Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1998, Side 10
vísun tif fósturián'd P.°pparar ,ær Móa
..ATouch^^^'^ogninniip.
Slaparar muna ef tll 13 ~f6tnir sJ»nva
Móa í
The Face
íslenskir popparar í leit að heimsfrægð poppa
annað slagiö upp í heimspressunni. i ágústhefti
Face var þannig ein síða af Móu. En þrátt fyrir
að hún hafi verið þokkalega kynnt ytra er hún
enn I skugganum af B]örk - eins og reyndar all-
ir íslenskir popparar. Þriðja orðið í greininni er
Björk. En Móu er ekki aðeins líkt við Björk held-
ur einnig Umu Thurman og Billy Hollday. í víð-
tali við Móu kemur fram að hún hafi fallið í yfir-
lið þegar hún var ung stúlka eftir að hafa hald-
ið niðri í sér andanum, að faðir hennar hafi
framið sjálfsmorð þegar hún var ellefu ára, að
hana hafi dreymt um að veröa tónskáld eða
norn þegar hún var barn og Do Vou Remember,
lag hennar og Eyþórs Arnalds (fyrrum sam-
starfsmanns Bjarkar), hafi setiö lengur á vin-
sældalistum á Islandi en nokkurt annað lag. En
þrátt fyrir þetta allt er það Björk sem svífur yfir
síðunni hennar Móu. Blaðakonan sem skrifar
textann býður eiginlega við viðfangsefninu - æ,
nei, ekki önnur yfirþyrmandi falleg og yfirgengi-
lega hæfileikarík stelpa frá Islandi með Geysi
bullandi út úr tíkarspenunum...
aHiir á
Skiptar skoðanir eru j
um framtíð Spice
Girfs eftir brotthvarf
Geri Halliwell. Geor- '
ge Michael tjáöi sig I
nýlega um málið og gefur lítið fyrir Ginger-laus-
ar Kryddpíur. „Gerl er ein frábærasta mann-
eskja sem ég hef hitt um dagana," sagði Goggi,
„og hún VAR Spicé Girls. I alvöru, hvað annað
var hægt að horfa á?" Hvað þykist hann vita
um það? Kryddpíurnar sjálfar eru vitanlega á
annarri skoþun, „Við erum betri án hennar,"
sagði Mel C. nýlega, „hún söng eiginlega ekki
neitt." Victoria bætti við: „Við vildum allar
koma fram á svjöi en Geri vildi frekar tala. Hún
fékk alltaf meira út úr sjónvarpsviðtölum og því-
líku.“ Það ætti því ekki að koma á óvart þó Geri
sæist bráðlega á skjánum og hún hefur þegar
átt I viðræðum við breska sjónvarpsrás um að
leysa af í morgunverðarþættinum „Big Break-
fast“. Kaupið verður sirka fimm milljónir kr. á
þátt. Fyrsta smáskifa fjögurra krydda Kryddpía,
„Viva Forever", er nýkomin út og skaust beint í
efsta sæti smáskífulistans I Bretlandi. I brans-
anum var því spáð að þaö réðist af velgengni
lagsins hvort Spice Girls væru komnar til að
vera eða búnar að vera. Því er greinilega enn
eitthvað eftir í kryddstaukunum. Þetta er sjö-
unda smáskífa Spice Girls og sú sjötta sem fer
beint á toppinn. Aðeins síöasta smáskífan,
„Stop", náði ekki á toppinn heldur staðnæmd-
ist í öðru sæti.
Börn eins
og fyllibyttur
Tom hefur tekið það rólega síð-
ustu árin í faðmi fjölskyldunnar.
Hann líkir barnauppeldinu við að
vera innan um hóp af fyllibyttum:
„Maður þarf alltaf að vera vakandi
til að grípa diska og glös sem detta
úr hillunum.“ Hann hefur leikið í
bíómyndum og dundað í leikritun
en nú berast þau gleðitiðindi að
Tom sé að taka upp nýja plötu og
hafi gert einnar plötu samning við
Epitaph útgáfuna sem til þessa hef-
ur sérhæft sig í pönki frá Kaliforn-
íu með böndum eins og Rancid og
Pennywise, auk þess að dreifa plöt-
um frá Fat Possum-útgáfunni sem
gefur út óþekkta kántrí-blús lista-
menn eins og R.L. Bumside og
Tom Waits: „Mér líður ekki eins og í hljóðveri hérna,
miklu frekar eins og ég sé úti í hílskúr. í alvöru hljóðverum
leið mér alltafeins og ég væri í eldhúsi um nótt
og fór mér hægt því ég vildi ekki vekja neinn.“
sifjan samning
í vasanum
og enn
nýja plötu
á prjónunum.
