Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1997, Qupperneq 9
I>V FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997
HLJÓMPLjÍTll
ÍIIIIYÍJJ
Radiohead - OK Computer ★★★*
Snertur af snilld
Hljómsveitin Radiohead hefur
vaxið jafnt og þétt síðan lagið
Creep kom út á sínum tíma og
gerði allt vitlaust. Síðasta plata
hljómsveitarinnar var skref í rétta
átt, en með árs upptökuferli á nýju
plötunni var skreflð tekið til fúlls.
Það er ekki laust við að snilldar-
taktar skíni í gegnmn tónlistina og
textana á þessari plötu sem er því
miður ekki alveg gallalaus (en gall-
amir eru svo smávægilegir að þeir
draga plötuna aðeins niður um hálfa stjömu - þá er að flnna í lögunum
Climbing up the Walls og No Surprises). En snúum okkur aftur að því sem
vel er gert.
Radiohead hefur fundið hljóm sem undirritaður hefur ekki heyrt eins
fram settan áður. Sambland raflnagnsgítara, mýktar söngsins, kassagítara,
ásláttarhljóðfæra og yflrhöfuð kraftmikils hljóðfæraleiks og sterkra laglína
gerir plötuna að snilldarverki ársins til þessa.
Textar plötunnar fjalla um mannlegan breyskleika í sinni víðustu mynd
og ná liðsmenn Radiohead að gera það jafht smekklega og ósmekklega, en
slíkt hið sama á við um lífið, þú upplifir ekki jákvæðni án neikvæðni. Einn
skemmtilegasti textinn er talaður af tölvu (forriti sem smáriti Macintosh
inniheldur).
Lagið Paranoid Android hefúr enn vinningin yfir hin í mínum eyrum, en
á plötunni era líka falleg lög eins og Exit Music, Lucky, Let down og kraft-
meiri lög eins og Airbag og Surterranean Homesick Alien.
Enginn verður svikinn af því að kaupa þessa plötu, jafnvel þó hún þurfi
smáathygli til að byrja með, en það á líka alltaf við þegar snertur af snilld
kemur nálægt tónlistarafúrðinni. Guðjón Bergmann
Hanson - Middle of Nowhere
Ungir og furðu efnilegir ★★★
Lagið MMMBop hefur tæpast
farið fram hjá neinum sem á ann-
að borð hefur átt leið fram hjá út-
varpstæki í sumar. Hanson-bræð-
urnir hafa komið því í efstu sæti
vinsældalista um allan heim. Lag-
ið er því hreinræktaður sum-
arsmellur og á eftir að lifa fyrir þá
sök, hvemig svo sem hlustendum
hugnast smíðin.
Hanson-bræðurnir era ungir að
árum. Sá elsti, Isaac, er sextán ára,
Taylor er þrettán og Zac aðeins ell-
efu. Þeir hafa eigi að síður spilað,
sungið og samið saman lög og texta
í fimm ár. Á undan Middle of Nowhere hljóðrituðu þeir tvær plötur sem
þeir gáfu út og dreifðu sjálfir. MMMBop er ekki alveg dæmigert fyrir plöt-
una Middle of Nowhere. Þar eru vissulega fleiri lög sem era líkleg til vin-
sælda en þau hafa ekki kúlutyggjóyfirbragð stórsmellsins. Lucy er þægi-
leg poppballaða, Where’s the Love grípandi poppað rokklag, Yearbook sit-
ur í huganum vegna textans og heilmikið er spunnið i lagið I Will Come
to You. Hinir fomfrægu lagahöfundar Cynthia Weil og Barry Mann
sömdu það reyndar með bræðranum.
Middle of Nowhere er langt frá því að vera gallalaus plata og pródúsent-
amir hafa greinilega ekki reynt að breiða yfir suma þeirra. Ella hefði
platan virkað ótrúverðug vegna ungs aldurs Hansons-bræðranna. Miðað
við útkomuna nú og það sem á undan er gengið eiga þeir áreiðanlega eft-
ir að láta í sér heyra um langa framtíð. Ásgeir Tómasson
Carrapicho - Fiesta de Boi Bumba
Létt og góð sumarstemning ★★★
í Brasilíu era vistarverur tón-
listarinnar margar og fjölbreytileg-
ar enda landið stórt og hvert lands-
hom geymir sína tónlistararfleifð,
ef svo má segja. Hljómsveitin
Carrapicho flytur tónlist sem nefn-
ist Boi Bumba og er eins konar
blanda af sambatónlist og þjóðlegri
músík frá Andesfjöllum. Hún á eig-
inlega meira sammerkt með tónlist
annarra þjóða sem liggja að Andes-
fiöllum heldur en annars konar
hrasilískri músík. Sambahrynj-
andi er til dæmis ekki mikið áber-
andi nema í tæplega helmingi lag-
anna þótt tónlistin sé ætíð hrynsterk. Laglínur era einfaldari en gjaman
er í sambatónlist og því kannski meira grípandi við fyrstu heyrn. Hin oft
flókna hljómræna uppbygging borgarsömbunnar er hér yfirleitt fjarri en
má þó heyra vott af henni í lagi sem nefnist „Bailarina" og einnig ber lít-
ið á hinni reggaeskotnu axétónlist frá Bahia nema í laginu „Iama“.
