Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1997, Side 5
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1997
LEIKHÚS
Borgarleikhúsið
Svanurinn
fóstudaginn 3. janúar kl.
20.00
Dómínó
(litla sviðið)
9. janúar kl. 20.00 (frumsýn
ing)
Þjóðleikhúsið
Villiöndin
(stóra sviðið)
föstudaginn 3. janúar kl.
20.00
fimmtudaginn 9. janúar
kl .20.00
sunnudaginn 12. janúar kl.
20.00
Leitt hún skyldi vera
skækja
(Smiðaverkstæðið)
fóstudaginn 3. janúar kl.
20.30
sunnudaginn 5. janúar kl.
20.30
fimmtudaginn 9. janúar kl.
20.30
fóstudaginn 10. janúar kl.
20.30
Þrek og tár
(stóra sviðið)
laugardaginn 4. janúar kl.
20.00
laugardaginn 11. janúar kl.
20.00
í hvítu myrkri
(litla sviðið)
laugardaginn 4. janúar kl.
20.30
laugardaginn 11. janúar kl.
20.30
Kennarar óskast
(stóra sviðið)
sunnudaginn 5. janúar kl.
20.00
fóstudaginn 10. janúar kl.
20.00
Þegar nýtt ár er nýhafið eru
menn jafnan að undirbúa þrettánda-
gleði um land allt. Nú sem
endranær verður jólahátiðin kvödd
með viðeigandi hætti víða um land.
Ferðafélag íslands verður líkt og í
fyrra með gleði á þrettándcmum þar
sem farin veröur blysför um Öskju-
hliðina. Hún hefst klukkan 17 en
ekki var búið að ákveða hvar göng-
unni lyki, með brennu og tilheyr-
andi, þegar þessi orð voru skrifuð
fyrir áramótin.
Fákur í Reiðhöllinni
Hestamannafélagið Fákur verður
með árlega þrettándagleði sína í
Reiðhöllinni í Víðidal laugardaginn
4. janúar. Fjörið hefst kl. 15.30 og þá
verða börnýi máluð en síðan verður
gengið niður á Skeiðvöll þar sem
kveikt verður í bálkestinum klukk-
an 17. Kakó og vöfflur verða í félags-
heimilinu fyrir þá sem það vilja og
vitaskuld verða einhver hross með í
fór. Leikið verður á harmóníku við
brennuna og þar munu álfar og tröll
dansa ásamt Grýlu og Leppalúða.
Gott ef jólasveinamir verða ekki
líka með í för.
í Mosfellsbænum
í Mofellsbænum verður hefð-
bundin þrettándagleði á mánudags-
kvöld. Fólk safhast saman við Nóa-
tún klukkan átta og síðan verður
farin blysför niður að brennustæð-
inu fyrir neðan Álmholt. Þar fer
fram hefðbundin dagskrá með álfa-
drottningu, álfakóngi og ýmsum
framandi forynjum. Brenna verður
og að sjálfsögðu flugeldasýning og
kórsöngur. Lúðrasveitin mætir og
spilar líkt og áður.
Á Ásvöllum
Haukar kveðja jólin með dansi og
söng á glæsilegri þrettándagleði á
Ásvöllum. Dagskráin hefst kl. 19.45
með blysför álfakóngs og áifadrottn-
ingar, trölla, álfa og jólasveina frá
Suðurbæjarsundlauginni. Skemmti-
dagskrá hefst á Ásvöllum kl. 20.15.
Flugeldasýning verður að sjálfsögðu
og Grýla og Leppalúði mæta, auk
eldspúandi risa. Kaffi, heitt kakó,
blys og kyndlar verða til sölu á
staðnum en ókeypis verður inn á
svæðið.
Á Þórsvellinum
íþróttafélagið Þór á Akureyri hef-
ur haldið þrettándagleði á Þórsvell-
inum eins lengi og menn á besta
aldri muna og ekki verður gerð nein
undantekning þetta árið. Gleðin fer
að venju fram á þrettándanum, á
mánudag, og hefst klukkan átta.
Þórsararnir fá áifakóng og álfa-
drottningu í heimsókn, Óskar Pét-
ursson tenór syngur einsöng,
Kirkjukór Glerárkirkju syngur jóla-
og áramótalög, jólasveinarnir heilsa
upp á börnin og tröll og púkar verða
á sínum stað. Þá verður Lilli klifur-
mús á svæðinu og einhverjir ónefnd-
ir landsfrægir skemmtikraftar.
Vestmannaeyjar
Hefðbundin þrettándagleði verður
haldin í Vestmannaeyjum á þrett-
ándanum. Fjörið hefst uppi á Hánni
klukkan átta og þaðan verður svo
marserað í blysfór að íþróttavellin-
um þar sem kveikt verður í bálkesti
og stiginn álfadans. Grýla og
Leppalúði mæta að sjálfsögðu með
sitt fylgdarlið, jólasveina, tröll og
ólíklegustu forynjur. í Eyjum hefúr
verið haldin þrettándagleði í yfir
fimmtíu ár og fólk veit því nokkuð
að hverju það gengur. Enda mætir
nær hvert mannsbam til þess að
fylgjast með og taka þátt.
Á Selfossi
Meira verður lagt í þrettándagleði
á Selfossi að þessu sinni en oft áður
vegna upphafs 50 ára afmælis Sel-
fossbyggðar. Að venju verður farið
frá Tryggvaskála kl. átta og blysför
marserar á íþróttavöllinn. Þar verð-
ur brenna og mjög vegleg flugelda-
sýning. Kórar syngja, jólasveinamir
kveðja bæjarbúa og álfar og púkar
láta sjá sig. Dansleikur verður i Ing-
hóli fyrir 13 ára og eldri frá kl. 10.30
til 1.30 og síðan verður diskótek fyr-
ir 10-12 ára í félagsmiðstöðinni.
