Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Page 7
LAUGARDAGUR 14. MARS 1998 #/ar 45 Það hefur fyrr verið sagt um 40- línuna frá Volvo að ekki leyni sér að Volvo hefur lagt metnað í þennan bíl og gert sér far um að vekja með hon- um hugmynd um vöruvöndun, vöru- gæði og öryggi, Þetta er nú raunar sú ímynd sem Volvo hefur löngum selt vöru sína út á og haldið mjög á lofti og fengið hvað þennan bíl snert- ir góðan stuðning breska tímaritsins What Car. í árekstraprófun, unninni á vegum þess tímarits, var 40-bíllinn frá Volvo sá eini af 13 vinsælustu fjölskvldubílunum í Evrópu sem fékk hæstu mögulega einkunn, 4 stjörnur. Raunar las ég í einhverju sænsku bílablaði hálfgert geðvonskuhjal um þennan Volvo. Kannski hefur það Að útliti sker T4 sig ekki frá öðrum stallbökum í 40-línunni. Þó sést að hann er á stærri feigum og lægri dekkjum en ódýrari gerðirnar. Kynningarakstur Volvo T4: hæðarstillingar á setu farþegasætis frammi í, fjarstýring á samlæsingu, þokuluktir að framan og geislaspil- ari i útvarpi, svo nokkuð sé nefnt, er verð hans 2,8 milljónir. Ódýrasti T- bíllinn kostar 2.548.000 krónur. Ódýr- asti 40-bíllinn, S40 1,6 105 ha., kostar 1.798.000 krónur. Þetta er allnokkur munur, eins og líka á afli og tilflnn- ingu, og menn verða einfaldlega að gera það upp við sig eftir hverju þeir eru að slægjast. En óhætt er að segja að með 1,9-vélinni er bíllinn afbragðs skemmtilegur og skaði að geta ekki fengið að lofa honum að njóta sín eins og vert væri, svo sem með góð- um sprett suður Þýskaland eða á ein- hverjum samhærilegum hraðbraut- um. Heimilissportbíll verið vegna þess að 40-línan er fram- leidd í Hollandi en ekki heima í Sví- þjóð. Vitaskuld eru bílamir af 40-lín- unni þrengri en stóru bílarnir en innan sinna stærðarmarka hlýtur hún að teljast þægilegur bill. Það er ekki einasta að afbragðs vel fari um mann í Volvo S40 heldur er beinlín- is gaman að aka honum. Fram að þessu hafa verið prófaðir bílar með 2 lítra 137 hestafla vél og sjálfskipt- ingu og 1,8 lítra 115 ha. vél með handskiptingu og líkuðu hvorir tveggja vel. Hér bætist í safnið Volvo T4, stallbakur með fjögurra strokka 1,9 lítra forþjöppuvél sem skilar 200 hestöflum með hvorki meira né minna en 300 Nm snúningsvægi við 2400 sn. min. Nærri má geta að þessi bíll er ekki máttlaus í upptaktinum. Það tekur hann 7,3 sekúndur að komast úr kyrrstöðu í 100 km hraða. Þetta er sannkallaður heimilissport- bíll. Reynslubíllinn var búinn hand- skiptingu og munu margir segja að það sé það eina sem hæfi svo sportlegri vél og bíl. Enda er skiptingin prýðilega létt og ratvís og kúplingin er lika létt. Móti vél með þessari orku og snún- ingsvægi er líka svið hvers gírs ákaflega Mælaborð og stýri mynda eðlilega heild í vinnuumhverfi ökumannsins. og er að hvort heldur hún var á eða ekki sat bíll- inn alveg sér- staklega