Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1997, Page 3
20
21
íþróttir
ENGLAND
Bolton vann 1. deildar liö Port Vale,
2-1, í æfmgaleik á föstudagskvöld.
Guðni Bergsson lék meö Bolton en
Arnar Gunnlaugsson hvíldi.
Colin Todd, framkvæmdastjóri Bolt-
on, er óhress með Kenny Dalglish,
stjóra Newcastle, sem hætti við að
selja Peter Beardsley til Bolton á sið-
ustu stundu. „Dalglish var búinn að
lofa mér því að meiðsl Alans Shear-
ers hefðu engin áhrif á viðskipti okk-
ar,“ sagði Todd.
Hermann Hreióarsson lék fyrsta
leik sinn með Crystal Palace á fóstu-
dagskvöld. Palace mátti þá sætta sig
við jafntefli, 1-1, í æfingaleik gegn 3.
deildar liði Brighton og jafnaði rétt
fyrir leikslok. Hermann hefur fengið
treyju númer 22 fyrir tímabilið.
Attilio Lombardo, ítalinn snögg-
hærði, gekk endanlega frá samningi
við Crystal Palace um helgina. Palace
kaupir hann frá Juventus fyrir um
200 milljónir króna.
Wolves gerði jafntefli við Santos frá
Brasilíu um helgina, 1-1, í ágóöaleik
fyrir Steve Bull. Hann hefur nú leik-
ið í 11 ár fyrir Wolves og á að baki 13
landsleiki fyrir Englands hönd þrátt
fyrir að hafa aldrei spilað í efstu
deiid. Bull fékk um 20 miUjónir króna
í sinn hlut fyrir leikinn. Santos vann
Barnsley, 3-0, í sömu ferð.
Faustino Asprilla skoraði bæöi
mörk Newcastle sem tapaði 3-2 fyrir
Juventus á Ítalíu í fyrrakvöld. Des
Hamilton, bakvörður Newcastle,
meiddist Ula i leiknum. FUippo In-
zaghi skoraði tvö mörk fyrir Juv-
entus og Ciro Ferrara eitt.
Stan Collymore tryggði Aston ViUa
2-1 sigur á 1. deUdar liði WBA í æf-
ingaleik um helgina. Hann geröi sig-
urmarkið mínútu fyrir leikslok.
Regi Blinker er líklega á leið frá
Sheffield Wednesday tU Celtic í Skot-
landi. Forráöamenn Celtic neita því
hins vegar að Paolo di Canio sé á leið
tU Wednesday I staðinn. Di Canio er
heima hjá sér á ítaliu og segist þurfa
hvUd vegna mikUs álags.
Nicolas Anelka skoraði tvö mörk
þegar Arsenal vann utandeUdaliðið
Sittingborne, 5-2, um helgina.
-VS
NBA-DEILDIN
Tveir dómarar í NBA-deUdinni hafa
sagt upp störfum í kjölfar þess að
þeir hafa verið fundnir sekir um
skattsvik. Þeir félagar skiptu flugmið-
um sínum, sem voru á fyrsta far-
rými, fyrir ódýrari farmiða á al-
mennu farrými en láðist að gefa mis-
muninn upp tU skatts. Tveir aðrir
dómarar bíöa dóms en aUir dómarar
í deUdinni hafa sætt rannsókn að
undanfómu. Félagamir tveir vom
dæmdir í skilorðsbundið fangelsi og
fengu háa fjársekt.
Charles Barkley var á fostudaginn
sýknaður af ákæm um líkamsmeið-
ingar. Maður nokkur vildi fá 12 þús-
und dali i skaðabætur frá Barkley
fyrir blóðnasir sem hann segist hafa
fengið eftir viöskipti við NBA-hetj-
una á barnum. Barkley neitaði að
borga og sagðist ekkert hafa gert af
sér. Átta manna kviðdómur komst
að sömu niðurstöðu.
