Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1998, Page 21
Stjörnubíó frumsýnir í dag nýjustu mynd Spike Lee, He Got Game. Þessi ódæli
kvikmyndagerðarmaður hefúr tíælt frá sér mýndum á undanförnum árum
- næstum af viðlíka k^aftj 0 3 Woody~AI|en - og komið sér í bá stöðu sem
margir listamenn þrá; annaðhvort elskar fólk Spike Lee eðá hatar hann.
bíódómur
Stjörnubíó - He Got Game: ★★★
Spike Lee, sem leikstýrir He Got
Game, sem Stjömubíó frumsýnir í
dag, fæddist í Atlanta. Faðir hans er
djassbassisti, Bill Lee, sem hefur
gert tónlist við nokkrar mynda Lees,
og móðir hans er kennari í listum.
Spike Lee var óráðinn á unglingsár-
um hvað hann ætti að taka sér fyrir
hendur, helst vildi hann verða
íþróttamaður og reyndi fyrir sér í
hafnabolta en án árangurs. Þegar
kom að þvi að hann þurfti að ákveða
hvað hann ætlaði að gera skráði
hann sig í markaðsdeild í More-
house College í Atlanta, meira til að
gera eitthvað heldur en af áhuga. í
sumarfríinu fór hann til New York
tO að leita sér að vinnu. Þetta var
sumarið 1977, sumarið þegar slökkn-
aði á borginni og diskóæðið var að
komast í algleyming. Ekki fékk Lee
neina vinnuna og tO að gera eitthvað
af sér keypti hann átta mOlímetra
kvikmyndatökuvél og fór að mynda
aOt það sem vakti athygli hans. Út-
koman var Last Hustle in Brooklyn,
sem hann lýsti sem kvikmynd um
svarta og Púertóríkó-menn að stela
og dansa. Nú var hann kominn með
deOuna og skráði sig í New York-há-
skólann og útskrifaðist úr kvik-
myndadeOd þess skóla verðlaunaður
fyrir útskriftarverkefni sitt.
FuUur sjálfstrausts lét hann skrá
sig hjá stóru umboðsfyrirtæki og
hélt að tOboðin kæmu í hrönnum.
Þegar ekkert gerðist gerði hann
sér grein fyrir því að ef hann
ætlaði sér að verða kvikmynda-
leikstjóri yrði hann sjálfur að
standa í að koma sér áfram og
fór á stúfana tO að afla flár.
Náði hann að skrapa nógu
miklu saman tfl að.geta hafist
handa við gerð She’s Gotta Havé
it og lék hann aðalhlutverkið
sjálfur. Kvikmynd þessi vakti at-
hygli og fékk meðal annars verð-
laun á kvikmyndahátíðinni í Cann
es. Með nokkrar miOjónir doUara í
vasanum hóf Spike Lee að gera
School Daze og enn streyndu dollar-
arnir í vasa hans.
Skjótur frami
Það var þó ekki fyrr en með sinni
þriðju kvikmynd, Do the Right
Thing, að Spike Lee skipaði sér í hóp
merkUegustu leikstjóra í Bandaríkj-
unum. í henni tók hann fyrst afdrátt-
arlausa afstöðu með sínum'kynþætti
og komst upp með það. Fyrir Do the
Right Thing fékk Spike Lee tilnefn-
ingu tO óskarsverðlauna fyrir hand-
rit sitt og nú var hann kominn al-
mennOega af stað. Hann var jafn-
krítískur í næstu tveimur myndum
sínum, Mo' Better Blues og Jungle
Fever. Nú þótti Spike Lee vera kom-
inn tími tO stórafreka og fékk vUyrði
hjá Warner-bræðrum tU að gera
Malcolm X, epíska kvikmynd um
hinn umdeUda blökkumannaleið-
toga. Lee fór langt fram úr kostnað-
aráætlun og var peningavaldinu
óþægur ljár í þúfu og má hann
þakka vinum sínum að hann
fékk að ljúka við myndina.
Þegar Warner-bræður
sögðu hingað og ekki
lengra komu Bill Cos-
by, Ophrah Winfrey,
Michael Jordan,
Magic Johnson,
Prince, Janet
Jackson og Tracy
Chapman honum til
hjálpar og lögðu pen-
inga í myndina svo að
Lee gæti klárað hana.
Malcolm X fékk
ágætar viðtökur
og telja margir
að Spike
L e e
hefði örugglega fengið tilnefningu tO
óskarsverðlauna sem besti leikstjóri
hefði hann ekki verið jafn yfirlýs-
ingaglaður um kerfið í HoUywood og
raunin varð.
