Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1998, Side 3
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998
Hér er verið að svipta hulunni af nýjum Lexus Sl 200, nýjum minni Lexus
sem ætlað er að keppa beint við bíla á borð við fimmuna frá BMW.
á 5-línuna frá BMW, minnsti Lexus-
inn til þessa og með tveggja lítra
vél.
Þá er lokum að geta tveggja smá-
bíla sem greinarhöfundi þóttu for-
vitnilegir - Volkswagen Lupo, sem
er snotur bill og mun álitlegri en
Seat Arosa, sem var fyrirrennari
hans hjá VW-samsteypunni, og Da-
ewoo Matiz, sem er fallega hannað-
ur og nútímanlegur - mun snotrari
„í eigin persónu" heldur en myndir
hafa gefið hugmynd um.
Wlar
.
- -í; '
Bíll sem vaktl elnnig mikla athygli í Birmingham að þessu sinni var nýr Rover 75 og hér er Nick Stephenson, yfir-
maður hönnunardeildar Rover, að skýra út kosti bílsins fyrir blaðamönnum.
Umrót á bflamarkaði í Suður-Kóreu:
Vinnur Hyundai
kapphlaupið um Kia?
Undanfarnar vikur hefur staðið
yfír kapphlaup meðal bilaframleið-
enda um það að eignast Kia í Suður-
Kóreu en kóreska ríkisstjómin eða
nánar tiltekið Þróunarbankinn í
Suður-Kóreu, sem er í ríkiseigu,
nánast þjóðnýtti þetta bílcifram-
leiðslufyrirtæki i fyrra eftir að það
komst í veruleg fjárhagsvandræði.
í byrjun vikunnar var gefið út í
Seoul að það væri Hyundai Motor
Co. sem hefði besta boðið í Kia og
systurfyrirtæki þess, Asia Motors.
Ford Motor Co., sem er einn
stærstu eigenda Kia, var dæmt úr
leik þegar það bauð undir nafnverði
í hlutabréf Asia Motors.
Daewoo Motor Co. átti næsthæsta
boð í Kia en einnig hafði Samsung
Motors boðið í Kia.
„Hyundai fékk flest stig fyrir það
að vera tilbúið að afskrifa skuldir
fyrirtækjanna tveggja," segir Lee
Jong-dae, einn aðalstjómenda Kia,
við Reuters-fréttastofuna. Hann
vildi ekki segja hve miklar skuld-
imar væm en að sögn talsmanna
Hyundai era þær „umtalsverðar".
Áður hafði Þróunarbankinn látið
að því liggja að Ford myndi yfirtaka
Kia en Ford ásamt Mazda í Japan á
16,9% í Kia.
Tvær tilraunir hafa þegar verið
gerðar til að bjóða Kia til sölu með
þessum hætti en báðar mnnu út í
sandinn vegna þess að kröfuhafar
neituðu að ganga að óskum hæst-
bjóðenda um að afskrifa kröfur sín-
ar.
Nissan:
Nýr Sunny á markað í Japan
Nissan frumsýndi á þriðjudaginn
nýjan Sunny í Tokyo og hófst sala á
bílnum í Japan þann sama dag.
Með hönnun á þessum nýja
Sunny var sá háttur hafður á að
sama „grunnplata" er á öllum þrem-
ur gerðum bílsins, hlaðbak, venju-
legum fólksbíl með skotti og vænt-
anlega stationgerðinni einnig. Með
því að sameina þessar þrjár gmnn-
plötur hyggst Nissan spara um 30
milljarða jena eða sem svarar 15,6
milljörðum króna á næstu fimm
árum.
Ekki fylgir þeim fréttum sem
borist hafa af frumsýningu á þess-
um nýja Sunny hvort Sunny-nafnið
snýr aftur til Evrópu en eins og
kunnugt er þá var það Nissan Al-
mera sem tók upp merki Sunny á
Evrópumarkaði.
Yoshikazu Hanawa, stjórnarformað-
ur Nissan Motors, kynnti nýjan
Sunny fyrir blaðamönnum á hóteli í
Tokyo í vikunni. Símamynd Reuter
Japönsk bílaframleiðsla í Evrópu:
Meira en milljón bflar smíðaðir á þessu ári?
Stóm japönsku bílaframleiðend-
umir, Nissan og Toyota, hafa um
nokkurt skeið átt bílaverksmiðjur í
Evrópu og fleiri bætast í hópinn.
Það era heldur ekki lágar tölur á
borðinu þegar horft er til fram-
leiðslu japönsku fyrirtækjanna í
Evrópu sem einkum felst í því að
smiða bíla sem beinlínis era hann-
aðir með evrópska kaupendur í
huga.
Á þessu ári mun japanska frarn-
leiðslan í Evrópu væntanlega fara
yfir eina milljón bila sem er einfalt
reikningsdæmi ef horft er til þess að
á fýrstu sex mánuðunum vora smíð-
aðir 560.000 bílar í þessum verk-
smiðjum í Evrópu.
Viðskiptavinur að skoða bíla í sýningarsal hjá Kia í Seoul í vikunni. Hyundai
virðist vera sigurstranglegast í kapphlaupinu um Kia en það keppti við Ford,
Daewoo og Samsung um bitann.
^Í^ILPINE
HÁGÆÐA HUÓMTÆKI í BÍLA