Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1999, Síða 6
m a t u r
www visir is
AMIGOS ★★★ Tryggvagötu 8, s. 5111333.
„Erfitt er aö spá fyrirfram í matreiðsluna, sem
er upp og ofan." Opiö í hádeginu virka daga
11.30- 14.00, kvöldin mán.-fim. 17.30-22.30,
fös-sun 17.30-23.30. Barinn er opinn til 1 á
virkum dögum en til 3 um helgar.
ARGENTÍNA ★★ Barónsstíg lla, s. 551
9555. „Bæjarins besta steikhús hefur dalaö."
OpiO 18-23.30 v.d., 18-3 um heigar.
ASÍA ★ Laugavegl 10, s. 562 6210. Opib virka
daga 11.30-22 en 12-23 um helgar.
CAFÉ ÓPERA Lækjargötu 2, s. 522 9499.
CARPE DIEM Rauöarárstíg 18, s. 552 4555.
CREOLE MEX ★★★★ Laugavegi 178, s.
553 4020. „Formúlan er líkleg til árangurs,
tveir eigendur, annarí eldhúsi og hinn í sal, og
fókusinn á matreiðsluhefðum skilgreinds
svæöis, í þessu tilviki suðurstrandar Banda-
ríkjanna, Louisiana, Texas og Nýju-Mexíkó."
Opiö 11.30-14 og 18-22 á virkum dögum en
18- 23 um helgar.
EINAR BEN Veltusundl 1. 5115 090. OpiO
18-22.
GRILLIÐ ★★★★ Hótel Sögu v/Hagatorg, s.
5252 9960. „Glæsilegur útsýnissalur milli-
klassahótels með virðulegri og aiúðlegri
þjónustu, samfara einum allra dýrasta
matseðli landsins." OpiO 12-14.30 og
19- 22.30 virka daga, 12-14.30 og 18-22
föstu- og iaugardaga.
HARD ROCK CAFÉ ★★ Kringlunni, s. 568
9888.
HÓTEL HOLT ★★★★★ Bergstaðastrætl
37, s. 552 5700. „Listasafnið á Hótel Holti
þer í matargerðarlist af öörum veitingastofum
landsins. Þar fara saman frumlegir réttir og
nærfærin matreiðsla, sem gerir jafnvel
baunir að Ijúfmeti." OpiO 12-14.30 og
19-22.30 virka daga, 12-14.30 og 18-22
föstu- og laugardaga.
HÓTEL ÓÐINSVÉ ★★ v/Óölnstorg, s. 552
5224. „Stundum góður matur og stundum ekki,
jafnvel f einni og sömu máltíð." Opib 12-15 og
18-23 virka daga, 12-15 og 18-23.30 föstu-
og laugardaga.
IÐNÓ ★★★ Vonarstrætl 3, s. 562 9700.
„Matreiðsla, sem stundum fer sínar eigin slóð-
ir, en nær sjaldan hæstu hæðum. Enginn réttur
var að neinu leyti misheppnaöur, en fáir minnis-
stæöir." OpiO frá 12-14.30 og 18-23.
ÍTALÍA ★★ Laugavegl 11, s. 552 4630.
KÍNAHÚSIÐ ★★★★ Lækjargötu 8, s. 551
1014. „Kínahúsið er ein af helztu matarvinjum
miðbæjarins." OpiO 11.30-14.00 og 17.30-
22.00 virka daga, 16-23 laugardaga og 17-22
á sunnudögum.
KÍNAMÚRINN ★★★ Uugavegl 126, s. 562
2258
LAUGA-ÁS ★★★★★ Laugarásvegl 1, s.
553 1620. „Franskt bistró aö íslenskum hætti
sem dregur til sín hverfisbúa, sem nenna ekki
að elda í kvöld, barnafjölskyldur utan úr bæ og
ferðamenn utan af landi og frá útlöndum." Opiö
11- 22 og 11-21 um helgar.
LÆKJARBREKKA ★ Bankastrætl 2, s. 551
4430.
