Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1999, Page 17
í myndinni leikur Adam
Sandler Bobby Boucher, þrjátíu
og eins árs gamlan einfeldning í
umsjá móður sinnar sem ofvemd-
ar hann. Eina samband hans við
umheiminn er vinna hans sem
vatnsberi hjá háskólafótboltaliði
þar sem leikmenn gera stanslaust
grín af honum. Þegar nýr þjálfari
er ráðinn sér hann aumur á Bobby
og segir honum að hann eigi að
svara fyrir sig á einhvem hátt þeg-
ar honum er strítt jafnmikið og
raunin er. Bobby tekur þjálfarann
á orðinu og næst þegar honum er
strítt ræðst hann á viðkomandi af
miklum krafti og sá liggur á auga-
bragði í gólfinu. Þjálfarinn sér
þennan fimakraft í Bobby og telur
að hægt sé að virkja hann í fótbolt-
anum. Hann tekur því að sér að
kenna Bobby fótboltareglur og það
er ekki að sökum að spyrja, Bobby
slær í gegn. Einn þröskuldur er þó
Vatnsberinn fyrrverandi lætur finna fyrir kröftum sínum.
í veginum, móðir Bobbys sem ör-
ugglega myndi taka son sinn úr
umferð ef hún frétti hvað hann að-
hefst.
Adam Sandler hefur alltaf verið fyndinn:
í skóla var Adam Sandler alltaf
trúðurinn, sá sem skemmti öðrum
með fíflaskap, og þegar hann var
sautján ára kom hann fyrst fram á
sviði sem „stand up“ gamanleikari
og að eigin sögn komst hann að því
að hann var fæddur til að skemmta
öðrum. Adam Sandler fæddist 9.
september 1966 í Brooklyn og hefur
meira og minna búið í New York.
Þrátt fyrir vissu sina um eigin hæfi-
leika hélt Sandler áfram námi en
skemmti sér og öðnun með fram
náminu.
Meðan Adam Sandler var í skóla
fékk hann hlutverk í hinum vin-
sælu sjónvarpsþáttum The Cosby
Show, sem vinur sonarins Theo
Hixtable. Eftir að námi lauk ein-
beitti hann sér að skemmtunum í
klúbbum og þar sá einn af aðstand-
endum Saturday Night Live, Denn-
is Miller, kappann og í kjölfarið
var honum boðið að vera fastiu:
gamaleikari í þættinum. Strax á
fyrsta ári, 1990, var hann orðinn
senuþjófur og fór á kostum í mörg-
um gervum, meðal annars sem
Bruce Springsteen og Axl Rose.
að hann
til að
Efejjjjtnma
Sandler vann við Saturday Night
Live 1990-1995 og í lokin var hann
orðinn aðalstjaman í þáttunum
ásamt Chris Farley. Með þessu
skemmti hann í klúbbum og í
leikhúsum og gaf út plötur með
gamanmálum. Ein plata hans
fékk Grammy-verðlaunin sem
besta gamanplata og sat sú
plata í 100 vikur á Billboard- j
listanum yfir 100 mest seldu
plötumar.
Á þessum árum lék Adam
Sandler misstór hlutverk í
misgóðum kvikmyndum.
Fyrsta stóra hlutverkið fékk
hann í Billy Madison, gaman- 1
mynd um rikan iðjuleysingja sem
þarf að standast menntaskólapróf
til að geta erft ríkan fóður. Sandler
skrifaði ásamt öðrum handritið og
fékk hann góða dóma fyrir leik sinn
og myndin ágætar viðtökur. Það
varð til þess að Sandler hætti í Sat-
urday Night Live og sneri sér af
fúllum krafti að kvikmyndleik.
Adam Sandler skrifaði einnig
handritið að sinni næstu kvik-
mynd, Happy Gilmore, sem kalla
Kvikmyndir Adams Sandlers:
Shake the Clown 1991 • Coneheads 1993 •
Mixed Nuts 1994 • Airheads 1994 • Billy Madisor
1995 • Bulletproof 1996 • Happy Gilmore 1996
The Wedding Singer 1998 • The Waterboy 1998
má golfkómedíu. Myndin naut tölu-
verðra vinsælda og staða Sandlers
varð trygg í HoUywood og ef eitt-
hvað er þá styrkist staða hans með
hverri mynd. Adam Sandler er spáð
miklum frama í gamanmyndum og
segja margir að þess verði ekki
langt að bíða að hann standi jafn-
fætis Robin Williams og Jim Car-
rey i þessum geira kvikmyndanna.
