Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1997, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1997, Page 4
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1997 DV 18 ísland plötur og diskar— t 1.(2) Mermann Emilíana Torrini t 2.(7) Secrets Toni Braxton t 3. ( 6 ) í Álftagerði Álftagerðisbræður | 4. ( 4 ) Spice Spice Girls t 5. (15) Strumpastuð Strumparnir t 6. ( - ) Rnzor Blade Suitcase Bush $ 7. ( 3 ) Travelling Without Moving Jamiroquai t 8. (14) Jagged Little Pill Alanis Morissette t 9. ( - ) Antichrist Superstar Marilyn Manson 110. (12) Stoosh Skunk Anansie 111. (18) NoDoubt Tragic Kingdom « 12. (11) Falling Into You Celine Dion #13. (10) Seif Páll Óskar 114. (17) II Presidents of the USA $ 15. ( 5 ) Coming Up Suede 116. (20) Pottþétt 6 Ymsir 117. ( 9 ) Greatest Hits Simply Red 118. (Al) Pottþétt dans Ýmsir 119. (Al) New Adventures in Hi-Fi REM t 20. (Al) Older George Michael London —lög— t 1.(2) Professional Widow Tori Amos t 2. ( - ) Quit Playing Games Backstreet Boys t 3. ( - ) Hey Child East 17 t 4. ( - ) People Hold On Lisa Stansfield t 5. (10) Don't Cry for Me Argentina Madonna | 6. (1 ) 2 Become 1 Spice Girls t 7. ( - ) Say What You Want Texas $ 8. ( 4 ) Un-Break My Heart Toni Braxton | 9. ( 5 ) Don't Let Go En Vogue t 10. ( - ) Where do You go No Mercy New York > -lög- | 1.(1) Un-Break My Heart Toni Bcpxton t 2. ( 3 ) Don't Let Go En Voguc | 3. ( 2 ) I Belive I Can Fly R. Kelly | 4. ( 4 ) Nobody Keith Sweat Featuring Athena.. | 5. ( 5 ) I Belive In You And Me Whitney Houston | 6. ( 6 ) No Diggity Blackstreet t 7. ( 8 ) Mouth Merril Bainbridge | 8. ( 7 ) l'm Still In Love With You New Edition t 9. (10) It's All Coming Back To Me Now Celine Dion t 10. ( - ) Fly Like An Eaglc Seal Bretland - plötur og diskar^ | 1. ( 1 ) Spice Spice Girls t Z (10) Evita Various | 3. ( 3 ) Blue Is The Colour The Beautiful South I | 4. ( 2 ) Falling into You Celine Dion | $ 5. ( 4 ) Travelling Without Moving Jamiroquai | 6. ( 6 ) Ocean Drive Lighthouse Family | 7. ( 5 ) The Score Fugees | 8. ( 8 ) Everything Must Go Manic Street Preachers $ 9. ( 9) Greatest Hits Simply Red I 10. ( 7 ) K Kula Shaker - Bandaríkin — -plöturog diskar - t 1. (1 ) Tragic Kingdom No Doubt t Z ( 4 ) Romeo + Juliet Soundtrack | 3. ( 2 ) Falling Into You Celine Dion t 4. ( 5 ) The Preacher's Wife Soundtrack t 5. ( 6 ) Spice Jam Soundtrack $ 6. ( 3 ) Razorblade Suitcase Bush | 7. ( 7 ) Secrets Toni Braxton | 8. ( 8 ) Blue Leann Rimes | 9. ( 9 ) Jagged Little Pill Alanis Morissette t10. ( - ) Did I Shave My Legs For This? Deana Carter Bandarískir plötuútgefendur og - seljendur kvarta hástöfum yfir lé- legri plötusölu á nýliðnu ári. í upp- lýsingum SoundScan, sem fylgist með plötuviðskiptunum frá degi til dags, seldust samtals 616,6 milljón eintök í Bandaríkjunum árið 1996. Það er aðeins um það bil þrjú hundruð þúsund fleiri stykki en árið þar á úndan sem er innan við eins prósents aukning. Þetta þykir útgefendum og kaupmönnum þunn- ur þrettándi miðað við tveggja stafa aukningartölur ár frá ári í upphafi þessa áratugar. Hefðu viðskiptin síðustu vikurnar fyrir jól ekki verið í blóma er talið að framleiðendur tónlistar hefðu þurft að horfa upp á samdrátt í fyrsta skipti síðan diskóöld leið undir lok í upphafi ní- unda áratugarins. Þetta er annað árið i röð sem vöxtur bandarískrar hljómplötuútgáfu vestra telst óvið- unandi. Blómleg útgáfa og sala fyrir nokkrum árum er að sjálfsögðu því aö þakka að geisladiskar leystu vinylplötur af hólmi. Fólk þurfti að endumýja plötusafnið sitt og keypti því gömlu eftirlætisgripina í stórum upplögum. í fyrra og hittifyrra fundu menn fyrir því að sú gósentíð var að líða. Það eru einungis The Beatles og þeirra aðstandendur sem geta kæst yfir góðri sölu gamalla laga. Árið 1996 reyndist hið stærsta í sögu hljómsveitarinnar fomfrægu og seldust með henni um það bil tuttugu milljón plötur. Uppsagnir og gjaldþrot Að því er kemur fram í banda- rískum blöðum hefur léleg plötusala síðasta árs víðtækar afleiðingar. Þrjár risastórar plötuverslanakeðj- ur, Warehouse Entertainment, Peaches Entertainment og Camelot Music, hafa fengið greiðslustöðvun. Sú fjórða, Blockhuster Music, hefur orðið að loka um það hil fimmtíu verslunum. Þá hefur hundruðum smærri verslanakeðja og einstakra verslana verið lokað síðustu misser- in. Ýmislegt hefur verið reynt til að rétta hlut plötunnar í