Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1998, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1998, Síða 6
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998 3D"V ★ í tilefni af bílasýningunni í París var þessi sérgerð af Smart í tvílit þar til sýnis 44 w'lar Sá litli vekur athygli: Smart Á bílasýningunni í París mátti sjá mikinn fjölda smábíla að þessu sinni, enda er Frakkland gósenland smábílanna. En það verður vart kastað rýrð á nokkum þeirra þótt því sé haldið fram að sá smábílanna sem vakti hvað mesta athygli í Par- ís að þessu sinni hafi verið Smart, litli bíllinn sem Mercedes Benz og svissneski úraframleiðandinn Swatch framleiða í samvinnu. Smart lenti í svipuðum hremm- ingum og litli A-Benzinn í sumar en hann er einnig búinn að fá sina lag- færingu og á að standast allar elgs- beygjur og uppákomur í umferð- inni. Smart er nú þegar kominn í sölu í Þýskalandi en fyrir tveimur vik- um hófst sala á bílnum á 39 sölu- stöðum. Svo mikil eftirspurn er þeg- ar eftir bílnum að væntanlegir kaupendur verða að bíða þess í fjóra mánuði að geta brugðið sér í bíltúr. Vélin í Smart er þriggja strokka, 600 cc og 45 hestöfl. Gírkassi er hálf- sjálfskiptur, sex gíra, og það þarf ekki að nota kúplinguna þegar skipt er um gíra. -JR Til að undirstrika fjölnot Smart var hann sýndur í ýmsum útfærsl- um í París. Hér er einn með fjallahjólið í burðargrind að aftan. Umhverfi ökumanns er nokkuð sérstætt í Smart, skemmtilegur frá- gangur á öllu og sætin koma á óvart fyrir það hve þægileg þau eru. Smart er með gott pláss fyrir tvo og það er sérlega gott að umgangast bflinn. Audi TT: Alvöru sportbíll Þá tvo daga sem blaðamenn höfðu til umráða á bíiasýningunni í París á dögunum var mismikið að gera í sýn- ingarbásum bílaffamleiðendanna, en ■ einn var sá bás þar sem aldrei var ró- legt, en það var hjá Audi og var það nýi TT-sportbíllinn sem vakti þessa miklu athygli. Það var sama hvenær þar var geng- ið hjá garði, alltaf voru margir um að skoða hvem bíl, menn stóðu nánast í biðröð eftir því að setjast inn og þreifa á stjómtækjum og búnaði. Þetta er alvöm sportbíll eins og þeir gerast bestir. Öll hönnun bilsins kallar á athygli. Það er sama hvort hann er skoðaður að utan eða innan, natni hefur verið lögð í alla hönnun og allt gert til að undirstrika sportlega eiginleikana. Það er þó einkum aö innan sem hönnunin nýtur sin best. Burstað ál í mælaborði, umhverfis mæla, gírstöng I innanrýminu er mikið um ál til skrauts, til að undirstrika að þetta er sport- bfll dagsins í dag, notadrjúgur og einfaldur. Það er sama hvar litið er á Audi TT. Linur eru mjúkar og undirstrika sport- lega eiginleikana. og lofttúður gefa mælaborðinu sér- stætt útlit. Stór hjólin með flötum hjólkoppum minna á glæsidagana á fyrri hluta aldarinnar þegar bílar á borð við Bugatti gerðu garðinn frægan. TT er byggður á sama grunni og Golf og Audi A3 og raunar Skoda Oct- avia lika. Vélar em tvær, 180 hö og 225 hö. Gírkassi er sex gíra og með afl- meiri vélinn er Tt aðeins fáanlegur í Quattro-útgáfu. Aflmeiri bíllinn er að- eins 6,4 sekúndur frá 0 í 100 km og há- markshraðinn er sagður vera 243 km/klst. Ef einhver hefúr áhuga á svona bíl er verðið væntanlega um sex milljónir króna ef um er að ræða TT Quattro, en eitthvað minna ef menn láta sér nægja minni vélina og drif á einum ás. -JR Menn höfðu það á orði í París að strax við frumsýningu væri þessi nýi TT orðinn klassískur, svo vel væri hönnun hans heppnuð. Chrysler Pronto Cruizer Chrysler kom á óvart i Genf á liðnum vetri með frumsýningu á nýjrnn hugmyndabíl, Pronto Cruiz- er, en með honum þótti hafa tekist vel að sameina allt sem evrópskur bílaiðnaður hefur upp á að bjóða og langa hefð í bandarískum bílaiön- aði. Pronto Cmizer var á stalli í París og vakti engu minni athygli en í Genf. Einkum em það tengslin við hönnun sportlegra bíla um miðja öldina, en mest af hönnuninni er sótt til Art Deco-hönnunar áranna eftir 1940 í Bandaríkjunum. Eitt helsta einkenni bílsins era stór hjólin, 18 tommur að framan og 19 tommur að aftan. Vélin er 1,6 lítra, 115 hö. og smíð- uð í sameiginlegum verksmiðjum BMW og Chrysler í Brasilíu. Gír- kassi er fimm gíra, handskiptur sportlegur gírkassi. -JR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.