Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1998, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1998, Side 11
FÖSTUDAGUR 20. MARS 1998 George Martin - happasæll meistari kveður bransann George Martin er að hætta í bransanum eftir mörg gjöful ár. Safnplatan In My Life, þar sem ýms- ir popparar og leikarar taka Bítla- lög, m.a. Celine Dion, Sean Connery og Jim Carrey, verður síðasta plat- an sem hann gerir. Hún er að koma út um þessar mundir og því er við hæfi að rifja stuttlega upp feril Ge- orge, sem hefur verið kallaður fimmti Bítillinn, enda ólíklegt að Bítlarnir hefðu orðið það sem þeir urðu án hans. Lærði á óbó George er fæddur árið 1926 og lærði á óbó áður en hann sneri sér að upptökum. Hann var ráðinn til EMI 1950 og tók þá upp klassíska tónlist, með áherslu á barokk, en eftir að hann fór að prófa sig áfram við djass og popp var hann gerður að yfirmanni á nýju hliðarmerki EMI sem kallað var Parlophone. Fyrst í stað vann hann með djössur- um á borð við Stan Getz og Cleo Laine og gerði grínplötur með Peter Sellers, Spike MUligan og fleirum. Þetta breyttist snögglega eftir að umbinn Brian Epstein kynnti hann fyrir ungri hljómsveit, The Beatles. George Martin lýsir þessu svona: „í janúar 1962 hitti ég Epstein sem var að reyna að koma Bítlunum á legg. Hann hafði farið til nánast allra annarra hljómplötufyrirtækja í London, alls staðar verið hafnað og var býsna dapur og vondaufur þeg- ar hann kom til mín. Hann reyndi að grínast eitthvað með það við mig að Parlophone væri grinplötumerki, en Bítlamir sjálfir voru ekki hrifn- ir af að hann væri að tala við mig fyrr en þeir fréttu að ég hafði gefið Peter Sellers út - þeir filuðu hann allir. En hvað um það, það sem Ep- stein var með á bandi var ekki gott, reyndar alveg hræðilegt, en það var eitthvað þarna sem kveikti í mér - ég veit ekki enn þá hvað það var - og ég lét Epstein sækja Bítlana til Liverpool því mig langaði að hitta þá í eigin persónu. Ég eyddi með þeim degi í Abbey Road-hljóðverinu og varð yfir mig hrifinn, þetta vora frábærir náungar. Lögin þeirra voru ekkert sérstök þá, Love Me Do skást af því sem þeir komu með, en þeir voru fæddir stjömur. Þeir hefðu alveg eins meikað það ef þeir hefðu orðið leikarar eða stjórnmála- menn. Allir nema trommarinn Pete Best, hann sagði aldrei neitt og sat úti í horni, enda fór bandið ekki á flug fyrr en Ringo kom inn í staðinn fyrir hann.“ Nú tók við náið samstarf George og Bítlanna sem varði meðan hljóm- sveitin starfaði. Lagasmíðarnar, sem höfðu verið slappar í byrjun, blómstruðu nú og George reyndist það andlega gróðurhús sem Bítlam- ir þurftu fyrir sínar veiklulegu spír- ur. Eftir að þeir urðu vinsælir fundu Lennon og McCartney hvað virkaði og George hvatti þá til að þróast og prófa nýjar leiðir. Bítlun- um nýttist tækni og fimi George og saman sköpuðu þeir hvert snilldar- verkið af öðra. Sjálfstæður Sögu Bítlanna þekkja flestir. Ge- orge Martin sagði hins vegar skilið við Parlophone árið 1965 og vann sjálfstætt upp frá því. Hann opnaði hljóðver, Air Studios, sem hefur með tímanum orðið eitt það þekktasta i heimi. Hann hefur unn- ið með ýmsum eftir að Bítlamir hættu; gerði sjö plötur með hljóm- sveitinni America, þrjár með Paul McCartney, tvær með Jeff Beck, og plötur með Neil Sedaka, Jimmy Webb, Kenny Rogers, UFO, Cheap Trick, Ultravox og fleirum. Að sjálfssögðu var leitað til hans þegar Anthology-pakkarnir með Bítlunum komu út fyrir nokkrum árum. George semur tónlist sjálfur og hefur gert stef fyrir sjónvarpsþætti og tónlist fyrir fjölda kvikmynda, t.d. Honky Tonk Freeway og Live and Let Die, sem hann fékk ósk- arsverðlaun fyrir. Hann hefur skrif- að þrjár bækur. Sú fyrsta heitir All You Need Is Ears og fjallar um fyrstu árin á ferlinum, önnur heitir Making Music, þar sem George út- skýrir vinnubrögð sín og tækni, og sú þriðja er Summer of Love, sem fjallar um hvemig frægasta plata Bítlanna, Sgt. Pepper’s, varð til. Hann hefur verið að draga saman seglin hægt og bítandi, enda orðinn Nú tók viö náiö samstarf George og Bítlanna sem varöi meöan hljómsveitin starfaði. Lagasmíöarnar, sem höföu veriö slappar í byrjun, blómstruöu nú og George reyndist þaö andlega gróöurhús sem Bítlarnir þurftu. Grand Royal: Svalir undir/undra- heimar Beastie Boys Fáar hljómsveitir í dag era jafn svalar og Beastie Boys frá New York. Þeim hefur tekist á undraverðan hátt að vera ávallt í fremstu röð. Fyrir utan að gera svölustu hipphopppönk- tónlistina reka þeir feiknalegt útgáfu- batterí, Grand Royal, og afurðum