MADONNA ★★★ Rauöarárstig 27-29, s.
893 4523 „Notaleg og næstum rómantísk
veitingastofa með góðri þjónustu og framþæri-
legum Ítalíumat fyrir lægsta verð, sem þekkist
hér á landi." OpiO virka daga 11.30-14.00 og
18.00- 23.00 og 17-23.30 um helgar.
MIRABELLE ★★★ Smlöjustíg 6, s. 552
2333. „Gamal-frönsk matreiösla alla leið yfir í
profiteroles og créme brulée." OpiO 18-22.30.
PASTA BASTA ★★★ Klapparstíg 38, s. 561
3131. „Ljúfir hrísgrjónaréttir og óteljandi til-
brigði af góðum pöstum en lítt skólað og of upp-
áþrengjandi þjónustufólk.“ OpiO 11.30-23 virka
daga og 11.30-24 um helgar. Barinn er opinn
til 1 virka daga og til 3 um helgar.
LA PRIMAVERA ★★★★ Austurstrætl 9, s.
561 8555. „Sjálfstraust hússins er gott og
næg innistæða fyrir því.“ Opiö 12.00-14.30 og
18.00-22.30 virka daga og um helgar frá
18.00-23.30.
RAUÐARÁ Rauöarárstíg 37, s. 562 6766.
REX ★★★★ Austurstrætl 9, s. 511 9111
„Rex kom mér á óvart með góðri, fjölbreyttri
og oftast vandaðri matreiðslu, með áherzlu á
einföld og falleg salöt, misjafnt eldaðar pöst-
ur og hæfilega eldaöa fiskrétti." OpiO
11.30- 22.30.
SKÓLABRÚ ★★ Skólabrú 1, s. 562 4455.
„Matreiðslan er fögur og fin, vönduð og létt, en
dálítið frosin." OpiO frá kl. 18 alla daga.
TILVERAN ★★★★★ Linnetsstíg 1, s. 565
5250. „Það eru einmitt svona staðir, sem við
þurfum fleiri af til aö fá almenning til að lyfta
smekk sínum af skyndibitaplani yfir á fyrstu
þrep almennilegs mataræðis." OpiO 12-22
sunnudag til fimmtudags og 12-23 föstudag og
laugardag.
VIÐ TJÖRNINA ★★★★ Templarasundl 3, s.
551 8666. „Tjörnin gerir oftast vel, en ekki
alltaf og mistekst raunar stundum." OpiO
12- 23.
ÞRlRFRAKKAR ★★★★★ Baldursgötu 14,
s. 552 3939. „Þetta er einn af hornsteinum fs-
lenskrar matargerðarlistar og fiskhús landsins
númer eitt." Opiö 12-14.30 og 18-20 virka
daga og 18-22 um heigar en til 23 föstu- og
laugardag.
meira á|
Annar hver staður í Reykjavík er að
breytast í strípiklúbb. Hafnarkráin
var að breytast, Duus-hús mun
að öllum líkindum breytast á næstu
vikum og þetta er fyrir utan alla
þá staði sem opnuðu í fyrra.
Veitingaiðnaðurinn er hreinlega
hættur að þrífast án berrassaðra
stúlkukinda. Mikael Torfason
fór og tók púlsinn á Geira á
Hafnarkránni en kráin sú er
nýbúin að fá nafnið:
Maxim’s Erotic Whisky Club.
Ekkert
l ■ # i
stelpum
Þeir sem hafa keyrt eftir Hafnar-
stræti nýlega hafa án efa tekið eftir
því að einn alræmdasti bar borgar-
innar hefur vægast sagt fengið and-
litslyftingu. Það sést ekki inn um
gluggana lengur og nýtt nafn kom-
ið á rúðuna: Maxim’s Erotic
Whisky Club. Við slíka sýn er
óhætt að minnast allra deilnanna
sem stóðu um Hafnarkrána á sin-
um tíma. Nágrannamir voru alltaf
að kvarta yfír kúnnahóp Hafnar-
krárinnar og Geir karlinn fékk
ekki frið til að reka alvöru sjó-
arapöbb að þýskri fyrirmynd í
Hafnarstræti. Það var því ekki ann-
að að gera en að kasta sér inn um
dymar á mánudagskvöldi og at-
huga hvað væri eiginlega í gangi.
