Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1997, Page 6
30
\
\
MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 1997
íþróttir
DV
gjt. IWGUHD
Úrvalsdeild:
Aston Villa-Southampton ... 1-1
1-0 Taylor (64.), 1-1 Östenstad (72.).
Blackbum-West Ham..........3-0
1-0 Ripley (22.), 2-0 Du£f(50.), 3-0 Duff
(72.).
Derby-Crystal Palace........0-0
Leeds-Bolton................2-0
1-0 Ribeiro (68.), Hasselbaink (81.).
Leicester-Everton...........0-1
0-1 Speed (89. vítasp.).
Liverpool-Coventry..........1-0
1-0 Owen (14.).
Sheff. Wed-Chelsea ..........l^
0-1 Petrescu (31.), 0-2 Vialli (56.), 0-3
Leboeuf (65. vítasp.), 1-3 Pembridge
(71.), 1-4 Andre Flo (84.).
Tottenham-Bamsley ..........3-0
1-0 Nielsen (6.), 2-0 Ginola (11.), 3-0
Ginola (17.).
Newcastle-Man. Utd O-l
0-1 Cole (67.).
Wimbledon-Arsenal . . 1 kvöld
Man. Utd 19 13 4 2 45-13 43
Blackbum 19 11 6 2 36-19 39
Chelsea 19 12 2 5 45-19 38
Leeds 19 10 4 5 28-19 34
Liverpool 18 9 4 5 31-17 31
Arsenal 18 8 5 4 32-21 30
Derby 19 8 5 6 33-27 29
Leicester 19 7 6 6 23-18 27
Newcastle 18 7 5 6 20-22 26
West Ham 19 8 1 10 25-31 25
Wimbledon 18 6 5 7 19-21 23
Aston Villa 19 6 4 9 20-25 22
Crystal P. 19 5 6 8 17-25 21
Sheff. Wed 19 6 3 10 31-43 21
S’hampton 19 6 2 11 23-29 20
Coventry 19 4 8 7 17-25 20
Bolton 19 4 8 7 16-29 20
Tottenham 19 5 4 10 17-32 19
Everton 19 4 5 10 17-27 17
Bamsley 19 4 2 13 17-50 14
1. deild:
Bury-Sheff. Utd .... 1-1
Crewe-Sunderland . .. 0-3
Man. City-Middlesbro 2-6
Norwich-Stoke 0-0
Nott. Forest-Stockport 2-1
Port Vale-Ipswich . . . 1-3
Portsmouth-Charlton . 0-2
Reading-Wolves 0-0
Swindon-Birminham . 1-1
Tranmere-Oxford . .. . 0-2
W.B.A.-Huddersfield . 0-2
QPR-Bradford . 1-0
Middlesbro 23 13 6 4 39-19 45
Nott. For. 23 13 6 4 34-22 45
Sheff. Utd 23 11 9 3 34-22 42
Charlton 23 12 5 6 43-29 41
W.B.A. 23 12 4 7 25-21 40
Sunderland 22 11 6 5 35-21 39
Swindon 23 11 5 7 32-31 38
Wolves 23 10 6 7 29-26 36
Stockport 23 10 5 8 39-32 35
Bradford 23 8 9 6 22-22 33
Birmingh. 23 8 8 7 24-19 32
Q.P.R. 23 8 6 9 28-36 30
Norwich 23 8 6 9 23-32 30
Ipswich 22 6 9 7 27-25 27
Stoke 23 7 6 10 24-30 27
Oxford 23 7 5 11 29-33 26
Port Vale 23 7 5 11 26-30 26
Reading 23 6 7 10 21-35 25
Man. City 23 6 5 12 26-27 24
Huddersf. 23 6 5 12 24-37 23
Tranmere 22 6 4 12 28-34 22
Bury 23 4 10 9 22-32 22
Crewe 23 6 3 14 26-39 21
Portsmouth 22 5 5 12 26-36 20
291 SKOTLAHD
Celtic-Hibemian..............5-0
Dundee Utd-St. Johnstone.....2-1
Hearts-Rangers...............2-5
Kilmamock-Aberdeen...........1-0
Motherweli-Dunfermline.......2-0
Rangers 18 11 6 1 47-20 39
Celtic 18 12 2 4 34-12 38
Hearts 18 12 1 5 39-23 37
Dundee Utd 18 6 6 6 29-26 24
Kilmamock 18 6 4 8 17-33 22
Dunferml. 18 5 6 7 21-34 21
St. Johnst. 18 5 5 8 19-26 20
Motherwell 18 5 4 9 23-29 19
Hibemian 18 3 5 10 23-32 14
Aberdeen 18 2 7 9 17-34 13
Ólnfur Gottskálksson og Bjarnólf-
ur Lárusson voru ekki í leikmanna-
hópi Hibemian gegn Celtic. Liðið var
ekki með varamarkvörð á bekknum i
leiknum heldm- þrjá útispilara.