bandarísku viðskiptalífi. Meðal annars hefur átt að ná til kaupenda með plötubúðum á Internetinu. Sala þeirra verslana mælist einungis núll komma tvö prósent af heildarviðskiptunum enn sem komið er. Einn hluti vandans er að mati sérfræðinga dagblaðsins Was- hington Post sá að allt of mikið er gefið út af plötum vestanhafs. Á síð- asta ári komu út yfir tuttugu þús- und nýir titlar. Aðeins núll komma núll fimm prósent þeirra seldust í 250 þúsund eintökum eða meira. Við það mark telja útgefendur að plata fari að skila hagnaði. Á hitt er að líta að meirihluti platnanna sem komu út í fyrra var gefinn út hjá litlum, óháðum fyrirtækjum. Rekstrarkostnaður þeirra er mun minni en risanna og þar af leiðandi þarf að selja minna af hverri plötu til að hún teljist borga sig. Yfirmenn sumra stóru útgáfanna biðu ekki einu sinni fram yfir jól til að lækka kostnað í fyrirtækjum sín- um með þvi að reka starfsfólk og segja upp útgáfusamningum við tón- listarfólk. Þá var byrjað að leita að Miklar vonir eru bundnar við að nýjasta plata U2 eigi eftir að fá góðar viðtökur þegar hún kemur út í mars. sökudólgum utan fyrirtækjanna eins og þegar markaðurinn hrundi í lok diskótímans. Þá var skuldinni skellt á Pacman, Pong dg ýmiss kon- ar videoleiki. Að þessu sinni eru það Intemetið, tölvuleikir og ýmiss konar önnur margmiðlunarþing sem talið er að neytendumir verji í tíma sínum og peningum. Risasamningar Hljómplötuútgefendur hafa á und- anfómum ámm gert risasamninga við stærstu stjömur dægurtónlistar- innar - samninga sem í mörgum til- vikum hafa valdið vonbrigðum. Sony reið á vaðið með fimmtíu milljóna dollara samningi við Mich- ael Jackson árið 1990. Stjarnan hef- ur átt ákaflega mögur ár að undan- fómu og til dæmis seldist plata hans, HlStory, i aðeins þremur milljónum eintaka á sautján mánuð- um. Janet Jackson og Virgin gerðu með sér sjötíu milljóna dollara samning i fyrra. Plata með safni þekktustu laga hennar seldist að- eins í fimm hundruð þúsund eintök- um. George Michael og Prince gerðu sömuleiðis stórsamninga í fyrra. Hvoragum hefur famast vel enn sem komið er. Hið nýjasta úr þessum geira er endumýjun útgáfusamnings R.E.M. og Wamer Bros. i ágúst síðastliðn- um. Fyrsta plata R.E.M. eftir endur- nýjunina var platan New Advent- ures in Hi-Fi. Seld eintök af henni era aðeins ríflega átta hundrað þús- und sem þykir rýrt á þeim bæ. Og fleiri listamönnum gekk illa á síð- asta ári þrátt fyrir miklar auglýs- inga- og kynningarherferðir. Sheryl Crow var langt frá því að standa undir væntingum útgefandans. Sömuleiðis Sting, Counting Crows og Cranherries. Plata Pearl Jam, No Code, seldist aðeins í ellefu hundruð þúsund eintökum, Fairweather Johnson með Hootie & The Blowfish staðnæmdist í tveimur milljónum (sú næsta á undan fór í tólf milljón eintökum) og Nirvana náði sér ekki á strik. Hvað næst? í blöðum hefur því verið spáð að rokkbylgjan, sem spratt upp í kjöl- far velgengni hljómsveita frá Seattle, heyri nú sögunni til og sömuleiðis bófarapp. Enginn veit hvað getur leyst þessar stefnur af hólmi. Ný-soul tónlistin hefur ekki náð sér á strik nema kannski með Babyface. Ska virðist ekki ætla að festast í sessi og gagnrýnendur Was- hington Post telja ólíklegt að breska klúbbmúsíkin, sem svo er kölluð, eigi eftir að ná fótfestu vestanhafs. Til þess sé hún of hrá og hröð. Nokkrar plötur era taldar eiga eftir að slá i gegn á fyrsta fjórðungi þessa árs. Menn virðast vera sam- mála um að Pop með írsku hljóm- sveitinni U2 eigi eftir að gera það gott þótt vafalaust eigi margir aðdá- endur eftir að bregðast ókvæða við þegar þeir heyra að gömlu kemp- umar era famar að fást við dans- tónlist. Pop kemur út fyrri hluta marsmánaðar. Þá er því einnig spáð að nýjasta plata Aerosmith eigi eft- ir að gera það gott og sömuleiðis plötur með Live, Mary J. Blige, The Offspring og David Bowie. Hvort sú spá rætist verður síðan að koma í ljós. Samantekt: ÁT - Hótel Island um helgina Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur á stórdansleik á Hótel íslandi fostudagskvöld- ið 17. janúar. Áfram dreymt Draumalandið leikur á Staðnum, Keflavík, fostudagskvöldið 17. janúar og laugardaginn 18. janúar. Rúnar Þór skemmtir Föstudagskvöldið 17. janúar og laugardags- kvöldið 18. janúar leikur trúbadorinn Rúnar Þór á Rauða ljóninu. plötasala ríkjunum sídasta Banda ari a / -1 ±

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.