Hugguleg stemning
Þegar inn er komið er stelpumar
á víð og dreif um staðinn. Ég geng
að bamum og heilsa Geira. Hann
situr við endann og ræðir við
Halla dyravörð og samþykkir við-
tal um hæl.
Hvað kemur til aó þú ferö frá
kránni yfir í strípiklúbb?
„Fyrst og fremst til að fá frið
héma í götunni," segir Geiri og
brosir.
Við sitjum í betri stofunni og
erum báðir með viskí í hönd. Geir
vildi endilega sanna það fyrir mér
að staðurinn er viskíbúlla. Hann
segist hafa yfir þrjú hundmð teg-
undir og það sem við drekkum sé
braggað í sérrítunnu. Látið liggja í
rétt rúm fimmtán ár og komi þá
svona milt og fmt á flöskuna.
„Að vera með drykkjustað þar
sem fólk var að mæta um hádegi og
staðurinn var fullur allt fram til
tvö, þrjú á nóttunni gerir mann hel-
víti þreyttan. Hafnarkráin var upp-
haflega hugsuö sem sjóarastaður.
Ég var með myndir af skipum úti
um allt og veiðarfæri uppi um alla
veggi ásamt skipsklukkum. Þetta
átti bara að vera sjóarabúlla og við
spiluðum meira að segja sjóaraslag-
ara héma. Núna er þetta bara keyrt
á huggulegri stemningu og ég passa
mig á að troðfylla ekki staðinn."
Hugsaðirðu þetta þá sem þjónustu
viö fastakúnna Hafnarkrárinnar?
„Nei. Breytingamar voru ekki
gerðar í því skyni. Þetta er alveg
nýr staður og það hefur orðið mik-
il breyting á kúnnahópnum í kjöl-
farið.“
Þaö er vist ómögulegt að segja til
um það hvert gamla Hafnarkrá-
skrúið fór en hvernig kúnnar eru að
sœkja Maxim’s heim?
á Hafnarkránni er kominn í góðar átnirí
„Þetta er alls konar fólk, bæði
karlar og konur. Það er líka æski-
legt að fólk sé snyrtilegt til fara og
það útilokar marga.“
Og Jinnurðu fyrir mikilli sam-
keppni?
„Þegar maður er nýr á markaðn-
um finnur maður ekki fyrir sam-
keppni. En þessi staður tekur bara
tæpa 70 kúnna og mér sýnist því
kúnnamir mínir ekkert vera að
koma frá hinum stöðunum."
Hún grasserar sem sagt erótíkin
á íslandi. Það opnar nýr staður í lít-
illi borg og hinir finna að öllum lík-
indum ekki baun fyrir því. Pláss
fyrir alla og allir era að opna.
Stúlkukindurnar
Hvernig útvegaóirðu þér stelpur?
„Konan mín, Javoslava Davíðs-
son, er eistnesk og hún hafði sam-
band við dansskóla úti sem útveg-
aði okkur þessa dansara sem era
hér.“
Eru þetta þá einhverjar vinkonur
hans Jóns Baldvins?
Geiri skellihlær og ég lít í kring-
um mig. Stelpurnar era ekki ennþá
byrjaðar að dansa. Klukkan er bara
rétt rúmlega átta og dansinn byrjar
ekki fyrr en hálfníu, eða kortér í.
Það fer eftir því hversu lengi kúnn-
amir era að drösla sér inn á stað-
inn, snyrtilega klæddir að sjáif-
sögðu og með eitt stykki þúsund
kall. Það er aðgangseyririnn en fyr-
ir hann geturðu drukkið á barnum.