Houston Rockets hafa endumýjað
samning sinn við þjálfarann kunna,
Rudy Tomjanovich. Hann mun því
þjálfa liöið fram yflr keppnistímabU-
ið 2000-2001. Tomjanovich, sem verið
hefur 17 ár í herbúðum Rockets sem
leikmaður, njósnari, aðstoðarþjálfari
og þjálfari, verður þjálfari banda-
riska landsliðsins í heimsmeistara-
keppninni næsta sumar.
-BL
Austin er úr leik
Ólympíumeistarinn í hástökki
karla, Charles Austin frá Banda-
ríkjunum, féll úr keppni á HM í
Aþenu í gær er honum mistókst
að fara yfir 2,28 m. Bronsmann-
inum frá Atlanta, Bretanum
Steve Smith, mistókst einnig að
fara yfir sömu hæð. Báðir áttu
þeir við meiðsl að stríða. Fyrr-
um Evrópumeistari, Dragutin
Topic frá Júgóslavíu, hlaut sömu
örlög. -BL
+
ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 1997 ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 1997
I>V DV
Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum í Aþenu:
Kynslóðaskipti í
spretthlaupunum
- fyrsti sigur Bandaríkjamanna á stórmóti í 100 m hlaupi síðan 1991
Marion Jones, til hægri, kemur í mark í 100 m hlaupi kvenna, hársbreidd á
undan Zhönnu Pintussevich frá Úkraínu sem þó virðist kátari.
Bandaríkjamenn náðu loks við-
unandi árangri í 100 m hlaupi karla
í heimsmeistaramótinu i Aþenu á
sunnudag eftir nokkur mögur ár.
Hinn ungi Maurice Green tryggði
sér óvæntan sigur á 9,86 sekúndum
og landi hans, Tim Montgomery,
hreppti bronsverðlaun er hann
kom í mark á 9,94 sekúndum.
Ólympíu- og fyrrum heimsmeistar-
inn frá Kanada, Donovan Bailey,
kom annar í mark á 9,91 sekúndu.
Þetta var fyrsti sigur Bandaríkja-
manna í 100 m hlaupi á stórmóti síð-
an 1991 en Carl Lewis sigraöi á HM
í Tokyo.
Til að kóróna daginn fyrir Banda-
ríkjamenn sigraði Marion Jones í
100 m hlaupi kvenna og þar með var
tvöfaldur sigur í höfn í fyrsta skipti
á ÓL eða MH síðan í Seúl árið 1988.
Þá sigruðu þau Carl Lewis og Flor-
ence Griffith Joyner.
Boidon olli vonbrigöum
Sigur Greens, sem er aðeins 23
ára gamall, var talinn óvæntur
þrátt fyrir að hann næði góðum tím-
um í undanriðlum og undanúrslit-
um. Þar hljóp þó Boldon hraðast
allra á 9,87 sek. Margir þekktir
kappar, sem tóku þátt í úrslita-
hlaupinu, voru taldir líklegri til
sigurs. Einn þeirra var Bailey en
hann átti aldrei svar við frábæru
hlaupi Greens.
Ato Boldon, æfingafélagi þeirra
Greens og Montgomerys, átti slæmt
start og átti aldrei möguleika á
sigri. Hann kom fimmti í mark á
10,02 sekúndum. Namibíumaðurinn
Frankie Fredericks, silfurverð-
launahafi frá síðustu Ólympíuleik-
um, var ekki langt frá því að ná í
bronsverðlaun. Hann kom í mark á
9,95 sek., 1/100 á eftir Montgomery.
Nígeríumaðurinn Davidson
Ezinwa (10,10 sek.), Kanadamaður-
inn Bruny Surin (10,12 sek.) og
Mike Marsh frá Bandaríkjunum
(10,29 sek.) urðu í 6.-8. sæti í hiaup-
inu.
„Ég kom til að vinna“
Green spáði heimsmeti fyrir úr-
slitahlaupið á sunnudag. Sú spá
gekk ekki eftir en timi hans (9,86
sek.) er þriðji besti tími sem náðst
hefur til þessa. Bailey á heimsmet-
ið, 9,84 sek., og Carl Lewis hefur
einnig hlaupið á 9,86 sekúndum.
