Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1997, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1997
Útlönd
Stuttar fréttir :dv
Aðventuskemmtun endaði með hörmungum á Eyrarsundi:
Fjórir krömdust
undir risagasskipi
- sautján sportveiðimönnum bjargað úr ísköldum sjónum
DV, Ósló:
Þaö sem átti að vera skemmtiferð
í upphafl aðventu endaði með hörm-
ungum og dauða. Sautján mönnum
var við illan leik bjargað úr sjónum
á Eyrarsundi skammt norðan Kaup-
mannahafnar í gær en fjórir létu líf-
ið. Norskt risagasskip var á leið
suður sundið en á því miðju lá lítill
danskur bátur með hóp sportveiði-
manna um borð. Dimm þoka var á
sundinu og varð árekstri ekki
afstýrt.
„Við náðum tökum á félögum
okkar en urðum aö sleppa þeim aft-
ur. Þeir voru of þungir í sjónum,"
sagði einn þeirra sem komust lífs af
við danska ríkissjónvarpið í gær-
kvöld. Litli fiskibáturinn brotnaði í
tvennt þegar risaskipið sigldi yfir
hann miðjan og flutu báðir endar
upp. Sautjánmenningarnir björguð-
ust á stefninu.
í gærkvöld var því haldið fram í
fréttum sænska sjónvarpsins að
þeir sem létust hefðu slasast alvar-
lega við áreksturinn og þvi ekki náð
aö bjarga sér. Fimm voru fluttir á
sjúkrahús vegna ofkælingar og
einnig sára sem rekja má til árekst-
ursins. Af hinum látnu sem allir
voru Danir var einn háseti á bátn-
um. Veiðimennimir hugðust veiða
þorsk sem er vinsæll matur á að-
ventunni í Danmörku.
Slysið er rakið til þokunnar sem
var á Eyrarsundi í gær. Þó er talið
ljóst að með aðgát hefði mátt bjarga
mannslífum. Enginn nothæfur rad-
ar var í fiskibátnum og þegar gas-
skipið reyndi að sveigja af leið til að
forðast árekstur sveigði fiskibátur-
inn í sömu átt. Þá er og gagnrýnt að
bátnum var haldið til veiða mitt i
siglingaleiðinni um sundið. Óvíða
er umferð á sjó þyngri en einmitt
þama.
Þessu til viðbótar er upplýst að
ekki vom nægilega mörg björgunar-
vesti um borð handa öllum. Nokkr-
ir náðu að bjarga sér á vestum sem
kastað var frá norska skipinu. Sjó-
próf verða haldin á morgun.
-GK
Karl Bretaprins
íhugar að láta
af refaveiðum
Karl, ríkis-
arfi á Bret-
landi, íhugar
nú að hætta
refaveiðum,
að þvi er
bresk blöð
skýrðu frá í
gær. Yflrgnæf-
andi meirihluti breskra þing-
manna greiddi atkvæði með
refaveiðibanni I síðustu viku.
Prinsinn hefur stundað refa-
veiðar í tuttugu ár. Að sögn
sunnudagsútgáfu Express-dag-
blaðsins veltir Karl því nú fyrir
sér af mikilii alvöra að gefa
veiðamar upp á bátinn vegna
almenningsálitsins.
Aukin matar-
kaup fyrir olíu-
fé bæta ekki
ástandið í írak
írösk stjómvöld sögðu í gær
að þótt olíusala þeirra til að
standa straum af matvælakaup-
um yrði aukin mundi þaö ekki
leysa þann milda heilbrigöis-
vanda sem írakar standa
frammi fyrir.
Núverandi samningur við
Sameinuðu þjóðirnar rennur út
5. desember. Búist er við að Kofi
Annan, framkvæmdastjóri SÞ,
leggi fram tillögur sinar um
endurnýjun samningsins fyrir
Öryggisráðið í dag.
Viðræðum um
nýja stjórn í
Prag frestað
Stjómar-
myndunar-
viöræðum í
Tékklandi
hefur verið
frestað fram
yfir aukaþing
flokks
Vaclavs
Klaus, fráfarandi forsætisráð-
herra, þann 13. desember.
Vaclav Havel forseti skýrði
frá þessu í gær eftir fund með
leiðtogum flokkanna þriggja
sem mynda núverandi ríkis-
stjóm landsins.
Havel féllst á lausnarbeiðni
Klaus og stjómar hans á fundin-
um. Stjómin mun þó sitja þar til
ný hefur verið mynduð. Klaus
verður ekki með i nýrri stjóm.
Stjómin sagði af sér vegna fjár-
málahneykslis í flokki forsætis-
ráðherrans.
_________ieuter
Björgunarsveitamenn flytja burt mann sem bjargaðist lifandi frá árekstri norsks risagasskips og danska fiskibátsins
Peder Wessel á Eyrarsundi í gær. Fjórir týndu lífi en sautján var bjargað úr köldum sjónum. Símamynd Reuter
Fjölskylda Onassis-erfingj-
ans lifir í stöðugum ötta
Fjölskylda Aþenu litlu, erfingja
Onassis-auðæfanna, hefur lifað í
stöðugum ótta frá því svissneska
lögreglan skýrði henni frá samsæri
um að ræna stúlkunni í febrúar sið-
astliðnum. Þrír hafa verið hand-
teknir vegna þessa.
„Líf okkar hefur verið hrein
martröð frá því í febrúar," sagði
Thierry Roussel, faðir Aþenu litlu, í
viðtali við Reuters-fréttastofuna um
helgina.
