Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1997, Qupperneq 5
24
MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 1997
MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 1997
25
Iþróttir
Keflavík (1)2
Skallagrímur (1)3
1-0 Haukur Ingl Guðnason (29.)
fékk stungusendingu frá Guðmundi
Steinarssyni og skoraði frá vinstra
markteigshorni.
1-1 Sindri Grétarsson (38.) ýtti
boltanum yfir marklínuna eftir skalla
Þorsteins Sveinssonar og darraöar-
dans í vitateignum.
1-2 Sindri Grétarsson (48.) með
skalla eftir fyrirgjöf frá vinstri og
misskilning í vöm Keflvíkinga.
1- 3 Hjörtur Hjartarson (58.) fékk
boltann rétt utan vítateigs og lét vaða
með hörkuskoti i markhomið niðri.
2- 3 Eysteinn Hauksson (77.) meö
þrumuskoti utan vitateigs, boltinn
breytti stefnu af varnarmanni og fór
í öfugt hom miðaö við stefnu.
Lið Keflavíkur: Bjarki Guð-
mundsson - Jakob Már Jónharðsson
@, Guðmundur Oddsson, Kristinn
Guðbrandsson, Karl Finnbogason
(Þórarinn Kristjánsson @ 61.) - Jó-
hann B. Guðmundsson (Snorri Már
Jónsson 67.), Gestur Gylfason (Adolf
Sveinsson 72.), Eysteinn Hauksson
@, Gunnar Oddsson, Guðmundur
Steinarsson - Haukur Ingi Guðnason.
Lið Skallagríms: Friðrik Þor-
steinsson - Jakob Hallgeirsson @,
Garðar Newman (Þorsteinn Sveins-
son 17.), Gunnar M. Jónsson @@,
Pétur R. Grétarsson @ - Stefán
Ólafsson, Sigiu-ður Sigm-steinsson
@, Björn Axelsson, Hilmar Hákonar-
son (Kristján Georgsson 83.) - Hjörtur
Hjartarson, Sindri Grétarsson @
(Valdimar K. Sigurðsson 72.)
Markskot: Keflavík 17, Skallag. 6.
Hom: Keflavík 6, Skallagr. 2.
Gul spjöld: Karl (K), Jakob M. (K),
Hjörtur (S), Gestur (K), Jakob H. (S).
Dómari: Gylfi Orrason, hafði góð
tök á leiknum.
Áhorfendur: Um 400.
Skilyrði: Gola, rigningarúði, völl-
urinn háll en þokkalegur.
Maður lciksins: Gunnar Már
Jónsson, Skallagrlmi, var sem
klettur í vöm Borgnesinga.
ÍA (3)6
Stjarnan (0)2
1- 0 Alexander Högnason (3.)
skallaði boltann óverjandi í mark eft-
ir fyrirgjöf Steinars Adolfssonar.
2- 0 Jóhannes Harðarson (14.) eft-
ir sendingu Haralds Ingólfssonar.
3- 0 Pálmi Haraldsson (36.) með
glæsilegu viðstöðulausu skoti eftir
sendingu Gunnlaugs Jónssonar.
4- 0 Ragnar Hauksson (73.) með
viðstöðulausu skoti eftir að vamar-
manni mistókst að hreinsa frá marki.
5- 0 Ragnar Hauksson (78.) með
föstu skoti frá vítateigslinu eftir send-
ingu frá Haraldi Hinrikssyni.
6- 0 Ragnar Hauksson (82.) með
viðstöðulausu skoti í bláhornið niðri
eftir sendingu Haralds Ingólfssonar.
6-1 Mihajlo Bibercic (84.) úr
vítaspyrnu eftir að Steinar Adolfsson
felldi Valdimar Kristófersson.
6-2 Mihajlo Bibercic (87.) með
glæsilegum skalla eftir sendingu
Sumarliða Ámasonar.
Lið í A: Þórður Þórðarson - Gunn-
iaugur Jónsson @, Steinar Adolfsson
@, Ólafur Adolfsson (Sturlaugur
Haraldsson 72.), Aleksandar Linta @
- Pálmi Haraldsson @, Alexander
Högnason @, Jóhannes Harðarson
@ (Ragnar Hauksson @@ 69.), Har-
aldur Ingólfsson @ - Olafur Þórðar-
son @, Kári Steinn Reynisson (Har-
aldur Hinriksson 74.).
