Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1998, Blaðsíða 17
16
íþróttir
Frakkinn Bernard Diomede í baráttu viö Danann Jan Heintze í leik þjóöanna
á HM í gær. Frakkar unnu riöilinn og mæta Paraguay í 16-liöa úrslitum
keppninnar. Símamynd Reuter
„Dýrmæt reynsla
sem nýtist okkur“
- S-Afríkumenn og Sádar farnir heim
Suður-Afríka og Sádi-Arabía luku
keppni á heimsmeistaramótinu í
gær en þjóðimar áttust við innbyrð-
is í lokaleiknum. Leiknum lauk með
jafntefli, 2-2, en hann var fjörugur á
köflum. Suður-Afríka átti mögu-
leika á að komast áfram með góðum
sigri á Sádunum en þá hefðu úrslit
í leik Frakka og Dana þurft að vera
þeim hagstæð.
Þetta var í fyrsta skipti sem Suð-
ur-Afríkumenn komast í úrslita-
keppnina og sagði þjálfari liðsins að
þátttakan í keppninni myndi nýtast
liðinu i framtíðinni og koma knatt-
spyrnunni á enn hærri stall heima
fyrir.
Höldum vinnunni áfram
„Þegar heim verður komið mun-
um við setjast niður og skoða dæm-
ið í heild sinni. Þetta var stórkost-
leg reynsla fyrir okkur alla. Við
náðum í tvö stig sem er ekki svo
slæmt í fyrstu keppninni. Nú er
bara að halda vinnunni áfram og
gera enn betur næst,“ sagði Phil-
ippe Troussier, þjálfari S-Afríku,
eftir leikinn í gær.
-JKS
Frakkar unnu alla leikina í riðlinum:
„Ég er stoltur og
hamingjusamur“
- Danir mæta Nigeríu í 16-liða úrslitum
Frakkar sýndu mátt sinn og meg-
in þegar þeir lögðu Dani án átaka í
gær, 2-1. Frakkar unnu þar með
alla sína leiki i riðlinum og eru lík-
legir til afreka á heimavelli. Danir
geta líka verið sáttir við unninn
hlut en þeim tókst ætlunarverkið.
Það var að komast í 16-liða úrslit en
þar mæta frændur vorir liði Níger-
íu.
Danir settu vamarleikinn á odd-
inn gegn Frökkum. Þessi taktík
gekk vel en Frakkar voru beittari í
öllum aðgerðum og unnu sanngjarn-
an sigur.
Þjálfari Frakka gat ekki leynt
gleði sinni eftir leikinn og sagðist
vera sáttur við það sem búið væri.
„Við höfum leikið vel í keppninni
fram að þessu og það er mikill
metnaður í liðinu. Það er mín sann-
færing að það búi enn meira í liðinu
en nú hefst alvaran þar sem ekkert
má út af bera,“ sagði Aime Jacquet,
þjáifari Frakka.
Bo Johannsson, þjálfari Dana og
fyrrverandi landsliðsþjálfari íslend-
inga, sagðist aldrei vera ánægður
með ósigur.
„Það var góð barátta í liðinu og
liðið lék ágæta knattspyrnu. Frakk-
ar vom sterkari og það er stórkost-
legt að vera komnir áfram,“ sagði
Johannsson. -JKS
Mohammed Al-Deayea, markvöröur Sádanna, varöi mjög vel á HM I gær.
Sýndi hann oft glæsileg tilþrif gegn Suöur-Afríku, eins og glöggt sést á
myndinni. Símamynd Reuter
PETIT SKORAR FRA VÍTATEIGSLÍNU
FRAKKLAND
Youri Djorkaeff
Emmanuel Petit
(vítaspyrna) 13. mínútu Michael Laudrup
57. mínútu
DANMORK
(vítaspyrna) 42. minútu
WaG-REUTERS
Nígeríumenn bidu sinn stærsta
ósigur í úrslitakeppni HM gegn
Paraguay i gær. í úrslitum HM 1994
tapaði liðið tveimur leikjum með
markatölunni 2-1.
Búlgarar jöfnuðu sinn stærsta
skell í úrslitum HM en þeir töpuðu
í keppninni 1962 i Chile fyrir Ung-
verjum, 6-1, eins og gegn Spáni í
gærkvöldi.
Owen settur í
byrjunarliðiö?
