Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1999, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1999, Page 8
28 MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1999 Iþróttir Islandsmótið í badminton: Verð að vinna Pernilla Wiberg frá Svlþjóð tryggði sér sigur í tvikeppni á heimsmeist- aramótinu í alpagreinum í Vail í Colorado aðfaranótt laugardagsins. Hún sigraði þá í svigi og náði bestum árangri samanlagt í þeirri grein og risasviginu sem fram fór á miðviku- dag. enn Hermann Maier frá Austurríki sigr- aði siðan i bruni karla i fyrrakvöld. Þetta eru önnur gullverðlaun Maiers á mótinu en hann deildi sigrinum í risasvigi með Lasse Kjus frá Noregi. Að þessu sinni varð Kjus og Kjetil Andre Aamodt frá Noregi þriðji. - Elsa meistari í 7. skipti - Tomas Viborg í fyrsta skipti Nýtt nafn var ritað á Islands- meistarabikarinn í meistaraflokki einliðaleiks karla í badminton á ís- landsmótinu sem fram fór um helg- ina í 50. skipti. Tomas Viborg kom heim frá Svíþjóð þar sem hann hef- ur búið síðastliðin ár og sigraði æskufélaga sinn Tryggva Nielson, 17-14 og 15-9. Leikur Tomasar og Tryggva var bráðskemmtilegur. Tryggvi kom mjög sterkur til leiks og setti 9 stig áður en Tomas svaraði fyrir sig og jafnaði síðan, 12-12. Tomas komst þó ekki yfir i þessari lotu fyrr en í stöðunni 15-14 og tryggði sér síðan sigur, 17-14. Við það að snúa leiknum sér svona í hag efldist sjálfstraustið hjá Tomasi og með öruggri og agaðri spilamennsku tryggði hann sér sinn fyrsta íslandsmeistaratitil í meist- araflokki. „Þetta var mjög sveiflukenndur leikur, ég var alveg í klessu í byrjun og vissi ekkert hvað ég ætti að gera og gerðist sekur um mjög létt mis- tök og var ekki að hugsa neitt. En • svo náði ég upp baráttu og það gekk. 1 seinni lotunni spilaði ég að- eins einfaldara heldur en ég gerði í þeirri fyrri, reyndi að halda boltan- um inni á vellinum og það gekk, svo ég klúðraði ekki eins miklu. En leikurinn gegn Brodda í morgun sat svolítið i mér og það er mjög erfltt að spila tvo leiki á dag. Vegna þess hve sveiflukenndur leikurinn gegn Tryggva varð tók hann mjög mikla orku og var mjög erflður og ég er al- veg búinn,“ sagði Tomas Viborg, Is- landsmeistari í meistaraflokki karla 1999. Islandsmótiö mjög sterkt leik Elsu Nielsen og Brynju Péturs- dóttur í meistaraflokki kvenna. Elsa, sem hefur orðið íslands- meistari oftar en nokkur önnur, var álitin sigurstranglegri og því kom það nokkuð á óvart að Brynja skyldi sigra í fyrstu lotu, 13-12. Brynja lék þá mjög skynsamlega, var einbeitt og hafði undirtökin nær alla lotuna. En reynsla Elsu Nielsen í úrslita- leikjum sem þessum kom henni til góða og það tók hana aðeins rúmar 8 mínútur að jafna leikinn með ör- uggum sigri í annarri lotu 11-1. Oddalotan var mjög vel leikin, jöfn, spennandi og bráðskemmtileg. Elsa hafði yfirhöndina framan af og komst í 7-2, þá jafnaði Brynja, 7-7, en lengra komst hún ekki þó vissu- lega væri hún nærri því að jafna aft- ur í stöðunni 10-9. En Elsa gaf sig ekki og tryggði sér sinn sjöunda ís- landsmeistaratitil. „Þetta var mjög erfiður leikur gegn Brynju og sennilega erfið- asti úrslitaleik- ur sem ég hef spilað. Reyndar hef- ur íslands- mótið núna verið mjög sterkt. Það er bæði meiri breidd í meistaraflokkn- um og við erum jafnari, þar get ég nefnt einstaklinga eins og Söru (Jónsdóttur), Katrínu (Atladóttur) og Vigdísi (Ásgeirsdóttur). Ég var búin að setja mér það markmið að vinna bikarinn sjö sinnum en það hafði enginn gert áður og núna hafðist það. En ég verð helst að vinna einu sinni enn til að eignast þennan bikar," sagði Elsa Nielsen, íslandsmeistari í meistaraflokki kvenna 1999. Tvíliöa- og tvenndarleikur Ítvíliðaleik karla sigruðu þeir Broddi Kristjánsson og Guðmundur Adolfsson þá Svein Sölvason og Tryggva Nielsen, 15-4 og 15-10. I tvíliðaleik kvenna sigruðu Brynja Pétursdóttir og Elsa Nielsen þær Katrínu Atladóttur og Söru Jónsdóttur, 15-7 og 15-3. í tvenndarleik sigruðu Broddi Kristjánsson og Drifa Harðardóttir þau Þorstein Hængsson og Vigdísi Ásgeirsdóttur, 15-13, 5-15 og 15-11, í úrslitaleik. Þorbjörg Kristinsdóttir Björk Krist- jánsdóttur, 11-9, 2-11 og 11-6. í a- flokki sigraði Oddný Hróbjartsdótt- ir Evu Petersen, 11-3 og 11-3. í tvíliðaleik