„Ég kom hingað til að vinna gull-
verðlaun fyrir Bandaríkin. Ég er
mjög ánægður og ég þakka Guði
fyrir að gefa mér kraft og styrk til
að gera þetta mögulegt," sagði
Green, sem kallaður er „fallbyssu-
kúlan frá Kansas" á heimavigstöðv-
um sínum, á blaðamannafundi eftir
sigurinn.
„Ég hef haft trú á að ég gæti orð-
ið fljótastur allra, allt frá því ég
byijaði að æfa fyrir HM í september
í fyrra. Ég hélt að heimsmetið félli
í dag en það hélt. Nú er það næsta
takmark mitt að hæta heimsmetið,"
sagði Green.
Beint úr körfuboltanum
Hin 21 árs gamla Marion Jones
frá Bandaríkjunum þótti sigur-
strangleg fyrir úrslitahlaupið í 100
m hlaupi kvenna. Jones, sem sigr-
aði á bandaríska meistaramótinu í
maí, sneri sér alfarið að frjálsum
íþróttum á þessu ári. Hún lagði
áður stund á körfuknattleik.
Jones er þó ekki neinn nýgræð-
ingur í frjálsum íþróttum því hún
reyndi að komast í hlaupalið Banda-
ríkjanna fyrir ÓL í Barcelona fyrir
fimm árum en varð þá í 5. sæti, að-
eins 16 ára. Eftir það sneri hún sér
að körfuboltanum en hefur nú snú-
ið aftur á hlaupabrautina með eftir-
minnilegum hætti.
Jones er einnig langstökkvari og
bar sigurorð af Jacky Joyner Kers-
ey á bandaríska meistaramótinu.
Hún er nokkuð þekkt í Bandaríkj-
unum en með öllu óþekkt annars
staðar. Nafn hennar er til dæmis
alls ekki að finna í frjálsíþrótta-
handbókum.
Jones varð að bíða eftir úrslitun-
um í hlaupinu áður en hún gat fagn-
að sigri. Zhanna Pintussevich frá
Úkraínu fagnaði sigri og ljósmynd-
arar þyrptust að henni. Vonbrigði
hennar voru mikil þegar tilkynnt
var að Jones hefði sigrað á 10,83
sekúndum, á 2/100 úr sekúndu betri
tíma. 1 þriðja sæti varð Sevatheda
Fynes frá Bahamaeyjum á 11,03 sek-
úndum.
„Þaö skemmtilegasta eftir“
„Ég hélt að ég hefði sigrað en þá
fór hún að fagna sigri,“ sagði Jones
eftir sigurinn. „Ég leit síðan um
öxl og sá að nokkrir félagar mínir
úr bandaríska liðinu gáfu mér
merki um að ég hefði sigrað. Það
var góð tilfinning að hafa sigrað.
Núna er það skemmtilegasta eftir,
að bæta árangur minn í langstökki
og setja heimsmet í boðhlaupi,"
sagði Jones.
Jones þykir líkleg til að halda sér
á toppnum um hríð sem fljótasta
kona heims. Miklir fjármunir bíða
hennar í formi auglýsingasamninga
og sigurlauna á stórmótum á næstu
árum.
Gamla kempan Marlene Ottey frá
Jamaica, sem orðin er 37 ára, varð
að sætta sig við 7. sætið. Hún var
slegin illa út af laginu þegar hún
heyrði ekki merki um þjófstart og
hljóp ein hálfa leið í mark. Þótt hún
þyki orðin nokkuð gömul fyrir
spretthlaup ætti hún nú ekki að
vera farin að tapa heym.
-BL
Maurice Green er einbeittur á svip þar sem hann kemur fyrstur í mark í 100 m hlaupi karla.
Símamyndir Reuter
Sabine Braun fagnar sigri í sjöþraut kvenna.
Michael Johnson tefldi á tæpasta vaö í 400 m hlaupinu.
Heinz Weis sigraöi í sleggjukasti eftir ótrúlega
spennandi keppni.