Lið Stjömunnar: Ámi Gautur
Arason @ - Birgir Sigfússon (Gauti
Laxdal 64.), Helgi Björgvinsson,
Ragnar Árnason, Reynir Bjömsson -
Hermann Arason, Valdimar Kristó-
fersson, Kristinn Lámsson, Ingólfur
Ingólfsson (Sumarliði Ámason 67.),
Goran Kristófer Micic @ - Mihajlo
Bibercic @.
Markskot: ÍA 12, Stjaman 3.
Hom: ÍA 5, Stjaman 5.
Gul spjöld: Alexander H. (lA),
Valdimar (S), Goran Kristófer (S).
Dómari: Ólafur Ragnarsson,
dæmdi vel.
Áhorfendur: Um 750.
Skilyrði: Suðvestangjóla, smá
rigning í lokin, völlurinn mjög blaut-
ur og erfiður.
Maður leiksins: Ragnar Hauks-
son, ÍA. Ótnileg byrjun, inná i 21
mínútu, þrenna á niu mínútum og
litlu munaði að fjórða skotið
rataði sömu leið.
íkvöld
2. deild karla í knattspymu:
Selfoss-HK ...................19.00
Víöir-Leiknir R...............19.00
1. deild kvenna:
Tindastóll-Leiftur............19.00
íþróttir
Borgnesingar hirtu öll stigin í Keflavík og geta enn forðað sér frá falli:
„Erum ekki hættir“
- sagði Ólafur Jóhannesson eftir óvæntan sigur Skallagríms, 2-3
DV, Suðnrnesjum:
Þótt flestir hafi afskrifað mögu-
leika Borgnesinga á að halda sér í
úrvalsdeildinni er ljóst að það er of
snemmt. Eftir óvæntan sigur í
Keflavík í gærkvöld, 2-3, eru þeir
skyndilega komnir í baráttuna á ný,
eru aðeins þremur stigum á eftir
Val og með betri markatölu. Á hinn
bóginn geta Keflvíkingar nú endan-
lega afskrifað vonir sínar um meist-
aratitilinn. Þetta var fimmta tap
þeirra í síðustu sex leikjunum og
þeir eru nú dottnir niður í fjórða
sætið.
„Þetta er geysilega mikilvægur
sigur. Þessi leikur var upp á líf og
dauða fyrir okkur og viö erum ekki
hættir að berjast fyrir lífi okkar í
deildinni,“ sagði Ólafur Jóhannes-
son, þjálfari Skallagríms, við DV eft-
ir leikinn.
Fögnuður Borgnesinga eftir leik-
inn var griðarlegur og sigurinn
gæti gefið leikmönnum aukið sjálfs-
traust. Það gæti gert gæfumuninn
þegar upp verður staðið í lok móts-
ins.
Á hinn bóginn virtust sumir leik-
menn Keflavíkur vera áhugalausir
og famir að hugsa of mikið um bik-
arúrslitaleikinn.
Skallagrímsmenn börðust eins og
Ijón og uppskáru eftir því. Þeir
nýttu sín fáu marktækifæri til fulln-
ustu. Keflvíkingar höfðu undirtökin
í fyrri hálfleik og Haukur Ingi skor-
aði en jöfnunarmark Sindra Grét-
arssonar var eins og köld vatnsgusa
framan i leikmenn og stuðnings-
menn Keflavíkur. Það kom úr eina
marktækifæri Skallagríms í fyrri
hálfleik. ,
Tvö mörk, frá Sindra og Hirti
Hjartarsyni, snemma í síðari hálf-
leik slógu Keflvíkinga út af laginu.
Þau virtust jafnvel koma sumum
leikmönum Skallagríms á óvart. Ey-
steinn Hauksson náði að minnka
Garðar ökklabrotinn
Garðar Newman, fyrirliði Skallagríms, leikur ekki
meira með liðinu í úrvalsdeildinni í knattspymu í
sumar. Garðar, sem hefur verið lykilmaður í vöm
Borgnesinga, ökklabrotnaði eftir aðeins 17 mínútna
leik í gærkvöld og var fluttur beint á sjúkrahús. Þetta
er mikið áfall fyrir Borgnesinga sem eiga framundan
harða baráttu fyrir lífi sínu í deildinni.
Sex spor í ökkfa Jóhanns
Þá varð Keflvíkingurinn Jóhann B. Guðmundsson Qarðar Newman.
fyrir meiðslum í gærkvöld og varð að fara af velli.
