Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1998, Qupperneq 12
30 myndbönd
The Full Monty:
Klæðalausir karlmenn
Þegar atvinnuleysinginn Gaz uppgötvar að Chippendales-fatafellum-
ar stórgræða á því að fækka fötum fyrir kvenfólk dettur honum ráð í
hug. Hann sárvantar peninga til að borga meðlagið áður en hann miss-
ir umgengnisrétt við son sinn. Honum tekst að sannfæra nokkra félaga
sína um að æfa strippdans með sér og pantar sal fyrir sýninguna. Þeir
geta illa keppt við vöðvastælta hasarkroppa þeirra Chippendales-manna
og ákveða því að ganga feti lengra en þeir og strippa alveg niður á nak-
inn bossann. Þeir þurfa að yfirvinna ýmislegt i fari sínu eða læra að lifa
með því, svo sem offitu, elli, þunglyndi, feimni og sviðsótta, áður en þeir
öðlast þor til að standa naktir frammi fyrir fullum sal af kvenfólki.
Bjartasta von Breta, Robert Carlyle, leikur aðalhlutverkið og stendur
vel fyrir sínu, en óneitanlega fannst mér Mark Addy stela senunni í við-
kvæmnislegu hlutverki feita stripparans. Þetta er léttgeggjuð grínmynd
um hversdagsleg vandamál venjulegs fólks við óvenjulegar aðstæður.
Gæði grínmynda má meta út frá magni hláturs og The Full Monty stenst
það próf með miklum sóma, ásamt því að vera eftirminnileg og umhugs-
unarverð grínmynd sem skilur eftir sig.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Peter Cattaneo. Aöalhlutverk: Robert Carlyle,
Tom Wilkinson og Mark Addy. Bresk, 1997. Lengd: 95 mín. Öllum leyfð. -PJ
Top Secret:
Þvæla ★★★★
Bandaríska poppstjaman Nick Rivers lendir í
mikilli svaðilför þegar honum er boðið á menning-
arhátíð í Austur-Þýskalandi. Hann kynnist and-
spymukonunni Hillary Flammond og kemst upp á
kant við stjórnvöld landsins. Áður en yfír lýkur hafa
þau, með hjálp frönsku andspyrnunnar, bjargað föð-
ur hennar úr fangelsi og kafbátaflota bandamanna
frá því að verða sökkt. Þetta er ein af eldri myndum
ZAZ-gengisins, sem í henni eru á tilraunastigi að
þróa stíl sinn, sem þeir fullkomnuðu í Naked Gun.
Mér hefur þó alltaf fundist Top Secret skemmtileg-
ust mynda þeirra, enda hló ég stjómlaust þegar ég sá hana fyrst á sín-
um tíma. Myndin er algjör þvæla frá upphafi til enda og stíllihn felst í
því að beygla raunveruleikann og koma áhorfendanum á óvart með því
að fara út af sporinu i vel þekktum kvikmyndaklisjum. Val Kilmer fer á
kostum í aðalhlutverkinu, en hann var á þessum tíma ungur og óþekkt-
ur. Top Secret er klassískt brautryðjendaverk og frábær dellugrínmynd.
Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjórar: Jim Abrahams, David Zucker og Jerry
Zucker. Aðalhlutverk: Val Kilmer. Bandarísk. Lengd: 83 mín. Ölium leyfð. -PJ
Dressed to kill:
★★★ Sálsýkistryllir
Einn af sjúklingum sálfræðingsins Dr. Robert
Elliot er myrtur, og Dr. Elliot hefur grun um að
morðinginn sé annar sjúklingur hans, klæðskipting-
ur sem hann hafði neitað um samþykki fyrir kyn-
skiptaaðgerð. Vændiskona, sem sá á morðstaðnum
það sem hún hélt vera ljóshærða konu með sólgler-
augu, fær ekki lögregluna til að trúa sér. Hún óttast
um líf sitt og tekur þvi höndum saman viö son hinn-
ar myrtu til að reyna að komast að því hver þessi