Lykillinn var að
losna við Cantona
Peter Beardsley, sóknarmaðurinn
reyndi hjá Bolton, sagði um helgina að
það hefði reynst öðrum leikmönnum
Manchester United dýrmætt að losna
við Eric Cantona fyrir þetta tímabil,
sérstaklega fyrir Andy Cole. „Cantona
var kóngurinn og aðrir fengu ekki að
njóta sín. Nú er hann farinn og hinir
blómstra hver á fætur öðrum, og Cole
hefúr grætt manna mest,“ sagði
Beardsley. -VS
Þessi ummœli féllu ekki í
góðan jarðveg í herbúðum
Liverpool og Hoddle ræddi
því við Roy Evans fram-
kvæmdastjóra og sagði hon-
um að orð sin væra mis-
túlkuð. Hann hefði átt við
að ungir leikmenn þyrftu
almennt að gæta að lífsstíl
sínum utan vallar.
Roy Evans segir að hann
hafi aldrei nokkum tíma
lent í vandræðum með
Owen og sjái ekki fyrir sér
neitt slíkt.
-VS
Guóni Bergsson harkaði af sér og lék allan leik-
inn með Bolton gegn Leeds. Tvísýnt var fram á
síðustu stundu hvort hann gæti spilað vegna
ökklameiðsla.
Arnar Gunnlaugsson sat hins vegar á vara-
mannabekk Bolton allan timann. Reiknað hafði
verið með því að hann fengi tækifæri eftir að hafa
skorað tvívegis fyrir varaliðið á miðvikudaginn.
Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn í sterkri
vörn Crystal Palace gegn Derby.
Lárus Orri Sigurösson lék að vanda allan leik-
inn í vöm Stoke sem fékk sitt fyrsta stig í sex
leikjum í 1. deild með 6-0 jafntefli i Norwich.
Kristján Sigurósson, 17 ára bróðir Lárasar Orra
sem á dögunmn skrifaði undir 18 mánaða samn-
ing við Stoke, lék með varaliðinu sem tapaði fyr-
ir Blackbum.
Steve Lomas, fyrirliði West Ham, fékk rauða
spjaldið á 59. mínútu gegn Blackbum. Hann var
óhress með að West Ham skyldi ekki fá víta-
spymu og greip í handlegg dómarans, sem lyfti
þegar rauða spjaldinu.
Gianluca Vialli var í byrjunarliði Chelsea í ann-
að skipti á þremur mánuðum. Hann þakkaði fyr-
ir sig með því að skora og krækja í vítaspymu.
Tore Andre Flo missti hins vegar sæti sitt i liði
Cheisea þrátt fyrir fjögur mörk í tveimur síðustu
útileikjum liðsins. Flo kom þó inn á sem vara-
maður og gerði glæsilegt mark.