Johnson varð bilt við
Ólympíumeistarinn í 400 m og 200 m
hlaupi, Michael Johnson, frá Bandaríkj-
unum, misreiknaði sig illa þegar hann
hægði mjög á sér á síðustu metrunum í
undanriðli 400 m hlaupsins á sunnudag.
Ibrahima Wade frá Senegal skaust fram úr
Johnson án þess að meistarinn yrði þess
var. Hann skreið síðan næstsíðastur inn
í undanúrslitin sem voru í gær. Þar urðu
honum ekki á nein mistök, sigraði í sínum
riðli og hann hægði mun minna á sér í
lokin en daginn áður. -BL
Masterkova borin út af
Rússneska hlaupakonan, Svetlana
Masterkova, sem vann öruggan sig-
ur í 800 m og 1500 m hlaupi á ÓL í
Atlanta á síöasta ári, yfirgaf leik-
vanginn í Aþenu á sjúkrabörum á
sunnudaginn. Masterkova haltraði í
mark síðust í undanúrslitum 1500 m
hlaupsins, meidd á fæti. í und-
ankeppninni á laugardag var hún
greinilega langt frá sínu besta.
-BL
Síðustu köstin djúg
Það var hart barist í sjöttu og
síðustu umferð sleggjukasts-
keppninnar í Aþenu á sunnu-
dag. Andrei Skvaruk frá Úkra-
inu, sem virtist ekki ætla að-
blanda sér í toppbaráttuna, tók
óvænt forystu í síðasta kasti
sínu. En Þjóðveijbm Heinz Weis
átti eitt kast eftir og það dugði
honum til sigurs. Þetta er fyrsti
sigur hans á stórmóti. -BL
Tulu í vanda
Derartu Tulu, fyrrum
Ólympíumeistari frá Eþíópíu,
varð í 11. sæti í sínum riðli
í 10.000 m hlaupi á laugardag
og komst þar af leiðandi ekki
í úrslit. Hún átti í erfiðleik-
um á harðri brautinni í
Aþenu eins og fleiri lang-
hlauparar. Spretthlaupararn-
ir eru hins vegar hæst-
ánægðir með brautina. -BL
Talar ekki af sér
Daninn þeldökki, Wilson Kipketer, sem fædd-
ur er í Kenía, er ekki vinsæll meðal blaða-
manna í Aþenu. Hann þykir ákaflega varkár í
tilsvörum og snýr út úr öllum spurningum án
þess að gefa ákveðin svör. Daninn þykir svo
slyngur í þessari íþrótt sinni að blaðamenn
hafa spurt hann að því hvort hann hafi hugs-
að sér að nema lögfræði í framtíðinni. Haft er
á orði að Kipketer geri gott betur en að hlaupa
í hringi, hann tali einnig í hringi. -BL
Bubka klár í slaginn
Sergei Bubka, stangarstökkarinn snjalli frá Úkraínu,
segist vera orðinn góður af meiðslunum sem gerðu hon-
um lífið leitt á ÓL í Atlanta i fyrrasumar. Bubka ætlar
sér ekkert annað en sigur í Aþenu. Hann hefúr sigrað á
öllum 5 heimsmeistaramótunum sem haldin hafa verið til
þessa og stefnir að 6. titlinum. Hann hefur þó aðeins einu
sinni sigrað á Ólympíuleikum og er ekki sáttur við það.
„Ég stefni að því að vinna gull á ÓL í Sydney árið 2000
og bæta þar með fyrir öll vonbrigðin frá fyrri leikum. Síð-
an get ég lagt skóna á hilluna," segir Bubka. -BL
OFI Kreta, mótherji KR í UEFA-bikarnum:
Ósigrandi á heimavelli
- sló út Atletico Madrid fyrir fjórum árum
KR-ingar eiga erfiðan útileik
fyrir höndum þegar þeir mæta OFI
Kreta á grísku sólareyjunni Krít í
UEFA-bikamum þann 26. ágúst.
