Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1998, Blaðsíða 10
FÖSTUDAGUR 20. MARS 1998 J-J V
,28
ínlist
ísland
-plötur og diskar-
| All Saints
All Saints
| Titanic
Úr kvikmynd
| Pilgrim
Eric Clapton
| Madonna
Ray of Light
} Left of the Middle
Natalio Imbruglia
} Pottþétt 11
Ýmsir flytjendur
} Urban Hymns
The Verve
} Aquarium
Aqua
} Moon Safar
Air
} Let's Talk About Love
Celine Dion
} Drumsanddecksandrockandroll
Propellerheads
} Yield
Pearl Jam
} Heavy Mental
Killah Priest
} Bugsy Malone
Úr leikriti
) OK Computer
Radiohead
) Rússibanar
Rússibanar
) Simply the Best
Tina Turnor
) Fat of the Land
The Prodigy
) 1987-1997
Ný dönsk
) Backstreet's Back
Backstreet Boys
London
-lög-
t 1. (- ) It's Like that
Run DMC Vs Jason Nevins
t Z (-) Stop
Spice Girls
| 3. (1 ) My Heart will go on
Celine Dion
t 4. (- ) Say What You Want
Texas & Wu Tang Clan
t 5. ( 3 ) Frozen
Madonna
H 6. ( 2 ) Big Mistake
Natalie Imbruglia
| 7. ( 4 ) When the Lights Go Out
I 8. ( 6 ) Brimful of Asha
Cornershop
t 9. ( 8 ) Truely Madly Deeply
Savage Garden
t 10. (- ) Uh La la la
Alexia
New York
— -lög-
1. (1) Gettin' Jiggy Wit it
Will Smith
2. ( 3 ) Nice and Slow
Usher
3. (2) My Heart Will Go On
Celine Dion
4. ( 4 ) No, No, No
Destiny's Child
5. ( 5 ) Truely Madly Doeply
Savage Garden
6. ( 8 ) What You Want
Mase (Featuring Total)
7. ( 9 ) Gone Till November
Wyclef Jean
8. (- ) Frozen
Madonna
9 (7) Together Again
Janet
10. ( 6 ) Swing My Way
K.P. & Envyi
Bretland
:
»
*
1
1. ( 1 ) Ray of Light
Madonna
2. (2) Titanic
Úr kvikmynd
3. ( -) Tin Planet
Space
4. ( 5 ) Life Thru a Lens
Robbie Williams
5. ( 3) Let's Talk About Love
Colino Dion
6. ( —) Pilgrim
Eric Clapton
7. ( 4 ) Urban Hymns
The Vervo
8. ( 6 ) Maverick a Strike
Finley Quaye
9. ( 9 ) Left of the Middle
Natalie Imbruglia
10. ( -) Return to the Last Change Saloon
The Bluetones
Bandaríkin
I 1. (1 ) Titanic
Úr kvikmynd
f 2. (-) Ray of Light
Madonna
| 3. ( 2 ) Let’s Talk About Love
Celine Dion
| 4. (- ) My Homios
Scarface
§ 5. (4) Savage Garden
Savage Garden
K 6. ( 3 ) Charge it 2 da Game
Silkk The Shocker
t 7. ( 8 ) Love Always
K-ci & Jojo
| 8. ( 6 ) Backstreet Boys
Backstreet Boys
| 9. ( 5 ) The Wedding Singer
Úr kvikmynd
|10. (7 ) MyWay
>mmmm *******
Allt sem þú þarft að vita um hljómsveitina
h ® ® q
- en vissir ekki að þú ættir að spyrja um fyrr en núna
Hljómsveitin setti nokkur ófullkláruð lög á band og sendi aö gamni til nokkurra erlendra útgáfufyrirtækja. Þaö er
mjög sjaldgæft að slíkt beri einhvern árangur en hún var heppin; hljómsveitarspæjarinn Ingrid, sem þá vann hjá
One Little Indian, hlustaði á spóluna og hreifst af.
„Það er llklegt að hljómsveitin Lhooq verði
þekktasta útílutningsafurð íslands á eftir Björk“
spáði breska tónlistarbransablaðið Music Week ný-
lega. Þessi spádómur kom fram i dómi um fyrstu
smáskífu bandsins, „Losing Hand“, sem blaðið kaus
smáskífu vikunnar. Music Week eru alltaf á undan
öðrum með dóma, opinberlega kemur smáskífan
ekki út fyrr en nk. mánudag, en þetta er óneitanlega
góð byrjun.