Breskir fjölmiðlar em sam-
stiga i þvi að Glenn Hoddle eigi
að gefa Michael Owen tækifæri í
byrjunarliðinu gegn Kólumbíu á
fostudaginn en sá leikur sker úr
um hvor þjóðin kemst áfram í
16-liða úrslitin. Owen hefur
hleypt miklu lífi í enska liðið
þegar hann hefur komið inn á
sem varamaður og skoraði
markið gegn Rúmenum.
Paul Ince er á batavegi eftir
ökklameiðslin sem hann hlaut í
leiknum gegn Rúmeníu.
Vafasamí er hvort Garteh
Southgate verði orðinn góður
fyrir föstudagsleikinn. -JKS
Allir á Stjjörnuvöllinn!
Fyrsta deild karia
íkvöldkl. 20
íGaröabæ
Stjaman
olís
Skallagrímur
Olis er styrktaraöili Stjörnunnar
Þrír handteknir
fyrir svarta-
markaðsbrask
Lögreglan í Frakklandi hefur
undanfama daga haft spumir af
því að í gangi sé svartamarkaðs-
brask í sölu aðgöngumiða á úr-
slitaleikinn þann 12. júlí.
Heyrst hefur að miðar hafi
fengist fyrir aOt að 100 þúsund
krónur. Lögreglan mun taka hart
á þeim sem verða staðnir að
verki við þessa iðn sem tíðkast
ávaUt á keppnum sem þessum.
í gær voru þrír handteknir
vegna sölu á miðum á bak við
tjöldin á leiki Chile og Kamerún
og Bandaríkjanna og Júgóslavíu.
Einn af þeim var með 15 miða í
fórum sínum. Þeir þóttu sleppa
vel en þeim var gert skylt að
borgá 420 franska franka í sekt.
Erfitt verður að
nálgast sopann
Lögreglan i Lens er við öUu
búin fyrir leik Englendinga og
Kólumbíu sem verður háður í
borginni á föstudagskvöldið.
Ákveðið hefur verið að loka fyr-
ir sölu á áfengi á börum, veit-
ingahúsum og í verslunum frá
klukkan átta á föstudagsmorgni
fram til átta laugardagsmorgun.
Yfirvöld tóku ákvörðun um þetta
í gær til að spoma við ólátum í
tengslum við leikinn. Hátt á ann-
aö þúsund lögreglumenn verða
við gæslu í Lens á leikdag. Búist
er við 20 þúsund Englendingum
og helmingur þeirra er án að-
göngumiða. -JKS
FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998
FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998
25
E>V DV
íþróttir
Spánverjar
niðurbrotnir
- stórleikur gegn Búlgaríu dugði ekki
Spánverjar sitja eftir með sárt
ennið þrátt fyrir stórsigur á Búl-
görum í gærkvöld. Spænska liðið
náði loksins að sýna hvað í því býr
en það kom of seint. Spánverjar
settu traust sitt á Nígeríumenn en
þeir lágu öUum á óvart fyrir
Paragay. Þau úrslit gerðu það að
verkum að Spánverjar gátu pakkað
niður og haldið heim á leið. Þessi
niðurstaða urðu geysileg vonbrigði
fyrir Spánverja sem lögðu aUt í söl-
urnar gegn Búlgörum. Þeir léku þá
sundur og saman og skoruðu aUs
sex mörk.
Spánverjanir féllu í grát
Spænsku leikmennirnir féUu
flestir í grát þegar þeim barst til
eyrna að Paraguay hefði unnið Ni-
geríu. Spænska liðið þótti líklegt
til afreka í keppninni en þær von-
ir brugðust gjörsamlega. Nokkuð
ljóst þykir að nú blasir við upp-
stokkkun hjá Spánverjum.
„Ég er að vonum mjög dapur með
þessa niðurstöðu, en lífið heldur
áfram. Við ætluðum okkur miklu
meira en því miður gekk það ekki
eftir. Það eru nokkrir þættir sem
oUu því að við komumst ekki
áfram og m.a. sat tapið gegn Níger-
íu í mönnum. Það er í raun erfitt
að sætta sig við þetta eftir frábær-
an leik gegn Búlgörum," sagði
Javier Clemente, eftir stærsta sig-
ur liðsins á HM frá upphafi.
Talið er liklegt að spænska sam-
bandið framlengi ekki samning
sinn við Clemente.
