Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1996, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1996, Blaðsíða 7
I>V FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 1996 IIEIKHUS Þjofllejkhúsið Villiöndin (stóra sviðið) föstudaginn 27. desember kl. 20.00 (uppselt) laugardaginn 28. desember kl. 20.00 (uppselt) föstudaginn 3. janúar kl. 20.00 Leitt hún skyldi vera skækja (Smíðaverkstæðið) föstudaginn 27. des. kl. 20.30 | laugardaginn 28. des.kl. 20.30 í: föstudaginn 3. jan. kl. 20.30 Íí hvítu myrkri (litla sviðið) sunnudaginn 29. desember kl. 20.30 laugardaginn 4. janúar kl. 20.30 Þrek og tár | (stóra sviöið) laugardaginn 4. janúar kl. 20.00 Kennarar óskast |(stóra sviðið) fimmtudaginn 2. janúar kl. 20.00 sunnudaginn 5. janúar kl. 20.00 Borgarleikhúsið Trúðaskólinn S(stóra sviðið) sunnudaginn 29. desember j kl. 14.00. ISvanurinn (litla sviðið) laugardaginn 28. desember kl. 20.00 sunnudaginn 29. desember kl. 20.00 föstudaginn 3. janúar kl. 20.00 Stone Free föstudaginn 27. desember kl. 20.00 laugardaginn 28. desember kl. 22.00 Imánudaginn 30. desember kl. 20.00 Bar par (Leynibarinn í kjallaranum) föstudaginn 27. desember kl. 20.30 laugardaginn 28. desember kl. 20.30 Mótettukórinn er á sínu 15. starfsári, skipaöur 60 söngvurum á aldrinum 17-50 ára. Stjórnandi hans er Hörður Ás- kelsson. Kórinn flutti Jólaóratóríuna í fyrsta skipti í fyrra viö góöar undirtektir og fékk þá frábæra blaöadóma. Tvennir tónleikar í Hallgrímskirkju: Mótettukórinn flytur jólaóratóríuna Mótettukór Hallgrímskirkju, ein- söngvarar og hljómsveit flytja jóla- óratóríuna á tvennum tónleikum í Hallgrímskirkju á milli jóla og nýárs. Fyrri tónleikamir verða sunnudaginn 29. desember kl. 17 og þeir seinni mánudaginn 30. desemb- er kl. 20.30. Fluttar verða fjórar af sex kantöt- um Jólaóratóríunnar eftir Johann Sebastian Bach, óstyttar. Einsöngv- arar í þetta skipti eru allir í hópi yngri söngvara landsins sem dvalið hafa erlendis undanfarin ár og njóta þegar mikillar viðurkenningar. Þóra Einarsdóttir (sópran) kemur frá London þar sem hún starfar um þessar mundir, Rannveig Fríða Bragadóttir (alt) kemur frá Vínar- borg þar sem hún hefur tekið þátt í fjölda óperusýninga undanfarin ár, Gunnar Guðbjömsson (tenór) hefur undanfarið verið á samningi hjá óp- eruhúsinu í Lyon í Frakklandi og Loftur Erlingsson (barítón) býr nú í Hveragerði eftir margra ára nám í Bretlandi. Öll hafa þau mikla reynslu af óratóríusöng, þó ekkert þeirra hafi áður sungið Jólaóratórí- una í Reykjavík. Um þrjátíu manna hljómsveit leikur með, um helmingur þeirra, flestir strengjaleikaranna, er ungir hljóðfæraleikarar í fremstu röð ís- lenskra tónlistarmanna sem stunda nám í útlöndum (Bandaríkjunum, Þýskalandi, Belgíu og Hollandi) og dvelja heima í jólafríi. Þeir sem leika á blásturshljóðfærin eru flest- ir hinir sömu og fluttu óratóríuna fyrir jólin í fyrra. Mótettukór Hallgrímskirkju er nú á sínu 15. starfsári. Hann er skip- aður 60 söngvurum á aldrinum 17-50 ára og stjómandi hans er Hörður Áskelsson. Kórinn flutti Jólaóratóríuna í fyrsta skipti í fyrra við góðar undirtektir og fékk þá frá- bæra blaðadóma. Þá flutti kórinn fyrri helming verksins, kantötur 1-3, sem fjalla um fæðingu frelsar- ans. Nú bætir kórinn við kantötu númer 5, sem sjaldan heyrist, en hún fjallar um komu vitringanna. -ingo Hótel Borg: Todmobile á Greifarnir um áramót: Hótel íslandi gamlárskvöld Todmobile hefur komið saman aftur eins og hljómsveitin hafi ekki verið lokuð inni í helli undanfama mánuði og á gamlárskvöld muii sveitin fagna áramótunum á Hótel Borg. Þar munu gestir eflaust fá að heyra eldri Todmobile-tónlist og nýja tónlist af plötunni Perlur og svín sem hefur gengið vel ofan