Jóhann Jóhannsson, Pétur Hallgrímsson og Sara
Guðmundsdóttir skipa Lhooq (nafnið þýðir lauslega
„Hún er með heitan rass“ á frönsku). Síðast kom
hljómsveitin fram fyrir tæplega tveim árum sem
upphitunarband fyrir David Bowie i Laugardalshöll,
en hinn aldurhnigni meistari valdi bandið sjálfur tii
að spila á undan sér. Til að fræðast nánar um Lhooq
og hvað er í gangi var tekið hús á Jóhanni þar sem
hann baukaði við tónlist í kjailara í vesturbænum.
Þar hafa þeir Pétur eytt flestum vökustundum síð-
ustu árin. „Viðbrögðin hafa verið mjög góð,“ stað-
festir Jóhann. „Pressan í Englandi er að taka við
sér.“ Jóhann á rætur allt aftur í pönkpopptríóið
Daisy Hill, starfaði um tíma með Ham, Unun og
Funkstrasse, en þegar hann kynntist Pétri (sem
áður hafði verið gítarleikari í hljómsveitinni E-x)
small allt saman: „Við kynntumst gegnum sameigin-
lega hafnflrska vini og vorum saman í Funkstrasse,
og upp úr því fórum við að tala saman um músík og
komumst að því að við áttum ýmislegt sameiginlegt.
Við prófuðum að semja saman og það gekk svona
skínandi vel. Við náðum mjög vel saman tónlistar-
lega og persónulega og höfum eiginlega verið óað-
skiljanlegir síðan."
Hljómsveitin setti nokkur ófullkláruð lög á band
og sendi að gamni til nokkurra erlendra útgáfufyr-
irtækja. Það er mjög sjaldgæft að slíkt beri einhvern
árangur en hún var heppin; hljómsveitarspæjarinn
Ingrid, sem þá vann hjá One Little Indian, hlustaði
á spóluna og hreifst af. Þegar hún flutti sig um set
yfir á Echo Records tók hún spóluna með og
skömmu síðar voru Lhooq-félagar búnir að skrifa
undir.
„Upphaflega planið var að við yrðum instrúm-
ental hljómsveit," segir Jóhann, „og við ætluðum að
fá einhverjar stelpur til að syngja með ef svo bæri
undir.“
Þeir fengu Emilíönu Torrini til að syngja fyrsta
lagið, sem hafnaði á Volume-safnplötu og kom út á
svipuðum tima og Uxa-hátíðin fór fram. Þar kom
hljómsveitin fram ásamt Ingibjörgu Stefánsdóttur.
„Skömmu síðar var okkur bent á Söru, sem þá
hafði sungið bakraddir hjá ýmsum en aldrei verið í
bandi. Við prófuðum hana og hún féll vel í kramið,
okkur fannst hún hafa magnaða og sérstaka rödd og
vildum vinna meira með henni.“
Sara er nú 19 ára og í skóla. Jóhann segir að aðal-
fókuspunkturinn sé á henni: „Öll kynningin á
hljómsveitinni er farin að snúast að stærstum hluta
um hana, enda er reglan sú að einblína á þann sem
syngur þegar kynna á hljómsveit."
Leitað að ráttu fólki
Þið gerðuð samninginn við Echo fyrir tveim
árum, en fyrst núna er eitthvað að gerast. Hvað
tafði?
„Við vorum í rauninni ekki með nema fjögur lög
þegar við gerðum samninginn og þurftum að semja
fleiri lög. Svo vomtn við líka lengi að finna rétt fólk
til að vinna með og fundum t.d. umboðsmanninn
okkar ekki fyrr en seint síðasta haust - vildum vera
viss um að hafa réttan mann í því djobbi. Það hefur
verið gott fyrir okkur að hafa þennan tíma til að ná
vel saman sem hljómsveit. Við höfum unnið náið
saman allan þennan tíma og erum miklu sterkari
heild núna en þegar við fengum samninginn."
