Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1998, Page 20
32
FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998
íþróttir unglinga
Umsjón
íris B. Eysteinsdóttir
Frömurum boðið
á alþjóðlegt mót
Knattspyrnumenn
til Svíþjóðar
Þremur ungum og efnilegum
knattspymumönnum af Suður-
nesjum hefur verið boðið til Svíþjóðar
til æfinga. Jón Pétur Róbertsson,
yfirþjálfari yngri flokka Keflavíkur,
stendur fyrir utanfór piltanna.
Heiðar Ingi Aðalgeirsson úr
Grindvík og Edvin Jónsson úr Víði í
Garði eru á leið til Örgryte í boði
Svíanna til að æfa við bestu aðstæður
í eina viku. Ásmundur Waltersson,
einnig úr Víði í Garði, fer að æfa með
IF-Elfsborg í eina viku í boði
félagsms.
Þessir leikmenn eru allir í
æfingahóp landsliðs skipað
leikmönnum 16 ára og yngri sem
tekur þátt í Norðurlandamóti hér á
landi í sumar.
Nýjasta dæmið er Amar Viðarsson
sem nú spilar með Genk. Hann var
í skólanum fyrir nokkrum árum og
vakti mikla athygli. Hann hefúr í
framhaldi af því komist að sem at-
vinnumaður í Belgíu.
Drengirir búa lengi að reynslunni
sem þeir öðlast í skólanum. „Þetta
breytir svolítið hugmyndum sem
þeir hafa um fótbolta og þeir eru til-
búnir að ná lengra sem knatt-
spymumenn eftir að hafa verið
þama og kynnst þessu sem þama er
í boði og þetta eykur metnað og
vilja til að ná lengra.“
Knattspymuskólar af þessu tagi
stuðla að bættri knattspyrnu á
íslandi og því er það frábært tæki-
færi fyrir unglinga að komast á
svona námskeið.
Reykjavíkurmeisturum Fram í
knattspymu hefur verið boðið á
sterkt alþjóðlegt mót sem haldið er í
Norður írlandi 20.-25. júlí. Lið eins
og landslið Chile, Manchester
United og Norður-írlands verða and-
stæðingar Framara.
„Þeir sjá hrot af þvi besta í heim-
inum,“ sagði Hörður Hilmarsson,
framkvæmdastjóri ÍT-ferða, en
hann hafði samband við Framara
eftir að aðstandendur mótsins höfðu
sett sig í samband við hann. Allir
sem starfa við mótið em fyrrver-
andi góðir atvinnumenn og hafa því
mikla reynslu í knattspymuheimin-
um. Leikmenn sem hafa tekið þátt
í þessu móti em til dæmis Lee Cl-
ark, Nick Bamaby, Ryan Giggs og
fleiri.
Þetta er frábært tækifæri fyrir
drengina að sanna sig á alþjóðavett-
vangi og þjálfa og keppa við aðstæð-
ur eins og þær gerast bestar.
„Við ákváðum að fara á mót í Ed-
inburg, 8-liða mót. Okkur barst boð
frá Milk cup, sem er sterkasta mót í
Evrópu, og við þáðum það því þetta
var hreint boð, okkur að kostnaðar-
lausu. Það skerpir hópinn ennþá
hetur," sagði Láms Grétarsson,
þjálfari Fram.
„Það á að vera mikið af njósnur-
um frá liðum í Evrópu. Ef einhvers
staðar er góður stökkpallur em það
þessi tvö mót,“ sagði Láms sem er
vongóður að piltamir hans standi
sig vel á mótinu.
Efri röð frá vinstri: Kristján Bernburg, Finnur, HK, Magnús, ÍBV, Skúli, Þrótti, Neskaupstaö, Sindri, ÍBV, Pétur, FH, Víöir, FH, Davíö, FH, Sævar, FH, og Rik
Van Cauteren þjalfari. Fremri röð frá vinstri: Einar, Þrótti, Neskaupstaö, Smári, ÍBV, Brynjar, HK, Víöir, ÍBV, Atli, FH, Róbert, FH og Kári, FH.