það- an má treysta, sé maður á annað borð svag fyrir svalheitum, og hver er það ekki? Útgáfufyrirtækið sinnir bæði tónlist og tímaritaútgáfu. Málgagnið heitir einfaldlega Grand Royal og þar má lesa skemmtilegar greinar um það sem Beastie Boys og félögum finnst þess virði að fjallað sé um. Áhugasvið- ið er breitt, í tímaritinu má eiga von á öhum fjáranum, enda er fátt jafn svalt og að hafa áhuga á öllu, en helst á einhverju sem enginn annar hefur áhuga á. í sjötta tölublaði, sem nýlega kom út, er m.a. fjallað um hvemig á að búa til sína eigin Atari-tölvuleiki; Busta Rhymes tekur viðtal við klám- rapparann Rudy Ray Moore; ítarleg grein er um sjaldgæfa kvikmynd frá síðasta áratug, The Fabulous Stains; og reynt er að varpa ljósi á hinn dul- arfulla dauðdaga Stax- trommarans A1 Jackson Jr. Tónlistarútgáfan er ekki síður fjöl- breytileg. Fyrsta útgáfan var með kvennahljómsveitinni Lucious Jack- son, sem blandar sætu poppi saman við hipphopp og fónk, en fjölmargar hljómsveitir hafa fengið samning í kjölfarið og era þær nánast allar sval- ar og spennandi. Japanska hljómsveit- Buffalo Daughter - á mála hjá Be- astie Boys. inni Buffalo Daughter er skipuð þrem stelpum frá Tokyo sem hafa verið að gera tónlist síðan 1993. Þær blanda ólíklegustu hugmyndum saman svo úr verður byltingarkennt og spaugi- legt rokk sem heilabúið er smástund að venjast. Önnur platan þeirra, „New Rock“, kom út nýlega og boðar nýja byltingu. Á svipuðum slóðum í músík- inni er hljómsveitin Butter 08, en þar leiða saman graðhesta sina tvær stelp- ur úr súpergrúppunni Cibo Matto, trommarinn úr Jon Spencer Blues Ex- plosion og fleira frískt lið. Ástralinn Ben Lee er hins vegar á allt öðrum buxum. Hann var ekki nema tólf ára þegar hann var uppgöt- vaður 1992, spilandi í krakkapönk- bandinu Noise Addict, en nú er hann orðinn eldri og lagasmíðarnar flókn- ari. Hann minnir um margt á öðling- inn Jonathan Richman, textarnir era persónulegir og opnir og tónlistin frískandi kántrískotið rokk. Á nýj- ustu plötunni sinni nýtur Ben aöstoð- ar Mike D úr Beastie Boys og Money Mark og framtiðarplön hjá stráksa eru að klára menntaskólann og semja söngleik um feita griska kerlingu sem bjó einu sinni við hliðina á honum. Annaö skemmtilegt á mála hjá Grand Royal eru t.d. Skotarnir í hljómsveitinni Bis, þýski snillingur- inn Alec Empire og hljómsveitin hans Atari Teenage Riot og nýjasti liðsauki útgáfunnar er Sean Lennon, sonur Yoko og Johns, en fyrsta sólóplata hans, „Into the Sun“ er væntanleg í maí. Nýverið kom út safnplatan „Where You’re Going..." sem er kjörinn byrj- unarreitur inn í undir/undraheima Grand Royal-útgáfunnar, og ekki spill- ir fyrir að platan er seld á hálfvirði. Sjálfir verða svo Beastie Boys með nýja plötu í sumar og er ástæða til að fara að hlakka til því þeir hafa ekki bragðist vonum til þessa. -glh sjötíu og tveggja ára og farinn að missa heym. Hann hljóðvann prins- essusmellinn ógurlega Candle in the Wind með Elton John (það var þrí- tugasta lagið sem hann vann sem fór í fyrsta sæti enska smáskífulist- ans) en safnplatan In My Life er sem áður segir hans allra síðasta plata. Gamli maðurinn ætlar þó ekki að setjast alveg í helgan stein heldur sýsla í ýmsum áhugamálum eins og að sigla um á snekkjunni sinni, spila snóker með vinum sín- um og jafnvel að fást smávegis við annað listrænt áhugamál, að gera skúlptúra. En hann hefur fengið sig fullsaddan af tónlist og segir að nót- ur myndu detta úr eyrunum á sér ef hann stæði á haus: „Þetta er orðið ágætis ævistarf og nú nenni ég þessu ekki lengur!" -glh il_ Hjartsláttur Skemmtun sem kallast Hjartsláttur verður hald- in á Kaffi Thomsen í Hafnarstræti á sunnu- dagskvöldið. Þar munu dj Sam frá State of Bengal, Björk Guðmundsdóttir og Alfred More úr Gus Gus þeyta skífur. Aðgangseyr- ir er 500 kr. Skítamórall Skítamórall mun leika á Hótel Húsavík fyrir 16 ára og eldri í kvöld en spila á dansleikíá Broad- way annað kvöld. Skothúsið í kvöld ætlar Þórir Telló að þeyta skífur í Skothúsinu í Keflavík. Annað kvöld spilar svo hljómsveitin Hunang ásamt Karli Örvars. Land og synir Hljómsveitin Land og synir ætlar að troða upp á dansleik i Inghóli á Sel- fossi annað kvöld. Bubbi Morthens Bubbi veröur á ferð og flugi um helgina en hann heldur tónleika á Kaffi Menningu á Dalvík í kvöld kl. 22 og á laugar- daginn verður hann á Hótel Húsavík kl. 23. Léttir sprettir Hljómsveitin Léttir sprettir mun skemmta gestum Kringlukrárinnar bæði fostudags- og laug- ardagskvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.