Vonbrigði út í gegn
„Þátttaka okkar hér á HM í
Frakklandi er búin að valda mikl-
um vonbrigðum. Undirbúningur
okkar fyrir mótið var ekki nógu
markviss og liðið náði sér aldrei á
strik. Það er mikiU munur á styrk
liðsins hér og í Bandaríkjunum
fyrir fjórum árum,“ sagði Hristo
Bonev.
Hann sagðist í gærkvöldi vera
hættur í starfi landsliðsþjálfara.
-JKS
Afrek Fontaine
- 13 mörk í 6 leikjum
Það mun líklega enginn stíga aftur í þá markaskó, sem
Frakkinn Juste Fontaine komst í á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð
1958. Hann var nánast óþekkt nafn utan Frakklands fyrir mótið og
átti aUs ekki víst sæti í HM-liði Frakklands. En strax frá og með
fyrsta leik small samvinna hans og Raymonds Kopa saman og eftir
það var ekki aftur snúið. Fontaine skoraði 13 mörk í 6 leikjum eða
á þeim 540 mínútum sem hann spilaði. Það gerir mark á 42
mínútna fresti. Hann skoraði 1 fernu, 1 þrennu, 2 tvennur og
tvisvar sinnum eitt mark sem gerir 2,17 mörk að meðaltali í leik.
Enginn haföi náð að skora fleiri mörk i HM hvorki á ferli né í
einni keppni en 16 árum seinna skoraði Gerd MuUer sitt 14. HM-
mark og komst þar með upp fyrir Fontaine. Slæm meiðsli urðu
þess valdandi að Fontaine, sem var 24 ára þegar hann blómstraði
í Svíþjóð, varð að hætta að leika knattspyrnu aðeins 27 ára. Hann
náði því aldrei að spila fleiri HM-leiki en minning hans frá þeim
6 leikjum sem hann spUaði lifir um ókomin ár enda met hans
nánast ómögulegt að slá. Þess má geta að enginn af síðustu 5
markakóngum í HM (1978-94) hefði náð að komast upp fyrir
Fontaine þótt þeir hefðu margfaldað markaskor sitt með tveimur.
Hér tU hægri má sjá úttekt á metinu glæsUega þar sem sjá má
hvernig Frakkinn Fontaine fór að því að slá öUum öðrum
markakóngum í sögu HM við. -ÓÓJ
Celso Ayala kom Paraguay á bragöiö gegn Nígeríu strax á fyrstu mínútu leiksins. Samherjar hans, þeir Hugo Brizuela og Jose
Cardozo, fagna marki hans innilega. Cardozo átti eftir að koma viö sögu þegar hann skoraði þriöja markið og innsiglaöi glæstan
sigur liösins. Símamynd Reuter
Metið sem enginn slær?
- 13 mörk Juste Fontaine í HM í Svíþjóö 1958 -
20 merkisdagar í Svíþjóð 1958
- leikir og mörk Juste Fontaine í keppninni -
Riölakeppnin
8. júní Norrköping viö Paraguay (7-3) 3 mörk
11. júníVateras við Júgóslavíu (2-3) 2 mörk
15. júní Örebro viö Skotland (2-1) 1 mark
mmaœ
8 liöa úrslit
19. júníí Norrköping viö Noröur-Irland (4-0) 2 mörk
Hvemig skoraði Fontaine mörkin
meö vinstri fæti 4
meö hægri fæti 8
meö skalla 1
I fyrstu snertingu 5
eftir 2 til 4 snertingar 6
eftir 5 snertingar eöa fleiri 2
Juste Fontaine
Fæddur: 18. ágúst 1933 í Marokkó
Hæö: 174 sm.
Þyngd: 72 kg.
Landsleikir/Mörk: 21/30
Leikur um 3. sætiö
28. júní\ Gautaborg við Vestur Þýskaland (6-3) 4 mörk
Undanúrslit
24. júní\ Stokkhólmi við Brasilíu (2-5) 1 mark
Næstu menn á lista á eftir Fontaine
Sandor Kocsis Ungverjalandi í Sviss 1954
Gerd Múller Vestur Þýskalandi í Mexíkó 1970
Eusebio Portúgal í Englandi 1966
11
Stoichkov ekki
góð fyrirmynd
Búlgarinn Hristo Stoichkov
vill örugglega gleyma HM í
Frakklandi. Hann náði sér
aldrei á strik og var sífellt með
allt á homum sér. Hann má
muna sinn fifil fegri þvi á HM
fyrir fjórum árum var hann
markahæstur. Um síðustu helgi
framdi hann agabrot þegar
hann laumaði sér á skemmti-
stað í óþökk þjálfarans.