vel, líka á hálum vegum, og lét nánast ekk- ert raska jafn- vægi sínu, jafn- vel ekki með þessari orku- miklu og við- bragðssnöggu vél. Ég vil að hluta að vítt og þarf mun minna að skarka í gírum en á bílum með aflminni vél. Ugglaust á þessi vél ákaflega létt með bílinn með sjálfskiptingu líka en ég held mér þætti hún stílbrot í bíl með þessa aksturseiginleika. T4 er búinn spólvöm sem sett er á með rofa og tekin af aftur jafn auð- veldlega. Meðan DV-bílar höfðu þennan Volvo með höndum var oft- ast ágætt færi á að prófa þessa spól- vörn. En það verður að segjast eins minnsta kosti þakka það lágbörð- unum sem bíllinn var búinn, Michel- in XM-S 330 vetrardekkjum sem ekki era ætluð til neglingar og virðast al- veg einstök afbragðsdekk. Vitaskuld kostar svona gripur meira en venjulegur S40 þó um margt séu bílarnir vitaskuld áþekk- ir. Með þeim aukabúnaði sem var í reynslubílnum: skriðstillir, rafknún- ar rúður í afturhurðum (þær eru staðalbúnaður í fremri hurðum), Vert er að undirstrika hve auðvelt er og traust að aka þessum bíl. Hann ber það með sér að á honum sé hægt að bregðast við kringumstæðum af nákvæmni og öryggi og þar með af- stýra þvi að á óvirkan öryggisbúnað reyni. Virkur öryggisbúnaður er góður: læsivarðar bremsur og þægi- legt, hraðanæmt aflstýri og afbragðs rásfesta. En ef allt um þrýtur er óvirki búnaðurinn til staðar: tveir líknarbelgir frammi í og tveir á hlið, fyrir utan aðra hefðbundna slysa- varnaþætti Volvo, eins og styrkþátt- uð krumpusvæði framan og aftan og hliðarárekstravörnina SIPS (Side Impact Protection System), sem mið- ar að því að eyða höggi sem bíllinn verður fyrir á hlið áður en það verð- ur þeim að skaða sem í bílnum eru. Líknarbelgir á hlið, sem spretta fram úr hliðum framsætisbaka ofanverð- um, eru aðeins viðbótarþáttur til að mýkja það högg sem verður þrátt fyrir SlPS-búnaðinn. S.H.H. Kynning: Peugeot 106 rafbíll: Líður nær hljóðlaust áfram Rafbílar hafa ekki verið algengir á íslandi en nú kann að verða breyting á því. Margir muna eftir litla sendi- bílnum sem Gísli Jónsson prófessor gerði tilraunir með fyrir mörgum árum og eins hafa nokkrir litlir plastbílar verið fluttir inn frá Dan- mörku en ekki náð almennri notkun. Fyrsti „alvöru“-rafbíllinn var hins vegar afhentur nýjum kaupanda í gær, Peugeot 106 sem Rafmagnsveita Reykjavíkur hefur tekið í notkun. Þessi bíll er með 20 sex volta nik- kel-kadmíum-rafgeyma, 9 að framan og 11 að aftan, og hann er sagður komast 80 kilómetra á einni hleðslu innanbæjar en allt að 120 til 150 kíló- metra utanbæjar. Rafgeymarnir eru alls 225 kíló. Hægt er að endurhlaða raf- geymana á tvennan hátt. Með eðli- legri hleðslu tekur full endurhleðsla 7 klukkustundir en hægt er að ná fram 20 kílómetra akstursvegalengd með einnar klukkustundar hleðslu. Með sérstökum hraðhleðslubúnaði, sem ekki er