Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1996, Blaðsíða 8
FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 1996 3D?*'V MYNDBAHDA Mary Reilly Gömul saga í nýjum búningi Sagan um dr. Jekyll og mr. Hyde hefur oft verið kvikmynduð en hér eru nýjar leiðir famar. Mary Reilly, þjónustustúlka doktorsins, er miðdepiil myndarinnar og atburð- um lýst frá hennar sjónarhóli. Hún er ánægð í þjónustu hjá dr. Jekyll en verður vör um sig þegar hún fléttast inn í tilraunir doktorsins og kemst í kynni við dularfullan og óyndislegan aðstoðarmann hans, herra Hyde, sem aldrei sést á sama tíma og doktorinn. Um leið skapast tilfmn- ingaspenna mUli hennar og læknisins og einnig milli hennar og aðstoð- armannsins en þau dragast hvort að öðru þrátt fyrir augljósan skepnu- skap hans. Sagan tekur á sig allt annað yfirbragð með því að taka þenn- an pól í hæðina. Hryllingurinn er i aukahlutverki meðan boðskapur sögunnar um hina andstæðu póla frelsis og ábyrgðar kemst betur til skila í heimspekilegmn samræðum persónanna sem eru vel skrifaðar. Reyndar er að flestu leyti vel að verki staðið í myndinni. John Mal- kovich sýnir enn einu sinni fantagóðan leik og Julia Roberts er furðu þolanleg í hlutverki sínu, enda undir styrkri stjórn Stephens Frears. Helsti galli myndarinnar liggur í því að maður veit meginsöguþráðinn svo að segja fyrirfram. Útgefandi: Skifan. Leikstjóri: Stephen Frears. Aðalhlutverk: Julia Roberts og John Malkovich. Bandarísk, 1995. Lengd: 104 mín. Bönnuð börnum yngri en 16 ára. -PJ II Postino Miðjarðarhafsrómantík ★★★ Þessi mynd gerist á afskekktri miðjarðarhafseyju þar sem skáldið og kommúnistinn Pablo Neruda dvelst í útlegð vegna sfjórnmálaskoðana sinna. Mario er fiskimannssonur sem fær vinnu sem póst- beri. Ekki er það þrælavinna, því að á svæði hans er skáldið eini maðurinn sem fær einhvem póst. Smám saman tekst með þeim vinátta, þótt Mario sé heldur feiminn og þegar hann verður síðan ástfanginn af blómarós þorpsins fær hann hjálp Pablo Nemda til að vinna ástir hennar. Skáldið hefúr ennfremur meiri áhrif á líf Mario, því hann dáist mikið að skáldinu, fer að aðhyllast kommúnisma og reyna fyrir sér í skáldagáf- unni. Myndin er í hefðbundnum ítölskum feelgood stíl - fallegt Miðjarð- arhafslandslag við suðræna letitónlist og tempóið er letiiegt líka. Mynd- in er nokkuð lengi að komast á skrið en þegar hún er komin í gang er hún ágæt afþreying. Hún er hins vegar heldur átakalítil og því ekki mjög eftirminnileg en góður leikur aðalleikaranna Massimo Troisi og Phil- ippe Noiret ásamt vel heppnuðu Miðjarðarhafsandrúmslofti gera mynd- ina vel þess virði að sjá hana. Útgefandi: SAM myndbönd. Leikstjóri: Michael Radford. Aöalhlutverk: Philippe Noiret og Massimo Troisi. ítölsk, 1995. Lengd: 105 mín. Leyfð öll- um aldurshópum. -PJ From Dusk till Dawn ★★★★ Blóðsugubanar Quentin Tarantino og Robert Rodrigues era með ' áhugaverðustu ungu leiksfjórum Bandaríkjanna og því spennandi að sjá þann síðamefnda leikstýra handriti eftir hinn fýrrnefnda. Útkoman er vægast sagt fersk. Tarantino leggur til vel skrifað og fyndið handrit með hnyttnum samtölxun og Rodrigues skapar sjónræna veislu með sinni góðu tiifmningu fyrir sjónarhomum og hreyfingu myndavélarinnar. Sagan segir frá