Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1998, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1998, Page 28
FRETTASKOTID SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá t síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FOSTUDAGUR 19. JUNI 1998 Litla-Hraun: Tvítugur fangi svipti sig lífi Rúmlega tvítugur fangi framdi fcsjálfsvíg í fangelsinu að Litla- Hrauni í fyrrinótt. Fangaverðir komu að fanganum í klefa sínum en hann var þá látinn. Þetta fékkst staðfest hjá Fangels- isstofnun í gær. Þetta er þriðja sjálfsvígið í fangelsinu á þessu ári. Tveir fangar styttu sér aldur í mars. sl. „Við reynum að sjálfsgöðu að fylgjast með eftir bestu getu. Við vit- um að þarna inni eru menn sem eiga við sálræn og félagsleg vanda- mál að stríða. Við getum hins vegar ekki haft eftirlit með því hvað gerist í klefa fanganna eftir innilokun á nóttinni. Við munum fara mjög ná- kvæmlega yflr þetta atvik, m.a. með heilbrigðisyfirvöldum. Það verður ' rætt almennt hvað sé hægt að gera og hvort eitthvað sé hægt að gera til að svona atburðir endurtaki sig ekki,“ segir Þorsteinn A. Jónsson, forstjóri fangelsismálastofnunar, að- spurður um málið. -RR Helgarblað DV: Síkátir söngbræður í helgarblaði DV á morgun er tekið hús á söngbræðrunum síkátu frá Álftagerði í Skagafírði, þeim Sig- fúsi, Pétri, Gísla og Óskari Péturs- sonum, sem eru álíka mikið bókaðir og helstu rokkarar landsins. Rætt er við þá um sönginn, uppeldið og ýmislegt fleira skemmtilegt. Viðtal er við Vöndu Sigurgeirs- dóttur, þjálfara kvennalandsliðsins í knattspyrnu, birtar svipmyndir af þjóðhátíðarhöldum í Reykjavík, rætt við Hildi Sverrisdóttur hjá Jafningjafræðslunni og í erlendu fréttaljósi er ijallað um mikla spill- f.ingu í tengslum við miðasölu á HM í Frakklandi. -bjb/sm Geimferðum lýst rsí'víyíisígísSícy,:!:: v irnmTTittfrTmri11T“' nfir Maður um sextugt var á biðlista eftir aðgerð í eitt og hálft ár: Fékk blóðtappa og missti fótinn Karlmaður um sextugt var í mikilli lífshættu þegar hann fékk blóðtappa í vinstri fót. Maðurinn missti fótinn fyrir ofan hné. Mað- urinn hafði verið á biðlista eftir aðgerð í eitt og hálft ár. Atvikið átti sér stað skammt fyr- ir utan Akranes fyrir tæpum þremur vikum. Maðurinn var á gangi ásamt eiginkonu sinni. Hann fékk blóðtappa í vinstri fót og hneig niður. Maðurinn lá hjálp- arvana á meðan kona hans sótti hjálp í bæinn. Sjúkrabíll flutti manninn tU Reykjavikur þar sem hann var lagður inn á Landspítal- ann. Maðurinn var mjög hætt kominn. Hann fór í 7 klukku- stunda aðgerð á Landspítalann þar sem læknar reyndu að bjarga fæt- inum. Það tókst ekki. Fóturinn var tekinn af fyrir ofan hné. Maðurinn fór i rannsókn á Akranesi í janúar 1997. Þá greind- ist hann með æðagúlpa á báðum fótum. Æðagúlpar auka verulega líkurnar á blóðtappa. í framhaldi af því var hann var sendur til læknis í Reykjavík. Þá þótti ljóst að hann þyrfti að fara í aðgerð til að láta fjarlægja æðagúlpanna og koma í veg fyrir hugsanlegan blóð- tappa. Maðurinn komst