enn til hérlendis, er hægt að fá fram sem svarar 2 kíló- metra hleðslu á mínútu. í allri daglegri umgengni er þessi Peugeot 106 sambærilegur við þá bræður sína sem nota bensín sem orkugjafa. Sæti eru fyrir 4 með ökumanni, burðargeta er 315 kíló en eini munurinn er að farangursrýmið er aðeins minna, 184 lítrar. Bíllinn er sjálfskiptur og fjöðrunin er MacPherson- gormafjöðrun. Miðað við venjulegan bens- ínbíl er Peugeot 106 rafbíll ekki þungur á fóðrum. Jöfur hefur reiknað dæmið miðað við 560 kílómetra akstur á viku. Það kostar aðeins 43 krónur á dag að hlaða rafgeymana, sérrafmagnsmælir kostar 9500 kr. á ári og veittur er 50% afsláttur af þungaskatti sem gerir 3,54 krónur á kílómetra. Alls er þetta kostnaður upp á kr. 2.465, eða sparnaður upp á 1.920 krónur á viku, ef miðað er við bensínbílinn sem myndi eyða bens- íni fyrir 4.385 krónur á viku, miðað við sama akstúr. Heildarsparnaður á ári er því um 99.840 krónur. Bíllinn kostar 1.490.000 krónur án rafgeymanna. Peugeot býður upp á tvo kosti: Hægt er að leigja rafgeym- ana á 12.000 krónur á mánuði og er þá allt eftirlit með þeim og endumýj- un eftir um það bil 5 ár innifalin. Hins vegar er hægt að kaupa raf- geymana og þá fer verð bílsins upp í um 2.000.000 króna. Miðað við leigu á rafgeymunum er því heildarkostnaður við að reka bíl- inn svipaðiu’ og á bensínbíl. Kláruðum rafmagnið Við fengum þennan bíl í stuttan kynningarakstur í vikunni. Þegar við tókum við bílnum inni á hlýju verkstæðinu hjá Jöfri í Kópavogin- um voru um 30% eftir af orku raf- geymanna. Ætlunin var að fara Rafbíliinn Peugeot 106 er í engu frábrugðinn hefö- bundna bensínbílnum í útliti. DV-mynd Pjetur stuttan hring og mynda bílinn i leið- inni. Aðeins þarf að snúa kveikjulyklin- um og þá kviknar grærit Ijós í mæla- borðinu. Ekkert heyrist en bíllinn er tilbúinn til aksturs. Engin gírstöng er til staðar en sjálfskiptingin tekur strax við sér og stigið er á „bensín- gjöfina" eöa orkugjöfina sem væri réttara í þessu tilfelli. Ef bakka þarf bílnum er ýtt á hnapp í mælaborði sem snýr akstursáttinni við. Stefnan var sett á Rafstöðina við Elliðaár því þar ætluðum við Pjetur ljósmyndari að mynda bílinn í „réttu" umhverfi. Bíllinn leið nær hljóðlaust áfram, aðeins heyrðist smáveghljóð, annað ekki. Orkan byrjaði að hrapa fljótt þeg- ar komið var út í frostið og við vor- um þess nær fullvissir að við hefðum það ekki til baka. Orkumælirinn var kominn niður í núll, bíllinn sá sjálf- ur um að slökkva aðalljósin, en við höfðum það. Ósköp var krafturinn þó orðinn lítill í lokin. Annars er bíllinn skemmtilegur í akstri þegar rafmagnið er nægt á geymunum. Viðbragð er ekki mikið, sagt vera 8,3 sekúndur frá 0 i 50 km, sem er töluvert lakara en á bensín- bílnum en fyllilega nóg í eðlilegum innanbæjarakstri. Ef þessi bíll hefði 50 kiló- metram meiri akstursvega- lengd