-HK
! aðalhlutverki er Adam Sandler
sem nú hefur slegið í gegn í þrem-
ur kvikmyndum, Happy Gilmore,
The Wedding Singer og The Water-
boy. Má telja víst að hann sé á
góðri leið með að komast upp í
flokk stórstjama í Hollywood. Aðr-
ir leikarar eru Kathy Bates, sem
leikur móður Bobbys, Irwin
Winkler sem leikur þjálfarann,
Fairuza Balk og Jerry Reed.
Leikstjóri er Frank Coraci, en
hann leikstýrði einnig The Wedd-
ing Singer. Sandler og Coraci hafa
þekkst lengi, voru saman í há-
skólanámi við New York
University og brölluðu
þá ýmislegt. Að skóla-
námi loknu fór hvor
sína leið og sneri
Coraci sér að gerð
stuttmynda, tónlist-
armyndbanda og
heimildarkvik-
mynda. Þegar kom
að því að Adam
Sandler fór að halda
skemmtanir einn
síns liðs, kannski í
stóru leikhúsi, leit-
að hann til Coraci
imi hjálp og hafa
þeir unnið saman
síðan. -HK
Bobby Boucher gerlr klárt fyrlr lelk.
í dag verður frumsýnd gamanmyndin
The Waterboy, en mynd þessi sló heldur
betur í gegn í Bandaríkjunum fyrir stuttu
og þykir góð skemmtun.
Ofverndað
mömmust
sýnir óvæ
hæfileika
þar sem sjálft goðið Brad Pitt leikur dauðann.
Dauðinn banka
Soldier ★
Mulan ★★★★
Bíóhöllin/Saga-bíó
Practical Maglc Bullock og Kidman hafá,
held ég, aldrei veriö eins góöar og njóta sín vel
í þessum klikkuöu hlutverkum og Wiest og
Channing skemmta sér greinilega konunglega
sem miöaldra nornamömmur. Practical Magic
tekur sig aldrei of alvarlega og þaö er þaö sem
gerir hana aö þeirri ánægjulegu skemmtun sem
hún er. -úd
ril Be Home for Christmas ★★
Star Kid *i
Háskólabíó
Egypskl prlnslnn ★★★★ The
Prince of Egypt ertækniundur
og sannkallað augnakonfekt.
Ef hægt er að tala um epíska
teiknimynd þá er þetta slík
mynd. Meö The Prince of Eg-
ypt má segja að teiknimyndir
sem geröar eru sem fjöl-
skylduskemmtun taki breytingum. Ekki er verið
að beina sérstaklega augunum aö börnum
heldur einnig komið á móts við þá sem eldri eru
og þroskaðri. -HK
Tímaþjófurinn ★★★ Bullock og Kidman hafa
held ég aldrei verið eins gðöar og njóta sín vel
þessum klikkuöu hlutverkum og Wiest og
Channing skemmta sér greinilega konunglega
sem miðaldra nornamömmur. Practical Magic
tekur sig aldrei of alvarlega og það er það sem
gerir hana að þeirri ánægiulegu skemmtun sem
hún er.
What Dreams May Come icki.
Taxl ★★★
Out of Slght ★★★
Maurar ★★★
Kringlubíó
Enemy of the State ★★★ Virkilega vel gerö
spennumynd þar sem persónur veröa nánast
aukanúmér við hliöina á
njósnatækni nútímans.
Það er gífurlegur hraði í
myndinni sem gefur henni
vissan trúverðugieika þeg-
ar njósnatæknin er höfö I
huga og þessi hraöi gerir
það líka að verkum aö
minna áberandi veröur tilviljanakennt handritiö
þar sem samtölin bera oft þess merki að til aö
„plottiö" gangi upp verði aö fara ýmsar vafa-
samar leiöir. -HK
Laugarásbíó
Rush Hour ★★★ Þaö var því snjallt aö etja
Jackie Chan saman viö Chris Tucker sem slær
út sjálfan Eddie Murphy þegar kemur aö kjafta-
vaöli. Þessir tveir ólíku leikarar ná vel saman í
Rush Hour sem er fyrst og fremst vel heppnuð
gamanmynd enda eru yfirleitt slagsmálaatriöin
útfærð á þann hátt að áhorfandinn getur hlegiö
um leiö og hann fylgist spenntur meö. -HK
The Odd Couple II ★★ Þegar Walter Matthau og
Jack Lemmon léku þá Felix og Oscar í The Odd
Couple fyrir þrjátíu árum voru þeir báöir á mik-
illi uppleiö sem leikarar og áttu eftir aö standa
á hátindi í mörg ár. Það vantar því ekki gæða-
stimplana á framhaldiö en því miður reynast
gæöin aðeins vera á yfirborðinu því eftir ágæt-
an upphafskafla verður myndin að nokkrum vel
þekktum fimmauraþröndurum sem þeir félagar
ná allt of sjaidan aö gera sér mat úr. -HK
Blade ★★★
The Truman Show ★★★
Regnboginn
There's Somethlng about
Mary ★★★ Fjórir lúöar eru
ástfangnir af sömu Mary.