hins vegar ekki að í eitt og hálft ár. Hann var á biðlista allan þann tíma. Aðilar innan heilbrigðiskerfisins, sem DV ræddi við og þekkja til máls- ins, telja að ef maðurinn hefði komist í aðgerð á þessu eina og hálfa ári hefði hann ekki misst fót- inn. -RR Hagkaup til sölu „Það er eitt hvað ég veit um þetta mál og annað hvað ég get og vil segja þér,“ sagði Óskar Magnússon, forstjóri Hagkaups hf., þegar DV spurði hann hvort hann vissi eitt- hvað um yflrvofandi sölu á hluta- bréfum í fyrirtækinu. Samkvæmt heimildum DV mun Fjárfestingar- banki atvinnulífsins hafa keypt hlutabréf Hagkaups en framselt þau tH þriðja aðHa. Það mun hafa verið skilyrði fyrir kaupunum að Hag- kaup og Bónus. verði selt sem ein heHd en Bónusverslanimar verða áfram starfræktar í núverandi mynd. -kjart Veðrið á morgun: Hlýjast suð- vestanlands A morgun verður norðaustan- gola eða kaldi norðaustan tU. Dá- lftil súld eða rigning verður með köflum, einkum norðan- og aust- an tU. Hiti verður á bUinu 5 tU 16 stig, hlýjast suðvestanlands. Veðrið í dag er á bls. 37 Sigurðarmálið: I Reyndist okkur dýrt / / segir Audun Marák DY Osló: „Þetta mál hefur reynst okkur dýrt. Það eru auðvitað bara vanga- veltur mínar en Sigurðarmálið átti sinn þátt í að loðnusamningnum miUi íslands og Noregs var sagt upp og við urðum að sætta okkur við mun verri samning i vor,“ sagði Audun Marák, formaður Landssambands út- vegsmanna í Noregi, við DV. Hann sagði að nú væri skaðinn skeður en sýkna útgerðar og skip- stjóra Sigurðar VE gæti orðið tU að bæta sambúð landanna í framtíð- inni. Hann sagðist einnig vona að norska strandgæslan lærði af þessu í framkomu við norska báta. „Ég sagði þegar Sigurðarmálið kom upp að það væri eins gott að strandgæslan vissi hvað hún væri að gera með töku bátsins. Svo reynd- ist ekki vera. Og við urðum að taka aUeiðingunum ,“ sagði Marák. -GK „Möguleikar sem geimferðir gefa vfsindum og rannsóknum á jörðinni miklir,“ sagði Bjarni Tryggvason geimfari í fyr- irlestri sem hann hélt fyrir almenning á Hótel Loftleiðum í gær. Fjölmargir mættu á fyrirlesturinn sem Þjóðræknisfé- iag ísiands stóð fyrir. Fólk spurði Bjarna m.a. um líf úti í geimnum og sagðist Bjarni ekki sjá neitt sem mælti gegn lífi þar. DV-mynd Teitur Mjólkin ódýr DV gerði verðkönnun á mjólk í morgun i fjórum stórmörkuðum. í Hagkaupi í Skeifunni kostar mjólkurlítrinn 70 kr. Fjarðarkaup býður mjólkurpott einnig á 70 kr. og sömu sögu er að segja um Nóatún í Mosfellsbæ. Bónus í Faxafeni býður mjólkina á 68 kr. Það er samdóma álit verslunar- manna að verðstríðið sé að róast og verð fari að færast nær hinu eðli- lega. -sf Atta lömb drepin Hundur drap að minnsta kosti 8 lömb og særði fleiri við bæinn Eystra-Fróðholt í Rangárvalla- hreppi sl. þriðjudag. Grunur lög- reglu beinist að hundi af græn- lensku hundasleðakyni. Eigandi fjárins hefur kært eiganda hundsins vegna drápanna. -RR Opel Vectra / B -stilhreinn og fágaður f a í Bílheimar ehf 5. 525 9000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.