Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1998, Blaðsíða 24
FIMMTUDAGUR 25. JUNI 1998
32 vikmyndir
1978-1998:
Tuttugu ár eru langur tími I kvik-
myndum og því er við hæfi að skoða
feril aðalleikaranna nánar:
John Travolta (1954 -)
Sá eini af aðalleikurum Grease
sem haldið hefur frægð sinni. En
svo var ekki alltaf eins og allir vita.
Travolta varð fyrst vinsæll í sjón-
varpsþáttaröðinni Welcome Back,
Kotter á ABC-stöðinni um miðjan
áttunda áratuginn. Um svipaö leyti
hóf hann kvikmyndaferil sinn og
vakti fyrst verulega athygli í hroll-
vekju Brians De Palma, Carrie
(1976). Ári siðar lék hann svo í einni
frægustu mynd áratugarins, dans-
myndinni Saturday Night Fever
(1977). Eftir leik sinni í henni og svo
Grease ári síðar treysti Travolta sig
í sessi sem ein stærsta stjama
Hollywood. Næstu myndir Travolta,
Urban Cowhoy (1980) og Blow Out
(1981) gáfu til kynna að frægðarsól
leikarans væri tekin að hníga og á
næstu árum gerist fátt merkilegt í
ferli leikarans. Það er ekki fyrr en
með Look Who’s Talking (1989) að
Travolta leikur í kvikmynd sem
nær töluverðum vinsældum en þá
er hann reyndar ekki aðalaðdráttar-
aflið. Það er ekki fyrr en með kvik-
mynd Tarantinos Pulp Fiction
(1994) að Travolta endurheimtir
fyrri vinsældir. Afganginn þekkja
allir.
Olivia Newton-John
(1948-)
Þessi geðþekka enska söngkona,
sem ólst upp í Ástraliu, náði þó
Olivia Newton-John.
nokkmm vinsældum á áttunda ára-
tugnum, s.s. með lögimum If You
Love Me“, Have You Never Been
Mellow?" og Physical" sem varð
vinsælasta lag ársins 1981. Newton-
John hefur að mestu haldið sig frá
kvikmyndaleik en þó má nefna
kvikmyndirnar Xanadu (1980) og
Two of a Kind (1983) en í þeirri síð-
amefndu leikur hún aftur á móti
Travolta. Newton-John hefur átt við
alvarleg veikindi að stríöa undan-
farin ár.
Stockard Channinq
(1944-)
Lítið hefur borið á þessari ágætu
I O P P 2 0
í Bandaríkjunum
- a&sókn dagana 19.-21. Júní. Tekjur í milljónum dollara og heildartekjur -
Ráðgáturnar á
toppinn
The Truman Show hélt efsta sætinu í
tvær vikur en réö ekki viö tvo sum-
arsmelli, The X-Files og nýjustu teikni-
myndina frá Disney, Mulan. Þegar á
heildina er litiö var góö aösókn í kvik-
myndahúsin í Bandaríkjunum um síö-
ustu helgi og er um aö ræöa mestu
aösópk á þriggja daga helgi í sex mánuöi. Þrátt fyrir mjög góöa aösókn á The
X-files eru þaö margir sem spá því aö hún nái ekki 100 milljón dollara mark-
inu og byggja spá sína á því aö gríðarleg aösókn var á föstudeginum, sem
fór síöan snarminnkandi. Ástæöan er sögö sú aö allir höröustu aödáendur
sjónvarpsseriunnar fóru fyrsta daginn og hinn almenni bíógestur haföi ekki
fundiö fýrir sömu spennu viö frumsýningu myndarinnar. Fjölskyldan lét sig
ekki vanta á Mulan og er aösóknin um helgina sú besta á teiknimynd yfir
eina helgi frá því Toy Story var frumsýnd. :-HK
Tekjur Helldartekjur
1. (-) The X-Flles 30.138 30.13
2. (-) Mulan 22.745 22.745
3. (1) The Truman Show 12.418 95.248
4. (2) Slx Days, Seven Nights 10.702 34.367
5. (3) A Perfect Murder 7.382 46.474
6. (4) Can’t Hardly Walt 3.823 16.035
7. (6) Hope Floats 3.266 44.357
8. (5) Godzllla 2.980 129.206
9. (7) Deep Impact 2.685 133.053
10 .(8) The Horse Whlsperer 2.576 63.064
11. (9) Dirty Work 1.712 7.236
12. (-) Hav Plenty 1.102 1.102
13. (10) Tltanlc 1.029 585.584
14. (14) Everest 0.986 20.654
15. (13) 1 Got the Hook-Up 0.460 9.513
16. (11) Bulworth 0.453 24.864
17. (-) Good Wlll Hunting 0.319 137.075
18. (15) The Last Days of Disco 0.310 1.824
19. (-) The Opposite of Sex 0.288 1.192
20. (16) Clty of Angels 0.218 75.494
Jeff Conaway.
