Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1998, Blaðsíða 60
.. 6« tyikmyndir
* A -k i<:
LAUGARDAGUR 7. MARS 1998
(.slrid
★ lAVGAmS^53^75 ALVÖRUBÍÓ! mpplby
★ ===! = =^ STAFRÆNT MKI‘ 'JUU0 M
★ ===!== = HLJÓBKERHÍ I 1_| y
★ ==== === ÖLLUM SÖLUM!
fTTLPfEFNINOAR Tll. ÚSKAKSVERUi.AL'NA
m.n. »rim Bksta hynuin, Bksti I.KIKAIII:
Jnrk Nlcholnon, BRSTA I.KIKKONAi Ilrlrli
llunl, BKSTI AIIKALEIKARI: Greg Klnneiu-.
BIÖST/AUNTfVNr;
■i ■■ »
Búðu
h>g
Melvin
Mymlili hluut 3
CIoIh; vi rðlumi.
Vðulhlutverk: Juck Nicholíiou,
Hcleii Ilnnt (,,Twi»ter“), Crey
Kinncnr („Subrinu“) og Cuhu
Gooding Jr. (,Jcrry Maguire“).
Þad gerist ekki betra
AsGoodAsítGets
llmiiiii iiuinaniii.vntl .,m Lriutir lirinl fní lijuriunu.
Sýnd kl. 2.30, 5,9og11.
kl. 7, 9 og 11.
HliIGO
v.srtr-,/
Synd kl. 3 og 5.
Með
/slensku
tillí
Sýnd kl. 3 og 5.
Winon.T Sigourney "
Rydcr Weaver J |
fLjl ★ ★★ |
Dagsljós ■
*★* l
★★★i % Rós 2 1
DV Mbl L
jS-*. £s' Sá j-J !:
p RESURRECTION ■
Forsýnd laugardag kl. 11.30.
Sýnd kl. 7 og 9, B.i. 16 ára.
SÍMI
fJOttn,
* ítírr
551 6500
http:/www.vortex.is/starfilm/
Laugavegi 94
n'ILNEFNINGAU TIL ÓSKAKSVERDI.AUNA ni.a. «etn;
BeSTA MYNDIN, BKSTI I.EIKAKI: Jnck Nlcholíon,
BESTA LEIKKONA: Hclrn Hunl, BESTI AEKALEIKAHI: Greg Klnneor.
Búðu þig
undir Melvin
Jack Nicholson,
llelen Ilimt
(„Twisler44), (íreg
íinnear (,,Salirinu“)
g Cuba Cooding Jr.
(,Jcrry Maguire“).
rAÐ GERIST
EKKI BETRA
Gets
Ovægin ganianniyiul sent kemur beint frá hjartanu.
PFRA SAMA PEN
m i
UDDV
J KNOW
wliat vnutjib
ÍASÍ SUMMkR
Sýnd kl. 5,7,9og 11.
REGm&GINN
Sýnd kl. 3.
Sýnd kl. 2.30, 5,9og 11.30.
Hvað býður Disney 1998?
Walt Disney hefur örugglega ekki gert sér
grein fyrir því þegar hann hóf gerö fyrstu
Mikka mús teiknimyndar sinnar hversu risa-
stórt fyrirtæki hans yrði í framtíðinni. í dag
er kvikmyndadeild Disneys ein sú allra
stærsta í heiminum og það sem meira er; Dis-
ney hefur yfirleitt verið í fararbroddi stóru
kvikmyndafyrirtækjanna sem mest græða.
Disney sendir frá sér mikinn fjölda kvik-
mynda ásamt undirfyrirtækjum sinum á
hverju ári og árið í ár er engin undantekning.
Hér verður stiklað á stóru hvað varðar það
helsta sem ævintýrafabrikkan sendir frá sér á
árinu.
Armageddon
Armageddon er leikstýrð af Michael Bay (The
Rock) og er stórslysamynd. Segir þar frá í
^ byrjun þegar loftsteinahrina lendir skammt
undan austurströnd Bandaríkjanna. I ljós
kemur að þetta er aðeins undanfari mikilla
náttúruhamfara því nú stefnir á jörðina loft-
steinn sem er á stærð við Texas. Ljóst þykir
að hann muni eyða öllu lífi á jörðinni ef hann
nær að lenda þar. Vísindamenn og hermenn
hafa átján daga til stefnu. Aðeins ein leið er
fær, að senda geimskip til að eyða loftstein-
inum eða breyta ferli hans. 1 aðalhlutverkum
eru Bruce Willis, sem leikur þann sem fer fyr-
ir áhöfninni, Billy Bob Thornton, Liv Tyler,
Ben Affleck, Will Patton, Peter Stormare og
Steve Buscemi.
My Favorite Martian
My Favorite Martian er gerð eftir samnefndri
sjónvarpsseríu sem var mjög vinsæl á sjöunda
tug aldarinnar. Blaðamaðurinn Tim O’Hara
■p verður vitni að því þegar geimskip ffá Mars
brotlendir á jörðinni og út úr því kemur
Marsbúinn. Tim sér fyrir sér að hann muni fá
Pulitzer-verðlauninn fyrir að segja sögu Mars-
búans og ákveður að hafa hann fyrir sig einan
og kallar hann Martin frænda. Marsbúinn á í
engum vandræðum með að breyta sér í mann-
lega veru og flyst inn til Tims. Það gengur
samt erfiðlega fyrir Tim að fá eitthvað af viti
út úr „frænda" sínum sem alls ekki vill láta
vita hver hann er og vill sem fyrst komast aft-
ur til Mars. I hlutverki Marsbúans er
Christopher Lloyd, Jeff Daniels leikur Tim.