Gecko bræðrunum sem taka fjöl- skyldu í gislingu til að komast yfir landamærin til Mexíkó og halda á bar nokkurn þar sem þeir ætla að hitta mann árla næsta morguns. Þar breytir myndin algerlega um stefnu, úr harðsoðnum töffarahasar í blóðugan splatterhrylling. í ljós kemur að barinn er rekinn af blóðþyrstum vampírum og þurfa sögu- hetjumar að kljást við heiian her af þeim. Á efth- fylgir mikið blóðbað þar sem vampírum er slátrað tvist og bast á sífellt subbulegri hátt þang- að til allir liggja i valnum, nema tvær söguhetjanna. Tilgangur mynd- arinnar er þó alls ekki að hræða fólk eða vekja með því óhug heldur fyrst og fremst að kitla hláturtaugarnar og tekst það vel. Stjömuleikar- ar, fantagóð tónlist og frumleg stílbrögð í kvikmyndum gera sniðuga sögu að fyrsta flokks afþreyingu. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Robert Rodrigues. Aðalhlutverk: George Clooney, Quentin Tarantino, Harvey Keitel og Juliette Lewis. Bandarísk, 1996. Lengd: 103 mín. Bönnuð börnum yngri en 16 ára. Cppycat Utvötnuð Ripley Sigoumey Weaver er sálfræðingur í fjöldamorðingjum. Eftir að einum slíkum tekst næst- um því að drepa hana fær hún taugaáfall og í kjölfar- ið víðáttufælni sem lýsir sér í því að hún getur ómögu- lega hugsað sér að fara út úr húsi. í rúmt ár er helsta dægradvöl hennar vínsull og piiluát en þá kemur til sögunnar rannsóknarlögreglukonan M.J. Monahan. Eitt illmennið hefur verið að dunda sér við að stúta ungum konum í bænum og Monahan leitar sérfræði- aðstoðar doktorsins sjúskaða. Doktorinn er ekki lengi að finna út hvað brjálæðingurinn er að gera. Hann er að herma eftir helstu fjöldamorðingjum sögimnar en síðan kemur í ljós að áætlanir hans beinast að doktornum sjáifum. Sigourney Weaver náði að skapa nokkuð áhugaverða persónu i fyrstu Alien- myndinni. Síðan hefur hún ekki skipt um hlutverk svo að i Copycat er hún enn sama Ripley, bara svolítið útvatnaðri. Þá era geðsjúklingarnir fremur óspennandi staðal- gerðir, spennan lítil og handritið iila skrifað og heimskt. Ljósi punktur- inn í myndinni er Holly Hunter en hún er ansi skemmtileg sem smá- stelpuleg löggan. Þá era nokkrir ágætir aukaleikarar. Útgefandi: Warner-myndir. Leikstjóri: Jon Amiel. Aðalhlutverk: Sigourney Weaver og Holly Hunter. Bandarísk, 1995. Lengd: 118 mín. Bönnuð börn- um yngri en 16 ára. -PJ -PJ bresk mynd en kom af stað ein- hverri langlífustu kvikmyndaser- íu sem um getur. Sean Connery lék Bond í sex myndum í viðbót - From Russia with Love, Gold- finger, Thunderball, You only Live Twice, Diamonds Are Forever og Never Say never again. Hann hef- ur einu sinni hlotið óskarsverð- launin en það var fyrir hlutverk í The Untouchables. Of langt mál væri að telja upp fræg- ar myndir sem hann hefúr leikið i en meðal þeirra nýlegri eru m.a. The Name of the Rose, Indi- ana Jones and the Last Crusade og First Knight. Fyrir jólin hófúst hér sýn- ingar á Dragonheart þar sem hann talar fyrir drekann. Nicolas Cage hefur með fjöl- breyttum leik, Nafn myndarinnar The Rock vísar til Alcatraz-fangelsisins ill- ræmda sem byggt er á klettaeyju rétt fyrir utan San Francisco. Al- catraz var upphaflega virki sem síðan var notað sem herfangelsi og komst þá strax orðróm- ur á kreik um dýflissur, leyni- göng og