Heimaleikur KR verður á Laugar-
dalsvellinum 12. ágúst.
OFI hefur verið nánast ósigr-
andi á heimavelli síðustu árin og
aðeins tapað einum deildaleik á
OFI-leikvanginum frá árinu 1995.
Á síöasta tímabili vann liðið 13
deildaleiki þar af 14 og gerði eitt
jafntefli. Einn heimaleikur var
dæmdur af liðinu vegna óláta
áhorfenda, og sá tapaðist.
OFI lenti í þriðja sæti grísku 1.
deildarinnar í fyrra, á eftir Olymp-
iakos og AEK, og komst með því í
Evrópukeppni í fiórða skipti í sög-
unni. Síðast þegar liðið lék UEFA-
bikarnum, 1993-94, sló það út ekki
ófrægari félög en Slavia Prag og
Atletico Madrid, með góðum
heimasigrum, en féll að lokum fyr-
ir Boavista frá Portúgal.
OFI var stofnað árið 1925 og
komst fyrst í 1. deild þrjátíu árum
síðar. Þar hefur félagið átt sæti
samfleytt síðan 1976. OFI varð bik-
armeistari árið 1987 og vann
Balkanbikarinn 1989.
KR og OFI eiga eitt sameiginlegt
- aðalbúningur Grikkjanna er líka
svart-hvítur. Nánar tiltekið eins
og FH-búningurinn, hvít peysa og
svartar buxur.
Deildakeppnin í Grikklandi
hefst ekki fyrr en 31. ágúst og lið
OFI verður því ekki komið í mikla
leikæfingu þegar það mætir KR.
OFI var ekki með neinn afger-
andi markaskorara á síðasta tíma-
bili og mörkin dreifðust mjög. At-
kvæðamestir voru sóknarmenn-
imir Giorgos Anastasiou og Pre-
drag Mitic og miðjumennimir
Nikos Nioplias og Kostas Frant-
zeskos. Sá síðastnefndi, grískur
landsliðsmaður, er nú horfinn á
braut.
-VS
Ómar Halldórsson Evrópumeistari:
„Setti niður
þriggja
metra pútt“
- og sigurinn var minn
sefia niður 18 metra pútt. Ómar hafði leikið frá-
bært golf í mótinu, lék t.d. á tveimur höggum
undir pari fyrsta daginn og var í 2.-3. sæti fyrir
lokahringinn. Þá var hann snemma kominn með
vænlega stöðu en ítalinn jafnaði sem fyrr sagði á
lokaholunni.
„Mér tókst að vinna hann á 2. holu í bráðabana
og það var frábær tilfinning. Þá setti ég niður 3
metra pútt og sigurinn var minn,“ segir Ómar.
Hann komst þar með í Ryder-bikarlið Evrópu
sem mætir liði Bandaríkjamanna á Spáni í næsta
mánuði. Hann er fyrsti Evrópumeistari íslend-
inga og fyrsti kylfingur okkar sem nær svo langt
á alþjóðavettvangi.
DV, Akureyri:
„Ég er auðvitað mjög ánægður og það var frá-
bær tilfinning að vinna þennan sigur,“ segir
Ómar Halldórsson, 18 ára kylfingur úr Golfklúbbi
Akureyrar sem varð Evrópumeistari unglinga
fyrir helgina, eins og fram kom í DV á
fostudaginn.
