Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1998, Side 30
3» &kamál
LAUGARDAGUR 7. MARS 1998
Maðurinn virtist fullkomlega ró-
legur þar sem hann sat á tröppun-
um við hús sitt, rétt eins og ekkert
hefði komið fyrir. Hann var með
vindling milli fingranna. Skyndi-
lega heyrðist mikið væl í aðvörun-
arflautum lögreglubíls og augna-
bliki síðar sást hann aka að húsinu
á miklum hraða. Maðurinn á tröpp-
unum stakk vindlingnum milii vara
sér og dró reykinn djúpt að sér.
Tveir lögreglumenn stukku út úr
bílnum og hlupu í áttina til hans.
En hann starði tómlegum augum út
í loftið og það var ekki fyrr en þeir
komu alveg að honum að hann tók
til máls.
„Farið ekki lengra," sagði hann.
Svo leit hann í átt til hússins og
bætti við: „Hún liggur þama inni -
konan mín. Ég er nýhúinn að skjóta
hana.“ Aftur stakk hann vindlingn-
um milli vara sér og dró djúpt að
sér reykinn.
Skin og skúrir
Paul hafði stundað fasteignasölu
á S-Englandi en þar eru sumar dýr-
ustu og fallegustu húseignir í land-
inu. En skyndilega dró ský fyrir
sólu og hann missti starfið. Hann
varð bitur en missti samt ekki móð-
inn. Emma stóð fast með honum og
þau settu á stofn fasteignasölu í
Basingstoke. Þau höfðu heppnina
með sér og ekki leið á löngu þar til
þau höfðu hagnast svo vel að þau
gátu varið jafnvirði um tuttugu
milljóna króna í að lagfæra gamalt
hús sem verið hafði í eigu aðals-
manns.
Allt gekk nú vel hjá ungu hjónun-
um. Þau héldu áfram að efnast og
þar kom að þau áttu „allt“, eins og
stundum er sagt. Emma vann á fast-
eignasölunni þegar hún stundaði
ekki fyrirsætustörf. Og hún átti
BMW-sportbíl en hann Range
Skilnaður og nýtt hjóna-
band
Það sem gerst hafði var á sinn
hátt gömul saga í dálítið breyttri út-
gáfu. Og hún gerðist 1997, um sum-
arið. í fáum orðum mátti lýsa at-
burðarásinni þannig: Myndarlegur
maður og falleg kona. AUt of mikið
af peningum. Allt of mikil skemmt-
un. Allt of mikil leiðindi!
„Hið ljúfa líf,“ varð einhverjum
að orði þegar hann kynnti sér það
sem gerst hafði. Og ljúfa lífið er svo
sannarlega ekki nein nýlunda.
Paul Cowdray var þrjátíu og átta
ára þegar hann kynntist Emmu,
tuttugu og sex ára ljósmyndafyrir-
sætu. Hann var þá nýskilinn við
konu sína en skilnaðurinn hafði
ekki gengið þegjandi og hljóðalaust
og hafði næstum kostað Paul aleig-
una. Engu að síður ákváðu þau
Emma að ganga í hjónaband og það
gerðu þau 1991.
Rover. Þá áttu þau hraðbát, voru fé-
lagar í hinum nafntogaða Cam-
berley-skotklúbbi og sumar helgar
fóru þau á vatnaskíði eða í lautar-
ferðir á landareign við Beaulieu-
kastalann. Paul hafði gaman af að
skoða fornbíla á safninu þar sem og
á öðrum álíka söfnum.
Leynilegar svallferðir
En Paul átti sér nú orðið hlið sem
Emma hafði ekki kynnst. Þær helg-
ar sem þau Emma voru ekki á
vatnaskíðum eða ferðalögum úti í
sveit fór hann með „strákunum" til
Amsterdam þar sem fátt var til
sparað til að gera ferðirnar sem eft-
irminnilegastar. Og leið þeirra fé-
laganna lá meðal annars í mellu-
hverfin.
Árið 1996 fengu nokkrir vinir
hjónanna um það grunsemdir að
brestir væru komnir í hjónabandið
sem hafði virst nánast fullkomið.
Paul leitaði æ meira til félaga sinna
en á meðan sat Emma heima og
furðaði sig á breytingunni sem var
að verða. Auðvitað leiddi þessi
framkoma hans til rifrilda.
Þau hjón deildu um rekstur
fyrirtækisins og fleira.
Utan heimilisins fór að
bera á skapillsku í fari Pauls
og nokkrum sinnum heyrðist
hann lýsa yfir því drukkinn
að hann myndi ekki umbera
að Emma skUdi við hann. „Ef
hún gerir það,“ sagði hann,
„skýt ég hana eða gef henni
eitur. SkHnaður myndi setja
mig á hausinn."
Vinir hans tóku ekki mik-
ið mark á þessu tali. Drukkn-
ir menn segja margt ómark-
tækt.
Skilnaðarbeiðnin
í nóvember 1996 fór aUt úr
böndunum. Paul hafði farið
enn eina helgarferðina til
Amsterdam og í þetta sinn
hafði hann ekki látið sér
nægja að drekka sig fullan og
vera með mellum. Hann
hafði líka neytt fíkniefna og
þegar hann kom heim á mánudegin-
um var þolinmæði hennar á þrot-
um.
„Ef þetta heldur svona áfram get
ég ekki séð hvernig við getum verið
gift,“ sagði hún. „Ég elska þig ekki
lengur!"
Emma fór á skrifstofuna en Paul,
sem varð eftir heima, hringdi fljót-
lega til hennar og bað hana að koma
aftur heim svo þau gætu rætt vand-
ann. Hún varð við þeirri ósk hans
en hafði fyrst samband við vin
þeirra hjóna, Ian Moore, og féUst
hann á að koma með henni.
