Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Qupperneq 7
45 i iV MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 1997 Qnyndbönd Doug Kinney er að fara yfirum á stressi vegna starfsins og heimilislífsins. Álagið í vinnunni er mikið og fer vaxandi, þar á ofan þarf hann að sinna bömunum og eiginkonunni, sem vill fara að vinna aftur, og hann hefur engan tíma fyrir sjálfan sig. Þegar erfðafræðingur nokkur býðst til að klóna hann tekur hann boðinu fagnandi og fær meira að segja annað eintak nokkru síðar, þannig að hann hafi einn til að sinna vinnunni, einn í heimilisstörfin og geti sjálfur notið lífsins. Klónarnir tveir fá sér síðan aðstoðarmann með því að láta klóna Doug 2. Persónuleikar klónanna þróast síðan hver í sina áttina og auðvitað fer allt í flækju með fjögur stykki af sama manninum í sama húsi. Myndin er ansi góð í svona klukkutíma, oft mjög fyndin, og Michael Keaton finn- ur sig mjög vel í hlutverkunum sínum. Persónuleikar klónanna em vel skrifaðir og vel leiknir af Keaton, þannig að maður veit alltaf hver er hver, þótt þeir líti allir auðvitað eins út. Þvi miður hrapar myndin síð- asta hálftímann eða svo. Hún hættir snögglega algjörlega að vera fyndin og leysist upp í gmnnt tilfinningadrama. Síðasti hálftíminn dregur myndina niður um hálfa til eina stjömu. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Harold Ramis. Aðalhlutverk: Michael Keaton. Bandarisk, 1996. Lengd: 113 min. Öllum leyfð. -PJ Crime of the Century irick Saklaus dæmdur Crime of the Century segir frá Bruno Richard Hauptman, þýskum innflytjenda sem handtekinn var og ákærður fyrir frægt rán og morð á barni Lindberg- hjónanna sem vora hetjur í Bandaríkjunum. Megnið af lausnargjaldinu fyrir bamið fannst falið í íbúð hans og á grundvelli þess og vitnisburðar nokkurra vitna var hann sak- felldur og síðar tekinn af lifi í rafmagnsstól. Myndin gerir ráð fyrir sak- leysi hans og samkvæmt henni báru mörg vitnin ljúgvitni og lögreglan beitti þvingrmum og blekkingum til að fá fram sakfellingu. Uppbygging sögunnar er með ágætum og leikur einnig. Stephen Rea er mjög góður i aðalhlutverkinu og skartar trúverðugum hreim. Isabella Rossellini er ekki eins eftirtektarverð í hlutverki eiginkonunnar, en vert er að nefna J.T. Walsh í hlutverki lögreglustjórans sem hvað harðast berst fyrir sak- fellingu Hauptmans. Persónusköpun er fremur grunn og svarthvít og myndin verður oft melódramatísk. Þá vantar algjörlega að einhverjar tilraunir séu gerðar til stílbragða i kvikmyndatöku, þannig að myndin er fremur þurr. Þetta er sjónvarpsmynd og ágæt sem slík, en ekki til- þrifamikil. Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Mark Rydell. Aðalhlutverk: Stephen Rea og Isa- bella Rossellini. Bandarísk, 1995. Lengd: 108 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ öiiöj'jjm Stealing Beauty: ★★* Sakleysi kvatt i Hin átján ára gamla Lucy kemur til vinafólks á Ítalíu til að eyða þar sumarleyfinu og láta gera höggmynd af sér. Þar að auki er hún með fyr- irætlanir um að losa sig við meydóminn með strák sem hún hefur ver- ið skotin í síðan hún var þarna síðast fjórum áram áður, og þá vill hún leysa leyndardóminn um föður sinn, en hún var getin á þessum slóðum eftir eina ástarnótt móður hennar. Hún kemst í kynni við dauðvona rit- höfund, sem fyllist áhuga á vakningu stúlkimnar, og raunar eru flestar persónumar lífsnautnafólk, frjálslegir