Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1998, Qupperneq 5
Díanna Ómel var karl á Grenivík en er nú kona í Reykjavík. Eftir ársdvöl í bænum
og 20 ára þátttöku í lífinu hefur hún skapað sér sérstakan lífsstíl og lætur ekki annað
fólk hafa áhrif á skoðanir sínar.
„Þegar maður er 191 cm á hæð
og er í ofanálag í háhæluðum skóm
þá þaggar það niður í ruddunum“
Hvemig líkar þér við Reykjavík
eftir eins árs dvöl í bænum?
Það mætti vera meira líf í bæn-
um, sérstaklega á sunnudagskvöld-
um.
Er ekki meira líf en á Grenivík?
Jú, en því er ekki hægt að llkja
saman. Það er einn pöbb á Grenivík.
En í samanburði við næturlífið í
Bangkok, London og Amsterdam þá
er skemmtanalífið ekki nógu gott
hér í Reykjavík. Það er of mikið ein-
skorðað við fóstudags- og laugar-
dagskvöld og þar sem ég er að vinna
á þessum kvöldum á barnum á Hea-
ven þá hefur maður bara sunnu-
dags- og fimmtudagskvöldin. Það
mætti vera lengur opið á
skemmtistöðunum, þá
myndi aðsókn dreifast
meira.
Hvert ferðu þá að
skemmta þér?
Á Club Fisher. Þar er
spiluð mjög dansvæn tón-
list. Mér finnst mjög gam-
an að fara út og dansa með
vinum mínum og ef þeir
eru uppteknir þá fer ég
bara og dansa ein.
En er það bara vegna
þess hvenær opið er sem
næturlífið er betra í
Bangkok, London og
Amsterdam?
Nei, alls ekki. Fólkið er
kurteisara úti og sjaldan
ofurölvi. Þetta á sérstak-
lega við um London þar
sem er mikið um
dansvæna skemmtistaði.
Og þar er ekki þetta hnoð
á dansgólfmu þannig að
maður þurfi stöðugt að
vera að sparka frá sér.
Lendirðu í því hér á
landi?
Já.
En þú lendir ekki í
slagsmálum?
Nei, ekki lengur.
Eru íslendingar rudda-
legir?
Já, þeir eru svo frekir.
Á Heaven eru íslendingar
alltaf að ryðjast fram fyrir
og öskra pantanir sínar
yfir axlir þeirra sem fyrir
framan eru en ef útlend-
ingar koma inn þá er allt
annað uppi á teningnum.
Við fengum til dæmis hóp
af Grænlendingum inn á
Heaven um daginn og þeir
voru svo kurteisir og
skemmtilegir að það var
algjör draumur.
Er mikið verið að reyna
við þig?
Já, auðvitað fylgir það
starfmu, við verðum allar
fyrir því. En það er bar-
borðið á milli svo maður
þarf ekki að óttast neitt
káf eða uppátroðning.
En þegar þú ert úti að
dansa er þá ekki verið
að káfa á þér og abbast
upp á þig?
Jú, en þá snýr maður
sér bara við og segir þeim
að láta mann í friði. Þegar
maður er 191 cm á hæð og er í ofaná-
lag í háhæluðum skóm þá þaggar
það niður í ruddunum.
En frá Reykjavík til Reykvíkinga,
hvað finnst þér um þá?
Ég veit ekki með Reykvíkinga
beint en á íslandi öllu virðist manni
þeir ríku alltaf verða ríkari og þeir
fátæku fátækari. En það er samt eft-
irtektarvert að það mikið um það að
menn séu að spila sig rika án þess
að vera það. Lifa of hátt.
Lifir þú hátt?
(Hlæjandi): Ég gerði það einu
sinni og brenndi mig á því. Það er
svo auðvelt að eyða um efni fram,
það er hægt hvort sem þú ert á
Grenivík eða í London.
Fer mikill peningur í föt?
Já og nei. Ég sauma sjálf og þá
kosta fötin ekki svo mikið, það er
hægt að gera fallega flík úr gardín-
unum hennar ömmu. Annars kaupi
ég stundum föt en ég versla lítið hér
í bænum. Þvi þótt það séu hátt í
hundrað fataverslanir í Reykjavík
þá er betra úrval í þessum fáu versl-
unum á Akureyri.
Ég versla aðallega í Centrum og
Kontakt, þær eru með svolítið öðru-
vísi föt á boðstólum. Ef maður sér
eitthvað fallegt í verslun hér í
Reykjavík liður ekki langur tími
þangað til allir eru komnir í flíkina.
Það eru allir að reyna að vera spes
en verða allir eins. Fólk skilur ekki
að það þarf ekki annað en vera það
sjálft til að vera spes.