-JKS
6 mörk skoruð
úr vitaspyrnum
Sex vítaspymur voru dæmd-
ar í leikjunum á HM í gær.
Þrjár vítaspyrnur voru dæmd-
ar í leik Frakka og Dana, tvær
í leik Suður-Afríku og Sádi-Ar-
abíu og ein í leik Spánar og
Búlgaríu. Allar vitaspyrnumar
voru nýttar eins og raunar all-
ar þær sem teknar hafa verið á
heimsmeistaramótinu fram að
þessu.
-JKS
Hvenær í leikjunum skoraði Fontaine mörkin
- 7 í fýrri hálfleik, seinni hálfleik 6 -
C*’
& $ & 'é 'é
ítl $ ;# 'é 'é 'é
1-15 16-30 31-45 46-60 61-75 76-90
mín. mín. mín. mín. mín. mín.
Mikill léttir
- Paraguay lagði Nígeríu og komst í 16-liða úrslitin
Frá því að úrslit lágu fyrir í leik
Paraguay og Nígeríu í gærkvöld hefur
ríkt sannkölluð þjóðhátíð í Paraguay.
Fólk þusti út á götur, dansaði og grét af
gleði. Árangur Suður-Amerikuþjóðanna
á HM er eftirtektarverður en þegar hafa
fjórar þjóðir þaðan komist áfram.
Almenningur trúði varla því að knatt-
spymugoð þeirra væm komin í 16-úrslit
keppninnar eftir frábæran sigur á Níger-
íu, 1-3. Paraguay kom mjög á óvart með
beittum en skynsömum leik en Nígería
lék sinn slakasta leik í keppninni til
þessa.
Nokkrir lykilmenn þeirra hvíldu en
liðið var búið að tryggja sér sæti í 16-liða
úrslitunum. Þjálfari liðsins tók einnig þá
ákvörðun að láta ekki þá leikmenn, sem
höföu gul spjöld á bakinu, leika og tók
þannig enga áhættu að missa þá í leik-
bann fyrir mikilvægan leik í 16-liða úr-
slitunum. Alls gerði hann sjö breytingar
á liðinu frá síðasta leik.
Var mjög taugaóstyrkur
„Það var gríðarlega erfitt að sitja á
bekknum en ég var orðinn taugaóstyrk-
ur undir lokin. Við fengum fréttir af
gangi mála hjá Spánverjunum og því var
mikill léttir þegar ljóst var að við höfö-
um tryggt okkur sæti í 16-liða úrslitun-
um. Fyrir okkur var þetta geysilega erf-
iður leikur og við fengum svo sannarlega
færin til að skora enn fleiri mörk. Við
sýndum einnig frábæran vamarleik og á
heildina litið verðskuldum við sigurinn,"
sagði Paolo Cesar Carpeggiani, þjálfari
Paraguay, við fréttamenn eftir leikinn.
Tólf ár eru síðan að Paraguay komst
áfram upp úr riðlakeppninni en það
gerðist á HM í Mexíkó 1986.
Fyrir mestu aö vinna riðilinn
„Við áttum einn leikmann í banni,
þrír vora búnir að vinna sér inn gul
spjöld og tveir eiga við meiðsli að stríða.
Fyrir vikið fengu aðrir tækifæri til að
sýna hvað í þeim býr. Við eigum erfiðan
leik fyrir höndum á sunnudaginn þar
sem við mætum Dönum. Það var fyrir
öllu að vinna riðilinn," sagði Bora
Milutinovic, þjálfari Nígeríu, í leikslok í
gærkvöld.
-JKS
C - RIÐILL
Frakkland-Danmörk 2-1
Lyon, 24. júní.
1-0 Youri Djorkaeff (13.) víti
1- 1 Michael Laudrup (42.) víti
2- 1 Emmanuel Petit (56.)
Lið Frakklands: Barthez
Karembeu, Leboeuf, Desailly,
Candela, Petit (Roghossian 65.),
Viera, Diomende, Pires (Henry 72.),
Djorkaeff, Trezeguet (Guivarc'h 86.).
