Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1998, Blaðsíða 52
60
LAUGARDAGUR 7. MARS 1998
tiridge
Macallantvímenningsmótið í London:
Helgemo og Helness með risaskor
Eitt „heitasta" parið á keppnisslóð-
inni um þessar mundir eru Norð-
mennirnir Geir Helgemo og Tor Hel-
ness. Yfirburðasigur þeirra á hinu
sterka Macallanmóti i London undir-
strikar hve geysisterkt par þeir eru og
Helgemo er um þessar mundir talinn
einn besti spilari heimsins.
En á þessu móti, þar sem flest
sterkustu pör heimsins tóku þátt, var
hlutur kvenna með ágætum. Bresku
landsliðskonurnar, Smith og Davies,
náðu öðru sæti og í því þriðja var
ágætur kunningi frá nýafstaðinni
Bridgehátíð, Sabine Auken, ásamt
makker sínum, von Amim.
Við skulum skoða eitt skemmtilegt
spil frá þessu sterka móti þar sem
Sabine leikur aðalhlutverkið ásamt
ítalanum Versace sem einnig hefur
skák
A/o 4 1095
* G1092
* D10983
* 4
* ÁK82
V ÁD5
* ÁK5
* DG8
* G7643
m K76
* 6
4 7652
verið gestur Bridgehátíðar.
Á svo til öllum borðum opnaði aust-
ur á tveimur laufum og þeir sem
komust í sex lauf voru hreyknir af
samningum, sérstaklega af því að þeir
höfðu tryggt samninginn í rétta hönd
og þar með varið hjartalitinn fyrir
árás í fyrsta slag.
Eftir trompútspil tóku þeir spaða-
drottningu, fóru heim á tígulkóng,
spiluðu tígulás en þá hrundi spilið
þegar suður trompaði. Á þremur borð-
um varð austur sagnhafi í sex grönd-
um. Einn fékk út hjarta upp í
ás/drottningu og þar með voru 12
slagir i höfn. Hin borðin höfðu meira
fyrir hlutunum :
Austur Suður Vestur Norður
Versace Multon Lauria Mouiel
2 4 pass 24 dobl
2 * pass 24 pass
2 G pass 3 4 34
4 * pass 4 G pass
6 G pass pass pass
Multon í suður var ekki á vandræð-
um með útspilið eftir áhættudobl
norðurs (tveir tíglar redoblaðir hefðu
verið skemmtilegt viðfangsefni).
Hann spilaði tígli, lítið, áttan og ás.
Versace hafði grun um hvernig tígull-
inn brotnaði og hann fór inn á spaða-
drottningu. Síðan tók hann öll laufin í
botn, norður kastaði tveimur tíglum,
einu hjarta og einum spaða og Ver-
sace kastaði hjarta og tígli. Suður
gerði tæknivillu þegar hann kastaði
litlum meinlausum spaða í fimmta
laufið. Versace vissi nú hver skipting
suðurs var og nú ætti hann þijá spaða
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
og þrjú hjörtu eftir. Slemman var nú
örugg og Versace fór heim á tígui-
kóng, tók tvo hæstu í spaða og spilaði
suðri inn á spaðagosa. Hann varð síð-
an að spila upp í hjartagaffalinn. Unn-
ið spil. Spaðaafkastið í lauflð var síð-
ur en svo meinlaust. Ef hann kastar
hjarta veit sagnhafi ekki hver á
hjartakóng og hann gæti því freistast
tH að svína hjarta.
Á sýningartöflunni mættust bæði
kvennapörin: Austur Suður Vestur Norður
Sabine Davies v Amim Smith
2 4 pass 2 4* pass
2 G pass 6 G pass
pass pass
2 spaðar= 3 kontról
Suður spilaði út spaða, drottning-
in átti slaginn og Sabine tók tvisvar
lauf. Þegar norður kastaði mein-
lausum tígli ályktaði Sabine að
norður hefði átt fimmlit. Hún tók
því aðeins einn tígulhámann áður
en hún tók laufin í hotn. Síðan spil-
aðist spilið eins og á horði ítalanna
og suðri var hent inn á spaða til
þess að spila upp í hjartagaffalinn.
