Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1999, Qupperneq 4
22
FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1999
Sport
DV
Draumalið
DV
Tveimur umferðum er lokið í
úrvalsdeildinni í knattspyrnu,
og þar með er lokið tveimur
fyrstu umferðunum í drauma-
liðsleik DV.
Tvö lið, Gúra snúra og Hrafn-
arnir, eru jöfn og efst með 34 stig
en fjöldi liða fylgir í kjölfarið.
Eftirtalin lið eru í efstu sætun-
um. Bókstafur fyrir aftan nafn
liðs táknar landshlutann, en sér-
stök keppni er innan hvers
landshluta.
00538 Gúra snúra V .............34
03667 Hrafnarnir................34
00527 Kría R....................30
00548 Fontur 2 R................30
02453 Ice-9 V...................29
00245 This is it! R.............28
00504 Úlfarnir HÞ A.............28
02447 Fagnaðarefni dagsins G ... 28
02704 Völsi United N ...........28
03575 Beckham United FC R .... 28
03683 Astria G .................27
03505 Fugazi R..................26
Steingrímur og Ágúst
stigahæstir
Tveir leikmenn hafa hlotið 13
stig í tveimur fyrstu umferðun-
um, Steingrímur Jóhannesson
úr ÍBV fyrir frammistöðu sína
gegn Leiftri í 1. umferð og Ágúst
Gylfason úr Fram fyrir leik sinn
gegn Keflavík í 2. umferð. Eftir-
taldir leikmenn eru stigahæstir
til þessa:
Steingrímur Jóhannesson, ÍBV . . 13
Ágúst Gylfason, Fram..............13
Albert Sævarsson, Grindavík ... 11
Sigursteinn Gíslason, KR...........7
Sumarliði Árnason, Víkingi.......7
Hákon Sverrisson, Breiðabliki ... 5
Jón Þ. Stefánsson, Val.............5
Zoran Daníel Ljubicic, Keflavlk . . 4
Birkir Kristinsson, ÍBV............4
Guðni Rúnar Helgason, ÍBV........4
Hjalti Jóhannesson, ÍBV ...........4
ívar Bjarklind, ÍBV ...............4
Kjartan Antonsson, ÍBV.............4
Hreiðar Bjamason, Breiðabliki . . 4
Rútur Snorrason, IBV ..............4
Lárus Huldarsson, Vikingi........4
Félagaskipti heimil
Frá og með deginum í dag og
til 31. júlí mega þátttakendur
skipta um leikmenn i sínum lið-
um. Skipta má um þrjá leikmenn
í hverju draumaliði og nú má
bæta við fleiri leikmönnum frá
sama félagi. Aðeins þarf að gæta
þess að skipta um leikmann i
sömu stöðu og að heildarverðið á
liðinu fari ekki upp fyrir 2,2
milljónir eftir skiptin.
Félagaskiptin má senda á faxi
í 550-5020 og á netfangið draum-
ur@ff.is. Einnig tilkynna þau
bréflega til íþróttadeildar DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Nauðsynlegt er að taka fram
númer viðkomandi leikmanna
(t.d. VM16, SM 27).
Félagaskipti sem tilkynnt
verða fyrir kl. 19 i dag taka gildi
fyrir leiki 3. umferðar.
Nýir leikmenn bætast við
Sömu leikmenn og áður
standa til boða, að viðbættum
nokkrum nýjum. Lista yfir leik-
mennina er að finna í DV 6. maí
og 12. maí og heildarlistinn verð-
ur aftur birtur í blaðinu í næstu
viku. Auk þess er listann nú að
fmna á íþróttavefnum á Visir.is.
Nýju leikmennimir sem nú
bætast við eru eftirtaldir:
VM51 Zoran Miljkovic, ÍBV . 250.000
VM52 Gordon Forrest, Leiftri 150.000
VM53 Stevo Vorkapic, Grind. 150.000
VM54 Arnar Hallsson, Vík. . . 50.000
TE51 Bjarki Gunnlaugss., KR 350.000
TE52 Ásgeir Halldórss., Fram 150.000
TE53 Ásmundur Arnarss, Fr. 250.000
SM31 Duro Mijuskovic, Grind 150.000
SM32 Jón Grétar Ólafss, Vík. . 50.000
Síðustu draumaliðin
Tilvísunarnúmer síðustu
draumaliðanna sem skráð voru
til leiks eru sem hér segir:
03840 Draumur
03842 Kraftwerk
03843 Reynir Á.
03844 Staupi FC
03845 Austurver FC
03846 Lax FC
03847 Brimnes
3. umferðin hefst í kvöld:
Enginn úti-
sigur enn
Fjórir leikir fara fram í úrvals-
deildinni í knattspymu í kvöld. ís-
landsmeistarar ÍBV taka móti
Grindavík og verða Eyjamenn
gera betur en í síðasta leik. Hörð
rimma verður í Keflavík þar sem
heimamenn taka á móti Skaga-
mönnum en bæði liðin hafa byrjað
mótið illa. Ekkert annað en sigur
hjá. báðum liðum kemur til greina.