Fimm kvikmyndir liggja eftir Spi-
ke Lee frá því hann gerði Malcolm X
og aðeins tvær þeirra teljast í hópi
hans betri mynda, Clockers og He
Got Game.
Ruddi brautina
Á þeim árum sem liðin eru
frá því She's Gotta Have
it kom fyrst fyrir sjón-
ir almennings hefur
mikið vatn runnið
tfl sjávar og nú er
Spike Lee talinn
hafa átt meira en
lítinn þátt í að
opna HoUywood fyr-
ir svörtum kvik-
myndagerðarmönn-
um. Meðal þeirra leik-
ara sem vilja þakka
Spike Lee frama
sinn eru
Wesley Snipes, Denzel Was-
hington, Angela Basset, Samuel L.
Jackson, og Laurence Fishburne.
Með fram kvikmyndagerð hefur
Spike Lee leikstýrt auglýsinga- og
tónlistarmyndböndum. Sína fyrstu
auglýsingu gerði hann 1988, var það
Nike-auglýsing með Michael Jord-
an. Síðan hefur hann verið mjög eft-
irsóttur af stórum auglýsingastofum
og gert nokkrar auglýsingar sem
þykja mjög góðar, meðal annars fyr-
ir Levi's og Coca Cola. Tónlistar-
myndbönd hefur hánn aðeins gert
fyrir þá sem hann telur vini sína og
má þar nefna Prince, Stevie Wond-
er, Michael Jackson, Miles Davis,
Tracy Chapman, Anita Baker,
Public Enemy og Bruce Homsby.
Það kemur engum á óvart sem séð
hefur He Got Game að Spike Lee er
mikOl aðdáandi körfuboltans og þá
helst liðsins New York Knicks. Á
hann að baki ómældar vinnustundir
í þágu þess liðs. Þá hefur hann skrif-
að bók um þetta áhugamál sitt, Best
Seat in the House: A BasketbaU
Memoir auk þess sem hann hefur
skrifað sex bækur um kvikmyndir
sínar og kvikmyndagerð.
Spike Lee er afltaf með mörg jám
í eldinum. Lengi hefur verið á borði
hans að gera kvikmynd um hafna-
boltaleikarann Jackie Robinson, en
erfiðlega gengur að fjármagna hana
og áður en sú mynd verður að
raunveruleika mun hann leik-
stýra Son of Sam, sem fjallar
ekki um frægan raðmorðingja
sem gekk undir þessu nafni,
heldur kemur hann óbeint við
sögu.
Spike Lee býr í New York er
giftur lögfræðingnum Tonya
Lewis, sem hann hitti á útifundi
í Washington þar sem verið var
að mótmæla mannréttindabrotum
á svörtu fólki, og eiga þau tvö börn,
dótturina Satchel og soninn
Jackson.
-HK
Lee er alltaf meö mörg járn í
Lengi hefur veriö á boröi
hans aö gera kvikmynd um hafna-
boltaleikarann Jackie Robinson, en
erfiölega gengur aö fjármagna hana
áður en sú mynd veröur aö raun-
veruleika mun hann leikstýra Son
of Sam, sem fjallar ekki um fræg-
an raömorðingja sem gekk undir
þessu nafni, heldur kemur hann
óbeint viö sögu.
Meira en bara körfubolti
Leikstjóri og handritshöfundur: Spihe Lee.
Kvlkmyndataka: Malik Hassan Sayed. Tónlist:
Aron Copland og Puplic Enemy. Aðalhlutverk:
Denzel Washington, Ray Allen, Milla Jovovich
og Bili Nunn.
Frá því Spike Lee gerði Malcolm
X og var um leið óspar á eigin skoð-
anir á peningavaldinu í HoOywood
hefur hann nánast verið hornreka í
kvikmyndabransanum vestanhafs,
hefur verið að gera ódýrar og mis-
góðar kvikmyndir sem hafa að
mestu farið fyrir ofan garð og neð-
an. Undantekning er þó Clockers
þar sem hann sýndi að krafturinn
sem einkenndi fyrstu kvikmyndir
hans var enn fyrir hendi, aðrar nýj-
ar myndir hans, Crooklyn, Girl 6 og
Get on the Bus, fóru nánast beint á
myndbandamarkaðinn og tvær
þeirra, Crooklyn og Get on the Bus,
komu aldrei fyrir augu bíógesta hér
á landi. Ef einhverjir hafa haldið að
Spike Lee væri að missa tökin á list
sinni þá afsannar He Got Game það.