Geir segir að það sé til að hindra að
fólk sé að mæta á staðinn án þess
Sjanghæ: ★
Feit matreiðsla
austurindísk
Fátt er minnisstætt frá Sjang-
hæ, sem að útliti og innihaldi er
eins og þúsundir annarra aust-
rænna staða á Vesturlöndum,
hvorki lakari né betri. Til dæmis
voru djúpsteiktur rækjur hveiti-
þykkar og álíka ólystugar og á
Asíu neðar við Laugaveginn.
Ánægjulegast man ég eftir efnis-
miklum pappírsþurrkum og heit-
um dúkum, sem gestir fá eftir
matinn.
Matreiðslan í Sjanghæ er aust-
ur-indísk fremur en kínversk, ætt-
uð frá Indónesíu eða Vietnam,
með þykkum sósum, þótt hún
jóðli ekki beinlínis í þeim eins og
á áðumefndri Asíu og sé ekki
heldur í hreinum pottréttastíl
eins og á Bing Dao á Akureyri,
botni tilverunnar. En hún er
snöggtum lakari en kínverska
matreiðslan þurra og ekta í Kína-
húsinu við Lækjargötu, sem þar
að auki er mun ódýrari staður.
Sjanghæ er innréttað í ferða-
mannastíl, mikið hólfað niður
með reitagrindverki, skreytt upp
á kínversku með reitalofti, rauðu
teppi, Kinalugtum, blævængjum
og kínverskmn styttum í gler-
skápum. Þjónustan er sumpart
góð og sumpart fáfróð, en jafnan
elskuleg.
890 króna hádegishlaðborð bjó
yfir smáum og þunnum vorrúll-
um ágætum, en var að öðru leyti
ómerkilegt pottréttaborð með
gríðarlega djúpsteiktum rækjum.
Á kvöldin er boðið upp á mar-
gréttað fyrir 1980 krónur að með-
altali. Af seðli kostar þríréttað
með kaffi um 3000 krónur.
Kjúklingur var yfirleitt fram-
bærilegur. Svonefndur stökkur
kjúklingur var fínlega djúpsteikt-
ur með hnausþykkri sósu súr-
sætri til hliðar. Satay kjúklingur
var tamarind-kryddaður í kókos-
mjólk. Gufusoðinn sapor kjúkling-
ur, borinn fram í potti, var bland-
aður kasjú hnetum og sterkkrydd-
uðu grænmeti.
Eggjadropasúpa var vel heit,
þykk og matarleg. Skásti réttur-
inn var Gado Gado, steikt græn-
Matreiðslan í Sjanghæ er austur-indísk fremur en kínversk,
ættuð frá Indónesíu eða Vietnam, með þykkum sósum, þótt
hún jóðli ekki beinlínis í þeim.
meti, sem þó var með allt of mik-
illi hnetusósu, er minnti á kókos-
mjöl. Grænmeti með öðrum mat
var yfirleitt staðlað og gott,
brokkál, gulrót, laukur og svepp-
ir, oftast blandað niðursoðnum
ananas.
Gufusoðin sapor ýsa, borin
fram í potti, var ekki nógu fersk.
Pönnusteikt ýsa að hætti
Malasíubúa var þurr af ofeldun,
svo sem hættir til á austurlenzk-
um veitingahúsum hér á landi.
Betri voru snöggsteiktar lamba-
kjötsþynnur með hvítlauk. Enn-
fremur piparkryddaðar toban-
svínakjötsþynmn:, bornar fram í
pönnunni.
Blandaðir ávextir fólu í sér
mikið úrval austur-asískra
ávaxta úr dósum, með ís og
rjóma. Bezti eftirrétturinn var
wan tan, djúpsteikt hveitiumslög
utan um döðlur, borin fram með
þeyttum rjóma. Kaffi var nothæft.
Jónas Kristjánsson
f Ó k U S 15. janúar 1999
FÓKUSMYNDIR: TEITUR