftir að hafa klofið sig frá Sovétríkj- unum sálugu á sínum tíma. Litháar em komnir með annan fótinn til Japans eftir góðan árangur í und- ankeppni HMog verða ömgglega erfiðir andstæðingar. „Litháar hafa sótt sig mjög og þjátfari þeirra, Novinski, varð Ólympíumeistari með Sovétmönn- um 1988 þannig að það er rússnesk- ur bragur á liðinu. Ég mætti liði frá Litháen með Val í Evrópukeppninni á sínum tíma, við unnum reyndar báða leikina hér heima en þeir vom þokkalegir og hafa bætt sig síðan,“ sagði Þorbjöm. Sviss er meö hörkulið Sviss ætti að komast áfram úr forriðlinum, enda er um hreint slys að ræða hjá liðinu að hafa lent þar eftir slæma útkomu i undankeppni HM. Svisslendingar hafa um árabil verið framarlega í handboltanum og íslendingum hefur yfirleitt gengið brösuglega meö þá. „Það kom mjög á óvart að Sviss- lendingar kæmust ekki til Japans eftir að hafa verið í frekar léttum riðli. Þetta var ótrúlega slakt hjá þeim. Þeir eru með hörkulið og marga snjalla einstaklinga, eins og Marc Baumgartner. Annars vil ég ekki útiloka Belgana sem hafa sótt sig mjög og gætu slegið Sviss út,“ sagði Þorbjöm. ísland leikur fyrst við Sviss (eða Belgíu) í lok september 1997, fyrst heima og síðan úti. Síðan við Litháen í lok október, fyrst úti og síðan heima, og loks við Júgóslavíu í lok nóvember, fyrst heima og síðan úti. -VS 1. deild kvenna í handknattleik: Öruggur Stjörnusigur Tveir leikir voru háðir í 1. deild kvenna í handknattleik í gærkvöldi. í Garðabæ áttust við Stjaman og Víkingur og í Framhúsinu tóku Framstúlkur á móti ÍBV. Stjaman sigraði Víking ömgg- lega, 26-18, í hálfleik var staðan, 16-7. Stjarnan lagði grunninn að sigri sínum með góðum leik í fyrri hálfleik og hafði yfirburðastöðu í leikhléi. Sigrún Másdóttir átti mjög góðan leik fyrir Stjömuna og skoraði níu mörk. Þær Guöný Gunnsteinsdóttir og Ragnheiður Stephensen skoruðu fimm mörk hvor. Guðmunda Kristjánsdóttir skor- aði sjö mörk fyrir Víking og þær Kristín Guðmundsdóttir og Heiða Erlingsdóttir þrjú hvor. Framsigur gegn ÍBV Fram sigraöi ÍBV, 25-21, en í hálf- leik var staðan 11-8 fyrir Fram. Guðríður Guðjónsdóttir var markahæst í Fram með fimm mörk og Hekla Daðadóttir skoraði fjögur mörk. Sara Guðjónsdóttir skoraði níu mörk fyrir ÍBV og Ingibjörg Jónsdóttir átta. -JKS Ragnheiður Stephensen skoraöi 5 mörk fyrir Stjörnuna í gærkvöldi. „Gulldrengirnir" komu saman Fyrir skömmu komu „gulldrengirnir," frjálsíþróttamennirnir sem gerðu garöinn frægan í upphafi sjötta áratugarins, saman í tilefni þess að Ómar Ragnarsson fjallar ftarlega um þá í nýrri bók sinni, Mannlífsstiklur, sem Fróði gefur út. Hér eru þeir sem mest komu viö sögu, fyrir utan Gunnar Huseby og Torfa Bryngeirsson sem eru látnir. Frá vinstri: Hörður Haraldsson, Guðmundur Lárusson, Magnús Jónsson, Asmundur Bjarnason, höfundurinn Ómar Ragnars- son, Örn Clausen, Haukur Clausen, Finnbjörn Þorvaldsson og loks Guðmundur Torfason, sonur Torfa heitins. DV-mynd Hilmar MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1996 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1996 67 íþróttir Gunnar með til boð f rá Roda - stóð sig vel í reynsluleik með aðalliðinu Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari segist vera ánægður með dráttinn f Evrópukeppninni og að sjáifsögöu verði stefnan aö ná ööru af tveimur efstu sætunum í riölinum og komast þannig í úrslitakeppnina á Ítalíu 1998. íslenskir golfmenn: 54 kylfingar farið holu í höggi á árinu - verðlaun verða veitt síðar í mánuðinum Gunnar