Þrátt fyrir að Lee missi aðeins tökin
á sögunni í lokin þá er He Got Game
gott drama þar sem Lee liggur sem
fyrr ekki á skoðunum sínum á ýms-
um þáttum mannlífsins. í þessari
mynd virðist honum vera sérlega
uppsigað við hvítar stúlkur sem
hann gerir i góðu ádefluatriði á
stelpur sem hafa það takmark eitt
að komast i bólið hjá svörtum
íþróttastjörnum. Það eru fleiri sem
fá að kenna á beittum penna Lee,
umboðsmenn íþróttamanna fá það
óþvegið og aOt skrumið í kringum
íþróttastjörnur hefur sjaldan komið
jafn berlega fram.
He Got Game er fyrst og fremst
fjölskyldudrama þótt fjaflað sé um
heim íþrótta. Myndin segir frá föður
sem verður fyrir slysni eiginkonu
sinn að bana fyrir framan tvö ung
böm sín. Fimm áram síðar er faðir-
inn í fangelsi og fær þá óvænt tfl-
boð. Allt skuli gert tO að hann fái
styttingu á fangelsisdómi sínum og
sleppi úr prísundinni, fái hann son
sinn tfl að velja „réttan" háskóla, en
sonurinn er efnilegasti körfubolta-
maður landsins. Róöurinn verður
erfiður hjá föðurnum þar sem son-
urinn hefur nánast afneitað honum.
Denzel Washington leikur fóður-
inn Jake og gerir það ákaflega vel,
fellur aldrei í þá gildru að gera per-
sónuna væmna, enda hefur Spike
Lee í handriti sínu passað upp á að
skapbrestir hans komi í ljós. í hlut-
verki sonarins er Ray Allen sem er
upprennandi köfuboltastjarna í
raunveruleikanum og kann hann
ýmislegt fyrir sér í leiklistinni, þá
er vert að benda á Miflu Jovovich
sem leikur gleðikonu, sem verður
nábúi Jakes meðan hann gengur
laus, Hún fer vel með hlutverkið, en
það er þó hennar persóna sem er
dragbíturinn í myndinni. Eiginlega
er lítill tilgangur með því að bæta
persónunni við sögunna, hún kemur
aldrei nálægt atburðunum sem
myndin fjallar fyrst og fremst um. í
lokin er vert að benda á sérlega góða
kvikmyndatöku og klippingu og það
„Ef einhverjir hafa haldið að
Spike Lee væri að missa tök-
in á list sinni þá afsannar
He Got Game það.“
þor hjá Lee að blanda saman ballett-
tónlist Arons Coplands og rapptón-
list Puplic Enemy. Það má kannski
segja að þessi sérstaka samsuða taki
stundum athygli ffá því sem er að
gerast í myndinni, sem annars er
mjög svo virðingarvert og sýnir svo
um munar að Spike Lee fer ávallt
eigin leiðir.
Hilmar Karlsson
Háskólabíó (framhald)
Martha, má ég kynna... +* Marta o.s.frv. er
gamanmynd I rómanttskari kantinum og helst
sérstök fyrir þá sök hversu bandarisk hún er.
Monica Potter minnir um margt á Juliu Ro-
berts og er hér I svipuðu hlutverki og Julia
gerði sér mat úr á árum áður. Stærsti gallinn
liggur í handritinu sem skrifað var af Peter
Morgan. -ge
Blúsbræður 2000 *★ Framhald framhalds-
ins vegna er víst óhætt að segja um þessa
misheppnuðu tilraun til að endurlífga Blús-
bræður án Johns Belushi. Ef ekki væri fyrir
stórgóða tónlist og enn betri flutning blús-
manna þar sem stjörnur eru í hverjum bás þá
væri lítið variö í myndina sem fyrir utan tónlist-
ina er ein endemis della frá upphafi til enda.-
HK
Rökkur ★★★ Gamaldags krimmi með mátu-
lega flókinni fléttu sem gengur ágætlega upp.