Stockard Channing.
leikkonu síðustu 20 árin þrátt fyrir
að hún hafi leikið í fjölmörgum
myndum. Hápunktur kvikmynda-
ferils hennar er án efa óskarsút-
nefningin fyrir leikinn í Six
Degrees of Separation (1990). Hún
heftir öðlast mikla viðurkenningu á
sviði, hlaut meðal annars Tonyverð-
launin 1985 fyrir hlutverk sitt í leik-
riti Peters Nichols, A
Day in the
Death of Joe
Egg. Af
öðrum
mynd-
um
Chann-
ing má
nefna:
Bitter
Moon
(1992), To
Wong Foo,
Thanks for
Everything!
Julie Newmar
(1995), Smoke
(1995), Up Close
and Personal
(1996) og Twilight
(1998).
lék Conaway í gamanþáttaröðinni
Taxi (1978-1981). Hann reyndi fyrir
sér í kvikmyndum um þetta leyti en
náði litlum árangri, m.a. fyrir þá
sök að hann var djúpt sokkinn í
kókaínneyslu. Meðal mynda Cona-
ways frá þessum árum má nefna:
Making of a Male Model og Cover-
girl (1983), Elvira, Mistress of the
Dark og The Dirty Dozen: The Fatal
Mission (1988) svo aðeins örfáar séu
nefndar. Conaway hefur náð vin-
sældum á nýjan leik í sjón-
varpsþáttaseríunni Babylon
5 þar sem hann leikur liðs-
foringjann Zack Allan.
Conaway er þrígifur, en
önnur eiginkona hans,
Rona Newton-John
(1980-1989) er systir Oli-
viu Newton-John. -ge
John Travolta.
Jeff Conaway
(1950-)
Conway hafði
leikið ýmis
smáhlutverk
áður en
hann
tókst á
við Ken-
ickie í
Grease.
Vinsældir
myndarinn-
ar tryggðu
honum feril
í sjónvarpi
en um
þriggja
ára
skeið
Dansmolar
Stjörnumar úr Grease léku í
öðrum dans- og söngvamynd-
um. Hér koma þijár af þeim
þekktustu:
Saturday Night Fever
(1977) ★ ★★Á
Myndin sem gerði John Tra-
volta að stórstjömu. Tony Manero
(Travolta) býr í Brooklyn. Líkt og
félagar hans lifir hann fyrir helg-
amar en þá heldur hann á
skemmtistaðinn Disco 2001. Tony
er aðaltöffari hverfisins. Hann er
besti dansarinn, vinsælastur af
konunum en þrátt fyrir að hann sé
hetja í augum vina sinna er hann
jafn ráðvilltur og þeir. Saturday
Night Fever er mun stærri hluti af
tiðarandanum en Grease og ef
menn viija upplifa diskóárin á nýj-
an leik er þetta myndin. Tónlistin
eftir þá Bee Gees bræöur stendur
enn fyrir sínu. Leikstjóri: John
Badham. Handrit: Norman Wexler.
Aðalhlutverk: John Travolta,
Karen Gomey, Barry Miller, Jos-
eph Cail, Paul Paps og Donna
Pescow.