dularfulla kona er. Dr. Elliot vill ekki greina lög-
reglunni frá grunsemdum sínum nema vera viss um
að sjúklingur hans sé raunverulega morðinginn og
reynir því sjálfur að ná tali af honum. Leikstjórinn Brian De Palma á
að baki nokkur þrekvirki, þ.á.m. hina mögnuðu Scarface. I Dressed to
Kill reyndi hann að skapa dularfulla morðgátu með óvæntum söguflétt-
um og kryddaði hana með kynlifi, nekt og blóði, sem á sínum tíma þótti
í grófara lagi, en kemur víst við kauninn á fáum nú á tímum. Honum
tókst ætlunarverk sitt að mestu leyti, en heimskar klisjur hér og þar
draga myndina svolítið niður og ennfremur er leikhópurinn ekki alveg
nógu sterkur, þótt Michael Caine sé finn í hlutverki sálfræðingsins.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Brian De Palma. Aðalhlutverk: Michael
Caine, Angie Dickinson og Nancy Allen. Bandarísk, 1980. Lengd: 101
mín. Bönnuð innan 16 ára. PJ
Pusher:
Danskur dópsali ★*★*
Frank selur dóp fyrir Milo í Kaupmannahöfh
ásamt besta vini sínum, Tonny. Hann skuldar Milo
50.000 krónur og grípur því tækifærið þegar hann
finnur kaupanda sem er tilbúinn að greiða hátt verð
fyrir heróín. Hann fær efnið lánað hjá Milo en lend-
ir í klónum á lögreglunni og neyðist til að henda öllu
dópinu. Lögreglan sleppir honum vegna skorts á
sönnunargögnum en skuldin við Milo hefur hækkað
upp úr öllu valdi og Frank hefur örvæntingarfullar
tilraunir til að afla peninga og forðast limlestingar
og þaðan af verra af höndum Milo og liðsmanna
hans. Pusher er ekki falleg mynd, síður en svo. Hún er hrá, grimm og
trúverðug lýsing á hörðum heimi dópviðskipta í stórborg. Persónusköp-
unin er skýr og afmörkuð, kannski ofurlitið ýkt, og vinnur á móti raun-
sæinu, þannig að myndin fær meira afþreyingargildi. Kim Bodnia er
frábær í aðalhlutverkinu og sýnir vaxandi örvæntingu Franks vel. Aðr-
ir leikarar standa sig einnig með prýði.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Nicolas Winding Refn. Aðalhlutverk:
Kim Bodnia, Zlatko Buric, Laura Drasbæk, Slavko Labovic og Mads Mikk-
elsen. Dönsk, 1006. Lengd: 105 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
i
PUSHEp
imiyi
FÖSTUDAGUR 20. MARS 1998
Myndbandalisti vikunnar
fi
SÆTI ; J FYRRI{ VIKA ! -- • j VIKUR Á LISTAj j TITILL ! ÚTGEF. j j ■■■ Sfe ! TEG. j j
1 1 J Ný j 1 > i Með fullri reisn 1 Skífan j 1 Gaman j
2 1 J L ) J , i 2 i i Austin Powers j l Háskólabíó j i Gaman )
3 1 3 i 1 ! 3 1 3 j Conspiracy Theory | Warner-myndir j Spenna
i 4 3 i j j 3 J j Romy And Micheles High... j J Sam-myndbönd j j J Gaman J
5 T 4 ! 4 i Bean ! Háskólabíó , Gaman
j 6 ! j j 5 i j j 4 1 j 1 Speed 2 j Skffan | ) j Spenna I
7 j 6 ! 4 j . . i . Addicted To Love 1 J Warner-myndir i J Gaman
8 ! J J 7 ! 5 ! Breakdown i ■ •>- .. -*■ ■ j Sam-myndbönd WBBB&S&am J j Spenna j
9 ! 8 < 1 2 ! 187 1 Skífan j j Spenna
io ! ■ j Ný ! .■,• 'tJ i ! J The Pusher J j Háskólabíó ‘j - a j j Spenna j
ii i 10 ; 8 ! Murder At 1600 \ Warner-myndir j Spenna
j 12 ‘ j 9 ! J j 7 j Grosse Point Blank j < Sam-myndbönd j < Gaman J
13 ! 17 ! 8 ! Men In Black J j Skífan , Gaman
»1 1 14 j j 3 ! 1 Fever Pitch j ! Háskólabíó j . ' ‘ ' . á; . - ■ J w j Gaman J V .
