Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1998, Blaðsíða 2
36 WaiL
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998
Bilasýningin í Birmingham stærri en nokkru sinni:
Nýi Jaguar-bíllinn er ekki fullkláraður og var því sýndur í nokkurri fjarlægð,
enda „fjarska fallegur".
inn óneitanlega.
Daihatsu heggur á tvær hendur
og frumsýnir tvo nýja bíla, Cuore og
Move. Raunar er stutt síðan þessi
framleiðandi setti fram Move,
Grand Move, Terios og Sirion og nú
kemur fram endurbættur Move. Út-
litsbreytingin er kannski ekki slá-
andi en hann er sýnilega breiðari og
rýmri.
Cuore er hins vegar nýr bíll frá
grunni og ansi laglegur - minnir
ekkert á þann gamla Cuore sem ís-
lendingar þekkja. Hann er nú orð-
inn smábíll fullrar stærðar og minn-
ir að útliti helst á Charade.
Þá frumsýndi Suzuki hér styttri
gerð af Grand Vitara. Þetta er
þriggja hurða bíll, hlutfallslega
álika styttri en fimm hurða bíllinn
og 3 hurða minni Vitaran er þeim
stærri.
Af öðrum bílum sem greinarhöf-
undur sá hér í fyrsta sinn og vöktu
sérstaka athygli hans má nefna 4
dyra stallbak af Ford Focus sem að
útliti er afar vel lukkuð teikning.
Hlaðbakurinn er líka myndarlegur
bill og virkar allstór, enda mikið
lagt upp úr farangursrými í honum.
Þá sýnir Ford líka hugmynd að
nýjum Transit, allt öðruvísi útlits
en núverandi Transit, með gífurlega
stórri hliðarhurð. Sá bíll verður
varla í sölu fyrr en á nýrri öld. Þó
fylgir sögunni að hann verði boðinn
ýmist með framhjóladrifi eða aftur-
hjóla, líklega eftir stærðum.
Ford er einnig hér með Evrópu-
gerð af Ford Ranger skúffubílnum
sem boðinn verður með einfoldu
húsi, millistærð tveggja hurða, svo
og 4 hurða húsi, „double cab“. Tvær
dísilvélar verða í boði. Þessi bíll er
sambærilegri við þá asísku skúffu-
bíla sem við þekkjum en ameriska
Rangerinn. Þessi bíll er framleiddur
í verksmiðjum Mazda i Tailandi og
ætti að geta orðið á íslenskum
markaði fljótlega á nýju ári.
Þá getur hér að líta indverskan
jeppa, Tata. Hann ber engin fram-
leiðslueinkenni annarra jeppa sem
við þekkjum þó viss Mitsubishi-
keimur sé á honum framanverðum
og þaklínan minni dálítið á Land
Rover Discovery. Hann er með sæti
fyrir sjö, þar af þrjá í sætum út á
hlið að aftan við miðjubekk, tvo öðr-
um megin en einn hinum megin.
Starfsmenn Tata á sýningunni harð-
neita að þessi jeppi sé í samvinnu
við aðra asíska framleiðendur - en
því neita þeir raunar líka þegar
spurt er um Tata-skúffubílinn með
tvöfoldu húsi sem er þama til sýnis.
Samt er vandséður mikill munur á
honum og Mitsubishi L200.
Skoda Octavia station er líka bíll
sem vekur athygli hér. Það sama má
einnig segja um Octavia-fólksbílinn
þó hann geti varla talist nýr lengur.
Lexus sýnir hér hinn nýja SI200
sem forkynntur var í Genf í vetur er
leið. Þetta er bíll sem er miðað heint
SHH, Birmingham:______________________
Án efa verður að telja Jaguar S
Type forvitnilegasta nýja bílinn sem
sýndur er í Birmingham þessa dag-
ana. Að vísu er þessi bíll tæplega
fullgerður enn og var aðeins sýndur
í fjarska, uppi á tumi. En hann er
líka „fjarska fallegur" - mjög klass-
ískur - og þótt þetta sé greinilega ný
teikning ber útlit bílsins mjög
ákveðna skírskotun til eldri Jaguar-
bíla.
Annar bíll sem frumsýndur er í
Birmingham og dregur að sér áhorf-
endur eins og lífrænn áburður flug-
ur er Rover 75 - nýr fólksbíll og sá
fyrsti alnýi frá Rover eftir að BMW
keypti fyrirtækið. Þessi nýi bíll er á
stærð við BMW 5-línuna og hérlend-
ir spekúlantar velta því fyrir sér
hvort nægilega margir kaupendur
fyrirfinnist að þeim stærðarflokki
til að reisa Rover fólksbíla úr þeirri
öskustó sem þeir hafa legið í hin
síðari misseri. En fallegur er gripur-
Jaguar frumsýndi nýjan bíl, S-Type, á alþjóðlegu bílasýningunni í Birming-
ham sem opnaði dyr sínar fyrir gestum í gær. í útliti sækir bíllinn mikið til
eldri bíla Jaguar en undir skelinni er hann hlaðinn nýjustu tækni.
Símamyndir Reuter
Gestir munu súpa úr 267.000 kaffibollum
SHH, Bifmingham.____________________
Alþjóðlega bílasýningin i
Birmingham er haldin annaö hvert
ár. Hún fellur sumpart i sHuggann
af bílasýningunni í París sem hald-
in er fáum vikum áður. Síðast þeg-
ar haldnar voru sama árið sýning-
ar í París og Birmingham kom rúm
milljón gesta á þá fyrmefndu en
tæp 624 þúsund á hina. í ár er gert
ráð fyrir að gestir veröi allmiklu
fleiri, enda eru sýningarbílar nú
riflega 200 fleiri en þá, rúmlega
1000 alls. Þar að auki er óteljandi
flöldi breytingafyrirtækja, íhluta-
og aukahlutaframleiöenda og ann-
arra líklegra sem óliklegra fyrir-
tækja sem tengjast bílaiðnaði með
einum hætti eða öðrum.
Birminghamsýningin var opnuð
almenningi í gær, föstudag 23. októ-
ber, eftir þrjá daga sem aðeins voru
ætlaðir blaðamönnum og/eða gest-
um framleiðenda og seljenda.
Henni lýkur 1. nóvember.
Hún nær nú yfir 9 sýningarsali í
stað 5 árið 1996 og hefur þvi stækk-
að um rúma 30 þúsund fermetra.
Um 221 þúsund manns starfa við
uppsethingu sýningarinnar og
rekstur hennar. í sambandi við
hana hafa veriðlgefnir út 10 milljón
bæklingar. Gestir munu súpa úr
267 þúsund kaffibollum, drekka 83
þúsund „pint“ af bjór og tæma 3.700
flöskur af borðvíni. | 1