Sauma þurfti sex spor við ökklann og óvíst er hve
lengi hann verður að ná sér. -ÆMK/VS
Skagamenn á fleygiferð:
Siglfirski
strákurinn
sló í gegn
- Ragnar með þrennu á níu mínútum
DV, Akranesi:
Tvítugur Siglfirðingur, Ragnar
Hauksson, sló heldur betur í gegn í
sínum fyrsta leik með Skagamönn-
um í úrvalsdeildinni í gær, gegn
Stjörnunni. Ragnar, sem gekk til
liðs við ÍA í lok júlí, kom inn á sem
varamaður 20 mínútum fyrir leiks-
lok og skoraði þrjú mörk á aðeins
níu mínútna kafla. Með því tryggði
hann Skagamönnum stórsigur á
botnliöi Garðbæinga, 6-2, og byrjun
Ragnars er einhver sú ævintýraleg-
asta sem um getur í íslenskri knatt-
spymu.
„Það var dagskipunin í dag að
vinna leikinn og við voram að spila
ágæflega. Eftir að við skoruðum
fyrsta markið gáfu Stjörnumenn eft-
ir og við gengum á lagið. Mótspyrn-
an var ekki eins mikil og við bjugg-
umst við, þeir eru að róa lífróður í
deildinni og loksins sköpuðum við
okkur mikið af færum og skoruðum
sex mörk. Það var gaman fyrir
Ragnar að koma inn í liðið og skora
þrjú mörk,“ sagði Haraldur Ingólfs-
son.
Skagamenn áttu leikinn frá upp-
hafi til enda og óðu í færum. Stjam-
an átti ekki eitt einasta markskot í
fyrri hálfleiknum og þriggja marka
munur í leikhléi var síst of stór. Síð-
an tók Ragnar við en Mihajlo
Bibercic svaraði tvívegis í lokin.
Glæsileg markvarsla Árna Gauts
Arasonar forðaði Stjörnunni frá
enn verri útreið.
Skagamenn era komnir á fleygi-
ferð á ný og eflast með hverjum
leik. Allt liðið spilaði vel og með
þessu áframhaldi veitir ÍA Eyja-
mönnum harða keppni um meist-
aratitilinn. Með Ragnari virðist lið-
ið hafa eignast nýjan markaskorara,
sem ekki var sóttur eins langt og sá
sem upphaflega átti að gera mörkin
í sumar.
Stjarnan færist enn nær fallinu
og aðeins kraftaverk getur úr þessu
komið í veg fyrir að Garðbæingar
leiki í 1. deildinni næsta sumar.
Þeir þurfa að bæta sig all veralega,
ætli þeir að vinna leik í sumar en
þeir hafa þegar slegið öll met með
því að leika 13 fyrstu leikina án sig-
urs. Það er greinilegt að þjálfara-
skiptin hafa ekki dugað til að snúa
Stjömunni á rétta braut í deildinni.
-DVÓ/VS
muninn í 2-3 og lokamínútumar
voru hörkuspennandi. Snorri Már
Jónsson átti síðasta tækifærið en
skallaði rétt framhjá marki Skalla-
gríms.
Liðsheildin var sterk hjá Skalla-
grími og Sindri nýtti tvö af þremur
marktækifærum sínum. Slíkt gera
bara fæddir markaskorarar. Ey-
steinn lék best Keflvíkinga og mikil
yfirferð var á piltinum í vöm og
sókn.
„Ég verð að viðurkenna og sætta
mig við það að liðið hefur ekki
reynslu eða burði til að berjast á
tveimur vígstöðvum. Ég held að
menn séu með hugann við bikarinn
þótt ég hafi reynt að berjast gegn
því. Menn virðast ekki hafa trú á
sjálfum sér til afreka í deildinni
áfram og kastað þeim möguleika frá
sér. Leikurinn var vægast sagt dap-
ur hjá okkur. Oft þegar við höfum
tapað hefur maður séð einn og einn
ljósan punkt en ég sá ekki einn ein-
asta í þessum leik,“ sagði Sigurður
Björgvinsson, annar þjálfara Kefl-
víkinga. -ÆMK
Óhagstætt fyrir bæði
- Fram og Leiftur misstu bæöi dýrmæt stig með 1-1 jafntefli
Þorbjörn Atli Sveinsson kom
Frömurum yfir í gærkvöld en
þaö dugöi þeim þó ekki til
sigurs.