Rökkur er kvikmynd leikaranna. Mestur er
fengurinn að Paul Newman sem heldur enn
reisn þrátt fyrir aldurinn. Gene Hackman og
Susan Sarandon standa einnig fyrir sínu. -HK
Grease ★★* Oft hafði ég á tilfinningunni að
þaö eina sem bjargaði þessu 20 ára afmæli
Grease væri aö hún heföi með árunum tekið
á sig .kamp“-Imynd Rocky Horror Picture
Show. Þannig gengur hún upp fyrir mér. Aö
þessu sögðu má síðan bæta við að lögin
standa enn fyrir sínu og dansatriðin eru
skemmtileg. -ge
Kringlubíó
Armageddon ★★ Bruce Willis stendur fyrir
sínu sem mesti töffarinn I Hollywood I mynd
þar sem frammistaða tæknimanna er það
eina sem hrós á skilið. Leikstjórinn Michael
Bay gerir það sem fyrir hann er lagt og því er
Armageddon meira fyrir auga en eyru. -HK
Laugarásbíó
Sllding Doors ★★* Paltrow er Helen, ung
kona á uppleið, þegar hún er óvænt rekin af
hópi karlremba og líf hennar tekur stakka-
skiptum tvöfalt. Leikurinn er almennt góður en
þó handritið innihaldi heilmikið af skemmtileg-
um punktum og klippingarnar milli sviða/veru-
leika séu oft skemmtilegar þá vantar hér ein-
hvern herslumun. -úd
Lost In Space ★★ Framtlðarkvikmynd sem
byggð er á gamalli sjónvarpsseriu sem ekki
þótti merkileg. Myndin er stór I sniðum og
stundum mikilfengleg en sem betur fer tekur
hún sig ekki alvarlega. Hægt er að mæla með
henni viö alla fjölskylduna sem er meira en
hægt er að segja um aðrar framtíðarmýndir
sem sýndar eru I kvikmyndahúsum höfuðborg-
arinnar. -HK
Regnboginn
Senseless ★ Marlon Wayans, með öllum sln-
um kjánalátum, nær stundum upp ágætri
stemningu og sumir brandararnir eru nógu fá-
ránlegir til að vera sniöugir en eins og með
nokkra kynbræður hans I leiklistinni, sem
hafa sérhæft sig I farsakenndum eftirllkingum
af götulífi I úthverfum stórborga, þá fær mað-
ur fljótt leið á einhæfum leik hans. Nokkrar
aukapersónur lífga upp á myndina. -HK
Mimlc ★★■*, Ég verö að játa að ég beiö með
mikilli eftirvæntingu eftir nýju myndinni frá
Guillermo Del Torro eftir að hafa heillast ákaf-
lega af hinni afskaplega frumlegu og áhuga-
verðu vampýrumynd Cronos. Kannski er slík
eftirvænting ósanngjörn. Þrátt fýrir frábærlega
flottar myndrænar útfærslur og skemmtilegar
sviðsmyndir þá fellur Mimic I þá gildru að vera
of mikil eftirherma. -úd
The Object of My Affection ★★<■ Nicholas
Hytner ætlar sér mikið með þessari mynd
enda hefur hann leikstýrt metnaðarfullum
kvikmyndum á borð við The Madness of King
George og The Crucuble. Honum tekst að
sneiða fram hjá ýmsum gildrum en handritiö
kemur I veg fyrir að honum takist ætlunarverk
sitt. -úd
Tltanlc ★★★! Stórbrotin og ákaflega gef-
andi kvikmynd. Af miklum fitonskrafti tókst
James Cameron að koma heilli I höfn dýrustu
kvikmynd sem gerð hefur verið. Fullkomnunar-
árátta Camerons skilar sér I eðlilegri sviðsetn-
ingu sem hefur á sér mikinn raunsæisblæ. Le-
onardo DiCaprio og Kate Winslet eru eftir-
minnileg I hlutverkum elskendanna. -HK
Stjörnubíó
He Got Game ★★★ (sjá hér til hliöar)
Helft ★! Heift (Hush) skartar tveimur giæsi-
legum leikkonum af tveimur kynslóðum,
Jessicu Lange og Gwyneth Paltrow, sem báö-
ar hafa það mikla útgeislun að þaö liggur viö
að þeim takist að fela alla stóru gallana sem
eru á sögu sem er augljóst hvernig endar og
nær aldrei almennilegri spennu. Þaö að út-
koman skuli ekki slefa upp I meðalafþreyingu
verður að skrifast á leikstjórann sem veldur
ekki slnu starfi. -HK
Skotmarkið ★★★ Myndin ber öll einkenni
hinnar fagurfræðilega ýktu sviðsetningar og
sjónarspils sem einkennir Hong-Kong-myndir
en hér er spilað fyrst og fremst upp á húmor-
inn. Skemmtileg hasarmynd sem er einnig
rómantísk og kómisk. Mark Wahlberg tekst
enn og aftur vel upp. -úd
meira á.
www.visir.is
14. ágúst 1998 f Ó k U S
21