Einarsson, knattspyrnu- maðurinn efhilegi úr Val, hefur feng- ið atvinnutilboð frá Roda, einu af efstu liðum hollensku úrvalsdeildar- innar. Eins og áður hefur komið fram í DV hefur Gunnar farið tvívegis til hol- lenska félagsins á undanförnum vik- um og er nú kominn þangað í þriðja sinn. Eftir tímabilið hér heima í haust fór Gunnar til æflnga hjá Roda á veg- um Valsmanna. Þar stóð hann sig svo vel að Hollendingamir vildu fá hann aftur til sín til frekari reynslu. Fyrir skömmu dvaldi Gunnar síðan hjá Roda í tíu daga. Hann lék einn leik með aðalliði félagsins, gegn belgíska 1. deildar liðinu Lommel í bikar- keppni hollenskra og belgiskra liða. Gunnar lék síðari hálfleikinn sem hægri bakvörður og stóð sig það vel að honum var boðinn samningur í kjölfarið. Félögin eiga eftir aö ræöa sín mál Roda er sem stendur í 8. sæti úr- valsdeildarinnar en á leik til góða og liðið virðist líklegt til að berjast um Evrópusæti í vetur. Að sögn Þorláks Árnasonar, fram- kvæmdastjóra Vals, eiga félögin eftir að ræða sín á milli en Gunnar er samningsbundinn Val. Það verður ekki fyrr en síðar í þessum mánuði þar sem formaður knattspymudeildar Vals er erlendis. Hefur vakiö áhuga fleiri eriendra félaga Gunnar er tvítugur og stóð sig mjög vel í vöm Valsmanna í sumar og lék einnig með 21 árs landsliðinu. Hann hefur áður dvalið hjá erlend- um félögum, Aberdeen í Skotlandi og Hamburger SV í Þýskalandi, og vakið áhuga þar í bæði skiptin. -vs Á golfvertíðinni í ár hafa 54 íslenskir kylfingar náð því að fara holu í höggi. Þetta kemur fram þegar farið er yfir þau gögn sem borist hafa skrifstofu Golfsam- bands íslands á þessu ári. Þeir sem ná þessu draumahöggi allra kylfinga fá af- hent viðurkenningarskjal í árslok. Að þessu sinni fer afhendingin fram laugar- daginn 28. desember á Kaffi Reykjavík. Einherjaklúbburinn, en svo nefnist fé- lagsskapur þeirra sem farið hafa holu í höggi, verður þrítugur á næsta ári og fer klúbburinn að verða einn fjölmennasti hópur innan golfiþróttarinnar. Undan- farin ár hefur fjölgað í honum um 50-60 manns á hverju ári. Á listanum hér em nöfnin á þeim sem eiga að fá viðurkenningarskjal frá Ein- herjaklúbbnum í ár. Það er að segja þau nöfn sem hafa verið tilkynnt til Golfsam- bands íslands. Ragnar Ólafsson, GR, Guðjón E. Jóns- son, GK, Pálmi Hinriksson, GK, Örn Ævar Hjartarson, GS, Sigríður Guð- brandsdóttir, GS, Baldvin Jóhannsson, GK, Ólafur McUteinsson, GK, Gísli Jón- asson, GV, Reimar Charlesson, GR, Sveinbjörn Halldórsson, GR, Helgi Bene- diktsson, GK, Viktor Sturlaugsson, GR, Sigurður Albertsson, GS, Ólafur Dani- valsson, GK, Ólafur Frostason, GK, Birg- ir Karlsson, GGL, Kjartan Ólafsson, GKJ, Pétur Valbergsson, GK, Magnús St. Einarsson, GOB, Óskar Guðmundsson, NK, Hilmar Sigurðsson, GKJ, Amar Ást- þórsson, GS, Grímur Þórisson, GKJ, Jónas Heiðar Baldursson, GR, Hafliði Ingason, GV, Eyjólfur Vilbergsson, GG, Sveinbjörn H. Sveinbjömsson, GK, Bald- vin Jóhannsson, GK, Vilhjálmur J. Guð- mundsson, GL, Guðni Þór Magnússon, GE, Haukur Ingi Hjaltalín, GK, Eiríkur Stefánsson, Bjöm V. Skúlason, GS, ísleif- ur Leifsson, GO, Bima Ólafsdóttir, GOF, Guðmundur Pálsson, GO, Sigurjón Frið- jónsson, GO, Gísli Jóhannsson, NK, Þórður Águstsson, GO, Valur B. Sigurðs- son, GR, Hilmar M. Bjarnason, María Magnúsdóttir, GR, Einar Hermannsson, KGK, Óli Viðar Thorsteinson, GR, Eyjólfur Bergþórsson, GR, Helgi Gunn- laugsson, GO, Logi Guðbrandsson, GO, Helgi Svavarsson, GO, Sigfús Thoraren- sen, NK, Sigurður Gunnarsson, GJÓ, Már