Bolungarvík
Bolvíkingar og ísfirðingar halda
þrettándagleði tn skiptis og nú er
það Bolvíkinga að sjá um gleðina.
Hátíðahöldin hefjast á fótboltavellin-
um á þrettándanum kl. 20. Álfahjón-
in koma ásamt tilheyrandi fylgdar-
liði, jólasveinum og tröllum.
Reikna má með að þrettándagleði
verði á fleiri stöðum en hér hafa ver-
ið nefndir. Flestir virðast ætla að
halda sig við hátíðahöld á mánudag-
inn, sjálfum þrettándanum en rétt er
fyrir fólk að fylgjast með því hvort
einhvers staðar á landinu verði
kveikt í brennum um helgina.
-sv
Svanurinn sýndur 3. janúar
í kvöld, 3. janúar, klukkan 20.
Leikendur eru Bjöm Ingi Hilm-
arsson, Ingvar Sigurðsson og María
Ellingsen. íslenska þýðingu gerði
Ámi Ibsen, leikhljóð annaðist Ólaf-
ur Örn Thoroddsen, lýsingu sér Ög-
mundur Þór Jóhannesson um og
leikmynd og búningar em í umsjá
Jóns Þórissonar. Leikstjóri er Kevin
Kuhlke. Verkið er sýnt á Litla svið-
inu.
-sv
Svanurinn flýgur inn um glugg-
ann hjá Dóru hjúkrunarkonu í
Nebraska og slasar sig. Hún hættir
að vinna, fer að hjúkra honum og
það veldur viðhaldinu hennar,
Kevin mjólkurpósti, sárri kvöl. Sá
sársauki breytist í hreina örvænt-
ingu þegar Svanurinn fellir ham-
inn.
Svanurinn er samstarfsverkefni
Leikfélags Reykjavíkur og leikhóps-
ins Annað svið. Sýning á verkinu er
_mn helgina *
** *
SÝNINGAR
| Deiglan, Snorri Ásmundsson. „Lát
sœng þína ganga“. 30% af ágóða sýn-
í ingarinnar fara í fíkniefaaforvarnir.
® Gallerí Fold, Rauðarárstíg. Oliu-
| og akrýlmálverk nokkurra þekktra
“ núlifandi listamanna. Opið fram yfir
hátíðimar.
? Gallerí Hornið, Hafnarstræti 15.
I Laugardaginn 4. janúar kl. 17 opnar
s; bandaríska listakonan Lulu Yee sýn-
I ingu á kraftaverkamynduym. Sýn-
; ingin verður opin alla daga til mið-
í vikudagsins 22. janúar.
Gallerí Listakot, Laugavegi 70.
! Jólasýningin Ljós, 13 listakonur
| sýna. Opið á verslunartíma og á
| sunnud. frá 13-18.
! Gallerí Sýnirými. Þijár sýningar. I
;i Gallerí Sýnibox: Haraldur Jónsson. f
Gallerí Barmi: Róbert Róbertsson og
Ragnheiður Ágústsdóttír. f Gallerí
| Hlust: G.R. Lúðvíksson.
Gallerí Úmbra. Fyrri sýnendur
| gallerísins ásamt Guðnýju verða með
verk sín til sölu og sýnis til áramóta.
Listacafé, Listhúsi Laugardal.
| Magdalena Margrét Kjartansdóttír
| sýnir verk sín.
j* Listasafn íslands. Sýning á verkum
| Edvards Munch stendur tíl 19. jan.
| Myndlist Eiríks Smith 1963-68 til 2.
I febrúar 1997. Opið frá 11-17 alla
j daga nema mánud.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
g Laugarnesi. Sýning 91 á völdum
| verkum hans. Opið er laugard. og
1 sunnud. milii kl. 14 og 17.
' Listahomið, Akranesi, Ragnheiður
| Bjamadóttir sýnir hannyrðir til 6.
I janúar.
IListhúsið í Laugardal, Engjateigi
17. Verk eftir Sjöfn Har. Opið virka
Idaga kl. 13-18 og lau. kl. 11-14.
Listþjónustan, Hverfisgötu 105.
Gunnar Öm með sýningu í nýrri sýn-
ingaraðstöðu. Opið virka daga frá
12-18 og um helgar frá 14-18. Lokað
á mán.
Menntamálaráðuneytið, Sölv-
hólsgötu. Daði Guðbjömsson sýnir
olíumálverk.
Mokka, Skólavörðustíg 3a. Sýning
Ara Alexanders Ergis Magnússonar,
* Hlé, stendur til 6. janúar.
Ráðhús Reykjavíkur. Anna Leós
í með myndlistarsýningu. Opið virka
daga frá 8-19 en um helgar frá
J 12-18.
Sjónarhóll, Hverfisgötu 12. Laug-
■ ardaginn 4. janúar kl. 15 opnar
Bjami Sigurbjömsson sýningu í
Sjónarhóli. Sýningin er opin
;; fimmtud.-sunnud. kl. 14-18 og
; stendur hún tíl 27. janúar.
Sólon íslandus, Bankastræti.
i Cheo Cmz sýnir 12 olíumálverk á
* annarri hæð staðarins. Opið alla
* daga frá 12-19 til 6. janúar.
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis, Álfabakka 14. Sýning á
I verkum Vignis Jóhannssonar. Stend-
} ur tíl 8. apríl.