Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1998, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1998, Blaðsíða 14
Mira Sorvino, sem leikur aðalhlutverkið í Mimic sem Regnbog- inn frumsýnir í dag, er langskólamenntuð og með margar háskóla- gráður en hefur fyrst og fremst leikið heimskar Ijóskur. Gáfaða Mira Sorvino, sem leikur aðal- hlutverkið, Dr. Susan Tyler, í Mim- ic, sem frumsýnd er í Regnbogan- um, er þekktust fyrir að hafa leikið skrækrómuðu klámstjörnuna i kvikmynd Woody Allens, Mighty Aphrodite, og að hafa verið sam- fylgdarkona Quentins Tarantinos í nokkur ár - samband sem nýlega slitnaði upp úr. Fyrir leik sinn í Mighty Aphrodite fékk Sorvino ósk- arsverðlaun sem besta aukaleikkon- an og Golden Globe-verðlaunin. Hlutverk hennar í Mimic er óra- vegu frá hinni einföldu blondínu sem hún lék í Mighty Aphrodite en Susan Tyler er vísindamaður og deildarstjóri við Sögusafn Banda- ríkjanna. Sjálf segist Sorvino hafa leikið gáfaðar konur áður en þær hafa ekki verið eins áberandi og þær heimsku sem hún hefúr leikið. Sjálfsagt stendur Susan Tyler mun nær Miru Sorvino heldm- en blondínumar í Mighty Aphrodite og Romy and Michelle's High School Reunion. Mira Sorvino er langskólamenntuð, með nokkrar eftirsóttar námsgráður að baki. Hún var í háskólanámi við hinn virta Harvard-háskóla og lauk námi með hæstu einkunnum. Þar voru hennar aðalfóg austur-asísk tungu- mál, með kínversku sem sérsvið, og sjálfstæðisbarátta þjóða í þessum heimshluta. í eitt ár bjó hún í Pek- ing þar sem hún skrifaði lokarit- gerð sína um ættflokkaerjur í Kína, ritgerð sem var síðan verðlaunuð í Harvard. „Sjáifsagt hef ég gert það að at- vinnu minni að velja öðruvísi hlut- verk, allavega finnst sumum það, en ég hef alltaf valið hlutverk sem ég tel að komi að góðum notum við að þroska mig í mínu starfi og það að ég er allt í einu komin í svarta Armani-dragt í Mimic og farin að tala tungumál sem fæstar persónur sem ég hef leikið mundu skilja er hluti af þessari þróun." Mira Sorvino á sér sínar fyrir- myndir: „Ég hef alltaf heillast af leikurum sem ganga mjög langt í túlkun sinni og þar hafa karlleikar- ar vinninginn, til dæmist hreifst ég mjög af Marlon Brando í On the Waterfront og Robert De Niro í Rag- ing Bull. Þvi miður eru ekki skrifúð slík hlutverk fýrir konur. Þá hef ég verið með dellu fyrir James Dean og alltaf þegar ég sé hann leika þá hugsa ég með mér að þetta séu hlut- verk sem ég vildi leika. Kannski er ég bara öfundsjúk yfir þeim tæki- færum sem Dean, Brando og De Niro buðust því engin slík tækifæri koma upp í hendumar á mér." Ætlar að taka sér langt frí Mira Sorvino segist hafa unnið stanslaust í fjögur ár og vera búin að fá nóg af vinnu í bili: „í sumar ætla ég að fara í langt frí, hætta að vinna, og það verður ekki hægt að freista mín á neinn hátt, hversu áhugavert sem hlutverkið er. Mér liður nú eins og ég sé útbrunnin og þurfi á endurhleðslu að halda." Miru Sorvino langaði alltaf til að verða leikkona, enda á hún ekki langt aö sækja leikarablóðið því fað- ir hennar er hinn kunni karakter- leikari, Paul Sorvino. Hann var samt ekkert á því að dóttir hans færi sömu braut og hann í lífinu: „Fyrst og fremst var faðir minn mikið á móti því að ég færi að leika sem krakki. Ég fékk tilboð um að leika ungling í sjónvarpsseríu en faðir minn var fljótur að mæla á móti því þótt ég væri æst í að fá að leika. í dag er ég glöð yfir því að hafa átt venjulega æsku. Námið í Harvard veitti mér mikla lífssýn og reynslu og þegar ég lít til baka sé ég að betra uppeldi hefði ég ekki getað fengið. -HK Bannað að reykja — úti ÞaB vita allir aö I reykingar eru mikiB heilbrigB- isvandamál og flest öll fyrir- QKVIfiU/* A tæki og stofn- ■ ■*INuAR anir hafa skert RAMklAftAlt rétt fólks til aö » ®MNNAÐAR reykja hvar sem því sýnist. VÍBa er aiveg bannaö aö reykja innandyra. En þaö er ekki nóg fyrir suma. Viö aöalinngang Borgar- spítalans hangir skilti utan á húsinu sem bannar reykingar. Þaö er því bannaö aö reykja náiægt spítalanum. Hvers vegna veit sjálfsagt enginn. Ástæðan getur ekki veriö sú aö stjóm- endur spítalans vilji vernda þá sem reykja ekki fyrir óbeinum reykingum því þaö er aldrei þaö lygnt í Fossvoginum aö reykurinn hverfi ekki út í veöur og vind. En einhver I stjórninni er svona gasalega mikiö á móti reykingum aö hann vill ekki vita til þess að fólk reyki í klló- metra radíus frá sér. Þeir sem eiga erindi á Borgarspítalann og vilja fá sér smók áður ættu þvl að koma viö í Fossvogskirkjugarði, setjast á eitthvert leiöiö og fá sér eina. Enn sem komiö er hefur enginn haldið þvl fram aö óbeinar reykingar minnki llkur á framhaldsllfi. Didda flúin til Kúbu Nú er farið að vinna að diski meö Ijóða- upplestri Dlddu viö undirleik ýmissa listamanna. Ráö- gert var aö koma þessum diski út I fyrrahaust en það klikkaöi. Meöal þeirra sem rætt er um aö búi til hljóðumhverfi viö Ijóöin hennar Diddu eru Björk (aö sjálfsögðu), Magga Ömólfs og Þór Eldon, Magga Stina og bróöir hennar, Sölvi, Maggl Legó, Sigurrós og Hllmar Jensen. Didda mun slöan sjálf lesa, raula, syngja og garga Ijóöin sín undir tónlist þessara. Didda flúöi land um slöustu áramót og flutti til London. Nú er hún aftur lögst á flótta og stefnir til Kúbu. Þar er ódýrt að lifa, þar er gott veöur og þar er dá- samlegt fólk. Styttu biðina og hringdu á undan hér! Þú kaupir pizzu eins og þú vilt og færð aðra eins frítt n Grensásvegi 10 • Reykjavíkurvegi 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.