Hinriksson, GR, Eiríkur Smith, GK. -JKS Ríkharður Daðason: „Leist mjog vel a allar aðstæður hjá Kalamata" - á von á tilboði frá félaginu Rikharður Daðason, landsliðsmaður í knattspymu, úr KR, dvaldi um vikutíma hjá gríska 1. deildar liðinu Kalamata en félagið bauð Ríkharði þangað til viðræðna. Rikharði líkaði dvölin i Grikklandi og leist vel á allar aðstæður. Svo gæti farið að Kalamata gerði honum tilboð en Bo Petterson, þjálfari liðsins, hefur mikinn hug á því að krækja í hinn marksækna íslenska leikmann. Kalamata er sem stendur í 7. sætinu í 1. deild en um helgina vann liðið sannfærandi útisigur á Iraklis, 2-5. „Mér leist vel á allar aðstæður og áhuginn á knattspymu í borginni er gifurlegur. Það stendur öflugur maður á bak við liðiö og aöbúnaður er góður. Liðið er léttleikandi og í því eru margir góöir leikmenn. í síðustu viku geröi Svíinn Joakim Karlsson samning við liðið en þjálfari þess kemur einnig frá Svíþjóð. Mér finnst sjálfsagt aö skoða þetta dæmi betur en það skýrist á næstu dögum hvert framhaldið verður. Ég reikna fastlega með að fá tilboð frá félaginu en ég er samningsbundmn KR svo liðin þyrftu að komast að samkomulagi um kaupverðiö," sagði Ríkharður Daðason í samtali við DV í gærkvöldi, þá nýkominn til Kaupmannahafiiar frá Grikklandi. Ríkhai-öur fer í dag til viðræðna við sænska liðið Malmö. -JKS Ferdinand á batavegi Les Ferdinand hjá Newcastle, sem meiddist á dögunum, vonast eftir að verða orðinn leikhæfur fyrir leikinn gegn Nottingham Forest á mánudaginn kemur. Óttast var að Ferdinand yrði frá í sex vikur en meiðslin voru ekki eins alvarleg og haldið var í fyrstu. Hreinsun hjá Hammers Harry Redknapp, fram- kvæmdastjóri West Ham, er ekki ánægður með frammistöðu Rúmenans Florin Radiciou til þessa. Redknapp segir að ef ekki verði breyting á verði Radiciou seldur en hann kom til félagsins í sumar fyrir 280 milljónir. Paulo Futre kann einnig að vera á för- um frá West Ham. Aberdeen í bann Skoska úrvalsdeildarliðið Aberdeen, sem Haraldur Ingólfs- son leikur með, gæti átt yfir höfði sér heimaleikjabann. Eftir leik liðsins gegn Rangers á laug- ardaginn var hentu áhangendur Aberdeen steinum í rútu leik- manna Rangers þegar hún var að aka frá leikvangnum. Leita að þjálfara Þrir menn eru nú orðaðir við landsliðsþjálfarastarfið á ítaliu. Þeir eru Dino Zoff, stjómarfor- maður Lazio, Cesar Maldini, þjálfari 21 árs liðsins, og Nevio Scala fyrrum þjálfari Parma. Dino Zoff er talinn helst koma til greina ef marka má ítalska fjöl- miðla. Batty fær þrjá leiki Aganefnd enska knattspymu- sambandsins hefur dæmt David Batty hjá Newcastle í þriggja leikja bann fyrir brotið á Mark Hughes í leiknum við Chelsea á dögunum. Þetta þýðir meðal annars að hann missir af leikn- um við Liverpool sem verður á Þorláksmessu. Robson á eftir Nadal Brian Robson, framkvæmda- stjóri Middlesbrough, sagði í gær að hann hefði boðið 300 milljónir í spænska vamar- manninn Nadal hjá Barcelona. Robson segist bjartsýnn á að Nadal komi til liösins en hlut- imir verða að ganga hratt fyrir sig því skammur tími er til stefnu. Nefnilega sá að spænski markaðurinn lokast á laugardag- inn kemur. -JKS Rúnar áfram hjá Orgryte Nú er orðið ljóst að Rúnar Kristinsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, verður áfram í herbúðum Örgryte en um tíma var útlit fyrir að hann gengi til liðs við AIK í Stokkhólmi. Ekkert verður að því en haft er eftir Rúnari í einu sænsku dagblaðanna í gær að honum hafi ekki fundist tilboðið nógu freistandi til