Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1998, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 25. JÚNl 1998
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Sjúkrahúsin sniðganga útboðsreglur:
Milljónir í vaskinn
- gerviliðir og ómtæki ekki boðin út
Rlkisspítalar hafa ekki boðið út
gerviliði sem keyptir hafa verið til
spítalanna undanfarin fjögur ár,
þrátt fyrir að slíkt sé boðið í lög-
um. í reglugerð sem tekur til allra
innkaupa á vegum ríkisins segir
að öll vörukaup og aðkeypta þjón-
ustu yfír 3 mUljónir króna og fram-
kvæmdir yfir 5 miljónir skuli
bjóða út innanlands. Sérreglur
gilda um útboð á Evrópska efn-
hagssvæðinu en þar ber að bjóða
út vörur og þjónustu yfir 10 millj-
ónir króna. Samkvæmt upplýsing-
um frá Sjúkrahúsi Reykjavíkur og
Landspítalanum má gera ráð fyrir
að kostnaður vegna kaupa á gervi-
liðum imdanfarin fjögur ár sé um
100 milljónir króna. Þessir liðir
hafa hins vegar aldrei verið boðnir
út.
Nýlega keypti Landspítalinn
einnig hugbúnað í hljóðbylgjutæki
fyrir 12,692 milljónir. Ekkert var
boðið út af þeim hugbúnaði.
Ekki sparaö í sparnaöartíö
Mörgum þykir það skjóta
skökku við að Ríkisspitalar skuli
ekki leita hagkvæmustu tilboða í
vörukaupum á tímum samdráttar
og spamaðar í rekstri heilbrigðis-
kerfisins. Ríkiskaup annast inn-
kaup spítalanna þar sem þeir eru
reknir fyrir reikning ríkissjóðs. Að
sögn Júlíusar Ólafssonar, forstjóra
stofnunarinanr, hefur verið gerð
tilraun til að bjóða út gerviliði á
vegum spitalanna: „Við reyndum
að bjóða gerviliðina út fyrir fjórum
árum en það tókst ekki. Spítalam-
ir komu sér ekki saman um hvaða
tegundir ætti að kaupa og læknar
vom ekki sammála um hvaða teg-
undir væra bestar. Það var því
hætt við að bjóða liðina út og það
hefur ekki verið gert,“ sagði Júl-
íus.
Aðspurður um hugbúnaðinn
sem Landspítalinn keypti sagði
Júlíus að þar hefði að nokkra leyti
verið um uppfærslu á eldra tæki
að ræða sem erfitt væri að fá frá
öðra fyrirtæki. „Ég get hins vegar
ekki svarað því hvort það hafi ver-
ið mögulegt að fá þetta annars
staðar frá,“ sagði Júlíus. Varðandi
þá þætti kaupanna sem ekki
snertu uppfærslu og samsvara um
4 milljónum króna sagðist Júlíus
ekki geta svarað því hvort ein-
hveijir aðrir valkostir væra í stöð-
unni þannig að hægt væri standa
fyrir útboði. -kjart
Úrskurður kærunefndar jafnréttismála:
Hampiðjan fór ekki
eftir jafnréttislögum
- starfsmenn eiga að vita um launamismun hver annars
Kærunefnd jafnréttismála hefur
fellt þann úrskurð að Hampiðjan
hf. hafi ekki með starfsmanna-
stefnu sinni tryggt konum sömu
möguleika og körlum til stöðu-
hækkana og stöðubreytinga innan
fyrirtækisins. Fyrirtækinu er gert
að taka upp skýra og gagnsæja
launastefnu til þess að þessu
markmiði verði náð. Úrskurður-
inn hefur í för með sér að fyrir-
tæki þurfa almennt að gera launa-
og starfsmannamál sín skýrari en
nú er.