Breiðablik og Fram leika í Kópa-
vogi og KR og Valur á KR-velli.
Allir leikirnir hefjast klukkan 20.
Umferðinni lýkur á laugardag með
leik Víkings og Leifturs.
Þess má geta að Bjarki Gunn-
laugsson verður í leikmannahópi
KR-inga í leiknum gegn Val í
kvöld. Siðdegis í gær voru 700 mið-
ar seldir í forsölunni hjá KR.
. Nú þegar tvær umferðir eru
búnar af úrvalsdeildinni í
knattsyrnu, fyrir utan frestaðan
leik Leifturs og KR, vekur athygli
að enn hefur ekki unnist leikur á
útivelli. Reyndar hafa útiliðin að-
eins náð í 3 stig af 27 mögulegum,
eða 11% þeirra stiga sem í boði
hafa verið. Það hefur aldrei gerst
áður í sögu 10 liða deildar að það
hafi ekki unnist útisigur í fyrstu
tveimur umferðunum.
KR-ingar eru deildarinnar eina
von um að bjarga því en þeir geta
samt ekki forðað þessu sumri frá
meti í 10 liða deild,
því fæstir sigrar á
útivelli í 10 liöa deild
eru tveir hjá 10 árum,
síðast í fyrra. Aldrei
hafa útiliðin áður náð í
jafn fá stig og nú eða 3 en
árin 1980 og 1985 náðu úti-
liðin aðeins í 7 stig. 1980 er
uppfært líkt og 3ja stiga
reglan hafi verið þá í gildi.
Útiliðin skora ekki mikið
Útiliðin hafa líka aðeins
gert 3 af 18 mörkum deildar-
innar til þessa en fæst mörk
útiliða í fyrstu tveimur um-
ferðunum eru 7 mörk
1980. Athyglisvert er að
sjá hvort útiliðin skila
fyrsta sigrinum i kvöld
þegar 3. umferðin fer í
gang.
-ÓÓJ/JKS
Valsmenn hafa aðeins skorað eitt mark á síð-
ustu 656 leikmínútum sinum í deildinni á KR-
vellinum. Eina mark Valsmanna á þessum
gerði Hördur Magnússon í 6-1 tapi
iumarið 1997.
ingar hafa unnið 4 af síðustu 6 leikj-
un og Valsmenn hafa ekki unnið deild-
t'rleik í Frostaskjólinu síðan 1991.
fiyjamenn hafa unnið alla fjóra
leimaleiki sína gegn Grindavík í
trfstu deild en jafhframt þvi hefur
ÍBV tapað 3 af 4 útileikjum sín-
um í Grindavik.
Grindavik var sióasta lið-
ið til að vinna iBV sem og
að skora hjá íslandsmeistur-
um Eyjamanna í deildinni
er
Grétar Hjartarson skoraði
sigurmark Grindvíkinga i leik
hðanna í 16. umferð í fyrra.
Keflavik hefur gengið afar iila
gegn ÍA suður með sjó. Keflavík hef-
ur aðeins unnið 2 af 18 heimaleikjum
sínum gegn ÍA frá 1977 og fyrir utan
sumarið 1994 er Keflvikingar unnu
báða leiki hðanna hafa þeir ekki
unnið Skagamenn síðan 1986,
eða í 16 leikjum.
-ÓÓJ
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari í handknattleik, er bjartsýnn á gott gengi gegn Svisslendingum í Aarau í kvöld.
Islendingar mæta Svisslendingum í undankeppni EM í kvöld:
- á gott gengi, segir Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari
íslenska landsliðið í handknatt-
leik leikur í kvöld afar mikilvægan
leik í undankeppni Evrópumóts
landsliða. Leikið verður gegn sterku
liði Svisslendinga í Sviss.
íslenska liðið æfði í höllinni í
Aarau I gær og Þorbjöm Jensson
landsliðsþjálfari sagði í samtali við
DV eftir æfmguna að allir leikmenn
íslenska liðsins væru heilir og til-
búnir í leikinn gegn Sviss.
