Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1997, Blaðsíða 11
lyndbönd
25
FÖSTUDAGUR 24. JANUAR 1997
Mission: Impossible
Gamalt sjónvarpsefni í nýjum búningi
Vinsæll meðal leikar-
anna
í starf leikstjóra vildi Tom Cruise
fá Brian De Palma sem tók vel í hug-
myndina. Brian De Palma er einn af
þekktustu leikstjórum Bandaríkj-
anna og hefur leikstýrt mörgum stór-
myndum, þ. á m. Scarface og The
Untouchables. Hann er vinsæll með-
al leikara og hefur orð á sér fyrir að
vita hvað hann vilji fá út úr þeim, en
sé alltaf opinn fyrir uppástungum og
gefi leikurum oft lausan tauminn, en
hann fór einmitt þá leið með mörg
hlutverk í Mission: Impossible. Marg-
ir leikaranna byrjuðu með tiltölulega
ómótaðar persómn sem síðan þróuð-
ust og breyttust með tímanum. T.d.
fékk Jean Reno í byrjun einungis að
vita að persónan hans væri frönsk,
svikari og reykingamaður.
Þau Cruise, Wagner og De Palma
höfðu i huga að gera myndina þann-
ig að hún höfðaði til gamalla aðdá-
enda sjónvarpsþáttanna, en gæti jafn-
framt staðið ein og sér sem vönduð
og spennandi njósnamynd. Meining-
in var að ná stemningunni úr sjón-
varpsþáttunum, en þó þannig að
myndin væri sjálfstætt verk. Þess má
geta að leikmyndahönnuðurinn
Norman Reynolds tók þá ákvörðun
að horfa ekki á einn einasta Mission:
Impossible þátt til að tryggja að ekki
yrði um neinar eftirlíkingar að ræða.
Þá eru persónur aðrar en í þáttunum
og er Jim Phelps eina nafnið sem
einnig var í þáttunum, en Jon Voight
leikur hann. Sú persóna er jafnframt
allnokkuð frábrugðin þeirri upp-
runalegu.
Vönduð tæknivinna
Eitt af aðalmarkmiðunum var að
gera mynd sem liti vel út, væri vönd-
uð og flott, en jafnframt trúverðug og
ætti sér grunn í raunveruleikanum.
Tölvugrafik er mikið notuð í mynd-
Mission: Impossible var nafn sjón-
varpsþátta sem sýndir voru á CBS-
sjónvarpsstöðinni í lok sjöunda ára-
tugarins og byrjun þess áttunda og
náðu miklum vinsældum. Þeir hafa
verið taldir klassískt sjónvarpsefni
og er upphafsstef þeirra vel þekkt,
allavega meðal bandarísks almenn-
ings, og náði aftur vinsældum i með-
förum þeirra U2-félaga, Adam
Clayton og Larry Mullen jr. Tom
Cruise, sem hafði mikinn áhuga á
þáttunum, komst að því að Para-
mount ætti réttinn á þeim, og sann-
færði það um að þeir yrðu kjörið efni
í kvikmynd, sem yrði fyrsta verkefni
Cruise/Wagner Productions, en það
er framleiðslufyrirtæki innan Para-
mount og gæluverkefni Tom Cruise
og Paula Wagner. Afurðin kemur út
á myndbandi í næstu viku, í aðal-
hlutverki er Tom Cruise, en aðrir
leikarar eru Jon Voight, Henry Cz-
emy, Emanuelle Beart, Jean Reno,
Ving Rhames, Kristin Scott-Thomas
og Vanessa Redgrave.
inni og notaður var vél- og hugbún-
aður frá bæði Apple og IBM. Ýmiss
konar vel þekktur hugbúnaður sést í
myndinni, svo sem After Dark,
Netscape og Adobe Photoshop. Hvað
tæknibrellur og áhættuatriði varðar
sést ýmislegt í myndinni sem ekki
hefur sést áður í kvikmynd, þ. á m.
er atriði þar sem leikararnir þurfa að
virðast vera að skríða utan á hraðlest
með þyrlu á eftir sér. Tom Cruise var
ekki ánægður með neina af vindvél-
unum sem prófaðar voru og fannst
þær ekki vera nógu öflugar, en að
lokum náðu þeir í fallhlífarstökks-
hermi, hinn eina sinnar tegundar í
Evrópu, sem náði vindhraða allt að
200 km/klst og reyndi mikið á
áhættuleikarana.
Tom Cruise er einn af stærstu
stjörnunum í Hollywood leið hans
upp á stjömuhimininn var með ólík-
indum. Hans fyrsta stóra hlutverk
var í myndinni Taps, en með ungl-
ingagrínmyndinni Risky Business
aflaði hann sér vinsælda, og skaust
síðan eftirminnilega upp á stjömu-
himininn með næstu mynd sinni,
Top Gun. í kjölfarið fylgdu margar
stórmyndir, svo sem The Color of
Money, Rain Man, Far and Away og
Born on the Fourth of July, sem
færði honum óskarsverðlaunatilnefn-
ingu. Síðustu þrjár myndir hans á
undan Mission: Impossible voru The
Firm, A Few Good Men og Interview
with the Vampire, sem hafa halað
inn samtals um 750 milljón dollumm
á heimsvísu. Hann hefur nú haslað
sér völl sem framleiðandi með
Mission: Impossible. -PJ
Tom Cruise leikur leyniþjónustumanninn Ethan Hunt.
UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT
Edda Björgvinsdóttir
Ég er mjög lítil mynd-
bandakona og sofha gjam-
an strax og kynningartextinn er af-
staðinn en það eru þó nokkur
myndbönd sem ég held rosalega
upp á. Nú á ég við myndbönd
nokkur sem ég set í
tækiö, sjálfri mér
til ánægju, en á
þeim eru eld-
gamlir þættir
sem mér em
sendir frá
Ameríku.
Þetta eru
þættir með
Lucy Ball,
Mary
Tyler
Moore,
Red
Skelton og
slíku fólki.
Það er alltaf
verið að endur-
flytja þessa þætti
þarna í út-
land-
inu
öðru
hverju
og ég fæ sendar upp-
tökur. Þetta er mitt efni og ég
sofha ekki yfir því. í raun er þetta
eina efnið sem ég set í tækið sjálf-
viljug. Efst á listanum er þó hún
Lucy Ball en hún er í algjöru uppá-
haldi hjá mér. Hún er ein-
hver sú flinkasta gam-
anleikkona sem ég
hef á ævi minni
séð. Ég fæ alltaf
krampa yfir
henni en ann-
ars fæ ég
ekki hlátur-
krampa yfir
mjög mörgu.
Þegar ég er
ein heima og
ræð yfir
myndbands-
tækinu, sem er
sjaldnast, þá nota
ég iðulega tækifærið
og skelli þessum þáttum
í. Ég get horft á sama
þáttinn aftur og aftur
og verð
aldrei
þreytt á
þessu.
The Fresh
Unabomber
The Quest
The Fresh er dramatísk kvik-
mynd sem gerð er af miklum metn-
aði. Aðalper-
sónan er Fresh,
tólf ára dreng-
ur sem býr í
Brooklyn. í
fyrstu er ekki
hægt að merkja
að hann sé
öðruvísi en
aðrir krakkar á
sama reki en
starf hans er þó
ekki beint ætl-
að krökkum.
Hann er sendisveinn nokkurra
fíkniefhasala sem hver fyrir sig hef-
ur óskráðan umráðarétt yfir sölu
hinna ýmsu eiturlyfja f hverfinu.
Fresh er hinn ánægðasti með starf
sitt. Að vísu á hann mjög erfitt með
að sætta sig við að systir hans er
orðin eiturlyfjaneytandi. Hugur
hans gagnvart eiturefnum breytist
þegar vinkona hans og bekkjarsyst-
ir er skotin til bana á leikvelli skól-
ans af eiturlyfjasala sem Fresh hef-
ur unnið fyrir og grípur til eigin
ráða til að bjarga því sem honum
þykir kærast.
Sá sem leikur Fresh heitir Sean
Nelson og er um frumraun hans að
ræða. Á móti honum leika aftur á
móti þekktir leikarar á borð við
Samuel L. Jackson og Giancarlo
Epoasito.
Háskólabíó gefur Fresh út og er
hún bönnuö börnum innan 16 ára.
Útgáfudagur var 21. janúar.
Bandaríkjamenn eru mjög fljótir
til þegar upp kemur i fréttum eitt-
hvert mál sem
hægt er að gera
kvikmynd úr.
Réttarhöldin
yfir O.J. Simp-
son voru varla
hálfnuð þegar
fyrsta sjón-
varpsmyndin
leit dagsins ljós.
Þegar hinn
frægi Una-
bomher var loks
handtekinn í
fyrra, en hann hafði hrellt fólk víða
í sautján ár, þóttust sjónvarpsstöðv-
ar hafa komist í feitt og strax var
farið að gera mynd um ævi þess
sem har ábyrgð á sprengingunum. í
myndinni er fylgst með rannsókn
málsins frá upphafi og er aðalper-
sónan Ben Jeffries sem i mörg ár
leitaði að sprengjumanninum.
Einnig er skyggnst inn í líf
sprengjumannsins sem var há-
menntaður og hafði starfað sem há-
skólakennari.
I aðalhlutverkum eru Robert
Hays, Dean Stockwell og Tobin Bell.
Bergvik gefur út Unabomber og er
hún bönnuð börnum innan 16 ára.
Útgáfudagur er 28. janúar.
The Quest er með Jean-Claude
Van Damme í aðalhlutverki og leik-
stýrir hann
einnig myndinni
og skrifar hand-
rit ásamt Frank
Dux.
Van Damme
leikur smá-
bófann Chris
Dubois sem er á
flótta undan lög-
reglunni í New
York árið 1920. Á
flóttanum verð-
ur honum fóta-
skortur svo hann dettur niður í lest
af fragtskipi og rotast. Þegar hann
rankar við sér er hann lagður af
stað í mikla hættu- og ævmtýraför
yfir hálfan hnöttinn, alla leið til
týndrar borgar í Himalaya-fjöllum.
Á leiðinni hittir hann og á í höggi
við bíræfna vopnasmyglara, sjóræn-
ingja og heimsins bestu bardaga-
menn þegar hann tekur þátt í har-
dagakeppni aldarinnar.
Helsti mótleikari Van Damme í
The Quest er ekki af verri kantin-
um, sjálfur fyrrum James Bond, y
Roger Moore, en hann leikur sjó-
ræningjaforingja einn sem fer illa
með Van Damme.
Myndform gefur út The Quest og
er hún bönnuð börnum innan 16
ára. Útgáfudagur er 28. janúar.
N ' ArsJ I.JAMmi
I 1« *
H *SÍ
* .< » I * II | *l' I M |« |