Er eitthvað sem þú vilt breyta hér
í Reykjavík?
Það er ýmislegt. Ég myndi helst
vilja losna við þessar björtu sumar-
nætur, það er ekkert sérlega
skemmtilegt að koma út af skemmti-
stöðunum um miðja nótt, drullu-
sveitt með meikið niður um allt og
það er bara bjart sólarljós sem lýsir
upp andlitið. Maður er öruggari í
dimmri nóttinni.
Hvað með framtíðaráform, ein-
hver sérstök vinna sem þú sækist
efdr?
Nei, hvað sem er, bara að það sé
ekki vinna í fiski. Ég er búin með
þann pakka. Ég vann í frystihúsi
bæði á Akureyri og á Grenivík og
það var nóg. Mér myndi falla vel að
vinna á kaffihúsi eða í einhverri
vinnu sem er 8 til 5 vinna. Annars
ætla ég i skóla og mennta mig í hár-
greiðslu og hönnun. Þannig næ ég
að tengja áhugamál og atvinnu.
Þú talar um hárgreiðslu og hönn-
un, heilla tækin þig ekkert, bílar
eða eitthvað þess háttar?
Nei, guð minn góður, ég veit ekk-
ert um bíla. Ef þú opnaðir húddið á
einhverjum bíl myndi ég ekki
þekkja vatnskassa frá bensíntankn-
um, ég rugla saman bremsu og bens-
íngjöf og þakka fyrir ef ég get áttað
mig á því hvar rúðuþurrkumar eru.
Ég tók ekki einu sinni bílpróf. Þegar
ég var sautján ára var ég aö safna
fyrir Taílandsferðinni og hafði eng-
an tíma í svona óþarfa hluti eins og
að læra á bíl. Mér finnst að vísu
bjallan og skódinn mjög sjarmer-
andi biltegundir en áhugi minn nær
ekki lengra. Spyrðu mig frekar um
eitthvað sem varðar tísku.
Ertu fashion fan?
Meira svona fashion victim. Mér
finnst gaman að fylgjast með tísk-
unni og langar að vinna við eitthvað
tengt henni. Ég hef líka komið lítil-
lega við í tískusýningmn og setið
fyrir og finnst það einnig gaman.
Sástu Playboyblaðið með ís-
lensku stúlkunum?
Já, mér fannst ljós-
myndarinn ekki standa
sig nógu vel. Ég þekki
margar af þessum stúlk-
um og það hafa oft verið
teknar betri myndir af
þeim. Til dæmis hef ég
margsinnis séð betri
myndir af Díönnu Dúu
og Þóru Dungal. Mér
fannst myndin af Birtu
góð og þessari stúlku sem
er upp við bílinn og held-
ur pilsinu svona niður.
Hún var eitthvað svo
eðlileg, með venjuleg
bijóst og í eðlilegri stell-
ingu.
Hvað gerirðu i frítíma
þínum, utan þess að
fara út að skemmta
þér?
Ég fer í bió, horfl á vid-
eó eða les. Ég les mjög
mikið. Það besta sem ég
geri er að koma mér fyr-
ir uppi í rúmi með
súkkulaðikex og mjólk og
góða bók.
Hvaða bókum hefurðu
mest gaman af?
Stóru góðu bókunum.
Allt frá ástarsögunum og
út í mannkynssöguna,
það er fram að seinni
heimsstyijöld, það tíma-
bil og það sem tekur við
eftir hana finnst mér
ekki skemmtilegt. Mér
flnnst saga Fom-Grikkja
sérstaklega skemmtileg,
Egypta og Rómveija. Það
er allt sem heillar mig
við þessa tima. Fólkið,
hvemig það klæddist,
hvemig það skreytti sig
og híbýli sín og hvað það
hugsaði.
En hvað með skáldsög-
urnar?
Af skáldsögum er Jean
M. Auel er í miklu uppá-
haldi hjá mér. Bókaflokk-
urinn með Þjóð bjarnar-
ins mikla og Böm jarðar
er flokkur sem ég les
reglulega. Svo finnst mér
Amy Tan góð, en The
Joy Luck Club las ég
fimm sinnum. Ég er mjög
heilluð af Asíu.
Hefurðu eitthvað verið
í Asíu?
Já ég var í Taílandi í
tvo mánuði og líkaði
mjög vel þar.
Langar þig að flytja þangað?
Já, liklega geri ég það einhvern
tímann. Það er svo vinalegt fólk í
Taílandi, en að vísu ótrúlega forvit-
ið. Jafnvel forvitnara en íslending-
ar. Ég mun í það minnsta fara oft í
heimsóknir í þennan heimshluta.