Brad Friedel, bandaríski landsliðsmarkvörður-
inn sem Liverpool hefúr keypt, fær atvinnuleyfl í
Englandi i dag. Þar með reikna flestir með þvf að
dagar hins mistæka David James í marki Liver-
pool séu taldir en þó ótrúlegt megi virðast hefúr
hann leikið 200 leiki í röð i marki liðsins.
Gary Speed er líklega á fórum frá Everton til
Newcastle. Howard Kendall neyðist sennilega til
að selja hann til að fá peninga til leikmanna-
kaupa.
Tomas Brolin er loksins laus undan samningi
sínum við Leeds og fer liklega til Crystal Palace.
Lee Carsley, miöjumaður Derby og irska lands-
liðsins, er efstur á óskalistanum hjá Christian
Gross, framkvæmdastjóra Tottenham. Búist er
við því að hann bjóði Derby 360 milljónir króna I
Carsley.
Bernard Lama, franski landsliðsmarkvörðurinn,
er kominn til West Ham sem lánsmaður frá Paris
SG. Lama hefur ekkert spilað síðan hann var
dæmdur í þriggja mánaða bann síðasta vetur
vegna neyslu eiturlyfja. vo
fffj/ EHGLAHP
Darren Anderton, enski
landsliðsmaðurinn, skrifaði
um helgina undir nýjan
samning við Tottenham til
ársins 2000.
Sol Campbell lék á ný með
Tottenham um helgina eftir
nokkra fjarvera vegna
meiðsla á öxl.
Keith Gillespie hjá New-
castle sagði um helgina að
hann væri tilbúinn að
skrifa undir samning til
lífstíðar við félagið.
Glenn Hoddle, landsliðs-
þjálfari Englands, sagði fyr-
ir helgina að Michael Owen
væri kannski ekki alveg til-
búinn andlega til að spila
fyrir enska A-landsliðiö.
Del Piero til Arsenal?
Arsene Wenger, framkvæmdastjóri Arsenal, vinnur
nú að því hörðum höndum að fá ítalska landsliðs-
manninn Alessandro Del Piero frá Juventus í sínar
raðir fyrir næsta tímabil.
Wenger flaug til Ítalíu fyrir helgina og ræddi við
Del Piero sem mun kosta Arsenal tæplega einn millj-
arð króna ef af verður.
Wenger vantar tiifinnanlega einhvem til að
leggja upp mörkin fyrir sína skæðu sóknarmenn og
hann sér Del Piero sem rétta manninn í þeim efn-
um. -VS
Haugalygi
- segir Steve McManaman
Steve McManaman, fyrirliði Liverpool og leikmað-
ur með enska landsliðinu, sagði í samtali við Press
Association í gær að það væri hrein fjarstæða að
hann væri á leið frá félaginu. McManaman hefúr
hvað eftir annað verið orðaður við Barcelona að undanfomu.
„Það er ekki sannleikskom i þessum sögum. Það hefur meira að segja
veriö gefið í skyn aö ég hafi gert einhvers konar samkomulag við
Barcelona um að fara þangað síðar. Þetta er ekki bara haugalygi, heldur
einnig sárt fyrir mig, Liverpool og stuðningsmenn félagsins að hlusta á
þessa vitleysu. Menn virðast gleyma því að ég er á samningi við Liver-
pool til ársins 1999 og þaö er ömggt að ég klára hann,“ sagði McManam-
an. -VS
Rangers á sínum stað
Glasgow Rangers er komið í toppsætið í skosku úrvals-
deildinni eftir góðan útisigur, 2-5, á Hearts sem fyrir leikinn
var í efsta sætinu. Gordon Durie gerði þrennu fyrir Rangers
og þeir Marco Negri og Jorg Albertz hin tvö.
Celtic var ekki í neinum vandræðum með íslendingalaust
lið Hibemian og er í öðm sæti deildarinnar. Craig Burley
skoraði tvö mörk fyrir Celtic í leiknum.