★ ★
X
hetiulega
'W' m
ameríska
lúsers
Sagan segir að Tom Waits hafi
farið með son sinn í pílagrimsferð
til Graceland. í gjafavörubúðinni
stákk sá stutti upp á því við pabba
sinn hvort þeir ættu ekki að
skreppa í kirkjugarðinn, grafa El-
vis upp og gera hálsfesti úr tönn-
unum úr honum. Kannski má
segja að þetta hafi Tom einmitt
verið að gera í tónlist sinni. Hann
hefur grafið upp rokklíkið, hirt úr
því tennurnar og föndrað í eigin
músíkhálsfesti. Nýlokið er sam-
starfi við Island-útgáfuna sem
hófst með plötunni „Swor-
dfishtrombones" árið 1983. Plöt-
urnar á milli hennar og þeirrar
síðustu, „The Black Rider“, sem
kom út 1994, sýna Tom í þróun frá
rámum píanóglamrara í enn
rámari söngvara í félagsskap
skröltandi hryllingsblúss og kok-
teildjass. Til að halda upp á enda-
lok samstarfsins hefur Island gefiö
út 23-laga „best- of' plötuna
„Beautiful Maladies“ sem gefur
byrjendum í sérkennilegri tónlist
Toms smjörþefinn af whiskí- og sí-
garettuangandi snilldinni. Allar
þekktustu plötur Toms urðu til á
þessu tímabili, „Rain Dogs“,
„Frank¥s Wild Years“ og „Bone
Machine", sem hann hlaut gram-
my-verðlaun fyrir 1992.
Junior Kimbrough. Innanbúðar-
menn hjá Epitaph eru að vonum
ánægðir með að hafa fengið hinn
48 ára gamla rám í sínar herbúðir
og útiloka ekki að samningurinn
geti framlengst eftir fyrstu plöt-
una. „Tom Waits er vemdardýr-
lingur hins hetjulega ameríska
lúsers og þess vegna er hann kom-
inn í okkar raðir,“ var nýlega haft
eftir Brett Gurewitz, eiganda út-
gáfunnar.
Nýji samningurinn var viðraður
þegar Brett og Tom hittust fyrir
tveim árum en þeir tókust form-
lega í hendur yfir kaffibolla á
flutningabílstjórakaffi fyrr á þessu
ári. „Þetta fyrirtæki er starfrækt
af tónlistarfólki fyrir tónlistarfólk
og hér líður mér eins og félaga en
ekki eins og starfskrafti. Ég er
hluti af frábærri heild,“ sagði
Tom.
Baukaðí
gömlu kjúklingabúi
Nýja platan mun halda áfram á
þeirri braut sem Black Rider lagði
línuna fyrir. Tom hefur verið í
hljóðversholu sinni umkringdur
safni Eif hljómborðum, gíturum og
heimatilbúnum ásláttarhljóðfær-
um. „Þetta em hlutir sem líta út
eins og listaverk, alls konar málm-
hlutir reknir saman og naglarnir
standa út úr,“ sagði ónefndur
hljóðmaður.
