Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 14. MARS 1998
Jaguar XKR coupé
Sportbíla má ekki vanta á alvöru
bílasýningum og Jaguar frumsýndi
í Genf nýjan bíl, XKR coupé, með
360 hestafla vél með forþjöppu.
Jaguarbílar hafa verið í upp-
sveiflu að undanfömu og reiknað er
með því að þessi nýi sportbíll eigi
eftir að auka hróður þeirra enn
frekar, en á næstunni er svo von á
nýjum „litlurn" Jaguar, X400. -JR
Honda Civic Aerodeck
Honda „lokaði“ Civic-línunni í
Genf með Aerodeck, sem þróaður
var frá hugmynd að langbaksgerð
Civic sem sýnd var á Genfarsýning-
unni í fyrra. Aerodeck er væntan-
legur á Evrópumarkaö í mars, en
bíllinn verður smíðaður í verk-
smiðjmn Honda í Swindon á
Englandi.
Sportlegur Ford Cougar
Jafnframt því að frumsýna nýjan Escort, frumsýndi Ford þennan
bíl, Focus, sem verður arftaki sportlega Cougar coupé í Genf.
Saab 9-3 kemur í aprílbyrjun
Það er stutt stórra högga á milli
hjá Bílheimum. Þar er Saab 9-5
frumsýndur um þessa helgi og stutt
er þar til annar nýr Saab birtist
einnig hér á landi, Saab 9-3, sem er
arftaki Saab 900 e. Þótt útlitsmunur
sé ekki mikill frá 900-bilnum hafa
verið gerðar um 1200 breytingar,
sumar aðeins minni háttar en aðrar
meiri.
Hér er bíllinn á bílasýningunni í
Genf á dögunum. -JR
Saab 9-5 er nýr og betur búinn bfll en Saab 9000 og kemur til með aö keppa á lúxusbflamarkaöi, bæöi í Evrópu og
hér á landi. DV-mynd Pjetur
Bílheimar hf.:
Saab 9-5 er kominn
Saab 9-5 er kominn til landsins og
verður frumsýndur hjá Bílheimum
hf., sem er með umboð fyrir Saab, nú
um helgina. Þetta er nýr bíil frá
grunni þótt hann minni um margt á
Saab 9000 sem enn er í framleiðslu.
Með Saab 9-5 ætlar Saab sér að
keppa enn ofar á markaðnum en
með 9000-bílnum og í erlendum
kynningum er honum steöit beint
gegn Mercedes Benz og BMW.
9-5 er mjög vel búinn bíll og státar
af öllum þeim búnaði sem góðir lúx-
usbílar eiga að hafa. Fíöðrunin er al-
veg ný, íjölliðafjöðrun (multi-link) að
aftan. Af staðalbúnaði má nefha
ABS-hemlakerfi, loftpúða í stýri, raf-
stýrðar rúðuvindur, samlæsingar,
hita í sætum, rafstýrða og upphitaða
útispegla, festingar fyrir bamabílstól
bæði í fram- og aftursæti og bílbelt-
astrekkjara. Loftpúði við farþegasæti
að ffarnan er aukabúnaður en kostar
aðeins 30.000 svo það er engin frá-
gangssök að bæta honum við.
Það er hægt að panta ýmsan auka-
búnað í allar gerðir Saab-bíla og sem
dæmi um slíkan búnað í 9-5 má
nefna valhnotumælaborð sem kostar
kr. 84.000, rafdrifna sóllúgu á kr.
180.000, leðuráklæði á kr. 189.000 og
skriðstilli og aksturstölvu á kr.
52.000, svo aðeins séu nefhd nokkur
dæmi.
9-5 er í boði með tveimur vélum,
2,0i, 16 ventla, 150 hestafla, og 2,3i,
170 hestafla.
Með minni vélinni kostar 9-5 kr.
2.781.000 með handskiptingu en
2.961.000 með sjáifskiptingu. Með
stærri vélinni er samsvarandi verð
kr. 2.965.000 og 3.154.000.
Frumsýning um helgina
Eins og fyrr sagði er þessi nýi
Saab 9-5 frumsýndur í sýningarsal
Bílheima við Sævarhöfðann um
helgina. í gærkvöld var sérstök for-
sýning en í dag, laugardag, er opið
frá kl. 14 til 17 og aftur á morgun,
sunnudag, á sama tíma. -JR
' fWbOð Vf-tó^l.000:0007-
ÝWboS Vetó;4:400.000:-
1600 Xli '93 I Corolla Lifthack Special Series '94 I Nissan Primera 2000 SLX 4x4 '92
Ekinn75þ.km. Grá/grænn, 5gíra, I Ekinn 71 þ.km. 5 gíra, rafdrifnar rúður og speglar, I Ek. 59 þ.km. 5 gfra, steingrár, rafdrifnar
samlæsing. ■ samlæsing, dráttarkrókur, spoiler. I rúður og speglar, samlæsing, ABS,
loftkæling, álfelgur, hiti i sætum.
mi
Mazda 626 2000 GLX '92
BMW 520ÍA '92
Ekinn 66 þ.km. Sjalfskiptur,
rafdrifnar rúður og speglar,
samlæsing, álfelgur.
EconoGne Club UUagon 7300 Diesel '91
Ekinn 108 þ.km. Sjálfskiptur, þungask.mælir,
11 farþega, rafdrifnar rúður, samlæsing,
svefnbekkur, cruise control.
Ekinn 169 þ.km. Svartur, sjálfskiptur,
rafdrifnar rúður og speglar,
samlæsing, dráttarkrókur, hiti í sætum.
VAGNHÖFÐA 23 • 112 REYKJAVIK • S í IVI I : 5 8 7 -
-587
Dodge Ram 1500 V8 (318) '96
Ekinn32þ.km.Sjálfskiptur,cmise control, loftkæling,
álfelgur, 31" dekk, rafdr. rúður, samlæsing, gangbretö,
dráttarkrókur, plasthús, klæddur pallur, húdd og IjósahL
AFL FRÁ MERCEDES-BENZ
BFGoodrich
‘Sémantam
•Aukahlutir
‘Varahkitir
•jeppabreytmgar