Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1999, Qupperneq 1
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
Newcastle
í 8-liöa
úrslitin
í enska
bikarnum
bls. 20-21
Svissneska stúlkan Martina Hingis, sem hér sést einbeitt á svip, komst auðveldlega áfram í 3. umferð á opna Parísarmótinu í tennis í gær. Hingis sigraði
Söndru Nacuk frá Júgóslavíu f tveimur settum, 6-1 og 6-1. Þá komst bandaríska stúlkan Serena Williams í þriðju umferðina með því leggja Nathalie Tauziat
frá Frakklandi, 6-1 og 6-4.
Símamynd Reuter
^ Styrkleikalisti FIFA:
Islendingar í 61. sæti
íslenska landsliðið í knattspymu er í
61. sæti á nýjum styrkleikalista Alþjóða
knattspyrnusambandsins sem gefinn var
út í gær. ísland hefur því lækkað niður
um eitt sæti en fyrir mánuði var
landsliðið í 60. sæti.
Brasilíumenn eru sem fyrr í efsta sæti
listans en fast á hæla þeim koma
heimsmeistarar Frakka.
Efstu þjóðimar á listanum em:
1. Brasilía ......................827
2. Frakkland .....................786
3. Ítalía .......................742
3. Króatía.......................742
5. Þýskaland ....................738
6. Argentína.....................727
7. Tékkland .....................716
8. Holland ......................706
9. Spánn.........................698
10. England ....................695
England er í 11. sæti, Noregur í 13.
sæti, Svíþjóð í 14. sæti og Danmörk er í
15. sætinu.
-GH
Lee áfram
með Suhr Kóeramaðurinn Suk-Hyung Lee, fyrrum markvörður FH-inga í handknattleik, hefur framlengt samning sinn við svissneska A- deildarliðið Suhr. Lee gekk í raðir liðsins í sumar og gerði þá eins árs samning við félag- ið og í vikunni skrifaði hann undir nýjan samning. FH-ingar vora i viðræðum við Lee með það J fyrir augum að fá hann aftur til sin fyrir
næstu leiktíð en nú er ljóst að svo verður ekki. -GH
- stökk 4,30 metra og sigraði á alþjóðlegu móti í Aþenu í gær
FH-ingurinn Þórey Edda Elís-
dóttir sigraði í stangarstökki
kvenna á alþjóðlegu móti í Aþenu
í Grikklandi í gærkvöld.
Þórey stökk 4,30 metra sem er
langbesti árangur hennar frá upp-
hafi en best átti hún 4,21 metra
sem hún stökk á móti í Svíþjóð
fyrir háifum mánuði. Önnur á
mótinu í Aþenu í gær varð s-
afríska stúlkan Elmarie Gerryts
en hún stökk 4,25 metra.
Þetta er í fyrsta sinn sem Þórey
sigrar á alþjóðlegu móti en mótið í
Aþenu er eitt af stóm mótunum á
mótaskrá Alþjóða frjálsíþrótta-
sambandsins. Með stökkinu í gær
er Þórey kominn í hóp þeirra
bestu í heiminum og verður fróð-
legt að fylgjast með henni í fram-
tíðinni. Hún er komin i 8.-12. sæti
á heimslistanum en Vala
Flosadóttir er fjórða.
Keppir í Stokkhólmi í kvöld
í gær var Þóreyju boðið að taka
þátt í alþjóðlegu stórmóti í Stokk-
hólmi sem fram fer í kvöld en það
tengist svokölluðum Rioch Tour.
Þar mun hún etja kappi við marg-
ar af bestu stangarstökkskonum
heims þar á meðal Völu Flosadótt-
ur sem nýlega vippaði sér yfir 4,40
metra. Um helgina keppir svo
Þórey á móti í Sindelfingen í
Þýskalandi. -GH
John Toshack er aftur
kominn til Real Madrid.
Toshack
aftur til
Real Madrid
Walesverjinn John Toshack
var í gærkvöld ráðinn þjálfari
spænska stórliðins Real Madrid.
Hann tekur við liðinu af Hollend-
ingnum Guus Hiddink sem rek-
inn var úr starfi þjálfara í gær-
morgun eftir 7 mánaða starf. Tos-
hack kemur til Madridariiðsins
ffá tyrkneska liðinu Besiktas en
þar hefur hann verið óánægður
við stjómvölinn síðasta eina og
hálfa árið.
Toschak er vel kunnugur
spænskri knattspymu. Hann
þjálfaði lið Real Sociedad
1985-1989 og þaðan fór hann til
Real Madrid. Hann stýrði Real
Madrid tO sigurs í deildarkeppn-
inni tímabilið 1989-90 en fékk að
taka poka sinn ári síðar. Tos-
hack fór aftur til Sociedad og var
þar í 3 ár áður en var síðan rek-
inn. Árið 1995 tók hann við liði
Deportivo og var þar við stjóm í
2 ár en hélt síðan til Tyrklands.
-GH
Þýski handboltinn:
Tap hjá
íslensku
liðunum
Flensburg heldur sínu striki í
þýsku A-deildinni í handknatt-
leik. Liðið burstaði Róbert Dura-
nona og félaga hans í Eisenach á
útivelli í gær, 16-29. Duranona
var markahæstur í liði Eisenach
með 4 mörk en hjá Flensburg
skoraði Jan Fegter 7 mörk.
Ólafur Stefánsson skoraði 5
mörk fyrir Magdeburg en það
dugði skammt því Magdeburg lá
á útivelli fyrir Niederwúrzbach,
25-23. Svíinn Stefan Lövgren var
í miklu stuði í liði heimamanna
og skoraði 9 mörk.
Lemgo hafði betur gegn Nettel-
stedt í hörkuleik, 21-20, þar sem
Daniel Stephan var markahæst-
ur í liði Lemgo með 5 mörk.
Þá sigraði Kiel lið Grosswall-
stadt, 30-25.
Staða efstu liða:
Flensburg 21 16 3 2 591-473 35
Lemgo 21 16 0 5 523-455 32
Kiel 21 14 2 5 575-477 30
GrosswaUst.22 11 2 9 578-549 24
Essen 22 10 3 9 523-518 23
Niederw. 22 10 3 9 557-555 23
Nettelstedt 23 10 3 10 550-579 23
Lærisveinar Alfreðs Gíslason-
ar í Hameln héldu sigurgöngu
sinni áfram í í norðurhluta B-
deildarinnar. Hameln sigraði
Bremen í gærkvöld, 21-18.
Hameln er með 53 stig í efsta
sæti en Nordhom kemur í öðm
sætinu með 50 stig.