Stefán Guðjohnsen
* D
V 843
♦ G742
4 ÁK1093
Stórmeistaramótið í Linares:
Sírov efstur en þríeykið ógnar
- seinni hluti deildakeppninnar um helgina
Garry Kasparov nefnir ævinlega
þá Vladimir Kramnik og Viswan-
athan Anand sem sjálfgefin áskor-
endaefni sem beri höfuð og herðar
yfir aðra skákmenn (hann sjálfur
auðvitað undanskilinn). En nú
hefur Alexei Sírov stigið á stokk,
svona eins og í mótmælaskyni.
Sírov hefur gert sér lítið fyrir og
tekið forystuna á ofurmótinu í
Linares með bráðskemmtilegri
taflmennsku. Með þessu hefur
honum tekist að slá þríeykinu við
í einu lagi - Kasparov, Anand og
Kramnik. Þeir eru þó til alls vísir
í þeim fjórum umferðum sem eru
til leiksloka en mótinu lýkur á
mánudag.
Kasparov lék Anand heldur illa
í fyrri skák þeirra sem var til um-
fjöllunar í skákþættinum fyrir
viku. Seinni skák þeirra lauk með
tíðindalausu jafntefli sem og allar
aðrar skákir Kasparovs á mótinu!
Þetta er óvenjulegt þar sem
Kasparov er annars vegar sem hef-
ur ekki verið þekktur fyrir það
fram til þessa að fara með löndum.
Hætt er við að hann bíti nú í
skjaldarrendur og reyni að hrista
ungviðið af sér í lokaumferðunum.
Staðan var þessi að loknum 10
umferðum:
1. Alexei Sírov, 5,5 v. úr 9 skák-
um.
2. Viswanathan Anand, 5 v. úr 9
skákum.
3. -4. Garry Kasparov og Vladimir
Kramnik, 4,5 v. úr 8 skákum.
5. Vassily Ivantsjúk, 4 v. úr 9
skákum.
6. Peter Svidler, 3,5 v. úr 9 skák-
um.
7. Veselin Topalov, 3 v. úr 8 skák-
um.
Skoðum vel teflda skák Sírovs
við Topalov þar sem skákborðið
leikur á reiðiskjálfi eins og svo oft
þegar Sírov á í hlut. Með peðsfórn
i byrjun tafls fær Sírov yfirburði í
liðsskipan og ógnandi stöðu. Topa-
lov neyðist til þess að gefa skipta-
mun til þess að sleppa úr mestu
Umsjón
Jón L. Ámáson
hremmingunum og nær þá að
rétta úr kútnum. En Sírov nær að
færa sér örlítil mistök hans
skemmtilega í nyt.
Hvítt: Alexei Sírov
Svart: Veselin Topalov
SikHeyjarvörn.
1. e4 c5 2. RfB e6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 a6 5. Bd3 Db6 6. Rb3 Dc7
7. De2 Rf6 8. Rc3 d6 9. f4 Be7
10. e5!?
Hvítur hlýtur að missa peð við
þessa framrás en Sírov treystir á
yfirburði í liðsskipan og ákaflega
virka stöðu.
10. - dxe5 11. fxe5 Rfd7 12. Bf4
Rc6 13. O-O! Rdxe5 14. Hael
Db6+ 15. Khl Rxd3 16. Dxd3
0-0 17. Dg3! Kh8
Svartur varð að bregðast við
hótuninni 18. Bh6 en í þessu skyni
er 17. - f6 betra. Nú snýr hvítur
sér að drottningarvængnum.
18. Bc7 Da7 19. Ra4
Svartur á nú í vanda. Hann
kemst ekki hjá því að missa hrók
fyrir riddara en við það losnar
raunar um taflið og hann nær að
rétta úr kútnum. Ef hann hefði
reynt 17. - f6 (í stað 17. - Kh8) væri
nú 19. - Bd8 möguleiki og svara þá
20. Rb6 með 20. - Bxc7 21. Dxc7
Hf7.
19. - f6 20. Bb6 Db8 21. Bc7
Da7 22. Rb6 e5 23. Rxa8 Dxa8
24. Hdl He8 25. Bd6 Bd8 26.
Rc5 b6 27. Re4 Rd4
Öruggara er 27. - Be6 og með
peð og biskup gegn hrók er svart-
ur alls ekki svo illa staddur. Nú
færist fjör í leikinn.
