Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1997, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 27 •n helgina , Kjarvaísstaðir: Ur Kjarvalssafni I austursal Kjarvalsstaða hefur verið opnuð sýning þar sem getur að líta úrval verka Jóhannesar S. Kjarvals úr eigu Listasafns Reykjavíkur. Verkin eru frá ýms- um tímum og voru valin með til- liti til viðfangsefna. Einkum er lögð áhersla á landslagsmyndir, mannamyndir og verk með því dulræna inntaki sem Kjarval heill- aðist af. Einnig eru sýndar skissur og teikningar frá ýmsum tímum. Almenn leiðsögn um sýningar safiisins er alla sunnudaga kl. 16. Opið er á Kjarvalsstöðum milli kl. 10 og 18 alia daga vikunnar. Sýn- ingin nú stendur til 21. desember. Sólfar, vetrarmynd úr Gálga- hraunl eftir melstara Kjarval. Steinunni Sigurðardóttur Óháði söfnuðurinn held- ur aðventukvöld á sunnu- dagskvöldið kl. 20.30 í kirkju sinni. Steinunn Sig- urðardóttir rithöfúndur mun flytja ræðu kvöldsins. Kór saJEnaðarins, undir stjórn Péturs Máté, mun syngja ásamt Ara Gústavs- syni einsöngvara. Einnig munu Martial Nardeau flautuleikari og Pétur Máté orgelleikari koma fram. I lokin verður kveikt á kertum og boðið upp á smákökur. Steinunn Siguröardóttir rithöfundur er ræöumaöur kvöldsins. Kaffisýning Aðventukvöld með Hlauptu af þér hornin Leirlistarkonan Þóra Sigurþórs- dóttir hefúr opnað sýningu á verk- rnn sínum í Gullsmiðju Hansínu Jens að Laugavegi 20b. Þóra útskrifaðist frá leirlistar- deild MHÍ árið 1989. Undanfarin sjö ár hefur hún rekið eigin vinnustofú og gallerí að Álafossi í Mosfellsbæ. Þóra hefur haldið fjölda einkasýn- inga og tekið þátt í samsýningum. Hún vinnur bæði nytjahluti og skúlptúra úr leir og öðrum efnum, s.s. hrosshári. Á sýningunni nú not- ar Þóra kindarhom á nýstárlegan hátt. Þess vegna hefur sýningin hlotið nafnið Hlauptu af þér homin. Sýningin er opin á verslunartíma. Te- og kaffibúðin, Laugavegi 27, hefur opnað yfirlitssýningu á sögu og þróun kaffisins. Þar má sjá þró- un kaffidrykkjunnar frá því kaffi- berið uppgötvaðist sem hressandi ávöxtur þar til farið var að brenna og mala kaffibaunina og búa til þann drykk sem við þekkjum í dag. Einnig hefur verið gefinn út bæklingur sem nefnist f Saga og leyndardómar kaffisins. Þar má t.d. lesa um uppruna kaffi- plöntunnar, útbreiðslu hennar og ræktun og þróun kaffihúsamenn- ingar. Sýningin mun standa til febrú- arloka 1998 en þá mun taka við sýning tileinkuð tei og te- drykkju. Óháði söfnuðurinn: Þurfa þessar aö hlaupa af sér hornin? Mörgum þykir kaffisopinn ómissandi. wo Laugardaginn 20.des | Húsið opnar 18:00. Verð: 2.400 í stœðt & 2.800 í sœti Brooklyn Zoo Upphitun propellerheads Subterranean Quarashi pis. Smash, Musik Mekka. Tolvutceki k Bókval (Akureyrs Öíi meóferó ófergis og onoarra vmuefr-a stronfiega bonnoí óivun ógtidir míðonn. 14.óra aidurstakmark.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.