Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1997, Blaðsíða 8
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1997
MYNDBAm
iiiiMjmj
Trainspotting:
Dópistar í Edinborg ★★★★
Shallow Grave, sem kom út í fyrra, var mjög athygl-
isverö og frumleg spennumynd en leikstjóri, íramleið-
andi og handritshöfundur þeirrar myndar tóku saman
höndum aftur og gerðu Trainspotting eftir sögu Irvine Welsh. Hún segir frá
Mark Renton og félögum hans, Spud, Sick Boy, Begbie, Tommy og Diane.
Mark Renton er sæmilega gáfaður einstaklingur sem kýs að vera dópisti
fremur en að taka þátt í lífsgæðakapphlaupinu. Af og til ákveður hann þó
að reyna að venja sig af dópinu en gengur yflrleitt fremur illa við það. Ann-
aðhvort eru vinirnir að reyna að draga hann inn í neysluna aftur eða hrút-
leiðinleg fjölskyldan og illþolanlegt samfélagið hrekja hann til þess. AIls
konar hörmungar er að finna í myndinni sem er satt að segja með eindæm-
um viðbjóðsleg á margan hátt og gengur sjálfsagt fram af mörgum en þrátt
fyrir alla eymdina og subbuskapinn er taki aldrei sleppt á sótsvörtum
húmomum sem heldur manni i hláturkrampa myndina í gegn. Persónur og
atriði era ýkt og oft súrrealísk en leikaramir hafa greinilega gaman af því
sem þeir eru að gera og orkan geislar af þeim. Tónlist spilar stórt hlutverk
og er hugvitssamlega notuð, hún er partur af myndinni en ekki bara eitt-
hvað til að hafa í bakgrunninum. Trainspotting er alveg sérstaklega eftir-
minnileg mynd, hún vekur mann til umhugsunar um leið og hún skemmt-
ir manni.
Útgefandi: Warner myndir. Leikstjóri: Danny Boyle. Aðalhlutverk: Ewan
McGregor, Ewen Bremner, Johnny Lee Miller, Kevin McKidd, Robert Car-
lyle og Kelly MacDonald. Skosk, 1995. Lengd: 93 mín. Bönnuð börnum
yngri en 16 ára. -PJ
Girl 6
Símavændi
Theresa Randle leikur í Girl 6 unga leikkonu sem fær
hvergi hlutverk. Hún gefst að lokum upp á hokrinu og
ákveður að reyna fyrir sér í símavændi í nokkra mán-
uði svo hún geti unnið sér inn fyrir flugmiða til Los
Angeles. Hún á stelsjúkan fyrrverandi eiginmann sem
er stöðugt að reyna að komast í mjúkinn hjá henni aft-
ur og besti vinur hennar og nágranni er rugludallur
sem safnar kortum með myndum af íþróttaheijum. Hún
verður fljótlega vinsæl og fær marga kúnna í síma-
vændinu og verður síðan sjálf háð þvi og sekkur dýpra
í það. Að lokum hættir hún því, segir bless við alla og
flýgur til Hollywood. Ca. þriðjungur myndarinnar fer í símavændisfantasí-
ur, annar þriðjungur í að hinum og þessum stjömum er leyft að leika sér í
nokkrar mínútur og restin fer í samskipti aðalsöguhetjunnar við eiginmann
sinn og nágranna. Myndin er afar sundurlaus og söguþráður nánast enginn.