Lið Danmerkur: Schmeichel -
Rieper, Hogh, Heintze, Laursen
(Colding 46.), Schjonberg, Helveg,
Nielsen, Jorgensen (Sand 55.), M.
Laudrup, B. Laudrup (Tofting 75.)
Dómari: Pierluigi Collina frá Ítalíu.
Ahorfendur: 44.000
S-Afríka-S-Arabía 2-2
Bordeaux, 24. júní.
1-0 Shaun Bartlett (19.)
1-1 Sami Al-Jaber (45.) víti
1- 2 Youssef Al-Thyniyan (73.) víti
2- 2 Shaun Bartlett (90.) víti
Lið Suður-Afriku: Vonk - Fish, Issa,
Jackson (Buckley 46.), Nyathi,
Radebe, Mkhalele, Moshoeu, Fortune
(Khumalo 67.), Bartlett, McCarthy (
Sikhosana 46.).
Lið Sádi-Arabíu: Al-Deayea - Al-
Jahani, Zubramawi, Sulimani, Al-
Owairan, Saleh, Al-Temiyat Amin,
Al-Jaber, Al-Mehallel (Al-Shahrani
65.), Al-Thyniyan (Al-Harbi 81.).
Dómari: Mario Sanchez Yanten frá
Chile.
Áhorfendur: 36.500.
Lokastaðan
Frakkland 3 3 0 0 9-1 9
Danmörk 3 1 1 1 3-3 4
S-Afríka 3 0 2 1 3-6 2
S-Arabía 3 0 1 2 2-7 1
D-RIÐILL
Nígería-Paraguay 1-3
Miðvikudagur 24. júní, Toulouse.
0-1 Celso Ayala (1.)
1-1 Wilson Oruma (10.)
1-2 Miguel Behitez (59.)
1-3 Jose Cardozo (86.)
Lið Nigeriu: Rufai - Eguavoen,
Iroha, Okafor, West, Babangida,
Kanu, Oliseh (Okpara 46.), Oruma
(George 69.), Amokachi.
Lið Paraeuav: Chilavert - Arce,
Gamarra, Ayala, Sarabia, Canisa
(Yegros 55), Paredes, Benitez (Acuna
68.), Encisco, Brizuela (Rojas 78.),
Cardozo.
Dómari: Pirom Un-Prasert, Taílandi.
Áhorfendur: 38.000
Spánn-Búlgaría 6-1
Miðvikudagur 24. júní, Lens.
1- 0 Femando Hierro (6. víti)
2- 0 Luis Enrique (18.)
3- 0 Francisco Morientes (53.)
3- 1 Emil Kostadinov (57.)
4- 1 Francisco Morientes (81.)
5- 1 Kiko (88.)
6- 1 Kiko (90.)
Lið Snánar: Zubizarreta - Alkorta,
Sergi, Agu, Hierro, Amor, Enrique
(Guerrero 77.), Morientes, Alfonso
(Kiko 65.), Etxeberria (Raul 52.).
Lið Búlgariu: Zdravkov - Ivanov,
Kishishev, Yordanov, Ginchev, Bala-
kov (Hristov 60.), Nankov (Penev 29.),
Orimirov, Bachev, Kostadinov,
Stoichkov (Iliev 46.).
Dómari: Mario van der Ende,
Hollandi.
Áhorfendur: 40.000.
Lokastaðan
Nígería 3 2 0 1 5-5 6
Paraguay 3 1 2 0 3-1 5
Spánn 3 1 1 1 8-4 4
Búlgaría 3 0 1 2 1-7 1
16-liða úrslitin:
Laugardagur 27. júní:
Ítalía - Noregur...........14.30
Brasilía - Chile...........19.00
Sunnudagur 28. júní:
Frakkland - Paraguay.......14.30
Nígería - Danmörk..........19.00
Mánudagur 29. júni:
Þýs./Júg./íran-Mex./Bel./Hol. 14.30
Hol./Mex./Bel.-Júg./Þýs./íran 19.00
Þriðjudagur 30. júni:
Rúm./Eng./Kól. - Kró./Arg. . 14.30
Arg./Kró. - Eng./Kól./Rúm. . 19.00
Átta liða úrslitin eru leikin 3. og 4.
júlí, undanúrslitin 7. og 8. júlí, leikið
er um bronsið 11. júli og úrslitaleik-
urinn sjálfur fer fram sunnudaginn
12. júlí.