Framarar og Leiftursmenn skildu
jafnir, 1-1, í rólegum leik á Laugardals-
velli i gær.
Fyrir leikinn var ljóst að það lið sem
hirti öll stigin væri enn þá inn í mynd-
inni í baráttunni um meistaratitilinn en
það sem yrði af stigum, sæti eftir um
miðja deild.
Liðin höfðu þá staöreynd eflaust í
huga því bæði spiluðu þau skynsamlega
og gáfii ekki of mörg færi á sér.
Sjá mátti oft skemmtilegt spil úti á
velli sem oft endaöi án þess að liðin
næðu að skapa sér færi. Framarar áttu
heldur meira í fyrri hálfleik og strax eft-
ir hlé skilaði skemmtileg skyndisókn af
sér góðu marki Þorbjamar Atla. Fram-
arar duttu aftur á völlinn eftir markiö
og þegar líða tók á leikinn náðu Leiftur-
menn oft að ógna Frömurum án þess þó
að skapa sér nein sérstök færi. Þau
helstu komu eftir að Gunnar Már fyrir-
liði var kominn sem fremsti maður en
hann var úti um allan völl í bókstaflegri
merkingu enda lét Kristinn þjálfari
hann spila í vörn, á miðju og í sókn í
leiknum. Það var síðan á endanum
Gunnar Már sem jafnaði leikinn fyrir
Ólafsfirðinga eftir skemmtilega tekna
aukaspyrnu Rastislavs Lazorik.
Undir lokin tók leikurinn nokkurn
kipp, sértaklega varðandi gulu spjöldin
en Sæmundur dómari, sem þangað til
hafði verið rólegur, gaf 6 af 7 spjöldum
leiksins á síðustu 15 mínútunum. Af
þessum 6 hlaut Ámundur Amarsson
Framari tvö sem þýddi rautt spjald á 82
mínútu.
Leiftursmenn reyndu eftir fremsta
megni að nýta sér liðsmuninn undir lok-
in en án árangurs og liöin urðu að sætta
sig við jafntefli.
Bæði lið hefðu eflaust viljað taka öll
stigin úr leiknum þar sem jafntefli setur
þau heldur út úr myndinni varðandi
toppbaráttuna en þetta verða þó að telj-
ast sanngjörn úrslit.
Leikurinn var í rólegra lagi og ekki
mikið um góð marktækifæri.
-ÓÓJ
1- 0 Einar Þór Danlelsson (15.)
fékk fallega sendingu frá Brynjari
Gunnarssyni, lék á Lárus í markinu
og skoraði af öryggi.
2- 0 Andri Sigþórsson (25.) fékk
sendingu frá Ólaíl Kristjánssyni, tók
boltann vel niður og skoraöi með
góðu skoti.
2- 1 Hörður Magnússon (46.), með
þrumuskoti úr vítateignum eftir lag-
lega stungusendingu frá Porca.
3- 1 Bjarni Þorsteinsson (67.)
sneiddi boltann laglega með höfðinu
eftir fyrirgjöf Einars Þórs.
4- 1 Andri Sigþórsson (76.) átti
skot sem Lárus varði, Andri náði
sjálfur frákastinu og skoraði örugg-
lega.
5- 1 Andri Sigþórsson (89.) úr
vítaspymu sem dæmd var eftir að
Guðmundur Benediktsson var togað-
ur niður I teignum.
6- 1 Guðmundur Benediktsson
(90.), fékk góöa sendingu írá Amari
og þmmaði boltanum inn af stuttu
færi.
Lið KR: Kristján Finnbogason @
- Sigurður Öm Jónsson @, Bjami
Þorsteinsson @, Óskar H. Þorvalds-
son @, Ólafur Kristjánsson @
(Heimir Guðjónsson 61.) - Hilmar
Bjömsson @ (Arnar Jón Sigurgeirs-
son @ 85.), Þorsteinn Jónsson, Brynj-
ar Gunnarsson ®, Sigþór Júlíusson
(Guðmundur Benediktsson @ 75.),
Einar Þór Daníelsson @@ - Andri
Sigþórsson ®@.
