Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Side 2
24
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997
Þessi breyting á RAV4 verður ekki aðeins til að stór-
bæta jeppaeiginleika þessa bíls sem fyrir sameinaði
vel kosti sportlegs fólksbíls og jeppa heldur gerir hún
bílinn mun fallegri á vegi og nýir íslenskir brettakant-
ar og sílsalistar fara bílnum vel og er engu líkara en
japanskir hönnuðir bílsins hafi haft þetta í huga við
hönnunina.
Þessi breyting kostar líka sitt því heildarverðið er
383.034 krónur samkvæmt tilboði sem var í gangi í des-
ember þegar við vorum með bílinn í reynsluakstri.
Þar af kosta hlutir til breytingarinnar rétt liðlega
200 þúsimd krónur og munar þar mest um dekk á tæp
48.000 og felgur á rúmlega 62.000 krónur. Gömlu dekk-
in og felgumar koma að vísu á móti upp á 40.000.
Þá kostar rétt tæplega 100.000 krónur að mála
aukahlutina, brettakanta og sílsalista.
Inni í þessu heildarverði er Ííka allt sem hægt er
að hugsa sér varðandi breytingu sem þessa, þar á
meðal vindkljúfur að aftan með innbyggðu bremsu-
ljósi sem kostar einn rétt liðlega 29.000. Honum
mætti sleppa en hann gefur bílnum þó óneitanlega
betri heildarsvip.
Þessi breyting færir hins vegar RAV4 svo nálægt
„stóru“ jeppunum hvað varðar aksturseiginleika og
hæfni til að takast á við meiri vegleysur að það er
sjálfsagt athugunarefni fyrir marga þá sem hefðu
haft í huga að fá sér „stóran" jeppa að skoða hvort
þetta dugar þeim ekki bara vel. Þá er verðið líka í
góðu lagi ef horft er á verðbilið upp í stóru jeppana.
-JR
M m
Breytingin á RAV4:
Meiri og betrí jeppaeiginleikar
- en kostar líka sitt
Reynsluakstur á breyttum Toyota RAV4:
Betri ferðabíll og nýtist betur
nógu léttan og lipran. Einangrun
gegn veghljóði hefði verið ýtt til
hliðar til að ná hinu fram.
Betri ferðabíll
Þessi breytingapakki gerir RAV4
að enn betri ferðabíl en áður. Hann
er betri á venjulegum þjóðvegi, stór
dekkin bæta stórgóða fjöörunina
enn betur og bíllinn er rásfastari ef
eitthvað er eftir þessa breytingu.
Það fer vel um farþega og öku-
menn í akstri og staðalbúnaður er
góður. Þar á meðal má telja loft-
púða, bæði við sæti ökumanns og
farþega í framsæti, forstrekkjara á
öryggisbeltum, sítengt aldrif með
100% miðdrifsíæsingu, samlæsingar
á hurðum, rafdrifnar rúðuvindur og
útispegla, gott útvarp og segulband
með 4 hátölunun og aukahemlaljós
í afturglugga.
RAV4 er nú á betra verði en hann
var áður og hefúr það lækkað að-
eins frá þvi hann kom fyrst á mark-
að. Samkvæmt desemberverðlista
kostar hann kr. 2.249.000 með hand-
skiptingu en kr. 2.429.000 með sjálf-
skiptingu.
-JR
Aflmikil tveggja lítra vélin er eitt helsta tromp RAV4. Aflið er svo mikið að
þess verður aldrei vart að þar skorti neitt á, jafnvel þótt klifrað hafi verið upp
grýtta brekku.
Bílar með sítengdu fjórhjóladrifi
eru sennilega þeir bílar sem henta
íslenskum akstursaðstæðum einna
best. Miklar vinsældir fólksbíla með
fjórhjóladrifi, bíla á borð við Toyota
Tercel og Subaru, hafa sýnt svo ekki
er um að villast að þetta er það sem
markaðurinn vill. Margir eigendur
slikra bíla hafa örugglega oft óskað
sér þess að fólksbíllinn þeirra væri
með svolítið meiri veghæð eða öfl-
ugri þegar fram undan var erfiður
heiðarvegur eða bara slóöinn heim
að sumarbústaðnum.
Ekki jeppi... og þó
Þegar RAV4 kom fram á sjónar-
sviðið hér á landi og var tekinn til
reynsluaksturs lagði undirritaður
áherslu á að þetta væri ekki jeppi
en hefði ýmsa eiginleika slíkra bíla
og upfyllti örugglega „jeppaþarfir"
margra þeirra sem aka nú um á dýr-
um og stórum jeppum.
Toyota-umboðið hefur nú kynnt
nýjan „breytingapakka" sem fleytir
bílnum miklu nær alvörujeppum.
Hér er bíllinn kominn á 31 tommu
dekk og hefur verið hækkaður lítil-
lega upp til að mæta þessum stækk-
aða „skófatnaði".
Við þessa breytingu er RAV4
miklu nær því að vera jeppi, vélar-
aflið er fyllilega nægilegt, fjöðrunin
Vel fer um ökumann og farþega í RAV4 og staðalbúnaöur er góöur, þar á
meöal loftpúöar fyrir bæöi framsætin ásamt forstrekkjurum á öryggisbeltum
sem eru hæöarstillanleg.
