Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1997, Page 12
26
yndbönd
lögreglunnar, Charlie Fallon. Reyndar virkar hann nokkuö gamall í hlut-
verkið, enda orðinn gráhærður, en hann má eiga það að hann reynir ekki
að elta hófana uppi, heldur sendir einfaldlega yngri félaga sinn á eftir þeim.
Charlie er mikið hörkutól og ákaflega bitur og lætur glæponana finna vel
fyrir sér. Hann kemur drukkinn út úr klámbúllu kvöld eitt og sér félaga
sinn til margra ára liggja i blóði sínu í götunni og ókunnugan mann standa
yfir honum. Charlie tryllist af reiði og lemur manninn til dauða. Að því
loknu fleygir hann líkinu í höfnina og mætir í vinnuna daginn eftir eins og
ekkert hafi í skorist. Hann fær nýjan félaga, ungan og metnaðarfullan
framagosa, og fyrsta verkefni þeirra er að rannsaka morðið á manninum
sem Charlie fleygði í höfnina. Fljótlega kemur í ljós að hann var lögreglu-
maður í innra eftirliti lögreglunnar og var að rannsaka spillingu, sem
tengdist m.a. fyrrum félaga Charlie. Sögufléttan í myndinni er nokkuð
spennandi, en það er fremur illa unnið úr henni og endirinn er ein stór
klisja. Leikarar standa sig allt frá nokkuð sæmilega til afar Ula, með einni
undantekningu, sem er Sam Elliot, og í raun ótrúlegt hvað þessi gamal-
reyndi leikari nennir að leggja sig fram í hlutverkinu.
Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: John Langley. Aöalhlutverk: Sam Elliot og Esai
Morales. Bandarísk, 1996. Lengd: 95 mín. Bönnuð bömum yngri en 16 ára. -PJ
ln The Bleak Midwinter:
Lítið leikhúsævintýri
Joe Harper er leikari sem hefur verið atvinnulaus í
meira en ár og er á barmi sjálfsmorðs vegna þunglynd-
is. Til að reyna að hressa upp á tilveruna ræðst hann í
það verkefni að leikstýra Hamlet í gamalli kirkju i litl-
um bæ. Hann hefur nánast enga peninga, engir áhorf-
endur virðast hafa áhuga á sýningunni, og leikhópur
hans er samansafn furðufugla sem virðast hafa hver
sína skoðun á þvi hvaða leiðir eigi að fara í uppsetning-
unni. Eini meðlimur hópsins sem er óákveðinn er bún-
inga- og leikmyndahönnuðurinn sem alls ekki getur
ákveðið sig með það hvemig útlit sýningarinnar á að
vera. Áhorfandinn fær smám saman að kynnast persónunum í hópnum og
vandamálum þeirra, og að lokum að sjá hver útkoman verður eftir alla
vinnuna. Kenneth Branagh lætur sér nægja að leikstýra þessari mynd sinni
og kemur ekki fram í henni. Það kemur ekki að sök, því að úrvalsleikarar
em í hveiju hlutverki og Michael Maloney er óaðfmnanlegur sem Joe
Harper. Myndin er oft mjög fyndin og uppfinningasemin í fyrirrúmi, en það
er einnig stutt í tárin og dramatíkina, og er einnig vel unnið úr þeim þætti
myndarinnar. Endirinn er þó svona einum of.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Kenneth Branagh. Aðalhlutverk: Michael
Maloney, Richard Briers, Joan Collins o.m.fl. Bresk, 1995. Lengd: 95 mín.
Leyfð öllum aldurshópum.
Freeway: **•★<
ber frá sér
Hér er á ferðinni afar sérstök mynd sem s
söguþráð í ævintýrið um Rauðhettu, en snýr
að hætti Freuds. Myndin gerist í nútímanun
Vanessu, kjaftforri unglingsstúlku sem býi
sinni og stjúpfóður sínum. Þau era bæði ei
lingar og móðir hennar selur sig á götunni fyrir utan
húsið um hábjartan dag meðan stúpfaðirinn misnotar hana. Þegar lögreglan
kemur og hirðir þau bæði sér Vanessa fram á að verða sett I fóstur, hlekkj-
ar bamaverndamefhdarfulltrúann við rúmiö sitt og leggur af stað til ömmu
sinnar sem býr í annarri sýslu. Þegar bíllinn hennar bilar fær hún far hjá
Bob Wolferton, vinsamlegum sálfræðingi, sem síöan reynist vera geðsjúkur
og kynferðislega brenglaður morðingi. Kiefer Sutherland leikur hann og hef-
ur ekki verið betri síðan ég man ekki hvenær. Eftir mikinn hasar, þ.á m.
