Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1998, Side 20
t
1
bíódómur
Háskólabíó
- Dark City: ★★
Myrkraborg
b í ó
Bfóborgin '\
lattMl Wwpon 4 ★★★ Þessi nýjasta viöbót
I seriuna er ágætis afþreying. Hún er fyndin og
spennandi og éhættuatriöin flest til fyrirmynd-
ar. Þótt hún nái aldrei aö toppa þaö besta úr
» fyrstu tveimur myndunum ætti hún ekki aö
valda aödáendum þeirra Riggs og Murtaugh
vonbrigöum. Þetta veröur líklega síöasta
myndin og ekki amaleg endalok á eftirminni-
legri seriu. -ge
Clty of Angels ★★* Þrátt fyrir að vera klisju-
kennt bandariskt ástardrama eru fallegar og
áhrifamiklar senur inni á milli þar sem leik-
sljöra og kvikmyndatökumanni tekst vel upp
aö skapa þá stemningu sem upprunalega
hugmyndin um (ó)sýnilega engla býður upp á.
-úd
Bíóhöllin/Saga-bíó
Mercury Rlslng **i Tveir einstaklingar sem
eru á mismunandi máta einangraöir frá um-
heiminum eru gegn öllum öörum T þessari
ágætu sakamálamynd sem kemur skemmti-
lega á óvart með þéttri sögu um Stóra bróöur
sem gerir ekki mun á röngu og réttu og notar
öll meöul, lögleg sem ólögleg, til aö halda
sínu. Bruce Willis er í mun gáfulegra hlutverki
en f Armageddon. -HK
Slx Days, Slx Nlghts ★★* Fremur hugmynda-
snauö en þó skemmtilega rómantísk gaman-
mynd sem gerist í fallegu umhverfl á eyjum i
Kyrrahafinu. Myndinni er haldiö uppi af góðum
leik aðalleikaranna, Harrisons Fords og Anne
Heche, sem ná einstaklega vel saman. Aðrir
leikarar standa sig ágætlega en hverfa T
skuggann af gneistandi samleik Fords og
Heche. -HK
Utla hafmeyjan ★★★ Teiknimyndir Walts Dis-
neys eru klassískar og þegar ný kynslóð rís
eru þær settar á markaðinn á ný og er ekkert
annað en gott um það að segja. Litla hafmeyj-
• an kom meö ferskan blæ inn T þetta kvik-
myndaform eftir aö teiknimyndir í fullri lengd
höfðu veriö í lægö um nokkurt skeiö og hún á
fullt erindi enn til ungu kynslóðarinnar. ís-
lenska talsetningin er vel heppnuö. -HK
Háskólabíó
DarkClty ★★★ (sjá hér til hliöar)
Vinarbragö ★ Helsta vandamál Vinar-
bragös er kannski þaö aö myndin er hrein-
lega of leiöinleg, langdregin og flatneskjuleg
og endirinn fyrirsjáanlegur. Kosturinn er
hins vegar sá aö leikurinn er almennt góöur
en átakalaus. -úd
Leikstjórl: Alex Proyas. Handrit: Alex Proyas
og Davis S. Goyer. Kvlkmyndataka: Dariusz
Wolski. Tónllst: Trevor Jones. Aöalhlutverk:
Rufus Sewell, Kiefer Sutherland, Jennifer
Connelly, Richard O’Brien, William Hurt.
Á ég mínar eigin minningar eða
eru þær fengnar frá einhverjum
öðrum? Er eitthvað fyrir utan mörk
þessarar borgar, og hver er þá leið-
in út? Það vantar ekki að aðstand-
endur Dark City hafi haft mikið af
smart og áhugaverðum hugmynd-
um, en því miður heppnaðist þeim
ekki sem skyldi að koma þessum
„Dark City fær sitt útlit að
láni víðar að, frá málaranum
Magritte jafnt sem Hellraiser,
enda er það fyrst og fremst
þetta gotneska yfirbragð sem
situr eftir.
hugmyndum heim og saman, og sið-
an frá sér í heilu formi. John Mur-
dock (Rufus Sewell) vaknar um
miðnætti og man ekkert hver hann
er eða hvað hann er að gera hér.
Borgin sefur og í næsta herbergi er
myrt melia. Murdock er eltur af
þremur ókennilegum mönnum í
síðkápum og með kúluhatta. Þessir
menn eru geimverur, ókunnur þjóð-
flokkur sem er að deyja út, og hafa
rænt heilli borg af (mann)fólki í
von um að finna lausn á sínum mál-
um. Þjóð þessi hefur vald til þess að
breyta raunveruleikanum að vild
og þar með flytja minningar á milli
manna og láta þá gleyma öllum leið-
um út úr borginni. En Murdock hef-
ur eignast þennan hæfíleika sjáifur
og er því ekki svo auðfangaður.