að flytjast með fjölskylduna til Stokkhólms. -JKS/EH Wuppertal komið áfram Þýska liðið Wuppertal með þá Dag Sigurðsson og Ólaf Stefánsson innanborðs er komið áfram í bik- arkeppninni eftir góðan sigur á 1. deildarliðinu Fredenbeck í 32 liða úrslitum í gærkvöldi. Wuppertal sigraði, 27-25, á heimavelli og skomðu Dagur og Ólafur fimm mörk hvor í leiknum. Liðin skipt- ust á að hafa forystu í leiknum en Wuppertal knúði ffarn sigur undir lokin. Héðinn Gilsson lék ekki með Fredenbeck vegna meiðsla í kálfa. -JKS Jeff Strasser í franska liðinu Metz sækir hér aö Alan Shearer hjá Newcastle í leik liðanna á St Jame’s Park í gærkvöldi. Reuter 16 liða úrslit í UEFA-bikarnum: Bröndby fór á kostum í Karlsruhe - Asprilla skoraði bæði mörk Newcastle Ein óvæntustu úrslit í 16 liða úr- slitum UEFA-keppninnar í knatt- spymu í gærkvöldi var stórsigur danska liðsins Bröndby á Karlsru- her í Þýskalandi. Útlitið var ekki of bjart hjá Bröndby fyrir leikinn því þýska liðið vann fyrri leikinn í Kaupmannahöfn, 1-3. Bröndby lék skynsamlega á meðan ekki stóð steinn yffr steini hjá Karlsruher. Tenerife gerði góða ferð til Rotter- dam og sló Feyenoord út úr keppn- inni. Hollenska liöið stóð vel að vígi fyrir leikinn eftir markalaust jafn- tefli á Kanaríeyjum. Newcastle var betri aðilinn gegn Metz sem lagði áherslu á vömina. Fyrra markið frá Faustino Asprilla kom ekki fyrr en tíu mínútum fyrir leikslok og það síðara tveimur min- útum síðar. Hann var undir lok leiksins borinn meiddur af leikvelli. Youri Djorkaeff og Paul Ince gerðu mörk Inter gegn Boavista og hallast veðbankar að sigri Inter í keppninni. Newcastle kemur næst hjá veðmöngurum og Monaco í þriðja sæti. -JKS 7 Shaquille O’Neal Los Angeles Lakers Fæddur: 6. mars 1972. Hæð: 2,16 m. Þyngd: 136 kg. Staða: Miðherji. Númer á treyju: 34. NBA-leikir: 331 með Orlando, þar af 36 í úrslitakeppni og 18 með Lakers. Meðalskor í NBA: 27,1 stig. Flest stig í leik: 53. Flest fráköst: 28. Flestar stoðsendingar: 8. Ferill: Valinn fyrstur í nýliða- valinu 1992 af Orlando. Gekk til liðs við Lakers i júlí 1996. Ýmislegt: Hefur leikið alla fjóra stjömuleikina síðan hann kom í NBA-deildina. Varð heimsmeistari með Bandaríkjunum 1994 og Ólymp- íumeistari í Atlanta 1996. Lék með Orlando til úrslita um NBA-titilinn 1995. Valinn nýliði ársins eftir tíma- bilið 1992-1993. Stigahæsti leikmaður NBA 1994-1995 með 29,3 stig að meðal- tali í leik. Varði 15 skot í leik gegn New Jersey 1993 sem er það næst- besta í sögu NBA-deildarinnar. Fyrsti leikmaðurinn í sögu NBA sem er valinn leikmaður vikunnar eftir fyrstu viku sína í deildinni. Hefur gefið út tvær plötur með rapptónlist, leikið í tveimur kvikmyndum og tveir tölvuleikir em kenndir við hann. ffEFA>BIKMEHN 16 liða úrslit - síðari leikir samanlög úrslit feitletruð Karlsrhuer-Bröndby .. . . 0-5 (3-6) Schalke-Club Briigge . . . 2-0 (3-2) Besiktas-Valencia . 2-2 (3-5) Anderlecht-Helsingborg . 1-0 (1-0) Feyenoord-Tenerife .... . 2-4 (2-1) Hamburg-Monaco . 0-2 (0-5) Boavista-Inter . 0-2 (1-7) Newcastle-Metz . 2-0 ( 3-1) Leicester sigraði Leicester vann óvæntan sigur, 0-2, gegn Middlesbrough á úti- velli í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Steve Claridge og Muzzey Izzet skoruöu mörk Leicester. Middlesbrough er án sigurs í 10 leikjum og útlitið því ekki of gott á þeim bæ nú um stundir. Úrslit í 1. deild: Birmingham-Bamsley........0-0 Reading-Tranmere..........2-0 Sheff. Utd-Huddersfield...3-1 -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.