vistun í harðsvímðu kvennafangelsi, kemst Vanessa loks til ömmu sinnar,
þar sem úlfúrinn bíður eftir henni, og f þetta skiptið er veiðimaðurinn ekki
til staðar til að hjálpa. GrimmOeg og hrottaleg saga, ásamt svörtum húmor
og góðum leik gera myndina mjög eftirminnilega. Segja má að myndin endi
„vel“, þ.e. Rauðhetta/Vanessa sigrar í lokin, en myndin skilur áhorfandann
samt eftir með áleitnar og óþægilegar hugrenningar.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Matthew Bright. Aðalhlutverk: Reese
Witherspoon og Kiefer Sutherland. Bandarisk, 1996. Lengd: 98 mín.
Bönnuð börnum yngri en 16 ára. PJ
The Cable Guy: ★i (O&k
Uppáþrengjandi vinur ™
Eftir Ace Ventura eitt og tvö, The Mask og Dumb and
Dumber er Jim Carrey orðinn einn af dýrastu leikurum
Hollywood og sló víst enn einu sinni persónulegt launa-
met sitt með þessari, þar sem hann leikur mann sem vinn-
ur við að tengja kapalsjónvarp fyrir fólk. Matthew Broder-
ick er í hlutverki Steven Kovacs, eins af viðskiptavinum
hans, sem fær kvikmyndarásimar ókeypis hjá Carrey. I ljós kemur að Carrey
ætlast til þess að þeir Steven verði vinir og félagar í kjölfarið og lætur vesl-
ings Steven ekki í friði. Þegar Steven loks fær nóg og segist ekki vilja vera
vinur hans snýst uppáþrengjandi vináttuleit upp í hreinustu ofsóknir, þar
sem ekkert er heilagt og Steven er í hættu með að missa atvinnuna, kærast-
una og fjölskylduna. Jim Carrey var drepfyndinn þegar maður sá hann fyrst
I Ace Ventura, en stælamir í honum missa sjarmann smám saman og hann
getur varla mjólkað þá öllu lengur. Það era að vísu nokkur fýndin atriði í
myndinni, en gallinn er að maður er þegar búinn að sjá helminginn af þeim
i auglýsingum. Á köflum virðist myndin breyta um ham og snúast upp í sál-
fræðitrylli, sem ómögulegt er að taka alvarlega vegna þess að myndin er fyrst
og firemst dellufarsi, sem byggist á aulahúmor.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Ben Stiiler. Aðalhlutverk: Jim Carrey og
Matthew Broderick. Bandarísk, 1996. Lengd: 92 mín. Bönnuð börnum
yngri en 12 ára. -PJ
FÖSTUDAGUR 17. JANUAR 1997
31.des. til fi.jan.
.ffT, FYRRI sæt,:í vika VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG.
1 Ht 1 Rock Sam-myndbönd Spenna
] 2 1 3 Trainspotting Warner-myndir Spenna
3 1 3 4 4 Copycat Warner -myndir Spenna
’ 4 Kingpin Sam-myndbönd Gaman
NÝ 1 Happy Gilmore ClC-myndbönd Gaman
6 f 3 4 From Dusk till Dawn , Skrfan Spenna
7 5 6 Sgt. Bilco ClC-myndbönd Gaman
8 *il#í . i 7 « W—M Juror ■MHBnn Sktfan Spenna
9 6 7 Primal Fear ClC-myndbönd Spenna
1« 8 9 Executive Decision Wamer-myndir Spenna
11 12 5 Don't be a Menace Skrfan Gaman
12 ■ l 14 V. ' .: 1 3 f Crying Freeman Myndform Spenna
13 18 1 Giri 6 Skffan Gaman
14 » 7 Down Periscope , Skífan Gaman
15 15 6 Before and After Sam-myndbönd Spenna
16 jjjHBHBHf 4 i Agnes Myndform Drama
17 18 16 8 NickofTime ClC-myndbönd Spenna
17 5 ■WHW American Quilt r ClC-myndbönd Drama
19 NÝ 1 Crossing Guard Birdcage Skífan Spenna
20 13 11 WBStSStSBnBBBm r Wamer-myndir Gaman
Það fór eins og búast mátti við, The Rock kom
stormandi inn á myndbandalistann, fór beint í efsta
sætið og lætur það iíklega ekki af hendi á næstunni.