listabóhemar. Leikstjórinn Bern- ardo Bertolucci stillir nautninni upp gegn sakleysinu og tekst að mörgu leyti vel til. Rómantísk kvikmyndataka er eitt af kennimerkjum hans og þá eru leikaramir vandanum vaxnir, sérstaklega stendur Liv Tyler sig vel, og þá er Jeremy Irons klassaleikari. Því miður missir Bertolucci söguna út í tilgerðarlegt listasnobb af og til og margar persónumar eru hreint óþolandi stereótýpur. Listabóhemamir eiga að vera voða dular- fullir og rómantískir í sínu nautnalífi, en eru hálfbjánalegir og leiðinleg- ir. Að lokum liggur við að maður hrópi húrra þegar Lucy ákveður að glata meydómnum með ósköp venjulegum strák, sem á í raun illa heima meðal nautnaseggjanna. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Bernardo Bertolucci. Aðalhlutverk: Liv Tyler og Jeremy Irons. Bandarísk, 1996. Lengd: 117 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ Feiti prófessorinn Hér er klassísku verki Jerry Lewis nauðgað ræki- lega af konungi kúk- og pissbrandaranna, Eddie Murphy. Efnafræðiprófessorinn Sherman Klump er akfeitur og klaufalegur, en bráðgáfaður. Eftir að hafa verið niðurlægður vegna vaxtarlags síns fyrir framan fegurðardísina sem hann er hrifinn af, ákveður hann að prófa megrun- arformúlu sem hann hefur verið að þróa á sjálfum sér. Umsvifalaust breytist hann í hinn þvengmjóa og spengilega Buddy Love, en sullinu fylgir sú aukaverkun að persónan breytist um leið í samviskulaust partídýr sem ekki getur séð kvenfólk í friði. Eddie Murphy er í sjö hlut- verkum í myndinni. Sem Sherman Klump reynir hann að vekja samúð áhorfendans. Sem Buddy Love og sem líkamsræktareðjót í sjónvarpi lætur hann eins og fífl, og í hinum fjórum hlutverkunum, sem móðir, faðir, amma og bróðir prófessorsins, klæmist hann og fretar. Þetta er ekki félegur kokteill, enda klikkar hann gjörsamlega á aðalatriðinu, að kalla fram hlátur. Eddie Murphy er afar þreyttur og allra þreyttastur sem orkunaglinn Buddy Love. Hefur hann gert eitthvað af viti síðan Trading Places? Útgefandi: CIC myndbönd. Leikstjóri: Tom Shadyac. Aðalhlutverk: Eddie Murphy. Bandarísk, 1996. Lengd: 91 mín. Öllum leyfð. -PJ Multiplicity Michael Keaton og Andie Macdowell Doug er einn af þess- um mönnum sem hafa allt of mikið að gera og því er ekki að neita að hann er að sligast und- an álaginu. En þetta breytist þegar Doug hittir erfðafræðinginn dr. Owen Leeds sem fundið hefur upp að- ferð til að búa til „af- rit“ af fólki. Hann býr tO Doug og skyndilega er hann laus allra mála i vinnunni, „afritið" sér um þann þátt hins daglega lífs. Þungu fargi er þar með létt af Doug og ekki líður á löngu uns hann fær sér annað afrit til að sinna heimilisstörfunum og krökkunum. The Islandofdr. Moreau Marlon Brando og Val ■: & Kilmer. Stórsnjall erfðafræð- ingur dr. Moreau hefúr ásamt aðstoðarmanni sínum Montgomery gert afdrifaríkar og ógn- vekjandi tilraunir með erfðaeftii á afskekktri eyju. Þegar ungur skip- brotsmaður, Edward Douglas, verður eftir á eyjunni skýtur vísinda- maðurinn skjólshúsi yflr hann. I fyrstu finnst Edward hann vera heppinn með að hafa komist lífs af úr skipbrotinu, en áður en langt um líður kemst hann að því að undir sléttu og felldu yflr- borði eyjarinnar leynist hroðalegur leyndar- dómur. The Nutty Professor The Nutty Professor Eddie Murphy og Jada Pinkett. Hinn góðlegi, bráð- gáfaði og akfeiti erfða- fræðiprófessor dr. Sherman Klump verður umsvifalaust ástfang- inn