Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Qupperneq 4
38 LAUGARDAGUR 14. MARS 1998 IjV #/ar Þessa skemmtilegu út- færslu á Mitsubishi L200 gaf aö líta í sýningardeild Mitsubishi í Genf á dögun- um. Búið er að breyta bíln- um á ýmsa vegu en sérstak- lega er það veltigrindin að aftan sem vekur athygli. Breyttur Mitsubishi L200 Rinspeed Rocket Þessi „raketta" heitir Rinspeed Rocket og er framúrstefnuleg hugmynd að sportbíl næstu aldar þótt hann sæki ýmislegt í útlitinu til eldri tíma. Aðeins er sæti fyrir einn og vélin er Ford V8, 32 ventla og gefur 410 hestöfl. Hröðun frá 0 i 100 er 4,2 sekúndur. -JR Ný 3-lína fráBMW Nýja 3-línan frá BMW vakti at- hygli i Genf og það ekki að ófyrir- synju því þetta er glæsilegur og vel búinn bíll. „Gamli“ þristurinn var vel búinn og góður en hér hefur greinilega verið tekið til hendinni og gert enn betur. Chrysler Pronto Cruizer. Chrysler Pronto Cruizer Það eru tíu ár síðan Chrysler frumsýndi síðast hugmyndabíl í Evrópu. Nú var röðin komin að nýj- um hugmyndabíl sem Chrysler hef- ur þróað sérstaklega fyrir Evrópu, Pronto Cruizer, en siðast var það Portofino sem var fyrirrennari frambyggðu bílanna sem Chrysler smíðar i dag. „Pronto Cruizer er með sama am- eríska yfirbragðið og Viper og Prowler en er í raun þróaður fyrir mun breiðari markhóp," segir Thomas C. Gale, stjómandi hönn- unar- og framleiðsludeildar Chrysler. Pronto Cmizer á að vera lipur í akstri en hann er með aflmikla 1,6 lítra vél sem Chrysler og BMW hafa þróað saman. Vélin er smíðuð í Brazilíu og gefur 115 hestöfl við'5600 snúninga, 153 Nm v/4400 sn. Við vélina er samhæfð fimm gíra hand- skipting sem notuð er í kappakst- ursútgáfu Neon. Pronto Cmizer er 4.247 mm á lengd, 1.747 á breidd og 1.486 á hæð. Hjólahafið er 2.642 mm og felgumar era 18 tommur að framan en 19 að aftan. MacPherson-gormafjöðrun er á öllum hjólum. Nissan double cab Evrópufrumsýning var á nýjum Nissan double cab í Genf en von er á þess- um bíl hingað til lands innan skamms. Búið er að breyta bílnum verulega og allar línur em mýkri og búnaður betri. Meira pláss er inni í bílnum en áður og sæti betri. Nissan Primera Wagon NISSAN Stutt er síðan langbaksútgáfa Nissan Primera var frumsýnd í Japan og nú var röðin komin að Evrópu en þessi glæsilegi lang- bakur skipaði heiðursess á Nissanbásnum i Genf. FJAÐRABÚÐIN PARTUR HF. Eldshöfða 10, 112 Reykjavík, símar 567 8757 og 587 3720. Fax 567 9557 Höfum á lager: Fjaðrir * Stök blöð * Klemmur * Fóðringar * Slit- og miðfjaðrar- bolta í langferða-, vöru- og sendi- ferðabíla. Einnig í vagna. Loftpúð- ar í margar gerðir farartækja. Hyundai: Euro-1 og Atos Hyundai náði athygli í Genf með tveimur bílum. Heimsfmmsýning Euro-1, hugmynd að sportbíl frá Hyundai. var á nýrri hugmynd að opnum sportbíl sem Hyundai nefnir Euro-1 og vill með því undir- strika að þar sé hugs- að til Evrópu í hönn- un framtíðar. Þar gaf einnig að líta smábílinn Atos en vegna mikillar um- ræðu um smábíla á borð viö A-bílinn frá Benz var Atos skoðaður mikið, enda sam- bærilegur bíll um margt. Hyundai Atos, snaggaralegur smábíll frá S- Kóreu sem er væntanlegur hingaö til lands á næstunni. Lengdin er 3,50 og hæðin 1,61, fimm hurðir, fimm sæti og hægt að stækka fármrýmið í 1100 lítra. -JR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.