Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1998, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1998, Page 9
JjV FÖSTUDAGUR 20. MARS 1998 twfiiiíi Eric Clapton - Pilgrim ★★★★ Hann hefur verið titlaður Slowhand, spil- aði með Bluesbreakers, Cream, Blind Faith og Derek And The Dominos auk þess að gefa út sólópiötur sem festu viö hann titilinn „virtu- oso“ blúsgítarleiksins. Clapton hefur hægt á sér á síðari árum og virðist láta sér nægja að vinna kvikmynda- tónlist og rólegar lagasmíðar, kannski vegna velgengni sinnar í tónlistinni eða áfallasömu lífi. Síðasta plata Clapton, Change The World ber vitni um þetta, öruggg plata og þægileg. Pilgrim, nýjasta plata Clapton er fyrsta stúdíóplata hans með frumsömdu efni síðan Journeyman kom út 1989. Platan er ekki ólík- legt framhald Change The World en er þó frábrugðin þvi efni sem hann hefur verið að fást við síðasta áratuginn. Hér er að finna besta söng“performance“ Clapton í manna minnum og lagasmíðar sem ekki hafa gerst betri síðustu fimmtán ár af ferli hans. Clapton hefur á ótrúlegan máta tekist hér að láta rödd sína túlka sorg og eftir- sjá, ofan á gítarleikinn sem allir þekkja. Og þeir sem eru ekki of sáttir við ljúfsárar melódíur baðaðar í strengjum geta huggað sig við frábæra texta unna uppúr erfiðri lífsreynslu lagasmiðsins. Pilgrim fer af stað með laginu My Father's Eyes sem vitnar í fóður Clapton sem hann þekkti aldrei og son hans, Conor, sem lést vofeiflega fyrir nokkrum árum og var gerður nánast ódauðlegur í laginu Tears In Heaven. Önnur lög af svipuðum toga og sem byggja upp plötuna eru Broken Hearted, Circus, Fall Like Rain og Inside Of Me. Clapton semur öll lög plötunnar sjálfur eða með öðrum að undanskildum tveimur, Going Down Slow eftir St. Louis Jimmy og Born In Time eftir Bob Dylan, lagi sem aldrei hefur hlotið þær viðtökur sem það á skilið. Textar plötunnar flalla skiljanlega um sorg vegna missis og hvernig eigi að komast í gegnum lífið á nýjan leik þrátt fyrir sársauka og óvissu um að eitthvað geti orðið gott aftur. Pilgrim sannar það að,Clapton hefur þroskað blúsvitimd sína það mikið að hann getur túlkað blúsinn á nánast hvaða máta sem er, í margbreytilegum lagasmiðum og útfærslum. Páll Svansson Trainspotting - Úr leikriti ★★★ Það er ágætis kvöldstund að sitja undir hinu drullufina leikriti Trainspotting. Þar skíta og míga og æla nokkur skosk ung- menni, segja brandara, fabúlera, slást og grobba sig, en dópa þó aðallega. Kvikmynd- in, sem gerð var upp úr skáldsögu Irvine Welsh, var full af tíðarandatónlist sem safn- að var saman á vinsæla plötu. Uppfærsla Loftkastalans stólar ekki síður á tónlist og tekst ágætlega það hlutverk sitt að undir- strika dramatíska atburði með viðeigandi tónum. Bjarni Haukur Þórsson, leikstjóri sýningarinnar, valdi tónlistina og er í sjálfu sér ekkert út á val hans að setja. Þó læðist að manni sá grunur að sýningin hefði getað neglst þéttar saman ef hann hefði valið ein- litari músík og ekki leitað út um víðan völl. I kynningarskyni hefur verið gefinn út diskur með þessari mislitu tónlist. Hér höfum við annars vegar nýjar