Hljóðverið hýsti áður kjúklinga-
bú og hefur verið nefnt „The Wait-
ing Room“ í höfuðuð á Tom. Hann
er einstaklega hrifinn af því og
hefur notað það frá og með „Bone
Machine". „Mér líður ekki eins og
í hljóðveri héma, miklu frekar
eins og ég sé úti í bílskúr. í alvöru
hljóðvemm leið mér alltaf eins og
ég væri í eldhúsi um nótt og fór
mér hægt því ég vildi ekki vekja
neinn.“
Nýja platan er enn ónefnd og
ekki áætluð til útgáfu fyrr en
snemma á næsta ári. Nokkrir gam-
alkunnir spilarar af plötum Toms
verða með, gítarleikarinn Mark
Ribot, trommarinn Steven Hod-
ges og bassaleikarinn Larry
Taylor þar á meðal, og einnig
leggja liðsmenn Primus hönd á
plóginn. Þar með endurgreiða þeir
gamlan greiða því Tom Waits söng
með þeim á plötunni „Sailing The
Sea of Cheese" frá 1991. -glh
plötudómur
John Fogerty - Premonition: ★★★
plötudómar
Rokkhundurínn hressi
Fátt er amerískara en hress og
hás rokkraustin í John Fogerty.
Fátt er jafngott á myrkum krám og
taka luftgítar við eitthvert af snilld-
arrokklögunum sem hann samdi fyr-
ir Creedence Clearwater Rivival á
sjöunda áratugnum og inn í þann
áttunda. Síðan hvarf Fogerty i sukk
og lagalegt kjaftæði þar sem hann
tapaði höfundarrétti á gömlu smell-
unum til plötufyrirtækisins og fór í
fýlu við fyrrum bandlimi sem enn
túra um skítapöbba sem CCR og
spfla lögin hans. Nokkrar sólóplötur
komu á tuttugu árum en John fór
ekki að spila gömlu lögin á tónleik-
um fyrr en fyrir nokkrum árum. í
fyrra kom út sólóplatan „Blue Moon
Swamp sem endurreisti að nokkru
fyrri stöðu en „Premonition", sem
nýkomin er út, er tónleikaplata þar
sem rokkhundurinn rennir í gegn-
um frægustu lögin sín (bæði sóló- og
CCR-lög) og eitt nýtt, samnefnt plöt-
unni.
Nýju tónleikaútgáfumar hljóma
mjög svipað og þær gömlu, sem bet-
ur fer er John ekkert að flækja mál-
in með hljóðgervlum eða sýndar-
mennskuspiliríi; rokkað er tandur-
hreint sem fyrr. Hann nálgast lögin
eins og gamla félaga sem hann hefur
ekki séð í mörg ár og hvað sem
hvaða dómstóll segir þá eru þessi lög
100% hans. Ekki er hægt að kvarta
yfir stemningunni, hvorki á honum
né áhorfendum sem taka undir í
uppklappinu þegar John leiðir band-
ið gegnum „Proud Mary“ (“Rolling,
rolling, rolling on the river“). Þetta
er hress pakki fyrir aðdáendur CCR,
tímalaus rokktónlist frá meistara
„Tímalaus rokktónlist frá
meistara sem er kominn á
gott ról.“
sem er kominn á gott ról eftir að
hafa séð tímana tvenna.
Gunnar Hjálmarsson
f Ó k U S 7. ágúst 1998
Neðanjaroarhiphop
Rawkus plötufyrirtækið hefur ver-
ið iðið við kolann á þessu ári og gefið
út high-class hip hop í stórum stíl,
bæði á smáskifúm og breiðskífum. Af
þeim ber hæst breiðskífu Company
Flow Funcrusher Plus (allir að kíkja
á það). En Rawkus létu ekki þar við
sitja heldur hefur sent frá sér tvær
safnplötur (Soundbombing 2 á leið-
inni) þar sem koma fram ýmsir
þekktir og minna þekktir rapparar.
Þetta eru skífurnar Soundbombing
sem er mixdiskur mixaður af Evil
Dee og svo Lyricist Lounge. Sá síðar-
nefndi heitir eftir samkomum sem
hafa verið í gangi frá 1991 og verið að-
alheimili neðanjarðarhiphops og besti
staðurinn til að koma sér á framfæri
sem rappari í Bandaríkjunum. Þar
hafa einmitt ýmsir frægir rapparar
stigið sín fyrstu skref áður en þeir
gerðust hiphop-hórur (roof, roof,
come here Puffy...).
Lyricist Lounge diskurinn er tvö-
faldur og er settur saman eins og
hljómleikaupptaka. Mismunandi
kynnar eru á diskunum, oldskoolar-
amir De La Soul á öðrum og eðalper-
vertinn Kool Keith ásamt Sir Men-
10