Að lokum, hvaðan er nafnið
Díanna Ómel sprottið?
Það er bara fallegt nafn. Það hef-
ur ákveðna merkingu en ég held
henni fyrir mig. -BG
1 g i k h ú s
'VJ
þjónna
Verkiö Þjónn í súpunnl ver&ur sýnt í Iðnó
næstu daga. Mikil eftirspurn er eftir miðum á
sýninguna og því er uppselt á sýninguna í
kvöld og á aukasýninguna á sunnudag. Örfáir
miðar eru hins vegar eftir á sýningarnar sem
verða fimmtudaginn 13. ágúst, kl. 20, og
laugardaginn, kl. 23.30. Það getur vel verið
að fólk hafi misjafnar skoðanir á því hversu
góð sýningin er. Hins vegar virðast allir vilja
sjá hana.
Grease-sýningin heldur áfram að heilla áhorf-
endur í Borgarlelkhúslnu sem lofa sýninguna
í hástert. Þrátt fyrir miklar vinsældir eru nokk-
ur sæti laus á sýninguna næsta sunnudag, 9.
ágúst, og næsta fimmtudag, 13. ágúst. Þessi
sýning þýður upp á úrvals dans- og söngatriði
með mörgum af vinsælustu stjörnunum í leik-
listarlífi okkar Islendinga.
Hról höttur veröur sýndur í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðlnum í dag. Þetta er barna- og fjöl-
skyldusýning sem viröist ná mjög vel til krakk-
anna. Þeir skemmta sér vel og koma syngj-
andi og trallandi út af sýningunni.
Helllsbúinn veröur sýndur í íslensku óperunnl
á morgun, kl. 23. Sýningin hefur verið lofuð
fyrir góðan leik og skemmtilegar vangaveltur
um samskipti og hegðun kynjanna.
íslenska óperan sýnir Carmen Negra í dag og
á morgun. Sýningin hefur vakiö mikla athygli
og nú fer hver aö verða síðastur að berja
söngleikinn augum. Margir þekktir leikarar
taka þátt i sýningunni, svo sem Bubbl
Morthens, Eglll Ólafsson og Helgl BJörnsson.
meiraa
www.visir.is
Kaffllelkhúslð heldur áfram meö sumartðn-
leikaröðina sína. í kvöld verður Fluga en þaö
eru tónleikar HJörleifs Valssonar og Havards
Öleroset. Kapparnir spila dægurflugur sem
sumar urðu til fyrir um 800 árum, aðrar fyrir
nokkrum dögum.
Á sunnudaginn, 9. ágúst, mun David M. Patrick,
organisti frá Englandi, spila á orgel Hallgrims-
klrkju sígild verk eftir Vieme, Bach, Grison og
Franck. Tónleikamir hefjast klukkan 20.30.
Á morgun kl. 15.00 verða flutt barokkverk eft-
ir Th. Arne, C. Hocquart, J.H. Roman og
G.Ph. Telemann i Skálholtsklrkju.
Á sunnudeginum kl. 16.00 veröa flutt sönglög
eftir íslenskar konur í Norræna húsinu. Auður
Gunnarsdóttlr, sópran, Unnur Vllhelmsdóttlr,
píanó, Hallfríður Ólafsdóttlr, flauta, og Lovísa
Fjelsted, sellð, flytja lögin. Aðgangur kr. 700.
Kammertónleikar Norræna hússlns fara fram
í kvöld klukkan 20.30. Köbenhavns kammer-
ensemble leikur barokkverk og ný verk eftir
dönsk og íslensk tónskáld. Verkið Pottaseiður
eftir Mist Þorkelsdóttur verður frumflutt. Að-
gangur að tónleikunum kostar kr. 1000.
Þann 14. ágúst kl. 20.30 mun kvennakórinn
Vox Femlnae flytja sígild lög í Norræna hús-
Inu. Margrét Pálmadóttlr stýrir kórnum. A6-
gangur kr. 700.
í Skálholtsklrkju mun Bachsveltln í Skálholti
flytja sígild verk á morgun kl. 17.00. Ruttir
verða einleikskonsertar og kammerverk frá ítal-
íu eftir A. Scariattl, T.G. Alblnonl, P. Locatelll
og A. Vivaldl. Á laugardaginn verða einleiks-
konsertar og kammerverk svo flutt kl. 15.00.
Á morgun mun Davld M. Patrlck, organisti frá
Englandi, leika sigild verk í Hallgrímskirkju kl.
12.00.
Hljómsveitarverk frá barokktímanum verða
flutt í Skálholtskirkju kl. 16.40 á sunnudag-
inn.
1 meira á|
www visir is
7. ágúst 1998 f Ó k U S
5