upptökur af íslendingum að taka klassísk lög og hins vegar upprunalegar útgáfur af klassískum lögum. Rámverjinn Björn Jörundur tekur Sweet Jane og I Get a Kick out of You og fer vel með, sérstaklega hið síðarnefnda. Langi Seli á stutta endurkomu í hrárri og pönkaðri útgáfu af Bítlalaginu Love Me Do og ætti endilega að gera meira popp ef hann hefur tíma frá leikmyndagerðinni. Jón Ólafsson útsetur bæði fyrir Bjöm og Sela og er traustur að vanda. Haukur Guðmundsson gerir vellulegu, en smart popp- lagi frá miðjum síðasta áratug, Labour of Love með Hue and Cry, ágæt skil og Máni Svavars bregst ekki i útsetningunni þar, enda sjóaður i vellingum. í erlendu deildinni er gargandi snilld i öllum hornum; frá blúsklassik Muddy Wa- ters yfir í bigbeatklassík Fatboy Slim, með viðkomu í Iggy Pop, Stone Roses og Al- binoni. Sem sagt, mislit músík en öll góð, og pakkinn ætti að virka vel í mannfagn- aði jafnt sem í einrúmi. Gunnar Hjálmarsson Anouk - Together Alone ★ Stuðgellan Anouk er frá Hollandi og nýtur mikilla vinsælda á þeim slóðum. Hróður hennar herst víða og nú er hún m.a.s. orðin nokkuð vinsæl hér, aðallega fyrir smellinn Nobody’s Wife. Það er dæmigert lag fyrir stelpuna, sveitt grað- hestarokk þar sem kassagítar og rifinn rafmagnsgítar takast á i tónlist sem síðast var vinsæl þegar hljómsveitin 4-Non Blondes var upp á sitt vinsælasta, en upp- gangsárin voru um miðjan síðasta áratug þegar léttpoppað þungarokk þótti flott. Anouk gerir lítið nýtt við þennan sveitta og þreytta tónlistarstíl. Hún syngur frekjulega og stundum með nokkrum rembingi, eins og orgið komi lengst neðan úr iðrum. Annars vegar er á plötunni stuðrokk, áðumefnt Nobody’s Wife þar best ásamt titillaginu, sem hefur fint viðlag og kaflaskiptingu sem kemur lítils hátt- ar á óvart. Hins vegar eru það rokkballöðurnar sem engan endi ætla að taka og gætu sumar drepið hross úr leiðindum. Ofan á þessu öllu fljóta seig krúsidúllugítar- sóló. Til að taka slík sóló virðist skylda að maður sé með sítt að aftan og yfir- skegg. Engin mynd fylgir í umslagi af hjálparkokkum Anouk, en þeir eru ör- ugglega einmitt með slíkan hár- og skeggstíl. Sjálf er Anouk með tjásuklippingu og skammast sín ekki fyrir snjóþvegnu gallabuxurnar sínar. Þegar maður held- ur að hallærið verði ekki meira kemur meint fönklag, Pictures on Your Skin, óg toppar allt. Ég held við eigum ekki eftir að heyra mikið meira frá Anouk i framtíðinni. Gxmnar Hjálmarsson „Nú er það aö- allega að spila á plötum og í leikhúsi sem reddar manni salti í graut- inn.“ Guðmundur Pétursson gítar- leikari. Nafnið kallar ósjálfrátt fram myndir af hrokkinhærðum manni að taka löng og flókin gítarsóló, helst með blúshljómsveit í eftirdragi. En ekki er allt sem sýnist. Guðmundur gaf út plötu nýlega sem hann kallar „Muzac" og þar er sko enginn blús og engin hefðbundin gítarsóló. Tónlistin er tilrauna- kennd með afbrigð- um, skrítin og drungaleg. - Varstu lengi að vinna plötuna? „Ég held þrjá mánuði í allt. Bæði að semja og taka hana upp. Ég vann plötuna að stórum „Nei, ég myndi nú frekar segja að hún væri björt og húmorísk," grípur Guð- mundur fram í og vill ekki kannast við að plat- an sé drungaleg. - En hefði ekki verið gráupplagt að gera venjulega blúsplötu og selja blúsurunum í massavís? spyr ég. „Ég gerði þessa plötu af allt öðrum hvötum," svarar Guðmundur. „Ég veit ekki hvað er að selja og kynna hluti, ég sé þetta ekki frá þeim endanum. Ég gerði þessa plötu ofsalega mikið fyrir sjálfan mig - kannski einum of mikið. Kannski átti ég að sjá hana í víðara sam- hengi.