kvikyndis- lega með- ferð á föng- um. í miðri fyrir. Sagan segir frá hershöfðingjan- rnn FrcUicis Xavier Hummel (Ed Harris) sem rænir hættulegu eit- urgasi frá hernum, hertekur Alcatraz ásamt málaliðum simun og hótar að skjóta eldflaugum hlöðnum eiturgasi á San Francisco ef kröfum hans um bætur handa her- Sean Connery og Nicholas Cage leika ólíka bandamenn í The Rock. glæpaöldu bannáranna og krepp- unnar miklu tók dómsmálaráðun- eytið við eyjunni og breytti henni í alríkisfangelsi þar sem vista átti hættulegustu óvini þjóðfélagsins. í 29 ára sögu fangelsisins gerðu alls 34 fangar 14 tilraunir til að flýja en allir náðust aftur eða voru drepnir nema þrír sem talið er að hafi drukknað. Eftir fjölmiðlaumfjöll- un um ómannúðlega meðferð fanga og endurteknar flóttatil- raunir var fangelsinu loks lokað árið 1962, sumpart vegna þess hve dýr rekstur þess var orðinn. í dag er Alcatraz flokkað sem þjóðgarð- ur og sögustaður og 1,3 milljónir túrista heimsækja fangelsið ár- lega. Alinn upp af okkar manni Mörg tæknileg vandamál fylgdu kvikmyndim á Alcatraz en tökuliðið naut aðstoðar þjóðgarð- svarða og truflaði aldrei daglegar skoðunarferðir túrista. Eftir að hafa notað skipskrana til að hífa 125 tonn af búnaði upp á eyna þurfti að setja búnaðinn upp en þar sem engir vegir og engar lyft- ur var að finna þurfti að bera all- an búnaðinn á milli staða. Enn fremur mátti ekki skemma neitt á svæðinu svo að ekki var hægt að bora holur, negla nagla eða skrúfa skrúfur í veggi eða gólf. Þá er veðrið afar óútreiknanlegt á eyj- unni og tafði það oft tökur. The Rock er fyrsta mynd leik- stjórans Michael Bay sem hóf feril sinn hjá Steve Golin og Sigurjóni Sighvatssyni í Propaganda Films þar sem hann skapaði sér nafn með því að leikstýra tónlistar- myndböndum og auglýsingum og hefur hann hlotið mörg verðlaun mönnum sem dáið hafa í leynileg- um hernaðaraðgerðum er ekki mætt. Yfirvöld ákveða að senda sérsveit á vettvang til að yfirbuga hryðjuverkamennina og bæta við tveimur sérfræðingum, efna- vopnasérfræðingnufn Stanley Goodspeed (Nicolas Cage) og Pat- rick Mason (Sean Connery), sem er eini maðurinn sem hefur tekist að flýja frá Alcatraz. Njósnari hennar hátign- ar Sean Connery er goðsögn í kvik- myndaheiminum og hefúr leikið í svo mörgum myndum að dágóða stund tæki að rekja þær allar. Eft- ir lítil hlutverk í kvikmyndum og sjónvarpi fékk hann hlutverk James Bond í fyrstu Bond-mynd- inni, Dr. No, sem var lítil og ódýr bæði grínleik og dramatískum, skapað sér nafn sem einn af hæf- ustu leikurum yngri kynslóðar- innar í Hollywood og hlaut á sið- asta ári óskarsverðlaunin fyrir hlutverk sitt í Leavtng Las Vegas. Hann byrjaði leikferil sinn 15 ára í San Francisco American Conservatory leikhúsinu og fyrsta kvikmyndahlutverk hans var í Rumble Fish en það var leikur hans í mynd Alans Parkers, Birdy, sem kom honum á framfæri sem alvöruleikara. Hlutverk í Mo- onstruck og Wild at Heart hafa verið mikilvæg í ferli hans en meðal annarra mynd hans era The Cotton Club, Peggy Sue Got Married, Raising Arizona, Vamp- ires Kiss, Honeymoon in Vegas, Guarding Tess og It Could Happen to You. -PJ Sean Connery er hér á tali við Michael Bay, leikstjóra The Rock.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.