Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1997, Síða 10
10
MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1997
Fréttir
Lúsin lífseigari
- ekki faraldur, segir hjúkrunarfræöingur
„Þaö er ekki hægt að segja að það
sé lúsafaraldur en það er töluvert af
lús í skólunum. Þetta kemur upp á
hverju ári og er ekki háð hreinlæti.
Við hjúkrunarfræöingamir sem
störfum i skólunum höfum reynt að
hafa eins góða stjóm á þessu og
mögulegt er en þetta kemur alltaf
upp og getur verið mjög erfitt að
eiga viö. Við teljum að þetta sé ekk-
ert meira nú en undanfarin ár,“ seg-
ir Hulda Finnbogadóttir, hjúkrunar-
fræðingur í Setbergsskóla í Hafnar-
firði.
Hulda segir aö lús hafi fundist á 8
bömum í Setbergsskóla í vetur og
nokkuö fleiri hafa greinst með nit.
Hulda segir að enginn einn skóli
virðist koma sérstaklega verr út en
aðrir varðandi lúsina.
„Við höfum leitað að lúsinni í
bekkjum og árgöngum hér í skólan-
um. Það hefur verið talað við for-
eldra og brýnt fyrir þeim að leita
heima. Börnin hafa verið send með
miða heim þar sem bent er á fyrir-
byggjandi aðferðir."
Ábyrgð foreldra og forráðamanna
„í þessu sambandi er ábyrgð for-
eldra mikil og ég veit ekki hvort það
er öllum ljóst. Foreldrar þurfa að
passa þetta eins vel og mögulegt er
og leita oftar en einu sinni á börn-
um sínum, helst á hverjum degi.
Það hefur verið talað um að lúsin
sé eitthvað erfiðari viðfangs nú en
áður og lífseigari gegn efnunum
sem notuð em gegn henni. Það hef-
ur verið rætt um að taka eitt efni í
2 ár og nota það en það hefur ekki
náðst samstaða um það. Þetta er
eitthvað sem þarf að skoða betur,"
segir Hulda.
-RR
PHILIPS
á lágu verði
PHILIPS
28" sjönvarp
69.900
PHIllPS -u
myndbandstæki a
Philips PT4423 er nýtt
28" gæða sjónvarpstæki
á ótrúlegu verði.
Philips PT4423:
Nicam Stereo
Blackline D myndlampi
Einföld og þægileg
fjarstýring
íslenskur leiðarvísir
Gerðu hörðustu kröfurtil
heimilistækja.
Fjárfestu í Philips!
27.900
Tveggja hausa myndbandstæki frá
Philips á sérlega hagstæðu verði.
Einfalt í notkun og áreiðanlegt.
íslenskur leiðarvísir.
PHILIPS
-alltaf ódýrast hjá okkur!
Heimilistæki hf
Umboðsmenn um land allt.
SÆTÍIN8 SÍMI 569 1500
http.//www.ht.ls
ÁNÆGIUÁBYRGÐ
SSé kaupandi ekki ánægður
með vöruna má hann skila
henniinnan 10 dagal
Nýtt veiðieftirlit:
Nær ekki
til Smug-
unnar
DV, Ósló:
ísland, Noregur og ríki Evr-
ópusambandsins hafa náð sam-
komulagi um nýtt fiskveiðieftir-
lit í Norðaustur-Atlantshafi, bæði
innan og utan efnahagslögsögu
ríkjanna.
Samningurinn þýðir að eftirlit
verður strangara og ríkin skuld-
binda sig til að senda eftirlitsskip
ef tíu bátar eða fleiri eru á veið-
um á sömu miðum. Þetta gildir
líka á opnu hafi og norskir sjáv-
arútvegsmenn túlka það þannig
að Norðmenn og Rússar hafi
fengið tæki í hendur til að
stjórna veiöum í Smugunni þar
sem hvert ríki fái nú vald til að
líta eftir veiðum úti fyrir lögsögu
sinni.
Norskir sjávarútvegsfrömuðir
tala um tímamótasamning og að
hann sé ein af forsendum þess að
stjórn náist á veiðum í Smug-
unni. DV ræddi við Kristján
Skarphéðinsson, skrifstofustjóra
í sjávarútvegsráðuneytinu, um
þessa norsku túlkun á samningn-
um. Hann kvaðst ekki sjá að neitt
samhengi væri milli hans og
veiða í Smugunni. Samningurinn
næði fyrst og fremst til þeirra
tegimda sem Norðaustur-Atlants-
hafsfiskveiðinefndin stjórnaði
veiðum á, svo sem á úthafskarfa
og síld á alþjóðlega hafsvæðinu í
N-Atlantshafi. Nefndin stjómaði
ekki veiðum á þorski i Barents-
hafi. -GK/SÁ
Reykjanesbær:
Jafnaðar-
flokkur
stofnaður
DV; Suðurnesjum:
Stofnfundur Bæjarmálafélags jafn-
aðar- og félagshyggjufólks í Reykja-
nesbæ var haldinn í síðustu vikunni
en Alþýðuflokkur og Alþýðubanda-
lag ætla að bjóða fram sameiginlega
í Reykjanesbæ í næstu sveitarstjóm-
arkosningum undir heiti nýja bæjar-
málafélagsins.
Um 100 manns sótti fundinn og
óhætt er að segja að einhugur hafi
ríkt. Kjörin var stjóm hins nýja fé-
lags og kjömefnd valin. Bjöm Her-
bert Guðbjömsson var valinn for-
maður félagsins og Theodór Magnús-
son varaformaður. Hann var formað-
ur undirbúningsnefndar.
Félagið mun hafa opið prófkjör
um uppröðun listans og þarf fólk að
skrifa undir stuðningsyfirlýsingu
við flokkinn til aö geta tekið þátt í
því. Nýi flokkurinn hefur sett stefn-
ima á að ná meirihluta í næstu kosn-
ingum, fá 6 fulltrúa. Alþýöuflokkur
er nú með 3 fulltrúa og Alþýðu-
bandalag 2 og eru í minnihluta í bæj-
arstjóm. Talsverð eftirvænting er
varðandi það hver verður bæjar-
stjóraefhi hins nýja félags. Einnig
hvemig listinn verður skipaður.
Ljóst er að þrír núverandi bæjarfull-
trúar gefa ekki kost á sér. -ÆMK
s
IJrval
-960síðuráári-
fróðieikur og skemmtun
sem lifir mánuðum og
árumsaman