Æft við aðstæður atvinnumanna:
Frábært tækifæri
- knattspyrnuskóli Kristjáns Bernburg í Belgíu
Reykjavíkurmótiö í knattspyrnu:
Lífsglatt lið
Stúlkur úr þriðja flokki KR urðu
Reykjavíkurmeistarar i knatt-
spyrnu eftir að hafa
skorað 22 mörk en feng-
ið aðeins á sig tvö.
Elfa Björk Her-
mannsdóttir er fyrirliði
stúlknanna og hún var
ánægð með sigurinn.
„Þetta er lífsglatt lið og
félagsandinn í liðinu er
góður og við leggjumst
allar á eitt og vinnum
og berjumst alveg á
fullu allan tímann."
Hópurinn er búinn að
æfa lengi saman og það
em um 17 stúlkur sem mæta fast á
æfingar. Elfa spilar framherja og
skoraði þrjú mörk í mótinu.
KR-stúlkumar unnu fimm leiki í
mótinu en töpuðu
engum.
Elfa stefnir að
því að standa sig
vel í sumar og
halda áfram aö
berjast. Hún sagði
að það yrði gaman
að komast i
landsliðið en fyrst
og fremst hugsar
hún um KR.
„Markmiðið er að
verða íslandsmeist-
ari og vinna allt
sem eftir er,“ sagði hún glaðbeitt
við DV.
Efri röö frá vinstri: Hrund Jónsdóttlr,
Tinna Hauksdóttir, Tinna Helgadóttir,
Berglind Gunnarsdóttlr, Valgeröur
Benediktsdóttir, Hildur Baldursdóttir,
Þórunn Oddný Steinsdóttir, Berglind
Ólöf Sigurvinsdóttir, Sólveig Þórarins-
dóttir, Katrín Halldórsdóttir. Fremri röö
frá vinstri: Anna Jónsdóttir, Þórunn
Jónsdóttir, Unnur Kjartansdóttir, Elfa
Hermannsdóttir, Anna Ú. Guömunds-
dóttir, Bjarney Gunnarsdóttir, Sæ-
munda Fjeldsted Sæmundudóttir, Sig-
rún Eyjólfsdóttir og Hildur Kristjáns-
dóttir.
„Mikil vinna"
„Góður hópur og mikil vinna
skópu þennan sigur,“ sagði Láms
Grétarsson, þjálfari drengjanna, eft-
ir mótið. „Eftir á að hyggja þá vor-
um við bara besta liðið þegar á
reyndi. Strákarnir eru ekki nógu
stöðugir en það er bara meö þennan
aldur, þeir em skapmiklir."
„Það tók langan tíma að stilla
þetta liö saman og við erum ennþá
að stilla það saman. Ég er ánægður
með sumt en svo er maður alltaf að
fmna nýja galla því þetta eru strák-
ar úr mörgum félögum og við emm
að móta þetta í Fram-fótbolta og
bara það sem hentar þessum hópi
aðallega." sagöi Láms.
„Við ætlum okkur sigur í íslands-
mótinu, það er engin spurning. Við
fómm í alla leiki til að vinna, það er
okkar mottó og við emm gífurlega
óánægðir með að tapa.“
Efri röö frá vinstri: Gunnlaugur Þorgeirsson, Teitur Ingvarsson, Ragnar Ingi
Gunnarsson, Kristján Páll Pálsson, Magnús Edvardsson, Guöiaugur
Hannesson, Ingi Hrafn Guðmundsson, Andri Fannar Ottósson og Lárus
Grétarsson. Fremri röö frá vinstri: Björn Steinar Pétursson, Andri Steinn
Birgisson, Eyþór Bragi Einarsson, Úifar Freyr Jóhannsson, Lárus
Sigurðsson, Albert Ásvaldsson, Arnar Haröarson, Skarphéðinn Njálsson.