Lið Vals: Lárus Sigurðsson -
Bjarki Stefánsson @, Jón S. Helga-
son, ívar Ingimarsson, Guðmundur
Brynjólfsson (Jón I. Ingimarsson 46.),
Hólmsteinn Jónasson (Amar H. Jó-
hannsson 80.), Ólafur Brynjólfsson
(Gunnar Guðmundsson 80.), Atli
Helgason, Sigurbjöm Hreiðarsson -
Hörður Magnússon.
Markskot: KR 18, Valur 5.
Hom: KR 7, Valur 2.
Gul spjöld: Óskar (K), ívar (V),
Ólafur (V), Hörður (V).
Dómari: Egill Már Markússon.
Áhorfendur: Um 800.
Skilyrði: Hægviðri, smá úði í síð-
ari hálfleik, völlurinn góður.
Maður leiksins: Andri Sigþórs-
son, KR. Skapaði mikinn usla í
vöm Vals, var óhemjuduglegur og
skoraði þrjú mörk.
Rikharöur Daðason er að koma til
eftir meiðslin og verður með í næsta
leik, gegn Leiftri.
Ólafur H. Kristjánsson fór veikur af
velli í síðari hálfleik. Hann þjáðist af
magakveisu og ældi.
Andri Sigþórsson fagnar ööru marki sínu af þremur gegn Val í gærkvöld en markiö sjálft sér efst til hægri.
DV-myndir Brynjar Gauti
Snilldartilþrif
- Andri með þrennu í 6-1 sigri KR á Val og hefur gert 8 mörk í tveimur leikjum
KR-ingar sýndu á köflum snilldartil-
þrif þegar þeir hreinlega rúlluðu Vals-
mönnum upp á heimavelli sínum í
vesturbæ í gærkvöldi, 6-1. Valsmenn
höfðu ekki roð við mjög frísku KR-liði
og máttu í heild teljast heppnir með að
hafa ekki fengið verri útreið. Hlíðar-
endaliðið vai' yfirspilað á löngum köfl-
um í leiknum og það var aðeins í byrj-
un síðari hálfleiks sem það sýndi ein-
hvem lit.
KR-ingar áttu fyrri hálfleikinn eins
og hann lagði sig og Valsmenn máttu
prísa sig sæla við að vera ekki nema 2-
0 undir í leikhlénu. Valsmenn komu
grimmir til síðari hálfleiksins og eftir
aðeins 40 sekúnda leik náði Hörður
Magnússon að laga stöðuna fyrir sína
menn þegar hann skoraði fallegt
mark. Skömmu síðar átti Bjarki Stef-
ánsson lúmskt skot í stöng en þar með
var allur vindur úr þeim rauðklæddu.
KR-ingar tóku leikinn í sínar hendur
að nýju og síðasta hálftímann sóttu
þeir linnulítið og uppskerran var fiög-
ur mörk.
Eins og KR-ingar spiluðu í gær
skyldi enginn afskrifa liðið í barátt-
unni um íslandsmeistaratitilinn. Liðs-
heildin var feikilega sterk og það var
mjög gaman að sjá tilþrif KR-inga í
þessum leik. Boltinn gekk vel á milli
manna, kantamir vora vel nýttir og
Valsmenn vora oftar en ekki áhorf-
endur í leiknum. Það er erfítt að tína
einhverja leikmenn út úr KR-liðinu
sem spiluðu betur en aðrir. Það verð-
ur þó að minnast á Andra Sigþórsson.
Þessi 20 ára strákur hefur svo sannar-
lega slegið í gegn og er kominn í hóp
bestu framherja landsins. Hann skor-
aði þrennu fyrir sina menn og er þar
með orðinn markahæsti leikmaður
deildarinnar með 10 mörk. Andri er
leikmaður sem gefur sig 100% i leik-
inn og hann hlýtur að vera farinn að
banka á dyr landsliðs Guðjóns Þórðar-
sonar. Til marks um öfluga liðsheild
KR og sterka liðsheild kom Guðmund-
ur Benediksson inn á seint í leiknum,
skoraði mark og fiskaði vítaspymu og
Amar Jón Sigurgeirsson átti einnig
góða innkomu og lagði upp eitt mark.
„Ég get ekki annað en verið ánægð-
ur með þennan leik hjá okkur og úr-
slitin voru sæt hefnd frá fyrri leiknum
sem við töpuðum. Þetta var góður
leikur af okkar hálfu og nú komu
mörkin sem okkur tókst ekki að setja
í Evrópuleiknum. Baráttan um titilinn
er ekki búin og þótt staðan sé ekki
mjög björt fyrir okkur höfum við ekki
gefið upp vonina," sagði Einar Þór
Daníelsson, leikmaður KR, við DV eft-
ir leikinn.
