Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Page 2
36 LAUGARDAGUR 14. MARS 1998 JL>V Grand Vitara: Nýr og nokkuð stærrí jeppi fra í upphafi alþjóðlegu bílasýningar- innar í Genf eru fyrstu tveir dagam- ir ætlaðir til að kynna blaðamönn- um nýja bíla en sýningin er síðan opnuð almenningi á þriðja degi. Fyrsta dag sýningarinnar keppast bíiaframleiðendur um að kynna nýj- ungar sínar en þegar liðið var vel fram yfir hádegi stóðu enn fimm bíl- ar í einum básnum sveipaðir segl- dúk í felulitum, en rauðklæddar fúrðuverur á stultum röltu fram og aftur milli þeirra. Þetta var sýningarbás Suzuki og þama var verið að frumsýna nýjan Suzuki jeppa, Grand Vitara, sem byggður er á svipuðum grunni og Vitara- jeppinn, eilítið stærri og breiðari, en jafnframt töluvert betur búinn. Línur allar em ávalari og undir- strika enn betur léttleika í hönnun. Grand Vitara verður í byrjun í boði með tveimur vélum, 4ra strokka 2,0 lítra og 2,5 lítra V-6 sem er 142 hestöfl. Síðar á þessu ári kem- ur 2,0 lítra turbo dísilvél til viðbót- ar. Vitara kom fyrst á markað á ár- inu 1988 og hefur þróast nokkuð í áranna rás, en þessi gerð verður Allar línur eru mýkri og ávalari en á „garnla" Vitara. Grand Vitara er vel búinn og glæsilegur jeppi frá Suzuki sem var frumsýndur í Genf á dögunum og er væntanlegur hingaö til lands í aprílbyrjun. áfram í framleiðslu þótt Grand Vitara hafi bæst við. Kynntur í apríibyrjun Það er stutt þar til þessi nýi Grand Vitara kemur hingað til okkar, því að sögn Úlfars Hin- rikssonar hjá Suzuki bílum er reiknað með því að kynna fyrstu bílana í aprilbyrjun. Enn er verið að semja um verð að sögn Úlfars, en stefnt er að því að bjóða bílinn á mjög sam- keppnisfæru og góðu verði strax frá upphafi. -JR Glæsileg inn- rétting Grand Vitara vakti verulega at- hygli í Genf á dögunumen mjög rúmt er í fram- og aft- ursætum. Mitsubishi Spacestar: Nettur alhliða fólksbíll fyrir „stórfjölskylduna - smíðaður Einn þeirra bíla sem náöu veru- legri athygli í Genf þetta árið er nýr „stórfjölskyldubílT í langbaksút- gáfu sem ætlað er að keppa í flokki svonefndra „fjölnotabíla". Þessi nýi bíll er Spacestar frá Mitsubishi. Hann er sérstaklega hannaður fyrir Evrópumarkað og verður smíðaður i verksmiðjum Mitsubishi í Hollandi, þeim sömu og smíða Carisma. Spacestar verður í boði með nokkrum vélarstærðiim. Grunn- gerðin verður með 16 ventla 1,3 lítra vél sem gefur 86 hestöfl, en bíllinn verður einnig í boði með GDI-vél, sömu 1,8 lítra vélinni og er í dag í Carisma, 125 hestöfl. Spacestar er ætlað að koma á markað í árslok og í byrjun reiknar Mitsubishi með að smíða um 50.000 bíla á ári. í Hollandi og kemur á markað í lok ársins GDI á fullri ferð Því má bæta við að Mitsubishi er á fullri ferð með GDI. Nýjar vélar eru í væntanlegar, allt frá nýrri 3ja strokka vél sem er 0,6 lítrar að rúmtaki upp í 4,5 lítra V8-vél. Næsta GDI-vél verður 2,4 lítra sem kemur í nýrri gerð Space Wagon í haust. -JR Spacestar, nýr fjölskyldubíll frá Mitsubishi sem smíöaöur veröur i Hollandi og kemur á markað í lok ársins. Skoda: Octavia Combi og endurbætt Felicia Með nýjum Octavia Combi eða langbaksgerð, sýnir og sannar þessi deild VW-samsteypunnar að fram- leiðslan er komin á sama stall og gerist bestur hjá öðrum evrópskum bílaframleiðendum. Octavia verður frumsýnd hjá nýj- um umboðsaðila á íslandi innan skamms, og þessi nýi langbakur gæti birst hér á landi með haustinu, ef verksmiðjunum tekst að anna eft- irspurn, en í dag eru langir biðlist- ar eftir Octavia. Frágangur allur í Octavia Combi er til fyrirmyndar og til dæmis eru góðar aukahirslur undir gólfi farm- rýmisins við hlið varadekksins. Allt aðgengi er mjög gott. Skoda Felicia var frumsýnd i Genf með nýju yfirbragði, og þar Felicia er komin meö nýtt útlit á framenda auk annarra endurbóta. Octavia Combi, vel búinn og glæsilegur langbakur sem væntanlegur er á markaö í árslok. ber einkum á framendanum, sem er kominn með svipað „andlit“ og Oct- avia. Aðrar breytingar eru til dæm- is breyttur miðjustokkur í mæla- borði og miklu betri hljóðeinangr- un. -JR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.