Reykjavíkurmeistarar 3. flokks:
Góður liðsandi
Knattspymuskóli Kristjáns Bem-
burg heftu verið starfræktur í niu
ár i Lokeren, Belgíu. Knattspymu-
skólinn starfar einu sinni á vori og
hafa unglingar frá íslandi tækifæri
til að dvelja þar í eina viku við þjálf-
un og fræðslu. í ár vom 15 íslensk-
ir leikmenn frá fiórum félögum í
skólanum. Þórir Bergsson, ung-
lingaþjálfari HK, fór þangað í maí
ásamt drengjunum. „Ég held bara
eftir að hafa farið víða og á mörg
námskeið að þetta sé mjög gott. Ég
fór sem þjálfari til þess að læra og
þetta mun nýtast mér mjög vel. Ég
fékk þama alveg hafsjó af bæði góð-
um æfingum og hugmyndum,"
sagði Þórir.
„Það virkar mjög vel fyrir efiii-
-* lega stráka að kynnast knattspyrau-
æfingum erlendis við aðrar aðstæð-
ur og fá svona smjörþefinn af at-
vinnumennsku. Ég veit dæmi þess
að eftir svona ferðir hafa leikmenn
tekið knattspymuna fastari tökum
og náð mjög góðum árangri og jafn-
vel farið alla leið,“ sagði Þórir.
Þjálfarinn sem starfar við skól-
ann heitir Rik Van Cauteren og hef-
ur hann hlotið æðstu gráðu við kon-
unglega belgíska knattspymuþjálf-
araskólann ásamt því að vera fyrr-
verandi atvinnumaður með
Lokeren. „Rik veit hvað hann er aö
gera. Hann hefur gott lag á strákun-
um og sér um aö þeir geri hlutina
og nái því besta fram og fylgir þvi
fast eftir,“ sagði Þórir.
Strákamir höfðu nóg að gera
meðan þeir vom í Lokeren. „Það
vora góðar æfingar og vel fyrir
strákana gert og sífellt verið að
hugsa um að þeir hefðu eitthvað fýr-
ir stafni. í frítíma fyrir utan æfing-
ar var farið til dæmis í go-kart,
vatnaland og fleira," sagði Þórir.
íslensku strákamir kepptu æf-
ingaleik á móti Lokeren og stóðu sig
mjög vel en töpuðu, 6-4.
Hópurinn sem fór í ár var mjög
blandaður, allt frá íslandsmeistur-
um til byrjenda. „Þrátt fyrir að
hópurinn væri misjafn að getu
blandaðist hann mjög vel saman og
þetta var eins og eitt lið,“ sagði Þór-
ir. Framfarir vom sjáanlegar sam-
stundist, bæði getulega og andlega
séð, á strákunum. Ég segi fyrir mitt
leyti að ég lærði mjög mikið, ekki
síður í samtölum við reynda þjálf-
ara, skiptast á skoðunum og fleira.
Ég mæli með þessu.“
Nokkrir íslenskir atvinnumenn
fóm í þennan skóla sem unglingar.
Framarar urðu á dög-
unum Reykjavíkur-
meistarar í 3. flokki
karla í knattspyrnu.
Albert Ásvaldsson er
fyrirliði strákanna.
Hann er búinn að vera í
Fram síðan í 6. flokki.
Hann var ánægður með
sigurinn í Reykjavíkur-
mótinu. „Það er alltaf
góðm- mannskapur og
góð þjálfun héma hjá Fram og góð-
ur andi í liðinu alltaf.
Þetta er bæði mjög
góðir einstaklingar og
heildin rosalega góð.“
Albert stefnir á at-
vinnumennsku í
framtíðinni. Sem
stendur er hann að
æfa með landsliði 16
ára og yngri. Hann
hefur háleit markmið
fyrir sumarið. „Þaðer
að taka alla titlana í sumar.“
J