Forsaga málsins er sú að 10 kon-
ur kærðu Hampiðjuna fyrir það að
þeim var ekki gert kleift að vinna
við stærri vélar í kaðladeild fyrir-
tækisins. Aðeins karlar fengu að
vinna við umræddar vélar og
leiddi þetta til launamismunar
Björguðu
andar-
ungum
Þessar stúlkur sjást hér
ásamt litlum andarungum
sem uröu á vegi þeirra viö
Selaskóla á dögunum.
Andamamman var horfin
og eftir voru munaöarlaus-
ir ungarnir er stúlkurnar
komu þeim til hjálpar.
Starfsmenn Húsdýragarös-
ins komu svo á staöinn og
færöu ungana til nýrra for-
eldra viö Rauöavatn. Stúlk-
arnar heita f.v. Thelma
Lind Jónasdóttir, Laufey
Jónasdóttir og Guölaug
Jónsdóttir. -hb
milli þeirra og kvennanna
þrátt fyrir að störfin væra í
sömu deild.
Leiö eins og ég væri
verkfæri
„Mér fannst ég vera alger-
lega stöðnuð á kaðladeildinni
og öll sund lokuð fljótlega eft-
ir að ég byrjaði að vinna
þama,“ segir Kolbrún Þóra
Sverrisdóttir, ein kvennanna
sem kærðu. „Það var ekki
hægt að komast neitt áfram
og ég vissi ekkert hvað ég
þurfti að gera til þess.“ Að
sögn Kolbrúnar leitaði hún
eftir upplýsingum innan fyr-
irtækisins og ræddi þessi mál
m.a. við deildarstjóra. „Ég
spurði hann hvað ég gæti
Kolbrún Þóra Sverrisdóttir og 10 samstarfskonur hennar kæröu
Hampiöjuna þar sem þær töldu fyrirtækiö setja konum stólinn
fyrir dyrnar í stööu- og launahækkun. Samkvæmt úrskurði kæru-
nefndar eru fyrirtæki nú skyld til aö hafa skýra og gagnsæja
DV-mynd Teitur
launastefnu.
gert til að komast
áfram í starfinu og fá
launahækkun. Mér
fannst alltaf mjög
óþægilegt að ræða við
hann. Hann gaf mér
aldrei nein svör og
brást reiður við þegar
ég leitaði eftir skýring-
um á því hvers vegna
aldrei höfðu verið
haldnir neinir vinnu-
staðafundir. Hann
benti m.a. á að enginn
hefði mætt á vinnu-
staðafundi þegar þeir
voru haldnir fyrir tíu
áram. Ástæðuna fyrir
því vissu allir. Vinnu-
staðafundir
voru alltaf
boðaðir eftir
vinnu og þá
vildi fólk nátt-
úrlega fremur
fara heim.“
Kolbrún starf-
aði hjá Hamp-
iðjunni í fjög-
ur ár þangað
til í fyrra að
hún hætti
störfum og
kærði fyrir-
tækið. „Undir
lokin var mér
farið að líða
eins og ég
væri bara eitt-
hvert verk-
færi þama, í besta falli þræll,
þannig að ég hætti. Upphaflega ætl-
aði ég að kæra ein míns liðs. Ég
spurði nokkra vinnufélaga mína
hvort þær vildu standa með mér og
þær kærðu einnig. Alls vorum við
10,“ segir Kolbrún.
Kæran var síðan lögð inn til jafn-
réttisráðs í ágúst í fyrra. Að sögn
Kolbrúnar fengu þær upplýsingar
um launamismuninn fyrir túviljun.
Ein kvennanna frétti það hjá sam-
starfsmanni sínum að hann hefði
fengið launahækkun og var mjög
undrandi þar sem hún sjálf hafði
enga hækkun fengið. I kjölfarið var
henni synjað um launahækkun og
hún hætti skömmu síðar.
-Kjart
Leikí'élag Akureyrar:
Leikhúsgestir á
13. þúsundið
DV, Akureyri:
Gestir á sýningum Leikfélags
Akureyrar á síðasta leikári urðu
12.438. Auk sýninga Leikfélagsins voru
þijár gestasýningar í Samkomuhúsinu
og gestir á þeim sýningum urðu á
sjötta hundrað talsins.