í tón- listarþyrsta íslendinga á árinu sem er um það bil að líða í aldanna skaut. -JHÞ Greifarnir hafa komiö víöa viö á þessu ári. Hér eru þeir aö skemmta á Ing ólfstorgi í sumar. Árið 1996 hefur verið gott fyrir Greifana. Þeir komu saman á ný og gáfu út plötuna vinsælu Dúkka upp í sumar. Hún var ein af þeim plöt- um sem voru viðloðandi íslenska plötulistann fyrir jólin þó að margir aðrir tónlistarmenn þyrftu að láta í minni pokann í þeirri baráttu. Þeir félagar spiluðu líka um allt land á árinu og eins og í plötubransanum gekk þeim vel á sumarballamarkað- inum. Þeir ætla að kveðja nýja árið á stórdansleik á Hótel íslandi á gamlárskvöld og er viðbúið að þar fái gestir að heyra ný og gömul Greifalög. JMn helgina * I SÝNINGAR i; Deiglan. Snorri Ásmundsson. „Lát * sæng þína ganga“. 30% af ágóða sýn- | ingarinnar fara í fíkniefnaforvamir. | Galierí Fold, Rauðarárstíg. Olíu- I og akrýlmálverk nokkurra þekktra | núlifandi listamanna. Opið fram yfir í hátíðimar. 1 Gallerí Horaið, Hafnarstræti 15. | Elia Magg (Elín Magnúsdðttir) sýnir í verk sín. Opið til 30. des. alla daga i kl. 11-23.30 utan aöfangad. og jólad. 3 Annan í jólum kl. 14-18. í Gallerí Listakot, Laugavegi 70. Jólasýningin Ljós, 13 listakonur | sýna. Opið á verslunartíma og á 3 sunnud. frá 13-18. Gallerí Sýnirými. Þrjár sýningar, Sýnibox: Lýður Sigurðsson. f Barmi: ; Vilhjálmur Vilhjálmsson, berandi er I Gera Lyn Stytzel. í Hlust: Haraldur I Jónsson. Gallerí Úmbra. Fyrri sýnendur gallerísins ásamt Guðnýju verða með verk sin til sölu og sýnis til áramóta. | Gerðarsafn Kópavogi. Síðasta sýn- ingarhelgi Ljósmyndaraféiags ís- lands í Gerðarsafni í Kópavogi. Kaffihúsið Nönnukot, Hafnar- ) firði. Myndlistarmaðurinn Garðar 1 Bjamar Sigvaldason með smámynda- | sýningu á englamyndum. Sýningin 3 stendur til 1. janúar. Kaffi Mflanó, Faxafeni 11. Alda Armanna Sveinsd. er með sýningu á í verkum sínum í nóvember og des- ember. Kjarvalsstaðir. Ný aðfóng, kaup og ' gjafir síðustu fimm ára, til jóla. Sýn- 1 ingin er opin daglega frá kl. 10-18. i Laugavegur 53b. Sigurdís Amars- t dóttir myndlistarmaður hefúr opnað s ■ vinnustofusýningu. Sýningin kallast 1 Bækur og stendur út desember. t Listacafé, Listhúsi Laugardal. jí Magdalena Margrét Rjartansdóttir E: sýnir verk sín. | Listasafn íslands. Sýning á verkum Edvards Munch stendur til 19. jan. : Myndlist Eiríks Smith 1963-68. Til 1 2. febrúar 1997. Opið frá 11-17 alla daga nema mánud. I Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, | Laugarnesi. Sýning 91 á völdum !; verkum hans. Opið er laugard. og sunnud. milli kl. 14 og 17. Listahoraið, Akranesi, Ragnheiður Bjamadóttir sýnir hannyrðir til 6. janúar. S Listhúsið í Laugardal, Engjateigi S 17. Verk eftir Sjöfn Har. Opið virka S daga kl. 13-18 og lau. kl. 11-14. ; Listþjónustan, Hverfisgötu 105. j Gunnar Öm með sýningu í nýrri sýn- ingaraðstöðu. Opið virka daga frá 12-18 og um helgar frá 14-18. Lokað j á mán. Menntamálaráðuneytið, Sölv- hólsgötu. Daði Guðbjartsson sýnir olíumálverk. Mokka, Skólavörðustíg 3a. Sýning S Ara Alexanders Ergis Magnússonar, Hlé, stendur til 6. janúar. Norræna húsið. í anddyri: litríkar j myndir unnar af nemendum Mynd- listarskóla Reykjavíkur á aldrinum 6-11 ára. í sýningarsal í kjallaranum sýna böm myndir tengdar jólunum. Sýningar standa út des. Ráðhús Reykjavíkur. Anna Leós með myndlistarsýningu. Opið virka daga frá 8-19 en um helgar frá 12-18. Sólon íslandus, Bankastræti. Cheo Cmz sýnir 12 olíumálverk á annarri hæð staðarins. Opið alla daga frá 12-19 til 6. janúar. Sparisjóður Reykjavíkur og ná- grennis, Alfabakka 14. Sýning á verkum Vignis Jóhannssonar. Stend- ur til 8. apríl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.