Stór afturhuröin gefur góöan aögang að farmrýminu en gólf þess er slétt og
enginn „þröskuldur" aö þvælast fyrir.
er ágætlega slaglöng og í raun má
segja að það eina sem í raun vantar
til að þessi „jepplingur“ geti kallast
jeppi sé að í hann vantar hátt og
lágt drif.
Góð fjöðrun
Eitt helsta aðalsmerki RAV4 er
góð fjöðrun. Sjálfstæða fjöðrunin á
hverju hjóli er vel slaglöng, raunar
svo slaglöng að engin ástæða er til
að breyta henni eða dempurum þeg-
ar bíllinn er settur á stærri dekk.
Sítengt aldrifið virkar líka vel og
fyrir fram hefði mátt ætla að stærri
hjólbarðar gætu haft í for með sér
að bíllinn skriði til í beygju en það
var siður en svo og kom á óvart
hversu rásfastur hann er.
Gott válarafl
Tveggja lítra vélin, sem er 16
ventla og 129 hestöfl, skilar sínu vel
og þess verður ekki vart að afl vanti
þótt hjólin séu orðin þetta miklu
stærri. Vöntunin á lága drifinu er
ekki tilfínnanleg vegna þess hve
aflið er mikið en það hlýtur að
reyna nokkuð á kúplinguna þegar
ekið er hægt í erfiöu landslagi og ná
þarf fram mjúku átaki með því að
kúpla.
Of mikið veghljóð
Ef RAV4 er skoðaður í heild má í
raun segja að aðeins sé einn ágalli
sem slíkur á þessum bíl, það er of
mikið veghljóð, einkum þegar setið
er í aftursæti.
Þegar rætt var við japanska tals-
menn Toyota á bílasýningunni í
París á liðnu hausti var greinilegt
að þeir vildu vita hvernig okkur
hefði líkað við RAV4. Þegar talið
barst að veghljóðinu voru svör
þeirra öll á einn veg: Þetta hefði
alltaf verið vitað og það ætti að vera
svona. Það væru sportlegu eigin-
leikamir sem hefðu verið haföir að
leiðarljósi og eins það að hafa bílinn
RAV4 frá Toyota er hér kominn á 31 tommu hjólbaröa og nýir samlitir brettakantar og sílsalistar frá Samtaki gefa bíln-
um sportlegt yfirbragö. í heild er þetta miklu „jeppalegri" bíll. DV-mynd ÞÖK
Japan:
Toyota Corona
með nýja
D-4 vél
Toyota í Japan hefur sett á
markað Corona með nýrri vél
sem kallast D4. Þessi vél er byggð
á nýrri tækni sem sprautar elds-
neytinu beint inn í brunahólfið í
strokknum.
Corona Premio G D-4 er með 2,0
lítra vél og með þessum nýja bún-
aði er eyðslan sögð vera um 10%
minni en í eldri gerð sambæri-
legra véla og um 30% minni
mengunarefni eru í útblæstrin-
um.
Að því er kemur fram i frétt frá
Toyota i Japan stendur þessi nýja
D-4 vél jafitfætis eöa er jafnvel
hetri en nýja GDI-vélin frá Mitsu-
bishi sem þegar er komin í sölu á
Japansmarkaði.
Nýja Coonan kemst 17,4 kíló-
metra á hverjum lítra eldsneytis,
sem er sögð vera besta eldsneyt-
isnýting í nokkurri 2,0 lítra vél
með sjálfskiptingu í heiminum í
dag, að sögn Toyota.
Af hálfu Toyota eru uppi áætl-
anir um að stórauka framleiðslu á
bílum með D-4 vélinni á næsta
sumri.
Samvinna
Rover og
Chrysler
Enski bílaframleiðandinn
Rover hefur á prjónunum sam-
starf við Chrysler sem er þriðji
stærsti bílaframleiðandinn í
Bandaríkjunum. Að undanfomu
hafa átt sér stað viðræður á milli
eigenda Rover, sem eru BMW í
Þýskalandi og Chrysler, og má
vænta niðurstöðu þessara við-
ræðná nú í byrjun ársins.
Ekki er vitað um hvað viðræð-
umar snúast en þó er ljóst að það
er Chrysler sem hefur áhuga á
samvinnunni og að ætlunin er að
Rover geti smíðað bila í Banda-
rikjunum, í samvinnu við
Chrysler og síðan framleitt bíla á
Englandi í samvinnu við Rover.
Nú þegar er komið á samstarf á
milli BMW og Chrysler varðandi
vélar í Mini frá verksmiðjum í
Brasilíu.
Ef samvinna þessara bílafyrir-
tækja kemst í höfh þá er verk-
smiðjurekstri Rover í Longbridge
í nágrenni Birmingham borgið og
þar með 10.000 störfum, en mikið
tap hefúr verið á verksmiðjunum
að undanfomu.
Ef af verður myndu BMW-
Rover og Chrysler þróa sameigin-
lega bíl í efri millistærðarflokki
sem koma myndi í sölu í byrjun
næstu aldar.