„Svisslendingarnir eru mjög
frískir og þeirra lið er mjög sterkt.
Inn í lið þeirra em komnir Baum-
gartner og Kostandinovic en þeir
eru báðir leikmenn á heimsmæli-
kvarða. Við erum vel miðvitaðir um
mikilvægi þessa leiks og allir leik-
mennimir eru tilbúnir að leggja sig
100% fram í leiknum. Við höfum
verið að skoða svissneska liðið á
myndbandi en þeir töpuðu fyrir
Rússum á dögunum með þriggja
marka mun á heimavelli sínum,
24-27. Það er greinilegt að Sviss-
lendingar eru i góðu formi og þetta
verður því mjög erfiður leikur fyrir
okkur,“ sagði Þorbjöm Jensson.
Hann tilkynnir byrjunarlið íslands í
hádeginu í dag.
Vantar Valdimar og Konráð
íslendingar tefla fram sínu
sterkasta liði í dag ef frá em skildir
homamennimir Valdimar Grímsson
og Konráð Olavsson. Vissulega veik-
ir fjarvera þeirra íslenska liðið, sér-
staklega fjanæra Valdimars, en Þor-
bjöm taldi að þessi skakkafóll
myndu einungis þjappa mönnum
enn betur saman fyrir átökin í kvöld.
„Leikmennimir vita nákvæmlega
hversu mikilvægur leikur þetta er
fyrir íslenskan handknattleik. í
raun má segja að allir leikir í dag
séu orðnir mjög mikilvægir. Þetta
er því ekkert nýtt fyrir okkur,“
sagði Þorbjörn.
Verðum að leika agað, hvert
mark skiptir máli
Þorbjöm lagði í gær línurnar fyr-
ir leikinn í kvöld:
„Við verðum að leggja aðal-
áhersluna á mjög agaðan leik og
láta skynsemina ráða. Málið er ein-
falt, hvert einasta mark skiptir máli
því ef Sviss vinnur í kvöld og við
vinnum leikinn heima ræður
markatalan úrslitum um það hvor
þjóðin heldur áfram í keppninni. Ég
er þokkalega bjartsýnn á leikinn í
kvöld og tel okkur eiga góða mögu-
leika á sigri. Svisslendingamir eru
eflaust með sterkara lið á pappfrn-
um en það segir ekki alla söguna.
Það er frábær stemning í okkar
leikmannahópi og allir staðráðnir í
að selja sig dýrt,“ sagði Þorbjörn.
Reiknuðu eflaust með að
vinna okkur tvisvar
- Nú unnu Svisslenddingar lið
Kýpur með mun minni mun en við,
þar munaði yfír 20 mörkum. Kannt
þú skýringu á því?
„Ekki aðra en þá að þeir hafi met-
ið stöðuna þannig að leikir þeirra
gegn Kýpur skiptu ekki máli vegna
þess að þeir myndu vinna okkur í
báðum leikjunum. Vonandi skiptir
markatalan ekki máli þegar upp
verður staðið,“ sagði Þorbjöm Jens-
son. -SK
Ungverski þjálfarinn
kemur ekki til Eyja
Ekkert verður af komu ungverska þjálfarans til Eyja eins og vonast
hafði verið til. Magnús Bragason, formaður handknattleiksdeildar ÍBV,
sagði að upplýsingar um hann hefðu reyndust rangar og m.a. talaði hann
ekki stakt orð í ensku.
„Leitin að þjáifara stendur því enn yfir en við erum með allar klær úti
hér heima og erlendis. Við ætlum að vanda valið og erum að gera okkur
vonir um að málin komist á hreint fyrir aðra helgi," sagði Magnús við
DV í gærkvöld. -JKS
Annaöhvort búið eða
framhald í september
Ef ísland nær betri útkomu úr leikjunum gegn Sviss en Svisslending-
ar verður næsta verkefni landsliðsins að leika heima og heiman gegn
einhverri Evrópuþjóð í september.
Ekki er mögulegt að vita á þessari stundu hver andstæðingurinn yrði
þá. Ef ísland slær þann andstæðing út eftir tvo leiki er gatan greið til
Króatíu en þar fara úrslit Evrópukeppninnar fram í janúarmánuði í byrj-
un næsta árs. Ef ísland situr eftir er næsta verkefni að taka þátt í for-
keppni fyrir HM 2001 í janúar árið 2000. -SK