Jóhann segir fyrirtækið Echo stöndugt og ungt og
alveg af réttri stærð, ekki of stórt og ekki of lítið.
Það gefur út ýmsa velþekkta listamenn eins og Juli-
an Cope, Moloko, Babybird og að auki bítlasafiiplöt-
una In My Life, sem getið er um hér annars staðar
í Fjörkálfinum. Fyrirtækið hefur staðið vel við bak-
ið á hljómsveitinni að sögn Jóhanns. En hvert
skyldi framhaldsplanið vera?
„Við stefnum að annarri smáskífu eftir sirka tvo
mánuði og stóra platan, sem heitir einfaldlega
LHOOQ, á aö koma í sumar. Svo erum við að leggja
á ráðin með að fara utan í tónleikaferð, væntanlega
í haust."
- Á eitthvað að gera á íslandi?
„Við erum opin fyrir öllum tilboðum. Við erum
tilbúin með band ef eitthvað kemur upp á en þyrft-
um smátíma til að æfa upp prógramm."
Lagahöfundar til leigu
Pétur og Jóhann (ekki rugla þessu saman við
Magnús og Jóhann!) eru samrýndir laga- og texta-
höfundar og hljóðstjórnendur.
„Við höfúm verið með ýmis verkefni í gangi
samhliða Lhooq, höfum t.d. mikið unnið með Páli
Óskari, gerðum nokkur lög með Möggu Stínu á
væntanlegri plötu hennar. Þá gerðum við fimm
lög á safnplötunni Megasarlög og erum núna að
semja fyrir Marc Almond." - Gamla poppdverg-
inn úr Soft Cell? Hvemig kom það til?
„Við kynntumst honum í gegnum sameiginlega
vini erlendis og hann hreifst mjög af því sem við
vorum að gera og bað okkur að vinna nokkur lög
með sér. Þetta kemur væntanlega út á EP-plötu á
næsta ári, það er ekki búið að ganga alveg frá
því.“
- Þannig að þið emð í rauninni lagahöfundar
til leigu? „Við erum alltaf til í að vinna með
áhugaverðu fólki og semjum fleiri lög en það sem
Lhooq notar.“
- Vinsið þið úr það sem passar fyrir Lhooq?
„Það kemur fyrir. En annars er sviðið sem Lhooq
spannar mjög breitt og það passar margt inn í
það.“
- Hvemig myndirðu annars lýsa tónlistinni
ykkar?
„Ég vildi helst sleppa við það, en ég gæti svo
sem sagt að þetta væri einhvers konar blanda af
fönki, döbbi og allri tónlistarsögunni."
-glh
Blur?
Út er kominn tvöfaldur geisladiskapakki með íslandsvinunum og stórsnillingunum í
Blur, Bustin’ & Dronin’. Þessi pakki hafði áður verið fáanlegtu- í Japan, en nú er
hægt að nálgast gripinn á viðráðanlegum prís. Á fyrri plötunni fara nokkrir
hljóðgarpar skæram um lög af síðustu breiðskífu Blur og sníða þau upp á
nýtt. Breytingamar em róttækar og tónlistin spinnst oft út í víddir sem
hljómsveitin Blur hefúr ekki verið þekkt fyrir að kanna áður. Þeir sem
endurmixa era m.a. Adrian Sherwood, Moby, John McEntire úr Tor-
toise, Thurston Moore úr Sonic Youth og William Orbit, nýjasti vinur
Madonnu. Á seinni diskinum em hráar og lifandi upptökur sem vom
sérstaklega gerðar fyrir útvarpsþátt John Peel á BBC í fyrra.
Hljómsveitin virðist annars vera í dvala og engir tónleikar em fyrir-
hugaðir á þessu ári. Reyndar hafa hljómsveitarmenn hótað því að spila
aldrei aftur á tónleikum. Heyrst hefúr að Damon sé að semja tónlist fyr-
ir „Granada a La Luna“, plötu þar sem ýmsir popparar semja tónlist við
ljóð spænska skáldsins Federico Garcia Lorca. Gítarleikarinn Graham
hefúr hins vegar stofnað lítið plötufyrirtæki, Transcopic Records, og er
fyrsta útgáfan smáskífa með hljómsveitinni Assembly Line People
Program frá Chicago.
Hvað er að gerast hjá