Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1999, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 25. MARS 1999
19
8-liða úrslitin
í handboltanum
hefjast í kvöld
Bls. 20-21
Arna Steinsen, Þuríður Hjartardóttir og Díana Guðjónsdóttir fagna öruggum sigri á ÍBV og um leið sæti í undanúrslitum 1. deildar kvenna í handknattleik, þar
sem þær mæta FH. Á innfelldu myndinni er Hugrún Þorsteinsdóttir, markvörður Fram, með son sinn en hún varði mark Fram vel gegn ÍBV. Hilmar Þór
Þýski handboltinn:
Niu mörk
hjá Óla
- í sigri Magdeburg - Essen og
Eisenach töpuðu
Ólafur Stefánsson skoraði 9
mörk, þar af 7 úr vítaskotum, þegar
Magdeburg sigraði Dutenhofen,
24-17, í þýsku A-deildinni í hand-
knattleik í gær.
Róbert Duranona skoraði 2 mörk
fyrir Eisenach, sem steinlá á úti-
velli fyrir Kiel, 36-25. Svíinn Magn-
us Wislander fór á kostum í liði Kiel
og skoraði 13 mörk, Perunicic skor-
aði 6 og Nicolaj Jacobsen einnig.
Niederwúrzbach stöðvaði sigur-
göngu Flensburg og sigraði á heima-
velli, 27-25. Frakkinn Joulin skor-
aöi 7 mörk fyrir Niederwúrzbach og
sænski landsliðsmaðurinn Stefan
Lövgren 6. Flest bendir til þess að
Niederwúrzbach verði gjaldþrota.
Aðalstyrktaraðli félagsins hefur
ákveðið að hætta og er liðið illa
statt fjárhagslega. Stefan Lövgren
gengm- líklega í raðir Lemgo fyrir
næstu leiktíð en óvist er hvert aðrir
leikmenn liðsins fara.
Páll Þórólfsson og félagar hans í
Essen töpuðu fyrir Lemgo á útivelli,
24-22. Páll skoraði 4 mörk fyrir
Essen og átti mjög góðan leik.
Flensburg er efst í deildinni með
37 stig, Lemgo er með 36 og Kiel 34.
Essen er í 7. sæti með 25 stig og
Magdeburg í 8. sæti með 24. Eise-
nach er í 13. sæti með 20 stig.
Héðinn skoraði 9 í sigri
Dormagen
í suðurhluta B-deildarinnar vann
íslendingaliðið Bayer Dormagen
sigur á Dússeldorf á útivelli, 17-24.
Héðinn Gilsson var markahæstur í
liði Dormagen með 9 mörk, Daði
Hafþórsson skoraði 2 og Róbert Sig-
hvatsson 1. Dormagen er efst með 51
stig, Willstátt, lið Gústafs Bjama-
sonar, er í öðru sæti með 48 stig og
Leuterhausen í því þriðja með 46.
„Við þurfum að vinna tvo af síð-
ustu fjórum leikjunum og þá erum
við komnir upp. Ég held að okkur
eigi að takast það,“ sagði Róbert
Sighvatsson við DV í gær.
-GH
Handbolti:
Gunnar áfram
með Gróttu/KR
Gunnar Gunnarsson hefur
verið endurráðinn þjálfari
kvennaliðs Gróttu/KR í hand-
knattleik og mun hann stýra lið-
inu til næstu tveggja ára. Gunn-
ar var ráðinn til félagsins fyrir
tæpu árið síðan og hefur á þeim
tíma unnið mikið uppyggingar-
starf hjá félaginu. Mikill hugur
er f forráðamönnum liðsins að
koma því í fremstu röð á næstu
árum, en mikill efhiviður er hjá
félaginu.
Allir þeir leikmenn sem léku
með Gróttu/KR í vetur verða
með á næsta tímabili og er stefnt
að þvi að styrkja liðið enn frek-
ar.
-GH
Fanney átti
stórleik
Fanney
Rúnarsdótt-
ir, mark-
vörður ís-
lenska
landsliðsins
í handknatt-
leik, átti
stórleik með
liði sínu
Tertnes í
norsku A-
deildinni f handknattleik í gær-
kvöld. Fanney varði 26 skot, þar
af 3 víaköst, þegar Tertnes vann
stórsigm- á Selbu, 39-22. Tertnes
er í öðru sæti deildarinnar og er
í harðri baráttu við Byásen um
annað sætið, en liðin mætast í
síðustu umferð deildarinnar.
-GH
Knattspyrna:
Leiftur sigraði
í Portúgal
Leiftur sigraði portúgalska 2.
deildar liðið Louletano, 1-0, á
móti á Algarve í Portúgal í gær.
Það var Brasilíumaðurinn Alex-
ander sem skoraöi markið fyrir
Leiftur. Mótið heldur áfram í dag
og leika þá meðal annars Eyja-
menn gegn Olhanense frá Portú-
gal. Leiftur leikur á morgun gegn
1. deildarliðinu Farense.
Auk Leifturs og Eyjamanna
eru á Algarve: Dalvík, Keflavík,
Skallagrímur, Breiðablik, FH,
Fylkir og Valur. Kvennalið ÍBV,
Stjömunnar og Breiðabliks eru
einnig á svæðinu. Þar var í gær
20 stiga hiti og skýjað.
-JKS
Auðun ekki á
leið til Bolton
Colin Todd, knattspymustjóri
enska B-deildarliðsins Bolton,
vísar þeim fréttum á bug að
hann hafl sýnt áhuga á að kaupa
landsliðsmanninn Auðun Helga-
son frá norska liðinu Viking
Stavanger. Blað i Noregi greindi
frá því vikunni að Todd vildi
kaupa Auðun og væri tilbúinn að
greiða fyrir hann um 90 milljón-
ir króna.
Þegar DV bar þessar fréttir
undir Auðun hafði hann ekkert
heyrt af þessu, en hann vissi til
þess að umboðsmaður sinn væri
alltaf með einhverjar fyrir-
spumir frá öðrum félögum.
-GH