Aþena er dóttir Roussels og
Christinu Onassis, dóttur skipa-
kóngsins gríska, Aristótelesar
Onassis. Christina lést árið 1988 og
eftirlét dóttur sinni auðæfi að and-
virði um 210 milljarða króna. Aþena
Aþena Roussel, erfingi Onassis-
auðæfanna. Símamynd Reuter
er tólf ára nú og verður fé hennar í
vörslu sérstakra tilsjónarmanna þar
til hún verður átján ára.
Fjölskyldan býr nærri Lausanne í
Sviss þar sem Aþena gengur í skóla.
Lífverðir, sem eru fyrrum félagar í
SAS, sérsveitum breska hersins,
gæta stúlkunnar hvert fótmál.
Roussel stendur í deilum við
Onassis-stofnunina sem gætir fjár-
muna dóttur hans. Hann sakar til-
sjónarmennina um að hafa staðið
sig ilia. Þá er hann reiður yfir því
að stofnunin skuli láta fara fram
rannsókn á öryggisgæslu stúlkunn-
ar án þess að láta hann vita.
Óvíst um Al Gore í Kyoto
Enn er óráðið hvort A1 Gore,
varaforseti Bandaríkjanna, sækir
loftslagsráðstefnuna sem hefst i
Kyoto í Japan í dag. Gore hefur
lengi sýnt málefninu áhuga.
Fulltrúar frá 160 löndum munu á
næstu tíu dögum reyna að komast
að samkomulagi um hvemig draga
megi úr losun svokallaðra gróður-
húsalofttegunda, sem vísindamenn
segja að séu að breyta loftslagi jarð-
arinnar.
Bandarísk stjórnvöld vilja fá þátt-
tökuþjóðimar til að samþykkja
áætiun sem bægir hættunni á
hækkandi hitastigi jarðar frá án
þess þó að valda efnahagsþrenging-
um. Bandaríkjamenn vilja að á
næstu 15 áram verði losuninni kom-
ið í það horf sem hún var 1990. Jap-
anar hafa lagt til 5 prósenta sam-
drátt en ESB vill að búið verði að
draga úr losuninni um 15 prósent
árið 2010. Þróunarlönd eins og Kína
og Indland era andvíg því að draga
úr losun sinni á gróðurhúsaloftteg-
undum. Reuter
Höfnuðu morðúm
Spænsk stjómvöld höfnuöu
boði ísraelsku leyniþjónustunn-
ar Mossad á 9. áratugnum um að
myrða aðskilnaðarsinna Baska í
Frakklandi, að sögn spænska
blaðsins E1 Mundo.
Paula vill frið
Breska sjón-
varpskonan
Paula Yates,
sem sneri
heim frá Ástr-
alíu í gær þar
sem hún var
við útför elsk-
huga síns,
Michaels Hutchence, bað fjöl-
miðla um að leyfa sér að vera í
friöi. Hún og 16 mánaða dóttir
þeirra Hutchence ætla ekki að
dvelja á heimili sínu á næstunni.
Gísl lét lífið
Frönsk kona, sem ásamt eigin-
manni sinum var rænt í
Tadsjikistan fyrir nokkrum dög-
um, lét lífið þegar stjómarher-
inn réðst gegn bæli mannræn-
ingjanna. Eiginmaðurinn var
látinn laus á laugardagskvöld.
Skila landi
Ríkisstjóm ísraels samþykkti í
gær að skila meira landi á Vestur-
bakkanum til Palestínumanna,
með skilyrðum þó. Ráðherra í
heimastjóm Palestínumanna for-
dæmdi ákvörðunina og sagði
hana skaðlega friðarferlinu.
Efast um mynt
Spænskir kjósendur eru fullir
efasemda um sameiginlega mynt
Evrópusambandsins en þeir telja
þó að Spánn verði með í mynt-
bandalaginu frá byrjun. Þetta
kemur fram í nýrri skoðana-
könnun.
Jeltsín frestar fundi
Borís
Jeltsín Rúss-
landsforseti
hefur frestað
um eina viku
fundi með ráð-
herrum í
stjóm sinni
sem átti að
vera í dag. Þar áttu ráðherrarnir
að svara fyrir gjörðir sínar í
efnahagsmálum. Vaxandi "óróa
gætir nú vegna bágborins
ástands efnahagsmála Rúss-
lands.
Áhöfn bjargað
Franskar og breskar þyrlur
björguðu 32 manna áhöfri af kýp-
versku skipi sem slagsíða kom á
í Ermarsundi í gær.
Eins og fyrir stríðið
írakar sögðu í gær að ástandið
við Persaflóa væri svipað því
sem var áður en stríðið blossaði
upp þar 1991.
Sæðisbankahneyksli
Sæðisbanka í Flórens á Ítalíu
hefur verið lokað og fjórir menn
hafa verið handteknir vegna
þess að bankinn seldi sæði úr
manni með lifrarbólgu C.
Þögnin
rofin
Winnie
Mandela, fyrr-
um eiginkona
Nelsons Mand-
ela, forseta
Suður-Afriku,
vísaði á bug í
sjónvarpsviðtali í gær að hún
hefði nokkru sinni unnið gegn
blökkumönnum. Winnie hafði
ekkert látið hafa eftir sér frá því
sannleiksnefnd Suður-Afríku hóf
að rannsaka athæfi hennar á
tímum aöskilnaðarstefnunnar.
Winnie hefúr meðal annars ver-
iö ásökuö um morð og fleiri ill-
virki.
Gengur með sexbura
Sextán ára stúlka í Kólumbíu
gengur með sexbura sem eiga að
fæðast innan mánaðar, að sögn
CNN. Reuter