Dark City er mjög metnaðarfuli
og ansi mögnuð mynd, og vekur til-
finningar bæði um ofsóknir og inni-
lokun. Hún er fúll af ótrúlega eftir-
minniiegum myndrænum skeiðum,
sérstaklega þar sem geimþjóðin
„tjúnar“ og lætur borgina bókstaf-
lega vaxa, hús spretta upp úr göt-
um, stækka, minnka eða taka öðr-
um breytingum. Yfirbragðið þykir
minna á Blade Runner, en Dark
City fær sitt útlit að láni víðar að,
frá málaranum Magritte jafht sem
Hellraiser, enda er það fyrst og
fremst þetta gotneska yfirbragð sem
sitrn- eftir, líkt og í fyrri mynd leik-
stjórans, The Crow. Hins vegar
veldur handritsskortur því að oft
var eins og um langa auglýsingu að
ræða, auk þess sem það var synd að
sjá hvemig metnaðarfull mynd af
þessu tagi hellti sér út í klisjuendi.
En það var æði að sjá Richard
O’Brien í formi.
Úlfhildur Dagsdóttir
Sviösetningar eru mikiifenglegar
í Dark City, sem Háskólabíó
frumsýnir í dag.
I leít að
sannlei
í framtíði
Háskólabíó frumsýnir í dag fram-
tiöartryllinn Dark City sem Alex
Proyas leikstýrir, sá hinn sami og
leikstýrði hinni athyglisverðu The
Crow. Fjallar myndin um ungan
mann sem dag einn vaknar upp í
ókunnugu hóteli og uppgötvar að
hann er raðmorðingi og að lögreglan
er á hælunum á honum. Vandamál-
ið er að hann man ekki til þess að
hafa nokkum tímann myrt einn né
neinn og það sem meira er, hann
man ekki hver hann er. Með hjálp
læknis fer hann að púsla saman lífi
sínu og i þeirri viðleitni rekst hann
á skýringuna á því að hans er leitað
sem hættulegs morðingja.
Ungur, lítt þekktur leikari, Rufus
Sewell, leikur aðalhlutverkið. Mun
þekktari leikarar em í öðrum hlut-
verkum, má þar nefna Kiefer
Sutherland, William Hurt og
Jennifer Connelly. Sewell, sem í
dag er talinn meðal efnilegustu leik-
ara af breskum uppruna, vakti fyrst
athygli fyrir leik sinn í kvikmynd
Johns Schlesingers, Cold Comfort
Farm, og Carrington, en þar lék
hann á móti Emmu Thompson og
Jonathan Pryce. Alveg frá þvi að
Sewell lauk leiklistamámi hefur
hann haft úr nógu að moða. Fyrir
leik sinn í leikritinu Making it Bett-
er völdu leikhúsgagnrýnendur í
London hann besta nýja leikarann
árið 1993. Hefur hann síðan leikið í
nokkrum leikritum, auk þess sem
hann hefur verið að leika lítil hlut-
verk í kvikmyndum, má þar nefna
Victory, Hamlet (Kenneth
Brannagh) og A Man of no Import-
ance á' móti Albert Finney. Þessa
dagana má sjá hann í annarri kvik-
mynd í Háskólabíói, Martha Meets
Frank, David and Lawrence.
Alex Proyas er ástralskur leik-
stjóri sem hafði nánast eingöngu
verið í gerð tónlistarmyndbanda og
auglýsingagerð þegar honum var
boðið að gera The Crow á sínum
tíma, en eins og kunnugt er lést að-
alleikarinn í þeirri mynd, Brandon
Lee, þegar skot hljóp úr byssu með-
an á tökum stóð. Engar sögur fara af
óvæntum uppákomum við gerð
Dark City og verður þvi að áætla að
allt hafi gengið slysalaust.
-HK
Vl
í
í
í
I
i
i
C
■ **
W'JÉ
r ?
Bizet / Trotter / McLeod
Rokk - salsa - popp söngleikur
l | 111 Mw
isl I \SK \ ÓVl l\ \\
Miðasd1o 551 1475
= i f f
Sídustu sýningar á þessum brádskemmtilega söngleik
«
«
C
«
«
f ókus
14. ágúst 1998
+