Valsmenn vora á hælunum nær all-
an leikinn og þá sérstaklega í fyrri
hálfleik þar sem ekki stóð steinn yfir
steini. Leikur liðsins var ómarkviss,
dekkningin nánast engin og Valsmenn
þurfa að hugsa vel sinn gang ef ekki á
að fara illa i haust því stutt er í fall-
sætið.
„Þetta var alveg skelfilegt. Við vor-
um ekki með í fyrri hálfleiknum en
komum svo sterkir inn í síðari hálf-
leikinn. Við sprungum á limminu eft-
ir að þeir skoruðu þriðja markið, í
restina var þetta orðið slys. KR-ingar
voru að vísu að spila vel, þeir eru með
mjög góðan mannskap sem hefur alla
burði til að fara alla leið. Við þurfum
að endurskoða okkar leik og við þurf-
um svo sannarlega að fara að dusta
rykið af vírvinnuvettlingunum frá
1995 og rífa okkur upp á rassgatinu,"
sagði Lárus Sigurðsson, markvörður
Vals, við DV eftir leikinn. -GH
ÍBV (1)2
Gríndavík (0)1
1- 0 Tryggvi Guðmundsson (45.)
skallaði boltann í netið af markteig
eftir sendingu frá Sverri Sverrissyni.
2- 0 Tryggvi Guðmundsson (73.)
fylgdi vel á eftir skoti Guöna Rúnars
Helgasonar sem Albert varöi en hélt
ekki boltanum.
2-1 Zoran Ljubicic (89.) úr víta-
spymu eftir að Hlynur Stefánsson
felldi Óla Stefán Flóventsson innan
teigs.
Lið ÍBV: Gunnar Sigurðsson @ -
Ivar Bjarklind @, Hlynur Stefánsson
@, Zoran Miljkovic @@, Hlynur Jó-
hannesson @ (Bjamólfur Lárusson
79.) - Leifur Geir Hafsteinsson, Sverr-
ir Sverrisson @, Kristinn Hafliðason
- Guðni Rúnar Helgason, Steingrím-
ur Jóhannesson, Tryggvi Guðmunds-
son @.
Lið Grindvíkinga: Albert Sævars-
son - Hjálmar Hallgrímsson, Milan
Stefán Jankovic @, Guðjón Ás-
mundsson @, Björn Skúlason @ -
Zoran Ljubicic @, Ólafur Örn
Bjarnason, Vignir Helgason @, Ólaf-
ur Ingólfsson (Óli Stefán Flóventsson
73.), Þórarinn Ólafsson (Sigurbjörn
Dagbjartsson 85.) - Sinisa Kekic
(Grétar Einarsson 46.).
Markskot: ÍBV 9, Grindavík 6.
Hom: ÍBV 8, Grindavík 3.
Gúl spjöld: Sverrir (ÍBV), Hjálmar
(G), Kekic (G), Vignir (G).
Dómari: Pjetur Sigurðsson, ágæt-
ur.
Áhorfendur: 765.
Skilyrði: Þokusúld og blautur
völlur.
Maður leiksins: Zoran Milj-
kovic, ÍBV. Fellur eins og flís við
rass i vörn ÍBV og stjómar henni
eins og herforingi. Vann nánast öll
skallaeinvígi og tæklingar og skil-
aði boltanum undantekningalaust
Fram (0)1
Leiftur (0)1
1-0 Þorbjöm Atli Sveinsson (50.)
sneri laglega af sér vamarmann eftir
langa sendingu Steinars Guðgeirsson-
ar og sendi boltann í hornið fiær.
1-1 Gunnar Már Másson (73.)
renndi sér á boltann á markteig eftir
stutta og óvænta aukaspymu Lazoriks
og íyrirgjöf Andra Marteinssonar.
Lið Fram: Ólafur Pétursson -
Steinar Guðgeirsson, Jón Sveinsson,
Sævar Guðjónsson ®, Ásmundur
Amarsson - Kristófer Sigurgeirsson
@(Ágúst Ólafsson 84.), Þorvaldur Ás-
geirsson, Pétur Arnþórsson @, Ás-
geir M. Ásgeirsson - Þorbjöm Atli
Sveinsson @, Anton Bjöm Markús-
son.
Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson -
Andri Marteinsson @, Slobodan Mil-
isic @, Július Tryggvason, Sindri
Bjarnason @ - Hörður Már Magnús-
son, Gunnar Már Másson @, Ragnar
Gíslason, Rastislav Lazorik @,
Matthlas Sigvaldason (Albert Arason
84.) - Pétur Björn Jónsson.
Markskot: Fram 7, Leiftur 13.
Hom: Fram 1, Leiftur 5.
Gul spjöld: Þorbjöm (F), Anton
Björn (F), Hörður Már (L), Gunnar
Már (L), Pétur Björn (L).
Rautt spjald: Ásmundur (F), tvö
gul.
Dómari: Sæmundur Víglundsson,
komst ágætlega i heild frá leiknum.
Áhorfendur: 557.
Skilyrði: Logn og úrkomulaust en
völlurinn blautur.
Maður leiksins: Gunnar Már
Másson, Leiftri. Skilar þvi sem
þjálfarinn leggur fyrir og spilaði
af krafti í vöm, á miðju og í sókn
Ólafsfirðinga.
IX'% SIHVALSDEILD
IBV 13 8 4 1 29-11 28
ÍA 13 8 1 4 26-19 25
KR 13 6 4 3 28-12 22
Keflavík 13 7 1 5 17-16 22
Leiftur 13 5 5 3 18-12 20
Fram 13 5 4 4 16-13 19
Grindavík 13 5 3 5 14-17 18
Valur 13 3 3 7 14-29 12
Skallagr. 13 2 3 8 12-24 9
Stjarnan 13 0 4 9 8-29 4
Markahæstir:
Andri Sigþórsson, KR............10
Tryggvi Guðmundsson, ÍBV .... 10
Þorvaldur Sigbjömsson, Leiftri . . 6
Steingrímur Jóhanness., ÍBV .... 6
Einar Þór Daníelsson, KR ........6
Haukur Ingi Guðnason, Keflavík . 6
Sverrir Sverrisson, IBV..........5
Fjórtánda umferö úrvalsdeildar
verður leikin 23.-24. ágúst.
„Liðið hefur
alla burði"
- segir Zoran Miljkovic hjá ÍBV
DV, Eyjum
„Mér fannst þetta góður leikur.
Reyndar var töluverð þreyta í okk-
ur eftir erfiðan leik og tveggja sól-
arhringa hehnferð frá Möltu og
ekki hægt að búast við glansleik af
okkar hálfú. En við gerðum það
sem við þurftum og mikilvægast
var að ná í þrjú stig og halda sér í
toppsætinu. Mér finnst frábært að
spila með ÍBV, liðið er gott og hef-
ur alla burði til að vinna meistara-
titilinn en ég þekki ekkert annað
eftir að hafa spilað með Skaga-
mönnum síðustu þrjú árin,“ sagði
himinlifandi Zoran Miljkovic, sem
átti stjörnuleik í vöm Eyjamanna
þegar þeir lögðu Grindvíkinga af
velli í Eyjum, 2-1.
Eyjamenn fóru sér hægt af stað
í þessum leik. Grindvíkingar, sem
hafa verið á mikilli siglingu að
undanfornu, beittu hættulegum
skyndisóknum enda með eld-
snögga menn innanborðs. Framan
af leik var fátt um færi en á
lokamínútu fyrri hálfleiks var ís-
inn brotinn með fyrra marki ÍBV
sem var mikið áfall fyrir Grindvik-
inga sem höfðu spilað vel. Liðin
gerðu síðan sitthvort markið í síð-
ari hálfleik.
Það sást vel í þessum leik að það
er engin tilviljun að Grindvíkingar
hafa verið að hala inn stig að
undanfornu því liðið er vel skipu-
lagt og sterkt. Greinileg þreyta var
í Eyjamönnum en þeir léku skyn-
samlega og bára góðan sigur úr
býtum.
„Þetta var ágætis leikur af
beggja hálfú. Fyrra mark ÍBV sló
okkur svolítið út af laginu og það
var slæmt að missa Kekic út af.
Við vorum sterkari á köflum 1
seinni hálfleik en náðum ekki að
nýta okkur það,“ sagöi Guð-
mundur Torfason, þjálfari Grind-
víkinga, í leikslok.
-ÞoGu