Ómar vann sætan sigur á ítölskum kylfingi, en
sá ítalski jafhaði við Ómar á 72. holu með því að
Ómar Halldórsson á heimili sínu, nýkominn heim
eftir frægðarförina þar sem hann tryggði sér
Evrópumeistaratitil unglinga. DV-mynd gk
íþróttir
Úrslitin
í Aþenu
Kúluvarp karla:
1. Aleksandr Bagach, Úkrainu . 21,47
2. John Godina, Bandarikj. .. . 21,44
3. Oliver-Sven Buder, Þýskal. . 21,44
20 km ganga karla:
1. Daniel Garcia, Mexíkó .... 1:21,43
2. M. Shchennikov, Rússl. . . . 1:21,53
3. M. Khmelnitsky, Hv. Rússl. 1:22,01
Sleggjukast:
1. Heinz Weis, Þýskalandi .... 81,78
2. Andrei Skvaruk, Úkraínu . . 81,46
3. Vaily Sidorenko, Rússlandi . 80,76
100 m hiaup kvenna:
1. Marion Jones, Bandarik. . . 10,83
2. Zhanna Pintussevich.Úkra. . 10,85
3. Sevatheda Fynes, Bahama. . . 11,03
100 m hlaup karla:
1. Maurice Green, Bandarikj. .. 9,86
2. Donovan Bailey, Kanada .... 9,91
3. Tim Mongomery, Bandaríkj. . 9,94
Þristökk kvenna:
1. Sarka Kasparkova, Tékklandi 15,20
2. Rodica Mateescu, Rúmeniu . 15,16
3. Yelena Govorova, Úkraínu . . 14,67
400 m hlaup kvenna:
1. Cathy Freeman, Ástralíu . . . 49,77
2. Sandie Richards, Jamaica .. 49,79
3. Jearl Miles-Clark, Bandaríkj .49,90
400 m grindahlaup karla:
1. Stephane Diagana.Frakklandi 47,70
2. Llewellyn Herbert, S-Afrika . 47,86
3. Bryan Bronson, Bandaríkj. . 47,88
Sjöþraut:
1. Sabine Braun, Þýskalandi .. 6.739
2. Denise Lewis, Bretlandi .... 6.654
3. Remigia Nazaroviene, Lith. . 6.566
Garcia loks heppinn
Hann hafði loks heppnina með
sér hann Daniel Garcia frá Mex-
íkó, sem sigraði í 20 km göngu á
laugardag. Á tveimur síðustu
heimsmeistaramótum hefur
hann hlaupið upp og verið
dæmdur úr leik. Að þessu sinni
fékk hann tvær aðvaranir og
var í öðru sæti lengst af. Hann
tók síðan forystu eftir að Rúss-
inn Markov var dæmdur úr leik
fyrir að hlaupa upp.
Lengsta kast Bagach
Úkrainumaðurinn, Alexandr
Bagach, sem sigraði í kúluvarp-
inu á laugardag, tryggði sér sig-
ur með þvi að jafna sinn besta
árangur, 21,47 m, frá því í vor.
Hann hefur áður unnið brons á
HM í Stuttgart og gull á HM inn-
anhúss. Hann vann bronsverð-
laun í Evrópubikarkeppninni
árið 1989 en verðlaunin voru
dæmd af honum þar sem hann
féll á lyfiaprófi. í kjölfarið fór
hann í tveggja ára keppnisbann.
Barnes ekki í úrslit
Ólympíumeistarinn og heims-
methafinn í kúluvarpi, Randy
Barnes frá Bandaríkjunum,
komst ekki í úrslitakeppnina á
HM um helgina. Barnes kastaði
aðeins 19,51 m og varð í 14. sæti
forkeppninnar. Landi hans,
John Godina, sem vann silfrið í
Atlanta, hélt uppi heiðri
Bandaríkjanna í úrslitunum.
Kravets mætti ekki
Inessa Kravets, sem átti
heimsmeistaratitil að verja í
þrístökki kvenna, lét ekki sjá
sig í undankeppninni á laugar-
dag. Engin skýring hefur verið
gefin á fiarveru meistarans.
Hart barist í þrístökki
Hart var barist í úrslitum
þrístökkskeppninnar i Aþenu í
gær. Þar kepptu Kasparkova frá
Tékklandi og Mateescu frá Rúm-
eníu um gullið. Ekki dugði
minna en næstlengsta stökk
sögunnar til sigurs en þar var
Kasparkova að verki. Ekki var
minni barátta um þriðja sætið
milli úkraínsku stúlkunnar Yel-
enu Govorovu og heimastúlk-
unnar Olgu Vasdeki sem varð í
fiórða sæti. -BL
r-
r
+