Staying Alive
(1983)
Þetta framhald Saturday Night
Fever fékk vondar viðtökur og
gerði litið til þess að bjarga ferli
Travolta. Hann er hér enn í hlut-
verki Tonys Maneros og sögusvið-
ið er ekki lengur Brooklyn, heldur
Manhattan sex árum síðar.
Manero vinnur sem þjónn og dans-
kennari en dreymir um að ná
frama sem dansari á stóm atvinnu-
mannasýningunum. Hann er í
fostu sambandi með ungum dans-
ara Jackie (Cynthia Rhodes), en
lætur hana fíakka þegar hann
kynnist Lauru (Finola Hughes),
breskum atvinnudansara. Tony
fær lítið danshlutverk í sýningu
hennar en þegar aöalkarldansar-
inn meiðist tekur Tony við hlut-
verkinu. Sylvester Stallone leik-
stýrði myndinni og skrifaði hand-
ritið ásamt Norman Wexler.
Xanadu
(1980) ★★★
Þetta er eflaust væmnasta dans-
og söngvamynd allra tíma og í
fyrsta sinn sem ég viðurkenni aö
hún sé í svolitlu uppáhaldi hjá mér
(á meira að segja spóluna). í mynd-
inni leikur Olivia Newton-John
grísku gyðjuna Kiru sem fyllir
málarann Sonny Malone (Michael
Beck) og tónlistarmanninn Danny
McGuire (Gene Kelly) svo mikilli
andagift að þeir ákveða að hanna
og reisa diskóhöllina Xanadu sem
er líkust himnariki dansguðanna.
Tónlistin er frá Electric Light
Orchestra og myndinni er leikstýrt
af Robert Greenwald. Handritið er
eftir Richard Christian Danus og
Marc Reid Rube. ge
I/ I/
Háskólabíó - Grease
Aldraðir unglingar
Það er óþarfi að fara nákvæmlega í söguþráðinn á
þessum heimsfræga og sívtnsæla söngleik. Danny
Zuko (John Travolta) og Sandy Olsen (Olivia Newton-
John) hittast í sumarfríinu, hanga á ströndinni og
verða ástfangin. Við sumarlok skilja leiðir en ekki
lengi því að foreldrar (?) Sandy flytja og fyrir tilviljun
hefúr hún nám í skóla Dannys. Endurfundimir er þó
ekki eins sætir og ætla mætti. Danny er óforbetran-
legur töffari og í hópi felaga sinna er hann allt annar
maður en þegar hann hitti hina saklausu og dyggðum
prýddu Sandy á ströndinni.
Ég sá Grease í þriðja sinn nú um helgina og var ekki
eins hrifinn og áður. Ég sá hana fyrst þegar hún var
frumsýnd 1978 og síðar á myndbandi. Fyrir 20 árum
var ég unglingur, en nú er ég enn ekki búinn að ná
þeim aldri sem elsti „unglingur" myndarinnar var á
þegar hún lék í henni. Stockard Channing var 34 ára
gömul þegar hún tók að sér hlutverk Rizzo. Aðrir
unglingar myndarinnar eru á svipuðum aldri. Olivia
Newton-John er þrítug Sandy Olsen og Jeff Conaway
28 ára Kenickie. Að mínu mati eru flestir leikaramir
einfaldlega of gamlir, þreyttir og lífsreyndir. Þá skort-
ir kraftinn sem unglingar hafa og em því langt frá
því að vera sannfærandi í hlutverkum sinum. Tra-
volta er eini leikarinn sem skilar sínu hlutverki
100% og er alltaf sannfærandi.
Oft hafði ég á tilfmningunni að það eina sem bjargaði
þessu 20 ára aftnæli Grease væri að hún hefði með
árunum tekiö á sig „kamp“-ímynd Rocky Horror Pict-
ure Show. Þannig gengur hún upp fyrir mér. Að
þessu sögðu má síðan bæta við að lögin standa enn
fýrir sínu og dansatriðin em skemmtileg. Þetta er
„klassískur" söngleikur, en fremur vond kvikmynd.
Leikstjóri: Randal Kleiser. Aöalhlutverk: John Tra-
volta, Olivia Newton-John, Stockard Channing og Jeff
Conaway. Guðni Elísson