kvenna i b-flokki sigruðu Ásthildur Dóra og Hildur Nielsen þær Sofíiu Kairenius og Helgu Bjömsdóttur, 15-5 og 15-7. Og í a-flokki sigruðu Hrund Guð- mundsdóttir og Sigríður Guð- mundsdóttir þær Þorbjörgu Krist- insdóttur og Tinnu Helgadóttur, 13-15, 15-10 og 15-10. í tvíliðaleik karla í b-flokki sigr- uðu Daði Amgrímsson og Birgir Ólafsson þá Kjcirtan Einarsson og Óðin Ólafsson, 15-9, 8-15 og 15-6. Og í a-flokki sigmðu Haraldur Guð- mundsson og Björn Jónsson þá Frí- mann Ferdinandsson og Kristján Kristjánsson, 15-11 og 15-10. í tvenndarleik í b-flokki sigruðu Anna Óskarsdóttir og Kjartan Ein- arsson þau Gunnar Kristjánsson og Helgu Bjömsdóttur, 15-8, 7-15 og 154. Og í a-flokki sigmðu Víðir Bragason og Siv Friðleifsdóttir þau Kristján Kristjánsson og Hel- enu Óskarsdóttur, 154 og 15-6. -ih Urslit i a- og b-flokk um í einliðaleik Jgj karla í b-flokki Æf sigraði Baldur ® H. Gunnarsson R og í a-flokki sigraði Helgi Jó- ’ hannesson. /I í einliðaleik '{■? kvenna í b- -Á flokki sigr- aði - Michael Long frá Nýja-Sjálandi sigr- aði á Greg Norman Intemational golf- mótinu sem lauk í Sydney i Ástraliu í gaer. Hann lék á 283 höggum, landi hans Michael Campbell á 284 en Bernard Langer frá Þýskalandi klúðraði illa á síðustu holu og varð þriðji á 285 höggum. Greg Norman sjálfur komst ekki áfram eftir tvo fyrstu dagana og það hefur ekki áður gerst hjá honum i 22 ár. Martina Hingis frá Sviss sigraði Amanda Coetzer frá Suður-Afríku með miklum yfírburðum, 6-2 og 6-1, í úrslitaleik á Kyrrahafsmótinu í tennis í Tokyo í gær. Hingis er þar með orö- in efst á heimslista kvenna á ný. Öystein Havang skoraði 11 mörk fyr- ir Sandefjord frá Noregi sem vann Esbjerg i Danmörku, 22-24, í 8-liða úrslitum EHF-bikarsins i handbolta á laugardag. Sandefjord haföi einnig unnið heimaleikinn með 2 mörkum. Jóhann Hermannsson, knattspyrnu- maður úr KA, var á fóstudag úr- skurðaður í eins árs keppnisbann af aganefnd KSÍ. Hann rotaði Rúnar Steingrímsson dómara i 2. flokks móti á Akureyri um fyrri helgi. Þjóðverjar fengu einn versta skell sinn á knattspymuvellinum á laugar- daginn þegar þeir steinlágu fyrir Bandaríkjamönnum, 3-0, í vináttu- landsleik i Jacksonville í Flórída. Til að núa salti í sárin voru það allt leik- menn með þýskum liðum, Jovan Kirovski frá Fortuna Köln, Tony Sanneh frá Herthu og Claudio Reyna frá Wolfsburg, sem gerðu mörkin á fyrstu 26 mínútunum. Eyjólfur Sverrisson og félagar i Herthu Berlín sigruðu Lokomotiv frá Moskvu, 3-0, í æfingaleik á laug- ardag. -VS Það þurfti oddalotu til að knýja fram úrslit í Tomas Viborg og Elsa Nielsen með íslandsbikarana í ein- liðaleik í badminton 1999. DV-myndir Hilmar Þór KFÍ (39) 86 ÞórA. (28) 71 íslandsmeistarinn 1949, Einar Jóns- son, óskar íslandsmeistaranum 1999, Tomasi Viborg, til hamingju. 5-2, 12-4, 19-10, 22-18, 27-19, 32-22, 37-26, (39-28), 44-30, 55-32, 6040, 6244, 68-52, 73-56, 81-61, 86-71. Stig KFÍ: James Cason 32, Ólafur Ormsson 17, Hrafn Kristjánsson 12, Mark Quashie 9, Baldur Ingi Jónas- son 6, Ragnar Þrastarson 4, Pétur Sigurðsson 4, Tómas Hermannsson 2. Stig Þórs: Brian Reese 25, Sig- urðm- Sigurðsson 8, Einar Örn Að- alsteinsson 7, Óðinn Ásgeirsson 7, Davíð J Guðlaugsson 5, Magnús Helgason 5, John Cariglia 5, Konráð Óskarsson 4, Hafsteinn Lúðvíksson 4, Hermann D. Hermannsson 1. Fráköst: KFÍ 50, Þór 33. 3ja stiga körfur: KFl: 18/5, Þór 29/6. Vítanýting: KFl 34/21, Þór 18/11. Dómarar: Einar Skarphéðinsson og Erling- ur S. Erlingsson, stóðu fyrir sinu. Áhorfendur: 250. Maður leiksins: James Cason, KFÍ. Isflrðingar unnu tvö dýrmæt stig þeg- ar Þórsarar komu í heimsókn á fóstu- daginn var og halda fast í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar, nú með 20 stig, tveim stigum á eftir Grindavík sem er í fjórða sæti. ísfirðingar settu nokkrar ágætar körf- ur en gerðu sig oft seka um slæm mistök i sókninni og nýttu færin illa en það kom ekki að sök. Vörnin var fln og það var hún sem hélt Þórsurum í hæfilegri fjarlægð. Leikurinn var ekkert fyrir aug- að, mikið um villur og léleg skot. Bestur ísflrðinga var James Cason. Hrafn Krist- jánsson var mjög duglegur. Hjá Þórsur- um var Brian Reese atkvæðamestur. -AGA einu sinni Bland * i P oka

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.