15 j 1 ii ! 6 J 1 Double Team J Skífan J Spenna 1
.S i J 12 j HHn ) 7 ! ...;. ' j The Chamber i , ClC-myndbönd J j Spenna J ‘ rj'
171 13 < 5 ! Marvin‘s Room j Skífan 1 Drama j
is ! i 1S i ■■I ;J 3 ! J Truth or Consequences j J Skífan J J j Spenna J
19 i 19 i 10 j Devil's Own Skífan j Spenna
20 ! ) Ný ! 1 1 ) J Ernest in The Army l 1 Bergvík J < Gaman 1
Pað er ekki oft að kvikmynd sem tilnefnd er til margra ósk-
arsverölauna, meðal annars sem besta kvikmynd, sé kom-
in út á myndbandi hér á landi áöur en óskarsverðlaunahá-
tíðin er yfirstaöin. Sú er nú samt raunin meö The Full
Monty. Hún hefur verið sýnd við miklar vinsældir í nokkra
mánuöi hér á landi og er nú komin út á myndbandi. Að
sjálfsögðu fer hún beint í efsta sæti myndbandalistans og
þar meö ryðja ensku verkamennirnir, sem reyna fyrir sér
sem fatafellur, kyntáknunum Mel Gibson og Juliu Roberts
úr fyrsta sætinu. Á myndinni má sjá hinn kostulega hóp
æfa nektardansinn. Vert er að minnast á eina aðra nýja
mynd á myndbandalistanum, The Pusher, sem kemur frá
Danmörku og hefur vakiö mikla athygli. -HK
im f an»(itottaianiBB minf
•IUlAfBljItBÍ-
"ItófBBWtT
The Full
Monty
Robert Carlyle og
Tom Wilkinson.
Myndin segir frá
nokkrum atvinnulaus-
um kunningjum í
borginni Sheffield í
Englandi. Þeir hafa
fátt viö að vera i at-
vinnuleysinu en dag
einn kemur til borgar-
innar Chippendale-
dansflokkurinn og
skemmtir fyrir fullu
húsi fagnandi kvenna.
í framhaldi af því fær
einn kunningjanna þá
flugu i höfuðið að þeir
félagamir stofni dans-
flokk. Það versta er að
enginn þeirra kump-
ána kann að dansa svo
vel sé. Einn þeirra er
að nálgast fimmtugt,
annar er allt of feifur
og sá þriðji er þung-
lyndur og svo framveg-
is.
Conspiracy
Theory
Mel Gibson og Julia
Roberts.
Jerry Fletcher,
leigubílstjóri í New
York, er með samsæri
á heilanum. í hans
augum er allt fyrir-
fram skipulagt og
hvert sem hann lítur
sér hann ekkert nema
djöfullegar ráðagerðir.
Alice Sutton er sak-
sóknari sem Jerry leit-
ar til með samsæris-
kenningar sínar. Hún
hefur ekki mikla trú á
því sem hann segir en
hefur samt sinar grun-
semdir um að ekki sé
allt vitleysa. Þegar
kemur í Ijós að ein af
kenningum Jerrys
reynist sönn fær hún
áhuga á máli hans og
saman leggja þau upp í
ferðalag til að leita að
sannleikanum.
Austin
Powers...
Mike Myers og
Elizabeth Hurley.
Austin Powers er
einn af bestu njósnur-
um hennar hátignar.
Um árabil hefur hann
gegnt erfiðustu og
flóknustu verkefnum
sem njósnurum eru fal-
in en samt aldrei tekist
að hafa hendur í hári
erkióvinarins, herra
nis. Dag einn eftir að
banatilræði við Austin
fer úrskeiðis leggur ni-
ur á úótta, djúpfrystur í
eldúaug eitthvað út í
geiminn. Þar sem
Austin er sá eini sem
getur ráðið við Elan er
hann einnig frystur tU
að vera viðbúinn þegar
lUur kemur aftur. Sá
tími kemur 30 árum síð-
ar.
MSmmiL
Romy amd
Michelles...
Mira Sorvino og
Lisa Kudrow.
Þegar Romy og
Michele fá boð um að
taka þátt í tíu ára út-
skriftarafmæli bekkj-
arins síns fara þær að
líta yfir farinn veg og
komast að því að það
er nákvæmlega ekkert
sem gerst hefur í lífi
þeirra. Þetta finnst
þeim ómögulegt. Þær
ákveða því að plata
bekicinn og látast vera
ríkar og vel metnar
viðskiptakonur sem
hafi hagnast gríðar-
lega á uppfmningum
sínum. Allt virðist
ætla að ganga upp þeg-
ar Heather mætir á
svæðið en hún veit aUt
um þær.
Bean
Rowan Atkinson
og Burt Reynolds.
Hinn auðugi
Newton ákveður að
gefa Grierson-lista-
safninu í Kalifomíu 50
milljónir dollara til að
festa kaup á einu fræg-
asta málverki banda-
rískrar listasögu, Móð-
ur flautarans, og flytja
það aftur „heim“. Þeir
bjóða stjórn Þjóðlista-
safnsins í Englandi að
senda sinn besta mann
með verkinu án þess
að vita að Þjóðlista-
safnið hefur um nokk-
urt skeið reynt allt
sem hægt er til að
losna við einn starfs-
mann sinn, Bean. Þeir
sjá sér leik á borði og
senda herra Bean með
verkiö og að sjálfsögðu
setur hann allt á ann-
an endann i Kalifom-
íu.