Cameron Diaz er í topp-
formi, Matt Dillon alveg ðtrú-
lega skemmtilegur sem
slímugur einkaspæjari og
Ben Stiller er fæddur lúöi.
En nú er tími lúöanna og þrátt fýrir að pólitísk
rétthugsun sé þeim bræörum eitur í beinum er
greinilegt aö ekki þykir nógu PC lengur aö láta
lúðana tapa, llkt og þeir geröu í Dumb and
Dumber. Og á því tapa þeir. -úd
Dr. Doolittle ★★★
Stjörnubíó
Vampírur ★★★ Á köfium er heilmikill slagkraft-
ur I þessari mynd og greinilega markvisst unniö
meö aö skapa hressandi kúl vampýrur (líkt og I
Blade) plús töff vampýrubana. En þrátt fyrir
smart takta og skemmtilega íróníu á stundum
hjá Woods náöi Vampires aldrei aö hefja sig
upp á sviö stjarnanna þriggia. -úd
Urban Legend ★★★
Dauðinn getur birst á óvæntan hátt eins
og áhorfendu fá að kynnast í Meet Joe Black,
í byrjun myndarinnar Meet Joe
Black kynnumst við ungum
Brad Pttt og Claire Forlani lelka
elskendurnar í Meet Joe Black.
manni (Brad Pitt) sem rekst á
læknanemann Susan Parish
(Claire Forlani) rétt áður en
hann mætir örlögum sínum og
deyr. Dauðinn íklæðist líkama
unga mannsins og fer á stjá til að
takast á við næsta fómarlamb sitt
sem er faðir Susan, fjölmiðlakóng-
urinn William Parish (Anthony
Hopkins). Fjölmiðlakóngurinn er
ekkert á því að drepast í einum
hvelli og býður Dauðanum að
kynnast lífsstíl hinna ríku fyrir
aukavist á jörðu niðri.
Meet Joe Black er lauslega gerð
eftir kvikmyndinni Death Takes a
Holiday frá árinu 1934 sem var
gerð eftir vinsælu leikriti: „Leik-
stjóri Meet Joe Black, Martin
Brest, segist hafa séð Death Takes
a Holiday fyrst fyrir tuttugu árrnn
og hafi þá strax verið viss um að
hægt væri að gera aðra og öðruvísi
Anthony Hopkins lelkur fjölmiðlakónginn Wllliam Parlsh.
kvikmynd eftir henni sem hann
hefur nú gert. Meet Joe Black þyk-
ir ákaflega áferðarfalleg og gott
drama en hefur aðallega fengið
gagnrýni út á það að vera of löng.
Martin Brest hefur lengi starfað
innan kvikmyndageirans í
Hollywood þó ekki liggi margar
myndir eftir hann. Þekktur varð
hann árið 1984 þegar hann leik-
stýrði Beverly Hiils Cop sem skaut
Eddie Murphy upp á stjömuhim-
inninn, þá hafði hann áður leik-
stýrt einni kvikmynd, Going in
Style. Fjórum ánun síðar leik-
stýrði hann Midnight Run með
Robert De Niro. Aftur liðu fjögur
ár þar til næsta mynd hans, Scent
of a Woman, leit dagsins ljós. Sú
kvikmynd fékk fjórar tilnefningar
til óskarsverðlauna og fékk A1
Pacino óskarinn fyrir leik i aðal-
hlutverki. Meet Joe Black er
fimmta kvikmyndin sem Martin
Brest leikstýrir á tuttugu áram.
-HK
meira á.|
wwwvisiris
Bíóborgin
Holy Man ★★ Hvað Eddie
Murphy hefur séð viö hlutverk
hins „heilaga manns“ er
erfitt aö koma auga á.
Kannski hefur hann hugsaö
sem svo aö þarna væri tæki-
færi fýrir hann að losna úrýkt-
um gamanhlutverkum.
Murphy hefur samt ekki erindi sem erfiði, þrátt
fyrir að hann beiti kjaftinum lítiö. Til þess er per-
sónan of veikburða og Murphy ekki nógu sterk-
ur á svellinu. -HK
*
<
15. janúar 1999 f ÓkllS
29
i