28. Bxe5! Rf5
Svarið við 28. - Hxe5 yrði auðvit-
að 29. Dxe5! o.s.frv. vegna mátsins í
borðinu og 28. - fxe5 29. Rd6 Dc6 30.
Dxe5! er engu betra.
29. Dg4 Re3
Þetta gefur meiri möguleika en
29. - fxe5 30. Hxf5 sem gefur hvítum
betra, þótt taflið sé ekki auðunnið.
30. Dh5 Hg8?
Hér er 30. - Dc6 og ef 31. Hd6
Bg4!? athyglisverð tilraun. Eftir
hinn gerða leik fær svartur ekki
bjargað stöðunni.
31. Df3! Rxdl
Ef 31. - fxe5 32. Hxd8! Rxfl 33.
Hxg8+ Kxg8 34. Rf6+ gxf6 35. Dxa8
og vinnur.
32. Rd6!
Hótar drottningunni og ekki síð-
ur 32. Rf7 mát!
32. - Da7 33. Rxc8 Dd7 34. Rd6!
- riddarinn snýr aftur og Topalov
gefst upp. Biskupinn á e5 er frið-
helgur og ef 34. - Rxb2 35. Dd5
(raunar er 35. Dc6 einnig mögulegt)
HfB 36. Bxb2 og tjaldið fellur.
Jóhann fyrir ofan
Fischer
Atvinnumannasamtök
Kasparovs, PCA, eru ekki af baki
dottin. í vikunni birtist stigatala
samtakanna sem nær yfir skákir
tefldar til 1. mars. Þetta er nokkurs
konar mótvægi við Elo-stig Alþjóða-
skáksambandsins en útreikningur
stiganna er byggður á svolítið öðr-
um forsendum. Efstu menn eru
þessir:
1. Kasparov 2825 stig.
2. Anand 2761
3. Kramnik 2757
4. Invatsjúk 2715
5. Kamsky 2701
6. Topalov 2693
7. Svidler 2688
8. Karpov 2687
9. Adams 2681
10. Sírov 2676
Jóhann Hjartarson er í 50. sæti
með 2592 stig. Þetta er frábær árang-
ur, einkum í ljósi þess að í 51. sæti
er ekki ómerkari meistari en Bobby
Fischer með 2594 stig!
Deildakeppnin um helg-
ina
Seinni hluti deildakeppni Skák-
sambands íslands - íslandsflugs-
deildarinnar - fer fram um helgina.
Þetta er jafnan ein fjölmennasta
keppni ársins þar sem yfir 200 skák-
menn leiða saman hesta sina. Að
þessu sinni verður teflt í húsnæði
Taflfélagsins Hellis í Reykjavik,
Þönglabakka 1 í Mjóddinni - gengið
inn hjá Bridgesambandinu.
Sveit Taflfélags Reykjavikur hef-
ur örugga forystu í 1. deild með 29
vinninga eða 5,5 vinningum betur
en sveit Taflfélagsins Hellis sem er í
2. sæti. Sveitimar áttu að tefla sam-
an innbyrðis í gærkvöldi og þá var
að duga eða drepast fyrir Hellis-
menn. Einungis stórsigur hefði get-
að hleypt spennu í 1. deildina en að
öðrum kosti hefði sveit TR, sem
tefldi mjög vel í fyrri hluta keppn-
innar, verið á auðum sjó.
í 2. deild stendur baráttan einnig
milli TR og Hellis. Þar hafði b-sveit
Hellis hálfs vinnings forystu á d-
sveit TR. í 3. deild var sveit Skákfé-
lags Reykjanesbæjar hins vegar
með trausta forystu, 18,5 v. gegn 15,5
v. Skákfélags Selfoss og nágrennis
og 15 vinningum Skáksambands
Austurlands sem komu i 2. og 3.
sæti.
í dag, laugardag, hefst næstsíð-
asta umferð kl. 10 og lokaumferðin
hefst kl. 17. Hraðskákmót íslands
fer fram á sunnudag kl. 14.
-JLÁ