af hinni fógru Cörlu Purly þegar hún kemur til starfa við háskólann. Hann gerir sér þó fljót- lega grein fyrir því að hann á litla möguleika á að vinna hjarta henn- ar nema honum takist að ná af sér 200 kílóum. Hann grípur til þess ráðs að taka inn nýtt fitueyðandi lyf og eftir einn sopa breytist hann í Buddy Love, hraðmæltan, stæltan og tággrannan kvenna- bósa. Eraser Arnold Schwarzenegger og Vanessa Williams Leyniþjónustumað- urinn John Krager, sem hefur þann starfa að halda hlífiskildi yfir mikilvægum vitnum al- ríkislögreglunnar, hef- ur fengið það verkefhi að vemda fegurðardís- ina Lee sem er eina vitnið í máli gegn öflug- um glæpamönnum sem era við það að ná valdi á hættulegu gjöreyðing- arvopni. Kruger er leiddur í gildru og látið líta svo út sem hann sé svikari. Hann þarf þvi ekki aðeins að vemda vitnið heldur þarf hann að vemda sjálfan sig fyrir eigin mönnum og sanna sakleysi sitt fyrir yflrmönnum sínum. rétt skríöur í nítjánda sætið. í þeirri mynd leikur eitt aðal- hlutverkið Ewan McGregor sem þykir eiga bjarta framtíð fyrir sér í Hollywood eft- ir aö hann sló í f* gegn í Train- spotting. Matthew McConaug- hey og Sandra Bullock. Myndin gerist í Mississippifylki þar sem kynþáttafordómar era enn rikjandi. Tveir raddar ræna tíu ára gamalli blökkustúlku, nauðga henni og mis- þyrma svo illilega að þeir telja hana látna. Svo er þó ekki og lög- reglustjórinn kemst fljótt að því hvaða menn vora að verki og handtekur þá. Faðir stúlkunnar tekur full- ur af heift lögin í sína hendur og skýtur mis- indismennina til bana. Það kemur i hlut lög- fræðingsins Jakes Brigance að verja gjörðir föðurins og bjarga honum frá því að fá dauðadóm. 17. til 23. mars SÆTI FYRRI VIKA 1 VIKUR A LISTA 1 J TITILL | ÚTGEF. TEG. 1 \ 1 i 2 J i { Nutty Professor ; ClC-myndbönd j Gaman 2 Ný ; * ! i ! j i Time to Kill ) Warner myndir Spenna 3 j L ) 2 1 i 3 ) Eraser : Warnermyndir Spenna 4 1 N* i ) ) 1 i i J Multiplicity ) i J Skífan J Gaman J S i Ný j i r Island of Dr. Moreau j Myndform ; Spenna 6 i ! 9 j ) ! 2 i Heavens Prisoners j j Sam-myndbönd Spenna J ' ■ ■ V j 7 i 5 j Z J Celtic Pride ) Sam-myndbönd ) Gaman S j 4 J J * i ^ ! i J The Arrival j Háskólabíó Spenna ) ' ) 9 j V i 2 i Stealing Beauty Skífan ; Drama 10 í 3 i i 5 ! ) J Last Man Standing ) Myndform Spenna 11 ; 7 ! 6 ! Independence Day -! Skífan \ Spenna 12 ) i 12 i i 9 i Truth about Cats and Dogs ) ) 1 Skífan J Gaman ) ) 13 ! 6 T 8 J i 8 ) Mission: Impossible i 1 j ClC-myndbönd j Spenna 14 1 * » 1 1 ! 9 i Fargo ) i Háskólabíó Spenna j ••■■• ■;< 15 i 11 J t j 5 i Powder J Sam-myndbönd ' Drama 16 J ; io j i. ! 9 i i J Eye for an Eye ! ClC-myndbönd \ Spenna )' . ) 17 i 13 i 3 i Mrs. Winterbourne | Skffan \ Gaman 18 ; i6 ! 6 i j )■ Mr. Wrong ) ) Sam-myndbönd Gaman 19 i Ný ) i j i 1 is Blue Juice ! Háskólabíó 1 Gaman 20 ; 19 i n ; Happy Gilmore ClC-myndbönd Gaman AHmetoKill Þriðju vikuna í röð heidur The Nutty Professor efsta sæti mynd- bandalistans og ekki einu sinni A Time to Kill, sem gerð er eftir skáld- sögu John Grisham, nær efsta sæt- inu af Eddie Murphy. Á myndinni eru aðalieikaranir í A Time to Kill, nýstirnið Matthew McConaughey og Sandra Bullock. Annars eru sviptingar í efstu sætum listans og þrjár nýjar myndir eru meöal fimm efstu mynda. Aöeins ein önnur ný mynd kemst inn á lista, breska brimbrettamyndin Blue Juice, sem

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.