Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1998, Side 4
FÖSTUDAGUR 20. MARS 1998 T>V
22 utti helgina
Á sunnudaginn stendur Menningarmiðstöðin Gerðu-
berg fyrir mikilli tónlistar- og gítarveislu frá kl. 14 til
18.
Dagskráin verður mjög fjölbreytt. í forgrunni eru
tónlistaruppákomur sem spanna allt frá gítareinleik,
samleik gítars og flautu, fiðlu og söngs til raftónlistar
og gítarkvintetts svo eitthvað sé nefnt. Auk þess verða
pallborðsumræður með gítarleikurum undir stjórn Æv-
ars Kjartanssonar útvarpsmanns. Gítarsmiður mun
kynna starf sitt, hægt verður að hlusta á geisladiska og
skoða margt fleira tengt hljóðfærinu.
Þeir sem ætla að spila á gitar fyrir gesti á sunnudag-
inn eru margir af okkar þekktustu og færustu gítarlei-
kurum. Þar á meðal eru þeh Einar Kristján Einarsson,
Kristinn H. Árnason, Páll Eyjólfsson, Pétur Jónasson og
Símon H. ívarsson. Þeir munu bæði spila einleik og
samleik með öðrum.
Þeir sem munu koma fram með gítarleikurunum eru
m.a. Ásthildur Haraldsdótth flautuleikari, Laufey Sig-
urðardótth fiðluleikari, Margrét Bóasdótth söngkona,
Sigurður Halldórsson sellóleikari, Hildigunnur Hall-
dórsdótth fiðluleikari auk margra fleiri.
Skammdegi
fer ad Ijúka
í Gallerí Horn-
inu hefur staðið
yfir sýning á verk-
um Gunnhildar
Björnsdóttur. Sýn-
ingunni, sem ber
yfirskriftina
Skammdegi, lýkur
næstkomandi
miðvikudag og fer
því nú í hönd síð-
asta sýningar-
helgi. Myndhnar
vinnur Gunnhild-
ur með blandaðri
tækni.
Gunnhildur hef-
ur tekið þátt í
samsýningum,
m.a. í Japan,
Makedóníu, Finn-
landi og Sviþjóð,
en þetta er fyrsta
einkasýning henn-
ar.
Eitt málverka
Gunnhildar en
hún vinnur verk
sín með bland-
aðri tækni.
Ólöf Kjaran við verk sín, en hún
opnar sýningu í Gallerí Fold um
helgina.
Úr fjölskyldu-
albúmi
Á morgun kl. 15 mun myndlist-
arkonan Ólöf Kjaran opna sýn-
ingu á olíu- og vatnslitamyndum
í baksal Gailerí Foldar við Rauð-
arárstíg. Sýninguna nefnir lista-
konan „Úr fjölskyldualbúmi".
Ólöf er fædd árið 1942. Hún
stundaði myndlistarnám við
Myndlistarskólann í Reykjavík
1990-1993, Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1993-1996 og
Hochscule fúr bildende Kúnste í
Hamborg 1995.
Þetta er fyrsta einkasýning
Ólafar, en hún hefur tekið þátt í
samsýningum.
Borgarkórinn ætlar að flytja létt lög um Reykjavík ( Fella- og Hólakirkju á sunnudaginn.
Borgarkórinn syngur á
léttu nótunum
Borgarkórinn mun halda tón-
leika á sunnudaginn kl. 20.30 i
Fella- og Hólakirkju. Efnisval
kórsins að þessu sinni er sniðið
þannig að hann standi undh
nafni, því flutt verða lög um
Reykjavík.
Dagskráin verður þó afar fjöl-
breytt og sem dæmi má nefna að
söngflokkurinn Borgarbræður
munu koma fram með kórnum og
flytja skemmtilega rakarastofu-
söngva sem ættu að gleðja alla
sem á hlýða.
Einsöngvarar með kórnum eru
Inga Bachmann og Bryndís Há-
konardóttir. Stjórnandi er Sig-
valdi Snær Kaldalóns,
undirleikari Gunnar
Guðmundsson og raddþjálfari
Anna Margrét Kaldalóns.
Lögð er áhersla á létta og
skemmtilega dagskrá þannig að
allir ættu að finna eitthvað við
sitt hæfi. Það er þvi ekki úr vegi
að hvetja þá sem hafa gaman að
léttri kóratónlist til að mæta í
Fella- og Hólakirkju á
sunnudagskvöldið. Ekki skemmir
það fyrir að aðgangur að tónleik-
unum er ókeypis.
Margir okkar þekktustu gítarleikarar
munu koma fram, m.a. þeir Einar Kristján
Einarsson, Kristinn H. Árnason,
Páll Eyjólfsson, Pétur Jónasson og
Símon H. ívarsson.
DV-mynd E.ÓI
Gerðuberg
-