The Rock er ein besta spennumynd síöasta árs og
góð skemmtun fyrir alla spennufikla. í aðalhlutverk-
um eru Sean Connery og Nicholas Cage og eru þeir
á myndinni. í fimmta sæti er svo önnur ný mynd,
Happy Gilmore, sem er létt grímynd þar sem golfí-
þróttin kemur mikið viö sögu. Þaö þarf að fara alla
leiö í nítjánda sæti til að finna þriöju nýju myndina.
Er það The Crossing Guard, sem Sean Þenn leik-
stýrir og í aðalhlutverki er Jack Nicholson.
The Rock
Sean Connery og
Nicholas Cage
Snjöllum her-
manni tekst ásamt
mönnum sínum að
ná völdum í Alcatr-
az- fangelsinu. Hann
hótar að varpa öfl-
ugu efhavopni á San
Francisco þar sem
fimm milljónir
manna búa. Eina
færa leiðin virðist
sú að senda menn
inn í Alcatraz og
freista þess að af-
tengja sprengjumar
og ráða niðurlögum
óvinarins og er
ákveðið að kalla til
aðstoðar eina mann-
inn sem hefúr tekist
að brjótast út úr
fangelsinu.
Trainspottíng
Ewan McGregor
og Johnny Lee
Miller.
í þessari frægú
bresku kvikmynd
kynnumst við
nokkrum misrugluð-
um persónum sem
búa í Edinborg og
eiga það sameiginlegt
að hafa farið út af
sporinu í lífinu. Þetta
era dópistinn Mark
Renton og vinir hans,
kvennamaðurinn
Sick Boy, hinn von-
lausi Spud, hinn glat-
aði Tommy og ragiu-
dallurinn geðveiki,
Begbie. Þeir lifa í ver-
öld eiturlyfja og eiga
það sameiginlegt að
vera allir að bíða eft-
ir dóplyftunni sem sí-
fellt er á ferðinni - á
leiðinni upp.
Copycat
Sigourney Wea-
ver og Holly
Hunter
Sigoumey Weaver
leikur afbrotasál-
ffæðing sem fékk
taugaáfall eftir að
hafa orðið fyrir
hrottalegri árás
morðingja og hefur
lokað sig inni í íbúð
sinni mánuðum sam-
an. Þegar hrottaleg
morð era framin
stendur lögreglan á
gati yfir því hver
morðinginn er. Af-
brotasálfræðingur-
inn lætur vita af því
að hún geti sagt hver
morðinginn er og fer
lögreglukona á fund
hennar. Þessar tvær
konur stiila saman
strengi sína eftir
stirða byijun í leit að
morðingjanum.
Kingpin
Woody Harrelson
og Randy Quaid.
Roy hefði getað
orðið stórt nafh í
keilu. En frá því
hann varð meistari
árið 1979 hefur ailt
gengið á afturfótun-
um. Dag einn hittir
hann furðulegan ná-
unga, Ishmael, sem
virðist fæddur til að
spila keilu. Eina
vandamálið er að
hann er amishtrúar,
klæðist svörtum
jakkafótum og er
með hatt. Það er því
erfitt fyrir Roy að
sannfæra hann um
að hann geti orðið
góður atvinnumað-
ur í keilu en Roy er
vanur að beita
brögðum og hefur
sitt fram.
Happy Gilmore
Adam Sandler og
Christopher McDonald.
Happy Giimore er
mikill íshokkiaðdá-
andi og hefúr aila tíð
dreymt um að verða
vinsæll íshokkíleik-
maður. Það sem hefúr
staðið honmum fyrir
þrifúm er hversu
skapstyggur hann er.
Af tilviljun kemst
Happy að því að með
því að nota íshokkís-
veiflu sína getur hann
slegið golfbolta lengra
en aðrir og þar sem
amma hans skuldar
skattinum mikla pen-
inga ákveður Happy
Gilmore að skrá sig í
röð peningamóta þar
sem álitlegar peninga-
upphæðir era í boði
fyrir sigurvegarann
og þar með er hann
orðinn að martröð at-
vinnugolfarans.