Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1997, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1997, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1997 *#» helgina W, 1 23 fostudagur kl. 20.00 Þrek og tár laugardagur kl. 20.00 Leitt hún skyldi vera skækja fostudagur kl. 20.30 Borgarleikhúsið Fagra veröld laugardagur kl. 20.00 Trúðaskólinn laugardagur kl. 14.00 Dómínó sunnudagur kl. 20.00 Svanurinn föstudagur kl. 20.00 laugardagur kl. 17.00 Barpar fbstudagur kl. 20.30 laugardagur kl. 20.30 Stone Free fóstudagur kl. 22.00 Leikfélag Akureyrar Undir berum himni fostudagur kl. 20.30 laugardagur kl. 20.30 Hermóður og Háðvör Birtingur fostudagur kl. 20.00 laugardagur kl. 20.00 Loftkastalinn Áfram Latibær sunnudagur kl. 14.00 sunnudagur kl. 16.00 Á sama tíma að ári laugardagur kl. 20.00 Sirkús Skara skrípó fbstudagur kl. 20.00 Nemendaleikhúsið Hátíð laugardagur kl. 20.00 sunnudagur kl. 20.00 Skemmtihúsið Ormstunga laugardagur kl. 20.30 Höfðaborgin Gefin fyrir drama... laugardagur kl. 20.30 Rúi og Stúi sunnudagur kl. 14.00 Safnarinn sunnudagur kl. 20.30 Kaffileikhúsið Einleikir Völu Þórs föstudagur kl. 21.00 laugardagur kl. 21.00 Leikfélag Mosfellssveitar Litla hafmeyjan laugardagur Ú. 15.00 sunnudagur kl. 15.00 Tjamarbíó Poppleikurinn Óli n laugardagur kl. 20.30 Félaijsheimili Kópavogs föstudagur kl. 20.00 laugardagur kl. 20.00 sunnudagur kl. 20.00 200 ár frá fæðingu Franz Schubert: T ónlistarhá- tíð í Garðabæ Austurríska tónskáldið Franz Schubert er fyrir löngu orðið með eindæmum frægt og þeir eru fáir sem ekki hafa enn heyrt hans getið. Þann 31. janúar hefði kappinn orðið 200 ára ef mannskepnan væri þeirri náttúru gædd að lifa svo lengi. Hollenski píanóleik- arinn og hljómsveitarstjórinn Gerrit Schuil hefur ákveðið að halda upp á þetta fæðingaraf- mæli snillingsins með tón- leikahátíð þar sem fram munu koma um tuttugu innlendir og erlendir tónlistarmenn. Frá morgundeginum til 31. maí verða alls haldnir níu tónleik- ar þar sem flutt verður mikið úrval söngljóða og kammer- verka eftir tónskáldið. Einnig mun hin heimsfræga söng- kona Elly Ameling koma til landsins í byrjun apríl og halda námskeið - masterclass - fyrir íslenska söngvara, að viðstöddum áheyrendum. All- ir tónleikamir verða haldnir í safnaðarheimilinu Kirkju- hvoli við Vídalinskirkju í Garðabæ. Schubert-hátíðin hefst á morgun klukkan 17 með ljóða- tónleikum Rannveigar Fríðu Bragadóttur þar sem hún syngur lög eftir Schubert. Við hljóðfærið verður Gerrit Schuil. Enginn nýgræðingur á feroinni Rannveig Fríöa Bragadóttir hefur hlotið afburöadóma fyrir söng sinn. Rannveig Friða er enginn nýgræðingur í söngfaginu. Hún hóf nám við Tónlistarhá- skólann í Vínarborg árið 1982 en síðan lá leið hennar í óperustúdíó Ríkisóp- erunnar í Vín og árið 1989 var hún fastráðinn einsöngvari við sjálfa Ríkis- óperuna. Rannveig Fríða hefur tekið þátt í fjölda óperusýninga við þetta fræga og virta óperuhús undir stjóm heimsþekktra stjórnenda eins og Her- berts von Karajan, Sir Georges Solti og Claudios Abbado. Þá hefur hún sung- Tón- listarhá- tíöin er öll tiieinkuö hin- um austurríska snillingi, Franz Schubert. ið í óperusýningum hér á landi, bæði í Þjóðleikhúsinu og íslensku óperunni. Á liðn- um árum hefur Rannveig Fríða komið fram á fjölmörg- um tónleikum bæði hér á landi og í Austurríki, þar sem hún er búsett, og hlotið af- burðadóma fyrir söng sinn. Náið samstarf við ís- lenska tónlistarmenn Gerrit Schuil hefur verið búsettur á íslandi síöastliðin fjögur ár. Hann nam píanó- leik við Tónlistarháskólann í Rotterdam en stundaði síðan framhaldsnám i London og París og lærði hljómsveitar- stjóm hjá hinum heimsfræga rússneska hljómsveitarstjóra Kirill Kondrashin og hlotnað- ist raunar sá heiður að vera eini nemandi Kondrashin síð- ustu æviár meistarans. Auk þess að hafa stjómað fjöl- mörgum hljómsveitum í Evr- ópu og Bandaríkjunum var Gerrit um árabil stjómandi Sinfóníuhljómsveitar hol- lenska ríkisútvarpsins sem þá var jafnframt aðalhljómsveit Hollensku rikisópemnnar. Gerrit hefur átt náið samstarf við íslenska tónlistarmenn á liðnum árum, ekki síst söngv- ara okkar, og afrakstur þeirr- ar vinnu má að nokkra leyti sjá á hátíðinni sem nú fer í hönd. Forsala aðgöngumiða er í Bókabúð Máls og menningar en miðasala er opin 1 Kirkjuhvoli við Vídalínskirkju á milli kl. 15 og 17 tónleikadagana. Miðaverð á einstaka tónleika er 1400 krónur en áskriftarkort á alla níu tón- leikana kostar 10.000 krónur. Múmínálfana þekkja allir krakkar enda eru þeir sætir og ekki síöur skemmti- legir. Norræna húsið: Múmínálfarnir í vetur hafa verið kvikmyndasýningar fyrir börn og unglinga i Norræna húsinu á sunnu- dögum. Ekki verður bragðið út af vananum komandi sunnudag því til stendur að sýna böm- unum þijár teiknimyndir með hinum víðfrægu múmínálfum sem allir þekkja. Múmínálfam- ir fá heimsókn af Ninnu sem er ósýnileg af því að það er búið að hræða hana svo oft. Múmínsnáðanum finnst það nú ekki sniðugt og vill endilega hjálpa henni að verða sýnileg að nýju. Myndirnar eru byggðar á sögum eftir Tove Jansson en sýningin tekur rúman klukkutíma og er með sænsku tali. Kvikmyndasýningin hefst klukkan 14.00 en áður mun Lisbeth Ruth yfirbókavörður til- kynna hver vann samkeppnina um nafniö á nýja herberginu undir bókasafninu sem var formlega opnað síðastliðinn laugardag. Allir era velkomnir og aðgangseyrir er að venju enginn. -ilk LEIKHUS ennarar óskast sunnudagur kl. 20.00 Villiöndin HHBHHiii

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.