Mér skilst að þessi diskur njóti nokkurra vinsælda á útvarpsstöðvum
hérlendis um þessar mundir enda er hér létt og góð sumarstemning í
gangi. Augljóst er að um verulega poppútfærslu á Boi Bumba mús-
íkinni er að ræða hjá Carrapicho án þess þó að upprunanum sé kastað
fyrir róða. Flutningur og hljómburður er vandaður eins og alltaf er á
brasilískum geislaplötum og þetta hinn eigulegasti gripur. Hann gæti
jafnvel komið hlustendum á bragðið með að kynna sér stærri spámenn
í brasilískri músík. Ingvi Þór Kormáksson
tónlist
Hljómsveitin
Gipsy Kings var
stofnuð ein-
hvem tíma á átt-
unda áratugnum
af Reyes-bræðr-
unum og Bali-
ardo-frændun-
um. Hún hét
upphaflega Los
Reyes og var til
að byrja með al-
mennt álitin
þjófótt ferða-
hljómsveit með
smávægilega
tónlistarhæfi-
leika. Fyrstu
tvær plötur
hljómsveitarinn-
ar náðu ekki
miklum vin-
sældum, jafnvel
þótt hún næði til
eyrna eins og
þeirra sem voru
fest á haus
Charlie Chaplin
og Brigitte Bar-
dot í samkvæm-
um í San
Tropez.
Það var ekki
fyrr en árið 1986
sem hljómsveit-
in hitti upptöku-
stjórann Claude
Martinez og þá fór boltinn að rúlla.
Martinez sagðist hafa uppgötvað
sjaldgæfan eiginleika við rödd
Nicolas Reyes og benti á að Tonino
Baliardo byggi yfir nákvæmni og
tækni sem setti hann í fremstu röð
gítarleikara. Hann tók líka eftfr því
hversu hljómlistarmennirnir Gipsy
Kings áttu auðvelt með að deila
gleði tónlistarinnar með áhorfend-
um sínum. Martinez hjálpaði hljóm-
sveitinni að losa um nokkrar höml-
ur og árið 1987 kom platan Gipsy
Kings á markað, en meðal annars
með lögunum Bamboleo og Djobi
Djoba sem almenningur hreinlega
gleypti.
Flestir þekkja sögu Gipsy Kings
frá útkomu nefndrar plötu til nú-
tímans. Arabísk og suðuramerísk
áhrif hafa gert tónlist sígaunanna
fræga um allan heim og nú verður
vart gengið inn á veitingastað sem
kennir sig við eitthvert það land
sem hefur rómanskt mál að ekki
heyrist óma í Best of Gipsy Kings
sem kom út 1994.
Compas
Ný plata með Gipsy Kings ber
nafnið Compas og á henni eru 15
lög. Lögin fjalla velflest um ástina,
enda eru sígaunar sagðir afar
ástríðufullir. Á plötunni má þó
fmna eina barnagælu, lag um af-
brýðisemi (sem er víst afar óheppi-
legur fylgifiskur ástríðunnar) og lag
um þann eignarrétt sem sígauna-
karlmenn telja sig hafa yfir konum
sínum (annar óheppilegur fylgifisk-
ur).
Upptökustjóri nýju plötunnar var
Chris Kimsey, en hann er þekktur
fyrir verk sín með INXS (Full Moon
over Dirty Hearts) og Rolling Stones
(Steel Wheels).
Gipsy Kings eru blóðheitir
sígaunar þó hárið sé farið að grána
og hefur tónlist þeirra vakið dans-
hug og ástríðu á heitari stöðum
heimsins til þessa. Spumingin er
hins vegar: Verður nógu heitt á ís-
landi í sumar, eða kemur fólk heim
með þessa úr sumarleyfinu? -GBG
Númer þrjú
Hin nýja plata Prodigy „Fat of
The Land“ er þessa vikuna í þriðja
sæti breska vinsældalistans, á eftir
Men in Black og nýju plötunni frá
Spice Girls „Spice“. Platan var
einnig tilnefnd til Mercury Music
Prize og þykir mjög sigurstrangleg.
Ásamt Fat of the Land voru
OK’Computer með Radiohead, Van-
ishing Point með Primal Scream,
Dig Your Own Hole með Chemical
Brothers, Trailer Park með Beth
Orton, Coming up með Suede, New
Forms með Roni Size og að lokum
Spice með Spice Girls tilnefúdar til
verðlaunanna. Verðlaunaafhending-
in fer fram 28. ágúst.
Jeff
Buckley
í dag verður haldin minningarat-
höfú um Jeff Buckley en sem kunn-
ugt er drukknaði hann 4. júní síðast-
liðinn. Athöfúin er opin almenningi
og fer hún fram í Saint Ann and the
Holy Trinity Church í Brooklyn
Heights í New York. Mamma Buck-
leys hefur beðið gesti að mæta í hvít-
um eða ljósum fotum og í stað þess
að gefa blóm biður hún fólk að
styrkja the Memphis Zoological Soci-
ety. Fyrr á þessu ári vann Buckley
verkefni fyrir dýragarðinn og tók ást-
fóstri við dýrin og náttúruna, sér-
staklega tígrisdýr og fiðrildi.
• •••••
l'll Be Missing You
Margir höfðu spáð því að
Oasis myndi vera í fyrsta
sæti vinsældalistans í Bret-
landi svo mánuðum skiptir.
En nei, eftir aðeins viku á
toppnum slógu Puff Daddy
og Faith Evans félagana út
VI Ul I rjjmj'
með ganúa
Police- laginu
Every Breath
You Take.
Nýja útgáfan
aflaginukall-
ast 111 Be
Missing You
og er til
minningar
um rappar-
ann BIG sem var skotinn til
bana í Los Angeles í mai-s síö-
astliðnum. Lagiö hefur slegið
rækilega í
gegn í sumar
og er búið að
vera í efsta
sæti íslenska
listans síðustu
fimm vikurn-
ar.
í lok síðustu
viku höfðu
hvorki meira
né minna en 700.000 eintök
veriö seld af smáskifunni í
Bretlandi.