væri hann kjörinn til alhliða fjölskyidubrúks en miðað við snúninga fyrir fyrirtæki eins og Rafmagns- veituna er þessi aksturs- vegalengd sennilega alveg nægileg og eins er hægt að hlaða þegar staldrað er við á vinnustað í mat og kaffl. Ef þungaskatturinn væri Rafbúnaðurinn fyllir vélarhúsið en miðstöðin notar ekki rafmagn nema til að blása hitanum því hann kemur frá hefðbundnu eldsneyti. Miö- stöövartankurinn er 12 iítrar. á bak og burt væri þetta enn væn- legri kostur. Til sýnis um helgina Hægt verður að skoða rafbíla hjá Jöfri um helgina. Rafveitubíllinn er til sýnis í sýningarsalnum við Ný- býlaveginn og annar eins, sem kom tU landsins í vikunni, verður til reiðu til reynsluaksturs. Þriðji raf- bíllinn mun einnig vera á leiðinni þannig að þeir sem hafa áhuga ættu að geta skellt sér á einn slíkan hafi þeir áhuga. -JR Hvenær skiptir þú um síur síðast ? FRAM FRAM ábvraö KLOPP Vegmúla 4,108 R.vík. Súni 553 0440 www.frameurope.nl Toyota Rav 4 2,0 ‘96, ssk., 5 <±, grænn, ek. 23 þús. km. Verö 1.790.000. Toyota Corolla XLi ‘96, 5 g., 3 d., grænn, ek. 26 þús. km. Verö 1.070.000. Honda Civic ESi ‘92, 4 d., ssk., ek. 68 þús. km. Verö 910.000. Honda Civic 1,5 LSi ‘93, ssk., ek. 76 þús. km. Verö 850.000. Honda Accord 2,0 LSI ‘95, ssk., 4 d., dökkblár, ek. 41 þús. km. Verö 1.630.000. Honda CRV RVSi ‘98, 5 d., ssk., ek. 4 þús. km. Verö 2.430.000. MMC Lancer STW ‘94, 4x4, 5 g., 5 d., ek. 59 þús. km. Verö 1.140.000. Toyota Corolla XLi ‘95, ssk., 5 d., ek. 36 þús. km. Verö 1.060.000. Toyota Corolla XLi ‘96, 4 d., ssk., ek. 31 þús. km. Verö 1.120.000. Toyota Touring GLi ‘93, 5 d., 5 g., ek. 72 þús. km.Verö 1.120.000. Toyota Carina E 2,0 ‘95, ssk., 4 d., ek. 35 þús. km. Verö 1.390.000. Toyota Hilux X-Cab SR5 ‘91,2 d., ek. 89 þús. km. Verö 1.080.000. Toyota Landcr. GX ‘93, 5 g., 5 d., ek. 110 þús. km. Verö 2.950.000. Subaru Legacy 4x4 ‘96, ssk., 5 d., ek. 64 þús. km. Verö 1.790.000. Subaru Legacy 4x4 ‘97, 5 g., 5 d., ek. 24 þús. km. Verö 1.950.000. Subaru Impreza STW ‘97, ssk., 5 d., ek. 20 þús. km. Verö 1.700.000. Opel Vectra 2,0i ‘95, ssk., 5 d., ek. 30 þús. km. Verö 1.270.000. Renault Megane ‘97, 5 g., 5 d., steingrár, ek. 15 þús. km. Verö 1.180.000. Fiat Uno 60S '93, 5 g., 5 d., ek. 84 þús. km. Verö 390.000. Nissan Micra LX ‘97, 5 g., 5 d., ek. 13 þús. km. Verö 990.000. Ford Bronco ‘93, ssk., 2 d., ek. 85 þús. km. Verö 1.430.000. Daihatsu Feroza DX '91, 5 g., 2 d., ek. 76 þús. km. Verö 720.000. MMC Pajero V-6 ‘92. 5 g., 3 d„ ek. 133 þús. km. Verö 1.450.000. [0 NOTAÐIR BÍLAR Vatnagöröum 24 Sími 520-1100 [jýf Frostlög • Bf Þurrkublöð : Bf Ljósaperur o ° Vetrarvörur í úrvali á góðu verði. Bf Rafgeymi Bf Smurolíu Ef Rúðuvökva Rúðusköfur, rúðuvökvi, frostlögur, ísvari, lásaolía, hrímeyðir og silikon. L léttir þér lífið Á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.