Þar að auki er ekkert grín í henni, sem er fremur einkennilegt miðað við að
hún er markaðssett sem grínmynd. En dramað um fátæku leikkonuna, sem
leiðist út í símavændi, er áhugavert í byrjun þótt niðurstöður séu fremur fá-
tæklegar. Leikaramir standa sig nokkuð vel og það er oft gaman að fylgjast
með stjörnunum leika sér.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Spike Lee. Aöalhlutverk: Theresa Randle, Isi-
ah Washington og Spike Lee. Bandarísk, 1996. Lengd: 108 mín. Bönnuð
börnum yngri en 12 ára. -PJ
Agnes
Sögulegt drama
Myndin byggist á frægum atburði í íslandssögunni, síðustu aftöku á ís-
landi þegar Agnes og Friðrik voru hálshöggvin fyrir morðið á Natani Ket-
ilssyni. Agnes er aðalsögupersónan og í byrjun myndarinnar er hún í illri
vist á bæ sýslumannsins sem ásælist hana. Hún flýr hann og illgjama eig-
inkonu hans á náðir Natans Ketilssonar, sjálfmenntaðs lyflæknis sem tekur
hana til sín sem bústýru. Fljótlega kemur í ljós að hann er litlu skárri en
sýslumaðurinn og eftir illa meðferð um nokkurt skeið fær Agnes nóg þegar
hann kemur með konu Friðriks á heimilið. Agnes fer til Friðriks og fær
hann til að drepa Natan (þótt hún sjái reyndar eftir gjörðum sinum þegar
morðið er framið). Þessi mynd er fullkomnlega misheppnuð. Meiningin var
sennilega að búa til áhrifamikla og magnþrunga mynd en hér er skotið langt
yfir markið. Handritið er hreint ömurlega illa skrifað og mörg atriðin afar
vandræðaleg, sérstaklega þegai' dramatíkin á að vera sem mest. Atriði eins
og þegar Agnes rústar heimili Natans þegar hann kemur heim með konu
Friðriks eru bara asnaleg. Maria Ellingsen og Baltasar Kormákur leika eins
og þriðja flokks sjónvarpssápuleikarar og enginn af hinum leikinunum sýn-
ir neina takta þótt þeir séu ekki eins áberandi slæmir. Það liggur við að
þessi mynd sé nógu slæm til að vera hlægileg en hún er sennilega lélegasta
íslenska myndin sem ég hef séð.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Egill Eðvarðsson. Aðalhlutverk: María
Ellingsen, Baltasar Kormákur og Egill Ólafsson. íslensk, 1995. Lengd: 104
mín. Bönnuð börnum yngri en 16 ára.
Kingpin
Heimskir í keilu ★
Hér segir frá Roy Munson (Woody Harrelson) sem áður
fyrr var eitt mesta keiluspilaraefni sem komið hefúr fram
en missti hægri höndina í átökum við keiluhallargesti
sem hann hafði svindlað illa á. Hann hefur átt fremur
misheppnaðan feril sem sölumaður þegar hann rekst á
mann nokkum (Randy Quaid) sem virðist hafa mikla
hæfileika til keiluspilamennsku. Gallinn er að hann er
amishtrúar og lítið spenntur fyrir atvinnumennsku í
íþróttinni. Með brögðum tekst Roy Munson þó að fá hann
til þess og í fór með þeim slæst fegurðardís nokkur sem
sér um að trufla athygli andstæðinga hans. Við sögu kemur einnig gamall
óvinur Roys, svikahrappurinn, kvennamaðurinn og keilumeistarinn Emie
McCracken, sem Bill Murray leikur. Leikstjórar myndarinnar em Farelly
bræðumir sem gerðu Dumb and Dumber, ágæta dellumynd. Kingpin er öllu
slappari, handritið er einfaldlega slappt og ófyndið. í þessu tilviki er grínið
bara heimskt en fyndnina vantar. Auk þess er myndin oft ansi ósmekkleg
sem er alltaf fremur neyðarlegt þegar fyndnina vantar. Ágætir leikarar em
í aðalhlutverkum og standa sig ekkert illa en skemmtilegastur er Bill
Murray.
Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjórar: Peter Farrelly og Bobby Farrelly.
Aðalhlutverk: Woody Harrelson, Randy Quaid og Vanessa Angel. Banda-
rísk, 1995. Lengd: 98 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -PJ
Ferill Jims Carreys hefur verið
með ólíkindum. Hann er Kanada-
maður að uppmna og var byrjaður
með uppistand 15 ára gamall í
Toronto. Eftir flutning til Los Ang-
eles 1981 fékk hann hlutverk í sjón-
varpsþáttunum Duck Factory og
náði í sitt fyrsta kvikmyndahlut-
verk í Yampímgrínmyndinni Once
Bitten. í kjölfarið lék hann í mynd-
unum The Dead Pool, Earth Girls
Are Easy og Peggy Sue Got
Married. Milli þess sem hann lék í
kvikinyndum vann hann í sjón-
varpi, m.a. lék hann drykkjurút í
sjónvarpsmyndinni Doing Time on
Maple Drive og þá lék hann í vin-
sælum grínþáttum, In Living Color
og Jim Carreys Unnatural Act. Árið
1994 skaust haim upp á stjömuhim-
ininn með myndinni Ace Ventura,
Pet Detective, ódýrri mynd sem
óvænt sló í gegn. Á eftir fylgdu
myndirnar The Mask, Batman
Forever, Dumb and Dumber og Ace
Ventura 2: When Nature Calls, sem
allar fóm yfir hundrað miiljón doll-
ara markið í Bandaríkjunum. Með
hverri myndinni jukust laun hans
og er hann nú orðinn með þeim
allra dýrustu í Hollywood. Stíll
hans er einstök blanda af spima-
leik, eftirhermum og uppfinninga-
semi ásamt hinum ótrúlegustu and-
litsgeiflum og hreyfingum en marg-
ir hafa líkt honum við Jerry Lewis.