“ Guðmundur vill ekkert útskýra þetta nánar svo ég spyr hverju hann hafi verið að reyna að ná með plötunni. „Það er nú misjafnt. Oft var ég að reyna að ná einhverju Hrist upp í ímyndinni: - með Guðmundi Péturssyni sem ég hafði ekki heyrt áður með því að prófa nýj- ar aðferðir sem mér duttu í hug. í annan stað var ég að reyna að ná einhverju sem ég hafði heyrt upp úr farvegi sem ég kannaðist ekki við.“ - Hvaða farvegur var það? „Einhverjar órökrænar hljóðskissur sem ég reyndi að púsla sarnan." - Vá! Ef platan er púslu- spil, af hverju er þá myndin?“ Hér hugsar Guð- mundur sig um dálitla stund og segir svo: „Ég held að myndin sé það sem hljómar þegar platan er sett í gang. Það er það næsta sem ég kemst í því að fylla út í púsluspjaldið." Ekki í fílabeinsturni - Gerirðu miklar kröfur til hlustan- dans? „Ég get fallist á að platan sé kreQandi áheymar, en hún er alls ekki óskiljan- leg. Það þarf enginn að klóra sér í hök- unni yfir þessari plötu, heldur bara að hafa gaman að henni. Það síðasta sem ég geri er að loka mig inni í einhverjum filabeinstimni. Að mínum dómi er Muzac byggð upp sem popp- eða rokk- plata, en kannski þarf að hlusta nokkuð oft til að heyra það.“ - Hvernig nýtist platan best? „Það á helst að hlusta á hana í ein- rúmi, en kaflar á henni virka í par- tíum. Annars er ég að glata nánum tengslum við þessa plötu með hverjum deginum sem líður, hugur- inn leitar annað.“ hluta heima hjá mér.“ - Gerðirðu þessa plötu á meðvitaðan hátt til að breyta ímyndinni sem fólk hefur af þér? „Líklega var ég með það í undirmeðvitundinni og vonandi hristir þetta upp í þeirri einhliða mynd sem fólk hefur af manni.“ Einhliða mynd, já ... Guðmundur vakti athygli á Músíktilraunum árið 1987 með Bláa bílskúrs- bandinu en sló í gegn í kosningasjónvarpinu skömmu síðar. Hemmi og Bubbi áttu ekki orð í sjónvarpsþættinum og síðustu 10 árin hefur orðið „gitar- snillingur" ekki verið langt und- _ an þegar Guðmund Pétursson ber á góma. Ég spyr hann hvernig hafi verið að vera 14 ára og kallaður gít- arsnillingur. „Það var í sjálfu sér ekki leiðinlegt, en mér fannst það þó aðallega bandvit- laust. Ég ætla ekkert að vera ósann- gjarn. Vissulega hafði maður eitthvað til hrunns að bera.“ - Og hefurðu lifað af tónlist síðan? „Já, ég hef verið það sem kalla mætti „launaður tónlistarmaður" síðustu tíu árin. Ég byrjaði með Vinum Dóra 15 ára gamall og það gaf af sér þónokkuð góðan pening. Nú er það aðallega að spila á plöt- um og í leikhúsi sem reddar manni salti í grautinn." - Er önnur plata í smíðum? „Það er ekkert komið í smíðar en eitthvað hyrjað að frjóvgast í kollinum." -gUi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.