Dundee United er í fjórða sætinu eftir sigur á St. John-
stone. Sigurður Jónsson lék ekki með Dundee United vegna
meiðsla. -JKS
Enska knattspyrnan:
Enn
eitt gull
mark Cole
- og Man. Utd áfram í góðri stöðu
Leikmenn Manchester United létu góða sigra hjá
skæðustu keppinautunum, Blackbum og Chelsea, á
laugardaginn ekki hafa nein áhrif á sig. Þeir kræktu sér
í þrjú dýrmæt stig með því að vinna Newcastle, 0-1, á St.
James Park í gær og snæða því jólasteikina með
fjögurra stiga forskot í úrvalsdeildinni.
Enn einu sinni var það Andy Cole sem reyndist sínum
mönnum dýrmætur. Hann skoraði sigmmarkið um
miðjan síðari hálfleik, með skalla eftir sendhigu frá
David Beckham. Newcastle sótti heldur meira og Peter
Schmeichel varði tvívegis á stórkostlegan hátt. Shaka
Hislop i mark Newcastle stóð líka fyrir sínu.
Chelsea sýndi snilldartakta gegn Wednesday á Hills-
borough og vann yfirburðasigur, 1-4. Rúmeninn Petr-
escu, ítalinn Vialli, Frakkinn Lebouf og Norðmaðurinn
Flo gerðu mörkin og Ron Atkinson, stjóri Wednesday,
var fokreiður eftir leikinn. „Við vorum á heimavelli og
samt var þetta eins og léttur æfingaleikur fyrir Chelsea.
Ég vil sjá meiri sigurvilja en þetta,“ sagði „Stóri-Ron“.
Blackburn leikur af gifurlegu sjálfstrausti um þessar
mundir og virðist líklegt til að halda sér við toppinn allt
tímabilið. Chris Sutton lék ekki gegn West Ham vegna
meiðsla en Damian Duff, 18 ára norður-írskur unglinga-
landsliðsmaður, tók stöðu hans í sókninni og skoraði tvö
mörk í 3-0 sigrinum.
Everton vann sinn fyrsta útisigur í eitt ár og fjóra
daga. Gary Speed skoraði sigurm£irkið í Leicester, 0-1,
úr vítaspymu mínútu fyrir leikslok, eftir að Danny
Cadamarteri var felldur. Reyndar var Speed heppinn að
vera enn með í leiknum þvi hann átti að flestra mati að
vera búinn að fá rauða spjaldið. „Þetta var erfið fæðing,"
sagði Howard Kendall, stjóri Ev-
erton.
David Ginola skoraði tvívegis
fyrir Tottenham sem vann loks
leik, 3-0 gegn Barnsley. Öll mörkin
komu á fyrstu 17 mínútunum.
Derby hafði gífúrlega yfirburði
gegn Crystal Palace en Her-
mann Hreiðarsson og félagar
í Palace náðu að hanga á 0-0
jafntefli með miklum vam-
arleik og heppni í bland.
Michael Owen átti stór-
góðan leik með Liverpool og
skoraði sigurmarkið gegn Coven-
try, 1-0. Þetta var sætur sigur því
Coventry hafði unnið á Anfield tvö
undanfarin tímabil.
„Við spiluðum frábærlega fyrstu 20
mínútumar. Owen lét verkin tala og
vinnslan hjá honum var ótrúleg," sagði Roy
Evans, framkvæmdastjóri Liverpool.
Bolton var betri aðilinn lengi vel gegn Leeds
sem síðan tryggði sér 2-0 sigur á lokasprettin-
inn.
Matthew Le Tissier virtist hafa skorað sig-
urmark fyrir Southampton gegn Aston Villa
þegar hann var snöggur að taka aukaspymu.
Dómarinn lét hann endurtaka spymuna vegna
þess að hún hefði verið tekin á röngum stað.
Leikurinn endaði því 1-1. -VS
Tore Andre Flo, Norðmaðurinn
leggjalangi, skoraði fallegt mark
fyrir Chelsea gegn Sheffield Wed-
nesday. Reuter