Næstu myndir Jim Carrey verða
Liar, Liar og framhaldsmyndin The
Mask H en tilefni þessara skrifa er
myndin Cable Guy.
Jim Carrey sýnir á sér
nýja hlið
Mótleikari Jims Carreys í Cable
Guy er Matthew Broderick (Ferris
Buellers Day off, Glory, War
Games og The Lion King),^sem leik-
ur Steven Kovacs, fremur ófram-
færinn einstakling sem er nýbúinn
að slíta sambandi við kærustuna
sína og er að flytja inn í nýja íbúð.
Jim Carrey leikur manninn sem
sér um að tengja kapalrásirnar fyr-
ir hann. Vinur Stevens segir hon-
um að láta kapalmanninn fá 50
dollara og þá fái hann allar sjón-
varpsrásirnar fritt en Jim Carrey
hefúr annað í huga. Hann vill enga
50 dollara, hann vill bara vera vin-
ur hans. Steven á erfitt með að
segja nei og kapalmaðurinn þreng-
ir sér inn í líf hans með ófyrirsjá-
anlegum afleiðingum. Smám sam-
an kemur í ljós að hann er meira
en lítið truflaður á geði og þegar
Steven reynir að losna við hann
færist hann allur í aukana og legg-
ur líf Stevens algjörlega í rúst.
Hlutverk Jims Carreys í Cable
Guy er nokkuð ólíkt fyrri hlutverk-
um hans því hann er í raun ill-
mennið í myndinni. Kapalmaður-
inn er sjúkur á geði og á erfítt með
að greina milli sjónvarps og veru-
leika en hann var alinn upp á sjón-
varpi. Persónan krefst ekki aðeins
villts ærslagríns heldur hefúr hún
mjög dökkar hliðar og djöfúllegur
innri maður kapalmannsins kemur
æ betur í ljós eftir sem líða tekur á
myndina. Hún er þó fyrst og ffernst
grínmynd og aðdáendur Jims Car-
reys fá sinn skammt af ærslaleik.
Mörg ærslafengin atriði eru í
myndinni, svo sem eftirminnilegur
karaoke-söngur Jims Carreys við
Jefferson Airplane, lagið Somebody
to Love, átakamikill körfuknatt-
leikur þar sem kapalmaðurinn læt-
ur keppnisskapið hlaupa með sig í
gönur og heimsókn þeirra félaga á
stórfurðulegan veitingastað.
Miðaldastemning á
veitingastað
Southern Californias Medieval
Times Restaurant er raunveruleg-
ur veitingastaður. Staðurinn býður
upp á miðaldamálsverð með öllu
tilheyrandi. Grilluðum kjúklingi er
skolað niðm með öli á meðan gest-
imir njóta burtreiðarsýningar. í
myndinni berjast Jim Carrey og
Matthew Broderick m.a. með sverð-
um, öxum og stríðskylfum í þung-
um málmbrynjum (sem reyndar
eru úr leðri, málaðar til að líkjast
málmi) ásamt því að þeysa gegn
hvor öðrum með lensur á lofti í
burtreiðum. Staðnum hafði aldrei
verið lokað áður en kvikmynda-
gerðarfólkið fékk nokkra daga sem
reyndu mikið á líkamlegt þrek að-
alsöguhetjanna. Afar erfitt er að
líkja eftir sérstökum limaburði og
hreyfingum Jims Carreys þannig
að hann þurfti að framkvæma
megnið af áhættuatriðum sínum
sjálfur, ekki aðeins í miðaldaveit-
ingahúsinu. Meðal þess sem hann
þurfti að gera var að brjóta körfu-
boltaspjald, fleygja sér úr bílum á
ferð, renna sér niður risastóran
gervihnattadisk og hanga úr sjón-
varpstumi í 30 metra hæð. Allt
þetta gerði hann með sóma og varð
aldrei fyrir neinum meiðslum.
PJ