Langmest aðsókn varð á
söngleikinn Söngvaseið. Alls urðu
sýningar 39 og gestir 7.241. Sætanýting
á þessar sýningar var með eindæmum
góð eða um 95%. Næstflestir gestir
komu á sýningamar á Hart í bak, sem
var sýnt 25 sinnum á
renniverkstæðinu, en það sáu 3.222
gestir og sætanýting var um 90%. -gk
Umhverfið
ísland er eitt 28 Evrópuríkja,
auk Bandaríkjanna og Kanada,
sem hafa skuldbundið sig til þess
að hætta aö nota blýbensín árið
2005. Samkomulag þess eðlis var
undirritað á alþjóðlegum fundi
umhverfisráðherra í gær.
Fékk styrk
Friðrik Þór
Friðriksson
kvikmynda-
gerðarmaður
fékk nýverið
styrk frá Kvik-
myndasjóði
Evrópu til að
gera myndina
Englar alheimsins. Styrkurinn
nemur um 26 miUj. kr. Ráðgert er
að tökur hefjist í haust. Stöð tvö
sagði frá.
Vantar 300
Samkvæmt nýrri könnun Fé-
lags islenskra hjúkranarfræðinga
vantar tæplega 300 hjúkranar-
fræðinga til starfa á heilbrigðis-
stofnunum landsins. Könnunin
birtist í tímariti hjúkrunarfræð-
inga sem sem út í dag.
Hættumörk
Blóðbirgðir Blóðbankans era
komnar niður fyrir hættumörk.
Af því tilefni era blóðgjafar hvatt-
ir til þess að mæta í bankann og
gefa blóð. Sérstaklega vantar blóð-
gjafa með blóð í 0+ og O-
Ævisaga
Ævisaga
Steingríms
Hermannsson-
ar, fyrrverandi
forsætisráð-
herra, kemur
út í haust.
Dagur B. Egg-
ertsson er höf-
undur sögunnar.
Byggingu frestað
Forsvarsmenn búddista á ís-
landi hafa ákveðið að fresta bygg-
ingu búddahofs hérlendis vegna
efnahagsþrenginga í Taílandi.
Morgunblaðiö sagði frá.
Tökin hert
Allir þeir sem haldið hafa eftir
vörslusköttum og hafa verið
kærðir vegna þessa til ríkislög-
reglustjóra verða ákærðir sam-
kvæmt nýrri vinnureglu embætt-
isins. Það breytir engu þótt menn
séu búnir að greiða skattana.
Stöð tvö sagði frá.
Kalda stríðið
Halldór Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra, sagði að kalda stríöið
hafi valdið því að Norðurlöndin
hafi bundist sterkari böndum í fé-
lags- og menningarmálum. Bylgj-
an sagði frá.
Verðlaunaður
Páli P. Páls-
syni hljómsveit-
arstjóra vora í
gærkvöld veitt
tónlistarverð-
laun sem kennd
eru viðEmstog
Rosu Dom-
browski. At-
höfnin fór fram í Graz í Austur-
ríki. Morgunblaðið segir frá.
Hertar aðgerðir
Lögreglan ætlar að fjölga lög-
reglumönnum og koma upp
myndavélum i miðbænum. Þetta
er liður í því að koma í veg fyrir
frekari óspektir unginga.
Öryggi í ferjum
Nýjar reglur ESB um öryggi
um borö í farþegaskipum gætu
aukið kostnaö við að reka ferjur
hérlendis.
Flugumferð
Flugmálastjórn hefur borist
fyrirspum um hvort hægt sé að
lenda Boeing 737-200 flugvél á
flugvellinum í Vestmannaeyjum.
Þá hefur verið spurt um hvort
hægt sé að lenda minni þotum.
Hlutafjáraukning
Öll hlutafjáraukning SlF var
seld til forkaupsréttarhafa.
Nafnvirði hennar var 150 millj.
kr.
-JHÞ/ JP