Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998 JÍLÞ*V
24 bílar og vetrarakstur
Þegar allra veðra er von er gott
að vera viðbúinn því versta og und-
irbúa sig og bílinn á þann hátt að
allir geti snúið aftur heim.
Við verðum að ganga út frá því að
allir sem leggja í ökuferð að vetri
séu sjálfir vel búnir, í góðum hlífð-
arfotum og að hanskar eða vettling-
ar séu með í ferðinni. Eitt virðast
ökumenn þó vanmeta, en það er að
vera vel búnir til fótanna í snjó.
Margir halda að góöir venjulegir
skór með grófum sóla séu ágætur
fótabúnaður að vetri, en um leið og
þarf að snúast í kringum bíl sem
hefur fest sig í snjó fyllast skórnir af
snjó, hann bráðnar og viðkomandi
blotnar í fætuma og kólnar. Þess
eru ófá dæmi að menn hafi nánast
örmagnast af því einu að fætumir
ofkældust.
Gott ráð getur því verið að geyma
háa kuldaskó eða jafnvel góð
gúmmístígvél og þykka ullarleista í
bílnum til að bregða sér í ef þörf er
á því að fara út í snjóinn.
Góð skófla og kaðall
Jafnvel þótt heimilsbílnum sé
ekki ekið mikið utanbæjar getur
verið gott að hafa góða og lipra
skóflu meðferðis í bílnum í vetrar-
umferðinni. Oft gerir snögg áhlaup
og þótt snjómðningsmenn sé fljótir
að bregða við líður oft dágóður tími
þar til búið er að ryðja bílastæði og
húsagötur.
Við slíkar aðstæður þarf ekki
mikla fyrirstöðu til þess að bíllinn
festist og byrji að spóla. Það þarf
hins vegar ekki oft að moka mikið
til þess að bíllinn losni. Þess vegna
er létt og lipur skófla nauðsynleg,
• Stýrisendar
• Uatnsdælur
• Spindilkúlur
• Vatnskassar
• Tímareimar
• Þurkublöð Settið 780
• Kúplingssett
• Kueikjuhlutir
• Bremsuklossar
• Gormar
• Hjóldælur
• Gabriel Demparar
G*
varahlutir
Hamarshöfða 1
BÍmi: 5B7 6744
fax: 5B7 3703.
en léttar og liprar snjóskóflur úr áli
eru fáanlegar í bílahlutabúðum og
sumum bensínstöðvanna.
Annað ráð sem oft þarf að gripa
til er að fá annan bíl til að kippa
þeim fasta lausum. Það getur því
Gott er að eiga góða vetrarskó í bflnum og eins er bursti hið mesta
þarfaþing, bæði til að bursta snjó af bflnum og eins af fötum og skóm áður
en sest er inn í bflinn því ef snjórinn bráðnar inni í bflnum er meiri hætta á
móðu og raka inni í bflnum.
um af gömlu gólfteppi. Slíkir teppa-
bútar taka ekki mikið pláss í skott-
inu en geta gert sitt gagn þegar á
reynir.
þegar bíllinn sekkur djúpt í snjó eða
hann spólar sig niður. Með slílum
tjakki er hægt að lyfta bílnum hátt
upp og setja undir hjólin. Þegar
þessir tjakkar eru notaðir þarf að
Góð skófla og kaðall ættu að vera í
hverjum bíl því enginn veit hvenær
þörf er á að nota þessi hjálpartól.
Spil og tjakkar
Þegar menn ætla sér að fara til
fjalla þegar snjórinn ræður ríkjum
þarf önnur og veigameiri hjálpar-
tæki. Margir „fjallamenn" hafa búið
bíla sína með spili og eru þess
vegna betur í stakk búnir að bjarga
sér sjálfir þegar bíllinn festist i snjó.
Algengasta aðferðin er að festa spil-
vírinn í annan bíl, eða að grcifa nið-
ur „snjóakkeri" og draga bílinn
þannig upp.
Það verður ekki lögð of mikil
áhersla á það að þegar verið er að
draga bíl með kaðli eða spila hann
upp með spilvír haldi allir sem
koma að málinu sig til hlés þannig
að ef kaðall eða vir slitnar sé ekki
hætta á að hann slasi þá sem eru að
hjálpa til.
Stórir tjakkar, svonefndir
drullutjakkcir eru góð hjálpartæki
Góð rúöuskafa, hanskar og vasaljós eru sjálfsagðir hlutir
í bílnum að vetrarlagi.
verið gott að eiga lipurt dráttartóg í
bílnum. Slík tóg fást á bensínstöðv-
um og bílahlutaverslunum, og eru
af nokkrum gerðum.
Ef um er að ræða lítinn hefðbund-
inn fólksbíl skiptir ekki miklu máli
hvemig slíkur kaðall er. Miklu
meira máli skiptir að hann sé lipur
og auðvelt að festa hann í bílinn.
„teygjuáhrif-
in“ gera það
að verkum að
togaflið verð-
ur í raun
meira. Ýmist
er hér um að
ræða kaðla úr
nælonefni eða
sérofna mjóa
borða úr
gerviefnum
sem gera svip-
að gagn.
Þriðja ráðið
þegar bíll fest-
ist er að setja
mottur undir
drifhjólin til
að fá betra
grip. Svona
mottur voru
framleiddar
fyrir nokkrum
árum og seldar á bílhlutaverslunum
en náðu ekki mikilli útbreiðslu.
Þær voru með litlum göddum sem
juku gripið og hægt var að festa þær
í bílinn svo að þær týndust ekki
þótt bíllinn næði að spóla sig af
stað.
En ökumenn geta útbúið sér
mottur sem gera svipað gagn úr bút-
Það getur verið erfitt að skipta um
dekk í kulda og snjó þegar springur
og því getur verið gott að hafa
svona brúsa í hanskahólfinu sem
bætir dekkið um leið og lofti er
blásið i það.
Ágætt ráð er að vera búinn að
kynna sér vel fyrirfram hvar hægt
sé að binda í bílinn, bæði að framan
og aftan, en flestir bílar í dag eru
með lítil festiaugu eða lykkjur að
framan og aftan.
Ef um þyngri bíla er að ræða gæti
verið betra að velja sér dráttarkaðcd
við hæfi. Til eru nokkrar gerðir
kaðla eða dráttartauga sem ætlaðar
eru fyrir stærri bíla. Slíkar taugar
eru þannig gerðar að þær togna við
átak og