Þegar þau komu heim hafði Paul
lokað sig af í setustofunni með því
að renna flygli fyrir hurðina. Hann
var æstur og sagðist myndu svipta
sig lífi ef hann fengi ekki að vera
einn.
Ian Moore vissi hvar lyklarnir að
byssuskápnum voru. Hann læsti
honum og stakk lyklunum á
sig. Eftir nokkra stund ró-
aðist Paul og þá ákváðu
Emma og Ian að fara og láta
hann jafna sig.
Annað símtal
Paul jafnaði sig nokkuð
en það sem næst gerðist
virðist henda til þess að yfír
hann hafi komið sú ískalda
ró sem fylgir oft hörðum
ásetningi. Hann gerði erfða-
skrá og sendi hana lög-
manni sínum í símbréfi.
Síðan ýtti hann flyglinum
frá hurðinni i setustofunni
og gekk að byssuskápnum.
Úr vasa sínum tók hann
lyklakippu með aukalykli
að skápnum og tók úr hon-
um haglabyssu.
Næst hringdi hann til
Emmu og bað hana að koma
heim svo þau gætu „rætt út
um málin“. Emma ákvað að
verða við ósk hans. En hún
vissi ekki að hún átti aðeins
stutt eftir ólifað.
Emma gekk rólega inn í
stofuna. Paul sneri baki í
hana þegar hún gekk inn en
sneri sér síðan að henni.
Skelfingarsvipur kom á
hana þegar hún sá að hann
lyfti haglabyssu og miðaði á
hana. Ósjálfrátt bar hún
hendur fyrir andlitið. Hann
skaut og hún datt á gólfið. Þá gekk
hann að konu sinni, settu tví-
hleypuna að hnakka hennar og tók
í hinn gikkinn. Hún lést samstund-
is.
Að svo búnu lagði Paul byssuna
upp að vegg, gekk út fyrir, settist á
tröppurnar og beið lögreglunnar
sem hann var viss um að kæmi fljót-
lega því nágrannarnir myndu hafa
heyrt skothveUina og gert henni að-
vart.
Neitaði
Er lögregluþjónarnh’ höfðu geng-
ið úr skugga um að Paul sagði satt
þegar hann vísaði þeim á líkið af
konu sinni inni í húsinu handtóku
þeir hann. Hann var færður í varð-
hald og skýrsla send saksóknara
sem gaf út ákæru. Paul Cowdray
skyldi svara til saka fyrir rétti í
Winchester.
í réttinum neitaði Paul að hafa
gerst sekur um morð. Hann bar því
við að hann hefði ekki verið ábyrg-
ur gerða sinna á þeirri stundu sem
hann skaut konuna. Verjandi hans,
Jonathan Goldberg, hélt því fram að
skýringin á því sem gerst hafði
Beaulieu-kastala er gott safn gamaila bíla.
Paul fór stundum til Amsterdam um helgar.
væri einföld. Paul hefði veifað
haglabyssunni í miklu uppnámi og
skot hlaupið úr henni þegar Emma
reyndi að ná henni af honum er
hann hefði verið í þann veginn að
fremja sjálfsvíg.
En saksóknari var ekki sammála.
„Þetta þykir heldur langsótt skýr-
ing,“ sagði hann. „Eða hvernig má
það vera að það hlupu tvö skot úr
byssunni? Varla hefur það gerst fyr-
ir tUvUjun. Emma Cowdray var
skotin tvisvar. í fyrra skiptið beint í
andlitið en síðara skotið hljóp af eft-
ir að byssunni var beint að hnakka
hennar þar sem hún lá særð tU ólíf-
is á gólfinu. Varla getur það talist
slysni!“
Dómurinn
Kviðdómendur sáu hve gölluð
vörnin var. Þeir kynntu sér líka for-
tíð sakbornings og lifsstíl. Hann bar
með sér að þau hjón hefðu lifað
hinu ljúfa lífi og Paul Cowdray ekki
þolað það. Enn einu sinni hefði
sannast að það þarf sterk bein tU að
þola góða daga. Tilgangsleysið með
eyðslu mikiUa fjármuna í innan-
tómt líf hefði haft sín áhrif og loks
hefði sakborningur
tapað áttum.
Kviðdómendur urðu
á einu máli. Þeir fundu
Paul Cowdray sekan
um morð að yfirlögðu
ráði.
Dómarinn, Ian
Kennedy, dró ekki dul
á að hann liti það sem
Paul hafði gerst sekur
um alvarlegum augum.
Þegar hann kvað upp
dóminn, ævUangt fang-
elsi, sagði hann meðal
annars:
„Hin unga kona þín
hafði ekki í huga að
skilja við þig af því
hún hafði fundið ann-
an mann sem hún
elskaði og vUdi giftast.
Nei, hún vildi fara frá
þér af því þú hagaðir
þér skelfllega og komst
illa fram við hana. Ég
trúi því aUs ekki að þú
hafir haft í huga að
fremja sjálfsmorð. Ég
er sannfærður um að
þú skaust Emmu tví-
vegis. Þú framdir morð-
ið með köldu blóði.“
Paul Cowdray var
færður úr réttarsalnum
tU þess að taka út dóm-
inn sem beið hans. Þar
með var lokið ferli sem
lýsti á sinn hátt dugn-
aði og útsjónarsemi hjónanna því
án þeirra eiginleika hefði þeim vart
tekist að koma undir sig fótunum.
En fjármunir og velgengni dugðu
ekki. Hið ljúfa líf tók sinn toll eins
og það hefur svo oft gert.