Aðrir leikarar eru Elizabeth Hurley, Daryl
Hannah, Wallace Shawn, Christine Ebersole
og Ray Walston sem lék Marsbúann í sjón-
varpsþáttunum á eftirminnilegan hátt. Leik-
stjóri er Donald Petrie.
Holy Man
Holy Man hefur sjálfan Eddie Murphy innan-
borðs og að sögn fer hann á kostum i hlut-
verki sjónvarpstrúboða sem nýtir sér mögu-
leika sjónvarpsins til hins ýtrasta og brátt
verður predikunin í sjónvarpinu algjört auka-
atriði, það kemur nefnilega í ljós að þessi
heilagi maður er snillingur í að markaðsetja
allt sem hann kemur nálægt og brátt breytist
trúarstöðin í sjónvarpsmarkað sem á sér eng-
an líkan. Mótleikari Eddies Murhys er Kelly
Preston. Leikstjóri er Stephen R. Herek.
The Horse Whisperer
The Horse Whisperer er gerð eftir samnefndri
metsölubók eftir Nicholas Evans. Segir þar ffá
Anne Heche og Harrison Ford í 6 Days, 7 Nights.
hinni fjórtán ára gömlu Grace sem lendir í
hroðalegu slysi á hestbaki sem verður til þess
að besta vinkona hennar deyr. Móðir
stúlkunnar, Annie, gerir sér grein fyrir því að
ef hún á að ná dóttur sinni úr lokuðum hugar-
heimi hennar þá þurfi hún að fá sérstaka að-
stoð manns sem hefur einstakt lag á hestum
og getur aftur fært saman dóttur hennar og
hestinn sem hún reið þegar slysið varð. Sá
maður er Tom Booker og býr í Montana.
Annie leggur upp í pílagrímaferð með dóttur
sína og hestinn til Montana. Robert Redford
bæði leikstýrir The Horse Whisperer og leikur
aðalhlutverkið. Kristin Scott Thomas leikur
Annie. Aðrir leikarar eru Sam Neiii, Dianne
Wiest og Chris Cooper.
Snake Eyes
Snake Eyes er nýjasta kvikmynd hins ágæta
leikstjóra Brians De Palma sem síðast leik-
stýrði Mission Impossible. Um er að ræða nú-
tímaævintýramynd með Nicholas Cage og
Gary Sinise í aðalhlutverkum. Segir þar frá
tilræði við varncurnálaráðherra Bandaríkj-
anna. í miðju hnefaleikaeinvígi á spilaviti í
Las Vegas kemst lögreglumaður að því aö
meðan á einvíginu stendur á að myrða vam-
armálaráðherrann og stúlku eina sem virðist
ekki koma málinu við. Að sjálfsögðu fórnar
lögreglumaðurinn sér til að bjarga lifi
stúlkunnar.
Mighty Joe Young
Hér er um enn eina endurgerðina að ræða en
mynd sem bar sama nafh var gerð 1949. FjaJl-
ar myndin um dýrafræðinginn Gregg O’Hara
sem á ferð i frumskógum Mið-Afríku þegar
hann uppgötvar fimm metra háa gorillu sem
er blið og góð þegar vel er að henni látið en
getur breyst í mikla drápsvél sé henni stork-
að. Gorillan er skírð Joe af Jill sem er með
Gregg í leiðangrinum og saman flytja þau gór-
illuna til Kaliforníu þar sem hún vekur að
sjálfsögðu mikla athyh og það of mikla þvi öll
þessi athygli angrar Joe sem brýst út úr búri
sínu og herjar á Los Angeles. í aðalhlutverk-
mn eru Bill Paxton,
Charlize Theron, Rade
Serbedzija og David Pay-
mer. Leikstjóri er Joe Und-
erwood.
6 days 7 Nights
Harrison Ford leikur í 6
Days 7 Nights flugmanninn
Quinn Harris sem flýgur
eigin fragtflugvél á milli
eyja í Kyrrahafinu. Hann er
einfari sem hatar túrista.
Quinn lætur þó undan
beiðni Robins Monroes um
að fljúga með hana til
Tahiti þar sem hann er
hvort serti er á leið þangað.
Stormur gerir það að verk-
um að hann verður að
nauðlenda vélinni á
óbyggðri eyju þar sem þau
þurfa að þola hvort annað í
viku. Anne Heche er mót-
leikari Harrisons Fords.
Leikstjóri er Ivan Reitman.
Tvær teiknimyndir
Disney sendir frá sér tvær
stórar teiknimyndir á ár-
inu. fyrst ber að nefna A
Bug’s Life sem gerð er af
sömu aðilum og Toy Story
og sama tækni notuð. Er i
myndinni fylgst með ævin-
týrum maursins Flick sem
reynir að bjarga nýlend-
unni sem hann býr í frá
engisprettum. Leikarar sem
ljá raddir sínar eru meðal annars Phyllis Diil-
er, Julia Louis-Dreyfus, Madeline Kahn, Denis
Leary og Bonnie Hunt. Mulan er svo hin ár-
lega klassíska teiknimynd frá Disney. Er þar
um að ræða sögu af imgri og lífsglaðri stúlku
sem reynir hvaö hún getur til að vera hin full-
komna dóttir en veldur foreldrum sínum hvað
eftir annað mikluni vonbrigðum. Þegar faðir
hennar er tekinn til fanga í stríði telur hún
það skyldu sína að bjarga honum. Meðal
þeirra sem ljá raddir sína í Mulan eru Eddie
Murphy, Ming-Na Wen, Harvey Fierstein, Pat
Morita og George Takei. -HK